Vísir - 29.09.1926, Qupperneq 2
Ví SIR
Nýkomid:
Laukup, Kaptöflup,
sama afbragðs tegundin og áður.
Símskeyti
—o—
Khöfn, 28. sept. FB.
Poincaré og samningar við
pjóðverja.
Símað er frá París, að í ræðu,
sem Poincaré hélt, hafi liann
sagt, að stjórnin í Frakklandi
væri reiðuhúin til þess að semja
* við þýsku stjórnina um þau
mál, sem enn hefir eigi náðst
samkomulag uin, en pjóðverj-
ar yrðu fyrst að sýna, að alvara
lægi á bak við þá stefnu, er þeir
virtust hafa tekið i áttina til
varanlegs friðar.
Gerðardómar.
Símað er frá Genf, að pjóða-
bandalagið ætli aðleggja áherslu
á, að livetja allar þjóðir, sem í
þvi eru, til þess að gera gerðar-
dómssamninga hverar við aðr-
ar, til þess að tryggja það,' að
deilumálum verði ráðið til lykta
á friðsamlegan hátt.
Khöfn, 29. sept. FB.
Friðurinn á Balkanskaga.
Símað er frá Genf, að full-
trúar Júgóslavíu hafi óskað
þess, á þingi pjóðabandalagsins,
að gerð væri tilraun til þess að
koma á öryggissamþykt til þess
að tryggja friðinn með þjóðun-
um á Balkanskaganum.
•
Chamberlain og Mússólíní.
Símað er frá Genf, að þegar
þingi pjóðabandalagsins lýkur,
ætli Chamberlain í skemtiför til
Miðjarðarhafslandanna. Talið
er líklegt, að hann muni finna
Mússólini að máli og ræða yið
liann um ýms mál, einkanlega
þau, er snerta Miðjarðarhafið.
frá Mr-fsliiðfliii.
—o—•
FB., 29. sept.
Haraldur Sveinbjörnsson
heitir ungur Islendingur, sem
stundaði leikfimisnám hjá Niels
Buch í Danmörku. Hefir hann
dvalist um skeið í Islendinga-
bygðum vestra, síðast í Dakota.
Nú hefir Haraldur verið ráðinn
leikfimiskennari ríkisháskólans
í South Carolina ríkinu í Banda-
rikj unum, og mun hann nú vera
kominn suður þangað.
Síra Haraldur Sigmar
hefir tekið við forstöðu íslensku
safnaðanna í Norður Dakota í
Bandaríkjunum. Síra Kristinn
K. Ólafsson, forseti Kirkjufé-
lagsins, setti hann í embættið
þ. 12. september.
Færeyingap
og Grænland.
—o—.
Af íbúum Danmerkur eru Fær-
eyingar (Færeyjar eru taldar amt
t Danrnörku, því er • svo til orSa
tekiS hér), líklegastir til þess að
nota sér fiskiauhlegðina viö Græn-
landsströndu. En borist hefir einn-
ig í tal aS Færeyingar flyttust bú-
ferlum til Grænlands, þeir er vildu
land nema. Miklu meiri skynsemi
viröist liggja á bak vi'ð þessar
ráðageröir en á bak viö fleiprið,
sem gaus upp í hádönsku blööun-
urn í vetur um þaö, aö jarðnæöis-
lausir ungir menn í Danmörku
sjálfri tækju sig upp og flyttust
til Grænlands, var jafnvel fullyrt
aö margar þúsundir manna gætu
þannig tekið sig upp og flust til
annars lands, án þess að slíta sam-
bandi viö fósturjörðina.
Þegar forstjóri sauöabúa ríkis-
ins í Grænlandi, Lindemann Wal-
söe, var i Færeyjum i sumar til
þess að athuga fyrirkomulagið á
sauðabúum eyjarskeggja, barst
þetta meðal annars í tal með hon-
um og fréttaritara „Berl. Tid-
ende“, og kvað hann engar höml-
ur vera á þvi, aö Færeyingar gætu
framfleytt sér sæmilega á Græn-
landi.
