Vísir - 18.09.1926, Síða 2
IV ISIR
IlfaSTHimi g ÖLSENl
Fyrirlfggjandi:
Þnrkíðir ávextir:
Epli,
Apricots,
Ferskjar,
Blandaðir ávextir,
Rá inar,
Sveskjnr.
Niúnrsoðnir ávextir
Ananas,
Pernr,
Apricots,
Ferskjur,
Jarðarber,
Biandaðir ávextir.
Símskeyti
~—o~—*
Khöfn 17. sept. FB.
ítalía og Rúmjenia gera vináttu-
samning með sér.
SimaS er frá Rómaborg, aS Rú-
menía og ítalía hafi gert vináttu-
samning sin á milli. Blöðin í
Rómaborg telja þetta vott þess,
að ítölsk áhrif á Balkanskaganum
séu aö aukast.
Frakkar og ítalir.
Símaö er frá Rómaborg, að
vegna æsinganna í ftaliu i garö
Frakka, hafi franska stjórnin skip-
aö svo fyrir, aö sex herdeildir
skyldu þegar sendar til ítölsku
landamæranna.
Khöfn 18. sept. FB.
Bandalags-ráðið.
Símað er frá Genf, aö á þingi
þjóðabandalagsins hafi farið fram
kosning meðlima i ráö bandalags-
ins, og uröu þessi ríki fyrir val-
inu : Pólland, Tékkóslóvakía, Rú-
menía, Belgía, Holland, Kína, Col-
umbia, Chile og Salvador. Svíþjóö,
sem áöur átti sæti i ráðinu, baöst
undan endurkosningu í þaö.
Verðlæ&kuaa pi íin.
—o—
Visir er eina blaöiö, sem hreyft
hefir verðlækkunarmálinu. Sumir
liöföu búist viö að Alþýöublaöiö
yröi fyrst til þess.
Minst var á einn aöalþröskuld
sem hamlaði því aö verölag gæti
jafnast og náö samræmi við nú-
gildandi vérðlag krónunnar, þ. e.
gert íslenska krónu álíka háa hér
innanlands eins og hún er nú á út-
lenda marðaöinum.
Þessi þröskuldur er húsaleigan
i Reykjavík, sem talin er nú aöal-
ástæöa gegn því að vinnulaun
megi lækka. Því miöur sýnast
vera litlar líkur til þess aö húsa-
leiga lækki nú af sjálfsdáðum, fyr
e« ef svo skyldi fara, sem margir
óttast, aö kreppa sú sem atvinnu-
vegimir eru nú í (sumpart af
völdum hinnar gífurlegu húsa-
leigu) leiði af sér svo almenna
peningaþurð, aö fólk geti hreint
og beint ekki greitt húsaleiguna.
En sem stendur er nú eftirspurnin
eftir húsnæði svo mikil, aö þaö er
útilokað aö húsráðendur fari að
lækka leiguna af eigin hvöt. —
En vegna þess, hvaö bráðnauð-
synlegt það er, aö húsaleigan lækki
eöa réttara sagt hvaö skaölegt og
ranglátt þaö er aö hún hækki með
krónunni, þá verður nú aö fara að
taka alvarlega til athugunar, hvort
Rúðugler.
Nýjar birgðir. Lægst verð.
Versl. B. H. Bjarnason.
ekki beri að stemma stigu fyrir
þessari óeölilegu hækkun með
valdboöi. Þess er aö gæta, að með
því væri ekkert alment ranglæti
framiö þótt öll húsaleiga væri nú
færö niður t. d. utn svo sem 20 af
bundraði. Eða ef svo er, aö þaö
þyki hart, finst mönnum það þá
betra að taka lækkunina þannig
aö krónan falli í verði? — Því aö
sannarlega veröur endirinn sá á
þeirri togstreitu, um að græöa
altaf á gengishækkun, aö krónan
þolir ekki þaö óeðlilega verölag
sem þannig er haldið uppi — og
hiýtur að falla. Veröur það og al-
gerlega- tilgangslaust, að vera að
keppa með krónuna upp í gull-
gildi að eins til þess, að hlaða
undir alla þá sem óska aö græða
á því. Enda ætti það nú að vera
orðið öllum ljóst, að gengishækk-
unarstefnan fær minst af krafti
sínum frá því sem er nefnt „þjóö-
armetnaður“, þvi að þá vildu tnenn
væntanlega eitthvaö í sölur leggja.
