Vísir - 16.09.1926, Qupperneq 2
VlSTR
Wtami i Ol
Fyrírliggjandi:
Þorkaðir ávextir: Nióursoðnir ávextir:
Epll, Ananas,
Apricots, Pernr,
Ferskjur, Apricots,
Blandaðir ávextir, Ferskjur,
Ráinur, Jarðarber,
Sveskjur. Blandaðtr ávextir.
f
HérmeB tilkynnist, að maðurinn minn, Egill Sveinsson trésmiður
andaðist á Landakotsspítala 15. sept.
Jarðarföria ákveðin síðar.
Sigríður Jónsdóltir.
Símskeyti
Khöfn 15. sept. FB.
ítalir fjandskapast 'við Frakka.
SímatS er frá Berlín, að sam-
kvæmt fregnum frá ítalíu, vaxi
æsingar þar í landi í garð Frakka
hröðum fetum og eigi blöðin
mestan þátt í því. Æsingarnar
grundvallast eingöngu á því, að
margir ítalir, er eigi gátu verið
óhultir um líf sitt á ættjörð sinni,
vegna pólitískra skoðana sinna,
settust að í Frakklandi, en nú
grunar ítalska stjórnin þá um að
vera með í ráðum um að ráða
niðurlögum Fascismans og myrða
Mussolini. Glögt dæmi þess, hve
æsingarnar eru á háu stigi er það,
að lögreglan heldur strangan vörð
við bústað sendiherra Frakka í
Róm dag og nótt.
Fulltrúi ítala talar við Briand.
Símað er frá Genf, að fulltrúi
ítalíu og Briand, utanríkisráð-
herra Frakklands, haíi átt tal
saman um banatilræðið og önnur
mál í sambandi við það. Briand
lcrefst þess, að ítölsku blöðin hætti
þegar árásum sínum á Frakkland
og neitar þvi harðlega, að gera
landræka þá andstæðinga Fasc-
ismans, sem leitað hafa hælis í
Frakklandi. Sagði Briand m. a.,
að Frakkland hefði altaf verið
griðastaður pólitískra flóttamanna
og mundi svo enn verða.
Hlutaveltur.
Mörg eru félögin í þessum bæ,
sum þörf, önnur miður þörf, eins
og gengur. — En flest munu þau
eiga sammerkt um það, að eiga við
örðugan fjárhag að búa. — Þess
vegna hafa þau tekið upp þann sið,
mörg þeirra að minsta kosti, að
efna til hlutaveltna að haustinu,
til þess að auka tekjur sínar. —
Ætti enginn maður að amast við
slíku, þar sem um líknarfélög er
að ræða eða önnur styrktarfélög
þarflegra málefna. öðru máli
Jjegnir, ef vitanlegt væri, að fé
því, er inn-kemur á hlutaveltum,
væri várið til óþarflegra hluta eða
bílífis. —
Síðastliðið haust og fram eftir
vetri, líklega fram undir jól, mátti
svo heita, að hlutavelta væri hald-
in í hverri einustu viku, og stund-
um fleiri en ein samtímis. Virðist
það nokkuð freklega að verið. —
Einstakir menn verða einatt fyrir
mikilli ánauð af ýmsum, sem fyrir
hlutaveltunum standa, um gjafir
o. s. frv. —■ Er full von að kaup-
menn og aðrir þreytist á því
kvabbi öllu saman. En það mega
íslenskir kaupmenn og borgarar í
þessum bæ eiga, að þeir víkjast
oftast vel undir, er til þeirra er
leitað um gjafir í þessu skyni og
öðru. Mundi það ósmá fúlga, ef
saman væri komin í einn stað í
peningum, er þeir hafa lagt fram
til hlutaveltu-gjafa síðustu 5—10
árin. — Og aðsókn almennings að
ldutaveltunum hefir og verið svo
mikil, að mörgum hefir ofboðið. —
Alt hefir „dregist upp“ á svip-
stundu og troðningurinn oft svo
mikill, að undrum sætir.