Á einu sviði hafa Færeyingar
tekiö oss íslendingu'm Iangt fram
er um Grænland ræðir. Er togara-
flotinn íslenski liggur inni og
mikill sægur af mótorbátum stund-
' ar fiskveiðar með tiltölulega Iitl-
um ágóða, leggja færeysku sjó-
mennirnir skipum sínum á Græn-
landsmiðin, meö þeim árangri að
þeir, sem þar fiska fá miklu meiri
hlut, en þeir, sem stunduðu fisk-
veiðar við Island. Um miðjan síð-
asta mánuö var afli færeysku þil-
skipanna hér við land oröinn
frá 8—14 þúsund fiskar á skip,
en um sama« leyti var afli fær-
eysku þilskipanna, sem stunduöu
fiskveiðar við Grænland oröinn 20
til 22 þúsund fiskar á skip. Þegar
þessi íeynsla er fengin má gera
ráð fyrir því, að fleiri og fleiri
færeysk skip fari að stunda fisk-
veiðar við Grænland en að fisk-
veiðar Færeyinga hér við land
fari þverrandi.
*
pessir farþegar
komu hingað á Botníu í gær:
Kl. Jónsson alþm., Björn Krist-
jánsson alþm.,SighvaturBjarna-
son bankastjóri, Brynjúlfur
Björnsson tannlæknir og dóttir
hans, porkell porkelsson veður-
fræðingur, Emilía Indriðadóttir,
Una Sigtryggs, Lilja Sölvadótt-
ir, Guðbjörg Sigurðardóttir,
Guðrún Pálsdóttir, Margrét Sí-
monardóttir, Hólmfríður Rrist-
jánsdóttir, Margrét og Anna
Konráðsdætur, Lúðvig Guð-
mundsson, Georg Gretor blaða-
maður, Óskar Lárusson og frú,
Sveinbjörn Árnason, Funk, frú
Meyer, frú Anna Bjarnason, frú
Jóna Sigurjónsdóttir, frú Hildur
Jónsson, Halldór Sigurðsson og
dóttir hans, Jón Bjarnason, ísak
Jónsson, Karl Magnússon, Jón
Pétursson, og nokkrir fleiri. —•
Botnia fer norður um land til út-
landa n. k. fimtudagskveld, kl.
12.
74 ára afmæli
á i dag frú Ólöf porsteins-
dóttir frá pórustöðum.
Harmonia.
Æfingar i kveld: Sopran og
alt lcl. 8. Tenór og bassi kl. 9
í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Landssíminn
er 20 ára í dag'. Landssíma-
stöðvum verður lokað kl. 7.15.
1000 krónur
sendu Skaftfellingar í gær til
Stúdentagarðsins. pað er fyrsta
afborgun af 5000 kr., sem sýslu-
búar hafa heitið garðinuin.
Auglýsendur
eru vinsamlega beðnir að
koma auglýsingum til blaðsins
fyrir kl. 10 á morgnana. Prent-
smiðjusími Vísis er 1578,
Páll Isólfsson
hefir stofnað nýtt söngfélag,
sem heitir Harmonia. Formað-
ur er Pétur Lárusson.
Esja
er væníanleg úr hringferð í
nótt.
Gullfoss
fór héðan vestur og norður í
gær. Meðal farþega voru Kon-
ráð Stefánsson og frú hans,
Snorri Sigfússon skólastjóri o.fl.
E.s. Nonni
fer héðan seint i kveld í strand-
ferð.
Vísir
er sex síður í dag. Sagan er í
aukablaðinu.