Nei, það er áfergjan i gengisgróð-
ann sem er aðal drifaflið.
Flutningskostnaður á sjó og
landi hefir ekki lækkað eins og
þyrfti, sérstaklega er flutnings-
gialdiö .á bílum komið fram úr
öllu hófi. Einu sinni setti stjórnar-
ráðið flutningstaxta fyrir bíla.
Það er kanske í skjóli hans sem
r.ú er skákað. Kunnugir segja, að
það megi reka bíla með góðum á-
góöa þótt gjaldið væri fært niður
um helming, og benda á, að það
séu engin einsdæmi að bill borgi
sig upp í topp á einu sumri og
jafnvel á enn styttri tíma.
Alt þetta háa verðlag — og þar
með má vel nefna ósanngirnina í
verðlaginu á veitingastöðunum —
stuðlar að því tvennu, að þyngja
róðurinn fyrir framleiðslunni í
landinu og að því. að halda i um-
ferð fleiri seðlum heldur en holt er
fyrir gengið.
Vöruverð í búðum hefir nú
lækkað til ntikilla nntna, og sýnist
ekki vera ástæöa til að einstöku
atvinnugreinum haldist lengur
uppi augljóst gengishækkunarok-
ur. Vetrarmisserið má segja að
byrji hér 1. október. Þangað til
verða nú allir kraftar, stjórnin,
blööin og almenningur, að vinna
að verölagsjöfnuði. Mönnum verð-
ur að skiljast að án slíkrar við-
leitni verður öll gergishækkunar-
pólitík í ósamræmi við sjálfa sig.
H.
li Bjsrnasofl 8 fjelM *
klæöskerar. - Aðalstræti 6.
Ávalt fyrirliggjandi
— í stóru úrvali —
Fataefni
Og’
Frakkaefni.
Tilbúnir REGNFRAKKAR.
íí Vandaðar vðrnr. Lægst verð. K
fSOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÍ
Eflskir LilnijólIÉir
eru bestir, og því allra dúka
varanlegastir Seldir lægsta
verfti í
versl. B. H. BJARNASON.
Gjðfir lil Pjððfliifljssflfiisins.
—o—
Síðustu mánuðina hefir Þjóð-
minjasafnið móttekið ýmsa merka
hluti og myndir aö gjöf frá nokkr-
um tnönnum.
Jóhannes bæjarfógeti Jóhann-
esson hefir gefið Þjóðmenningar-
safninu stóran og merkilegan
skáp með miklum og vönduöum
útskurði framan á hurðunum. Út-
skurðurinn er prýddur frá upp-
hafi ýmsum litum og er á þessu
sams konar verk og er á þrem
kistlum í safninu, sem talið er að
séu eftir Hallgrím Jónsson smið,
föður séra Gunnars eldra í Lauf-
ási og þá langafa Tryggva Gunn-
arssonar, frú Kristjönu Hafstein
og þeirra systkina, Munu þessir
hlutir eftir Hallgrím vera frá
miðri 18. öld eða næstu áratugum
á eftir; hann dó 30. sept 1785. Er
margt til eftir hann í safninu.
prýðisvel gert; ber það helst vott
um að Hallgrímur hafi lært út-
skurð erlendis og farið síðan mest
eftir útlendum fyrirmyndum og
stíl i skrautverki,
I. P. A. J. Lander, teiknari í
verkfræðinga deild herliðsins
danska, hefir gefið safninu eftir-
mynd af uppdrætti íslands, þeim
er Þórður byskup Þorláksson bjó
tij árið 1670 handa Kristjáni kon-
ungi 5. Árni prófessor Magnússon
lánaði uppdráttinn og hafði með
sér á ferðum sínum hér, nefndi
hann kongskortið, og er hann nú
í handritasafni hans. Þessi eftir-
mynd er gerð með hinni mestu ná-
kvæmni og snild. Lander hefir
áður gefið Landsbókasafninu tvær
eftirmyndir af öðrum gömlum og
merkilegum íslands-uppdráttum;
er hinn eldri þeirra einnig eftir
Þórð byskup, gerður 1668 eftir
mælíngum Guðbrands byskups
Þorlákssonar. Eftirmyndir Land-
ers eru svo líkar frumkortunum,
að ekki er unt að sjá neinn mis-
mun, að heitið geti, nema þann
sem sjálfsagður er, og liggur í
þessu mjög mikið og vandasamt
vcrk, sem væri góðra gjalda vert.
