Vísir - 14.09.1926, Blaðsíða 2
VISIR
IfihTmw & Ol
Fyrirliggjandi:
Þukaðir ávextir: NtAarsoðnir ávextir:
Eplí, Ananas,
Apricoís, Pernr.
Ferskjnr, Apricots,
Blandaðir ávextir, Ferskjnr,
Ra innr, J*rðarber,
Svesfejur. Blandaðir ávextir.
Símskeyíi
Khöfn, 13. sept. FB.
Fögnuður á ítalíu.
Símað er frá Berlín, að mikill
fögnuður ríki um alla Ítalíu af
því Mussolini slapp óskaddaður,
er sprengikúlunni var varpað á
bifreið hans. pingmenn Fasc-
ista heimta, að það verði leitt i
lög, að þeir, er á sannast, að gert
hafi tilraun til þess að svifta
stjórnarherrann lífi, sæti dauða-
hegninu.
Arásir á Frakka.
Blöðin í Róm hafa hafið árás-
ir á Frakkland, fyrir að vera
griðastaður ítalskra and-Fasc-
ista. Heimta rómversku blöðin,
að Frakkar geri landræka alla
þá andstöðumenn Fascismans,
sem í Frakklandi eru búsettir,
og vinna á móti stefnu þeirra.
Andmæli Frakka.
Símað er frá París, að Frakk-
ar mótmæli kröftuglega hinum
ítölslcu árásargreinum og neita
því að þeir sjeu stuðningsmenn
andstöðumanna Fascismans á
einn eða annan hátt.
Verðlækkaniu.
Hin mikla hækkun krónunnar,
sem varö í fyrra, hefir sem vera
bar valdið all-mikilli verölækkun
á nauösynjum.
Þó hefir þessi verölækkun ekki
gengið jafnt yfir. Þaö eru enn
eftir *ýmsir þröskuldar eöa stífl-
ur, sem varna því, aö verðlagiö
geti jafnast, svo aö krónan geti
fest sig í núverandi verði, og þurfi
ekki að lækka af þeirri ástæöu, að
verðlagið sé of hátt.
Einn versti þröskuldurinn er
húsaleigan. Hafi hún verið sann-
gjörn í hitteðfyrra, þegar krónan
gilti ekki nema 50 aura, þá má
JOOÍXÍOOOOOtXÍtSÍÍtÍOOtÍOOOCOSCt
Karlmanns-
stígvél
sterk kr. 13.75.
nr.
SOOOOOOOtXÍOtltStÍtÍtitStSOtÍíiOtiOtÍt
Tómir kassar,
Hálmur og Viðarull með gjaf-
verði í
versl. B. H. BJARNASON.
nærri geta, hvort hún er sann-
gjörn nú, þegar krónan er orðin
80 aurar. Eigfnlega ættu það að
vera lög, að þegar breyting verð-
ur á gjaldeyrinum, þá skuli alt
verðlag að ákveðnum tíma liðn-
um hafa lagað sig þar eftir. Það
eina, sem hindrar slíka lagasetn-
ing, er crfiðleikirm við fram-
kvæmdina. Erlendis er almenning-
ur svo árvakur í þessum efnum,
að engri atvinnugrein getur hald-
ist uppi til lengdar að þrjóskast
gegn verðlækkun,. ef myntin hefir
hækkað. Slík þrjóska er ekki talin
sæmandi í viðskiftum.
Fleiri þröskuldir eru til en
húsaleigan, og má þar til nefna
flutningsgjöld ýms, einkum á bif-
reiðum. Þau hafa ekki lækkað neitt
að ráði, en það þýðir það sama
og að þau hafi hækkað eins og
krónan úr 50 aurvm upp í 80. —
Flutningsgjöld leggjast á allar
vörur meira 0g minna, og hjálpa
til að halda við óeðlilega háu
verðlagi.
Þá má minna á, að veitingasal-
ar hafa enn ekki lækkað veiting-
ar, og sagt er, að fæði sé víða selt
jafn dýru verði nú og fyrir tveim-
ur árum, Getur orðið þungt fyrir
námsfólk að sæta slíkum kjörum.
Allir vita, að farið er nú að
reyna mikið á gengisþol ísl'ensku
krónunnar, og hætta á að hún
lækki. Ef svo fer, að krónan hrap-
ar í verði, þá er ein af ástæðun-
um til þess sú, hvað innlenda verð-
lagið er hátt, hvað langan tíma
það tekur, að það lagi sig í sam-
ræmi við þá hækkun, sem varð á
krónunni. Aðalástæðan til hækk-
unar og lækkunar krónunnar er
auðvitað afkoma atvinnuveganna,
en hún er líka meira en lítið háð
verðlaginu í landinu.
Menn verða að láta sér skiljast
það, að ef við eigum að fara inn
á þá erfiðu braut, að hækka krón-
una upp í gullverð, þá er eitt
fyrsta skilyrði til þess, að það
geti tekist, að innanlandsverðlag-
’ð sé strax látið lækka í hlutfalli
við hækkun myntarinnar. Það
dugar lítið að skrá krónuna svo
og svo hátt, ef viðskiftin í land-
inu sjálfu fást ekki til að viður-
kenna hækkunina.
„Réttirn ap“
og Reykvíkingar.
Strangt eftirlit í vændum.
Þær sögur bárust hingað í fyrra
frá Skeiðaréttum og Reykjarétt-
um, að þar hefði mjög kent óreglu,
og var Reykvíkingum kent það að
nokkuru leyti, svo sem margir
minnast frá blaðagreinum i fyrra.