Georg Gretor
heitir þýsk-danskur rithöfund-
ur og blaðamaður, sem var sam-
skipa mér hingað í gær frá Dan-
mörku. Hann hefir i hyggju að
dveljast hér rúman mánuð og
safna drögum til ritgerða um is-
lensk mál. —• Hr. Gretor hefir
einkum lagt stund á alþjóðleg
stjórnmál og hagfræði og hefir
undanfarin ár ritað fjölda yfirlits-
greina um alþjóðleg viðskifti i
ýms erlend blöð og tímarit. Aðal-
lega ritar hann fyrir „Neue Zu-
richer Zeitung", sem er stærst og
áhrifarikast blað í Sviss, og var
t. d. fréttaritari þess á Locarno-
fundinum. — Nú hefir honum
verið falið að rita um ísland í
„Deutsch-nordisches Jahrbuch"
(þýsk-norrænu árbókina), sem
kemur út hjá Eugen Diderich í
Jena. Rit þetta er i miklum met-
um og er tilgangur þess að efla
gagnkvæma þekkingu og samúð
með Þjóðverjum og Norðurlanda-
þjóðunum. Ennfremur mun hr.
MMMMM M M MMMM5
tnj orv) CnS^\)Cn!)(írV)<5
B. 8. B
Gulrófur.
Ágætar gulrófur hefi ég til sölu
í dag og næstu daga.
tekur eina krónu fyrir manninn
milli HafnarfjarSar og Reykjavík-
ur. — Ferðir á hverjum klukku-
tima. — Símar: 715 og 71G.
Glóaldin, Bjúgaldin,
Epli, Perur,
nýkomið
Landstjapnan.
Gretor rita greinaflokk um ísland
í „Neue Zuricher Zeitung“ og
ameríska vikuritið „The Nation“.
— Hr. Gretor fer nú með Botníu
til Norðurlands, en kemur eftir
nokkura daga aftur hingað. Hefir
hann lofað félaginu Germania að
flytja hér erindi um framtíðarvið-
skifti Þjóðverja og Frakka og til-
löguna um Bandaríki Norðurálf-
unnar, sem nú er á dagskrá meðal
erlendra stjórnmálamanna. —• Eg
hefi kynst hr. Gretor nokkuð og
séð margt af því, er hann hefir
ritað, og veit að hann hefir bæði
vilja og getu og óvenjugóða að-
stöðu til að verða íslendingum
þarfur maður erlendis. —« Vona
eg að allir stjórnmálamenn vorir
og aðrir, sem hann kann að Ieita
til, taki erindi hans vel, og stuðli
með því að auknum skilningi er-
lendra þjóða á högúm vorum.
Lúðvíg Guðmundsson.
Lestrarfélag kvenna
byrjar vetrarstarfsemi sína 1.
október.Félagið hefirnú lesstofu
sína og bókasafn á Bókhlöðu-
stíg 8, og verður útlán bóka í
vetur hvern mánudag, miðviku-
dag og föstudag kl. 4—6 og
fimtudaga kl. 8—9 síðd.
Slgvtldi Jómsson
Bræðraborg. Sími 912.
HÍOÍSOOÖOÍÍOÍÍOÍÍÍSÍÍOOÍSOOÍSOOOOÍ
Verðlækknn.
Frá og með deginnm i
dag kostar sætl til Hafn-
atfjarðar með okkar á-
gœtu Buick bilrelð-
nm
1 kfÓM.
Bifreiðastöð
Steindói*s.
ÓOOOOOOÍÍOOOOOOOOOOOaOOOOGÖ
Píanó
Hornnng & Möller sem nýtt
til söln með tækilærisverði.
Til sýnis í hljóSfæraversIun
frú K. Vi3ar.
Búsáhðld
af flestöllum tegundum alt frá
gardínuhringjum upp í Taurullur.
Langsamlega ódýrust hjá
]éh. iil. OÉsp,
Laugaveg 63.
Þvottabalar,
Þvottapottar,
Þvottabretti,
Þvottavindnr,
Ensk lesbók,
eftir prófessorana Craigie og
Faucett, er nýkomin út hjá Clar-
endon Press í Oxford, og mun
væntanleg í bókaverslanir hér inn-
an skamms. Bók þessi er áframh
hald af ’kenslubók þeirri eftir
Craigie, sem Ársæll Árnason gaf
út, og notuð er meðal annars í
kennaraskólanum.
Katlar,
Pönnur,
Pottar
og yfiir höfuð flest, sem þarf
til búsins, er heppilegast að kauþa
Nýtt nrval
af fallegum
Kvenvetrarkápn
er nú komið.