Frú Sigríður, ekkja Pálma
vfirkennara Pálssonar, hefir gefið
safninu silfursveig þann er ýmsir
lærisveinar Pálma heitins lögðu á
kistu hans er hann var jarðaður.
Slíkir silfursveigar tíðkuðust fyr-
ir nokkrum árum hjer og hafa nú
verið faldir safninu til ævinlegrar
varðveislu. Virðist það í alla staði
best við eigandi, einkum þeg-
ar stundir liða fram.
Ýmsir fleiri hafa gefið Þjóð-
menningarsafninu smáhluti, þótt
hér sé ekki getið. Og enn hafa
þessir gefið Mannamyndasafninu
myndir: Verkfræðingafélagið,
ljósm. af stofnendum fjelagsins,
Jens Benediktsson, teiknaða mynd
af Vilhjálmi HákonarsyniíKirkju-
vogi, stúdentar 1925, ljósmynd af
sér, Stefán Björnsson, verslunarm.
hér í Rvík, margar ljósmyndir úr
eigu Jóns Hjaltalins landlæknis,
dr. Hannes Þorsteinsson þjóð-
skjalavörður, ljósmyndir af nokkr-
um íslenskum mönnum.
Loks er þess að geta, að Björg-
úlfur læknir Ólafsson gaf Þjóð-
fræðissafninu gamalang-hljóðfæri
frá Java og ýmsa muni frá Kina,
hnakkastóla, matprjóna o. fl. Gam-
alang-hljóðfærin eru flest bjöllur
til að slá, steyptar úr kopar, málm-
plötur og tréplötur á stokkum ; eru
þau ætluð mörgum mönnum. Seg-
ir Björgúlfur, að það líkist helst
lækjanið og fuglakvaki, þegar
heyrist leikið á þessi hljóðfæri í
fjarska; alt er sem einn kliður, en
innbornir menn dansa eftir hljóð-
færaslættinum, dag og nótt, þegar
svo ber undir. Tónunum virðist
skipað niður eftir því sem tiðkast
í Kína, og þessi sönglist mjög frá-
brugðin því sem hér er.
M. Þ.
Kreifr oi sanðnaut.
Útigangssauðir íslendinga.
Á laugardaginn ritar „Bóndi“ í
„Vísi“ þarfa smágrein og góða
um flutning sauðnauta („moskus-
nauta“) hingað til lands. Veitir
eigi af, að þessu nytsemdarmáli
sé gaumur gefinn og haldið vei
vakandi. Virðist svo sem þurfi
fullan mannsaldur til að koma al-
menningi og stjórnarvöldum vor-
um i skilning um ýmsa gagnlega
nýbreytni hér á landi í búnaðar-
málum sem og öðru.
Grein Vilhjálms Stefánssonar
um „Heimskautahaga" (í „Eim-
reiðinni") kom á réttum tíma. Var
þá nýbúið að kveða niður um
stundarsakir tilraun um stofnun
tam-hreinræktar hér á landi.
Iiöfðu tveir ungir menn og efni-
legir beitt sér fyrir því máli, og
hafði annar þeirra yfir að ráða
einhverju hinu æskilegasta hrein-
landi, sem. völ er á hér sunnan-
lands. Sem betur fer eru menn
þessir eigi liklegir til að leggja
árar í bát að svo stöddu.
Það mun mega fullyrða ög færa
að því gild rök, að víða hér á landi
séu mikil skilyrði og góð til tam-
hreina- og sauðnauta-ræktar. Á að
gera fénað þenna að búpeningi, en
eigi láta ganga viltan, þótt auð-
vitað gæti það einnig orðið til
nytsemdar. á ýmsa vegu. Báðar
dýrategundir þessar eru tilvalin
1
SKTNDISALAN
lijá
Haraídi.
Alt seit með lági ve ðmn.
Blátt cheviot í fermingardrengjaföt 7.25 mtr.
Regnfrakkar og Fatnaður með tækifærisverði.
Handkiæðadreglar 0.55 mtr. \
Tvistar 0.60 mtr.
Léreft bleguð 0.70 mtr.
Gluggatjaldaefni 0.75 mtr.
Morgunkjólatau margar teg. 1.00 mtr.
Ullarkjólatau 2.90 mtr.
Fatatau 3.00 mtr.
Káputau 3.50 mtr.
Kjólar og Prjónadragtir selt ódýrt.
Prjónagam fyrir iítið.
ATH. Sængurdúkar og fiðurheit Léreftselt með ábyrgð.