Svo mikil brögð voru að þessu
slarki í réttunum, að íbúar í fimm
hreþpum Árnessýslu sendu sýslu-
nefnd og sýslumanni harðorða
ákæru um það efni, með áskorun
um að' stemma stigu fyrir þe'ss
háttar framferði oftar. Fullyrt er,
að j'firvald Ásnesinga muni láta
gæta þess stranglega í haust, að
bannlögin verði ekki brotin í rétt-
unum, og nýtur til þess eindreg-
innar hjálpar alls almennings.
Vonandi er, að Reykvíkingar sjái
sóma sinn í því að forðast að gefa
tilefni til þess, að hægt sé að
kenna þeim um slark og óreglu í
réttunum, eins og gert var í fyrra,
og þá ef til vill ranglega. — Hvað
sem öðru líður, mega menn eiga
það víst, að hart verður tekið á
þeim, sem gera sig seka um óreglu
og ósæmilegt framferði í réttum
Ámesínga í haust.
T.
mmm
LbCANAníi
ljúffengar — mildar — þéttvafðar
20 stk. 1 kr.
Hreindýr.
Enginn veit hversu mörg hrein-
dýr muni nú vera til hér á landi.
Þau eru þó vafalaust fá móts við
það sem vera ætti. — Menn þykj-
ast vita, að altaf sé einhver slæð-
ingur hreindýra hér á Reykjanes-
fjallgarðinum og við og við kem-
ur það fyrir, að menn verða varir
við dýr og dýr á stangli. Fyrir
fáum árum, í snjóþyngslum á út-
mánuðum, sást eitt skamt fyrir
ulan Heiðarbæ í Þingvallasveit,
og víðar þykjást menn hafa orðið
þeirra varir. Eitthvað mun og aí
hreindýrum í óbygðum upp af
Múlasýslum eða Norður-Þingeyj-
arsýslu, en enginn veit tölu þeirra
og enginn hefir þeirra hið minsta
gagn.
Mér hefir verið skýrt svo frá,
að ungur og efnilegur bóndasonur
úr Borgarfjarðarhéraði hafi farið
utan síðastliðinn vetur til þess að
kynna sér hreindýrarækt. Ætlaði
hann sér, ef honum litist vel á, að
flytja nokkur dýr hingað til lands
og gera ræktun þeirra að atvinnu-
vegi. — Honum mun og hafa lit-
ist svo,'er til Noregs var komið
og hann hafði kynst hreindýra-
ræktinni þar, sem tiltækilegt
mundi og arðvænlegt að flytja
þessi harðgeru og þurftarlitlu dýr
hingað til lands, ekki síst þar sem
svo hagaði til, að hann býr (eða
faðir hans) við víðáttumikil
heiðalönd með óþrotlegri beit á
vetrum, sem ekki er hægt að láta
sauðfé ná til sakir fjarlægðar úr
bygð. Þessi áhugasami maður
sótti víst um innflutningsleyfi til
stjórnar vorrar, en hún mun hafa
neitað að ráði dýralæknis. — Er
mælt, að borið hafi verið við sýk-
ingarhættu (munn- og klaufa-
veiki). — Maðurinn batrðst þá til,
að hafa dýrin í girðingu og gæta
þeirra vel fyrst í stað eða svo
lengi, sem nokkur ástæða væri til
að ætla, að sýkingarhætta gæti af
þeim stafað. En alt kom fyrir
ekki. Honum var, að sögn kunn-
Regohlífar
komoar aftor,
Micchester
Laugaveg 40. Simi 894.
ugra manna, þverlega synjað um
innflutningsleyfi og við það féll að
sjálfsögðu ráðagerðin niður.
Hér verður enginn dómur á þaö
lagður, hvort rétt hafi verið af
stjórnarvöldunum að banna inn-
flutninginn eða ekki, en væntan-
lega hefði þó mátt búa svo um
hnútana, að engin sýkingarhætta
hefði þurft að stafa af hreindýr-
unum. — En hvað sem því líður,
og þó að ekki hafi orðið úr þess-
ari ráðagerð Borgfirðingsins, er
þó þess að vænta, að ekki líði
mörg ár, þangað til gerð veröur
gangskör að því, að fá hreindýr
inn í landið, þvi að ef skynsam-
lega væri á haldið, mundi geta
orðið að því mikið hagræði fyrir
einstaka menn og landiö í heild
sinni.
BóndL
SSTNDISALAN
5V=S>
ÍSÍXSOOOOOOCOCOÖÍ
Lægst
verð í
borginni. «
soooooooooocxxsooo
Hapaldarhúð
er best.
soooooootsootxsts
Afsláttur
af
öllu.
J7að er hægt að gera gæðakaup á allskonar ULLARTAUUM í KJÓLA
og KÁPUR, FATAEFNl frá 3.00 metr.
Ódýr LÉREFT, TVISTTAU, FLÓNEL og SIRS.
BRONT TAU, sterkt, á 3.75 í skyrtuna.
GLUGGATJALDAEFNI 0.75 mtr.
PRJÓNAGARN, afar ódýrt.
Mikið af SJÖLUM verður selt fyrir sérlega lágt verð.
Ennfremur PRJÓNADRAGTIR, KÁPUR og KJÓLAR.
ALFATNAÐUR karla frá 25.00 settið.
NÆRFÖT 2.50 stk. — SKYRTUR frá 3.00.
PEYSUR. — VINNUFÖT 4.90.
A t h. Fallega FRANSKA KLÆÐIÐ er líka niðursett.
Komið og atbugid verðið og vöpugædin.