Því verður nú ekki neitað, að
þetta hlutaveltu-fargan er farið að
keyra úr hófi.
Fólk eyðir stórfé á þessum
„samkomum" og flestir bera lítið
úr býtum. — En sumir græða.
Og það eru „góðu drættirnir", seni
einkum freista náungans. •— Það
atvikast oft svo, að þeir hverfa.
seint af borðunum, Þeir eru, ef til
vill, dregnir snemma, en þeir eru
ekki hirtir fyrr en seint og síðar
meir, hvernig sem á því stendur.
— Dragi einhver „núll“ — og þau
eru oftast mörg — hugsar hann
sér að freista gæfunnar á ný og
svo koll af kolli. Það þykir leiðin-
legt, meðan góðir drættir eru á
borðunum, að hverfa svo frá, að
hafa ekki hrept eitthvað nýtilegt.
— Og svona gengur þetta. Pen-
ingarnir streyma í kassann, vonin
og áhættan kitla tombólugestinn,
og hann gerist örari og ákafari
eftir því sem lengra líður á kveldið.
Sú saga gengur um bæinn, að
stjórnarvöldin hafi nú tekið sig til
og bannað allar hlutaveltur í
haust. — Er mælt, að alt sé skorið
niður við sama trogið, þarft og ó-
þarft, enda er oft ilt að gera upp
á milli einstakra félaga i þeim
sökum.
Ekki er kunnugt að svo komnu
með hverju bann þetta er réttlætt.
— En getið hafa menn sér þess til,
að yfirvöldin vilji nú gerast for-
sjón manna um hversdagseyðslu
þeirra á fjármunum sínum og væri
það rétt eftir öðru úr þeirri átt. —
Skammsýnir menn, sem troðist
hafa upp í einhver valdasæti,
hyggja oft i fávisku sinni, að þeir
geti gert hitt og annað, sem allir
aðrir vita, að ókleift er að ráða við.
— Þeir geta meðal annars látiö
sér detta í hug i alvöru, að fólkið
geymi þá peninga i banka eða
buddu, sem það er reiðubúið til að
eyða á hlutaveltum, ef allar hluta-
veltur eru bannaðar. En slikt er
mesti misskilningur. — Þeir, sem
mestu hafa eytt á hlutaveltum í
þessum bæ, munu eyða sem því
svarar, hvort sem nokkur hluta-
velta verður haldin eða engin. —
Og stjórnárvöldin geta áreiðan-
lega ekki komið í veg fyrir þá
eyðslu. — Það er yfirleitt hin
mesta fásinna, að ímynda sér, að
komið verði í veg fyrir eyðslu
manna með því að banna þeim að
eyða peningum í ákveðnu augna-
miði. — Vilji maðurinn sóa pen-
ingunum, þá gerir hann það, þrátt
fyrir öll stjórnarbönn. — Það er
með eyðslmia eins og annað. Vilj-
inn til betrunar verður að koma
innan að, úr hugskoti mannsins
sjálfs. Annars er alt ónýtt.Ogþví er
það, að menn spara ekki skildinga
sína þó að stjórnarvöldin segi
þeim að gera það. — Þeir spara
því að eins, að þeir vilji gera það
siálfir. Og vilji þeir spara munu
þeir ekki sækja hlutaveltur til
muna, jafnvel þó að þær væri
haldnar daglega. — Það er vilji og
hagur hins einstaka manns, sem
ákveður eyðsluna, en ekki boð
eða bann stjómarvalda.
Ýms félög hér í bænum, sem
vön eru að ná inn nokkuru fé i
sjóði sina að haustinu með hluta-
veltum, munu nú verða fyrir
miklum vonbrigðum, er stjórnar-
völdin taka upp á því, að banna
allar hlutaveltur að þessu sinni.
Harðast og ómaklegast kemur
þetta niður á ýmsum líknarfélög-
um, sém berjast við fjárskort, en
eru alls góðs makleg og hafa unn-
ið mikið og gott starf. — Er það
í raun réttri hin mesta ósvinna, að
banna þeim hlutaveltuhald til
réttingar fjárhag sínum. — En
verði einum veitt leyfi, mun reyn-
ast torvelt að gera réttilega upp
á inilli margra félaga um leyfis-
veitingar, og væri því líklega rétt-
ast að vera ekki að basla við þetta
fcann. — En rétt væri að láta
líknarfélögin ganga fyrir, svo að
þau gæti haldið hlutaveltur sínar
fyrst, því að reynslan mun hafa
sýnt, að fyrstu hlutavelturnar á
hverju hausti eru best sóktar. —
Hinar, sem á eftir koma, falla þá
niður af sjálfu sér, ef fólkið vill
ekki sinna þeim
Borgari.
r
< ••I VV'" ‘ •
oniirs irnn
fœst nú aftur í
bókaverslunum.
s
„Snnrise"
ávaxtasnlta iæst
hvarvetna
Málailntningsskrifstoia
Bankastræti 9.
Undirritaðir taka að sér allskonar lögfræðileg störf, svo sem: mál-
flutning, innheimtur, samningagerðir, láutökur og kaup og sölu fasteigna.
Skrifstofutími kl. 10—12 f. h. ög og 1—6 e. h.
Guðm. Benediktsson, Adolph Bergsson,
lögfræðingar.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 6 st., ísafirði
í:. Akureyri i, Seyðisfirði 3,
Grindavik 5, Stykkishólmi 6,
Grímsstöðum 1, Hólum í Hofna-
firði 4, (engin skeyti frá Vest-
mannaeyjum og Raufarhöfn),
Þórshöfn í Færeyjum 3, Angmag-
salik (í gærkveldi) frost 3 st.,
Kaupmannahöfn hiti 12 st, Utsira
8, Tynemouth 11, Leirvík 6, Jan
Mayen 1 st. — Mestur hiti í Rvík
síðan kl. 8 í gærmorgun 8 st.,
minstur 2 st. — Loftvægislægð
við suðvesturland á leið til aust-
urs. — Horfur: 1 dag: Hvöss
austanátt og regn á Suðurlandi.
Vaxandi austanátt og þurt veður
á norðvesturlandi og norðaustur-
landi. í n ó 11: Sennilega hvass
á austan með regni á Suðurlandi
og suðausturlandi. Allhvöss aust-
anátt og dálítil rigning á Vestur-
landi. Lítil úrkoma á Norðurlandi.
Píanókenslu
byrja ég undirntaöur.
Til viðtals kl. 8—9 e h
á Laufásveg 46 (Galtafell)
eða i síma 288 frá 12—1
og 7—8 e. h.
Gunnar Signrgelrsson.
m,
Bæjarstjómarfundur
verður haldinn í dag kl. 5 síð-
degis. Tólf mál á dagskrá, þar á
meðal kosning eins manns í skóla-
r.efnd og útsvarsmál.
St. Mínerva
heldur fund í kveld kl. 8)4.
Atvinnuleysi.
Samkvæmt tillögu nefndar
þeirrar, sem er að rannsaka at-
vinnuleysi í bænum, á nú að safna
skýrslum um atvinnulausa menn í
R^ykjavík. Mun það falið borgar-
stjóra.
SKTNDISALAN
Haraldarbúö er i fnllum gangi.
Feiknin öll að gæðavarningi selsl fyrir sára-
lítið verð.
Munið að Haraldur hefir ávalt mest úrval af allskonar vefn-
aðarvörum og klæðnaðarvörum fyrir konur, karla og börn.
Betri vörur jafn ódýrar, eru hvergi fáanlegar.
Sængurdúkar og fiðurheld léreft seld með ábyrgð.
|g$Aths. Góðu þýsku saumavélarnar frá Frister & Ross-
mann eru nýkomnar.