Vísir - 15.10.1926, Blaðsíða 2
viáYi;
u
/A f*
m
D) 1Hí^]T[H]^]1M I ÚLSEiN! C
Höínm nú fyrirliggjandl:
RlO-kaííið
góða og ódýra.
Alt verður spegiifaguri sent
fágað er með fægilegirium „Fjallkonan41.
Efnagerrf Reykjavíkut
kemislt verksmiöja.
Í»»OÍÍO«ö»0!S«ÖíX5ÍÍOOO»KÍ>OÍÍÍi;5;SÍS;iöOÍÍÍÍOOftOO!ÍÍÍOOOtt»OOOOOÍSÍKK
xíöooooooooo;xxxsooooooooo;xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxsoooooo;
Snnid vid
ef þép fáid ekki
LUCANA
No. i.
/
20 stykki 1 króna.
Í500000ö0000000000ö000ö00;s;xx50ö00000000000000000
soooooooooooooooooooooooo;xxxsoooooooooooooeoooooooooo;
Símskeyti
—o—
Khöfn 14. okt. FB.
Gengi norskrar krónu.
Símaö er frá Osló, aö vegna
mikillar krónuhækkunar í gær,
segi stjórn Noregsbanka, aS mikil
framboSsaukning erlends gjald.
eyris, hafi neytt bankann til þess
aS hækka gengi krónunnar, þótt
heppilegast heföi veriö, ef gengið
heföi getað haldist óbreytt í bráð-
ina.
Látinn rithöfundur.
Símað er frá Osló, að rithöfund-
urinn Hans Kinck sé látinn.
Jafnaðarmenn myrtir í Póllandi.
Símað er frá Varsjá, að þrír
stjórnmálamenn, allir jafnaðar-
menn, hafi verið myrtir, sennilega
af völdum kommúnista.
Utan af landi.
—o—
Seyðisfirði 14. okt. FB.
Jón Kristjánsson frá Skálanesi
andaðist í nótt.
Veðrátta er vetrarleg. Hefir
snjóað hér í fjöll síðan um helgi.
Síldarvart hefir verið hér þar
til um helgina síðustu, en ekki á
suðurfjörðunum. Þorskveiði er
nokkur á Austfjö^ðum, þegar
gæftir eru.
. Slátrun er lokið að mestu. Mun
mega teljast í meðallagi eða svip-
uð og í fyrra.
tlænir.
verður mönnum tíðræddari, en
aðrar þær kosningar til Alþing-
is, sem fram eiga að fara fyrsta
vetrardag. Er það mjög að von-
um. Dalamenn mörkuðu nýtt
spor í sögu landsins, er þeir
kusu Bjarna Jónsson til þings
heilla-árið 1908. Hafa þeir jafn-
an síðan sýnt staðfestu sína um
fylgi við æðstu frelsismál þjóð-
arinnar, þau er ofar standa
stéttakryt og héraðaríg.
Mörgum þótti vandfylt skarð
hins mikilhæfa manns ,er skip-
að hefir þingsatti Dalamanna
síðan 1908. Er það vandsætt
meðalmönnum. En nú hefir
betur úr rætst, en menn væntu
í fyrstu, þar sem Sigurður Egg-
erz liefir nú gefið kost á sér
þar í Dölum. Er einskis manns
völ á landi voru nú,þess er betur
sæmdi, að héldi sæti hins frá-
fallna skörungs, og er það mik-
ið happ Dalamönnum að eiga
þess kost, að mega enn vera
samir við sig um skipun full-
trúa síns á Alþingi.
pað er að bera í bakkafullan
lækinn að rekja athafnir Sig-
urðar Eggerz fyrir sjálfstæði
þjóðarinnar og önnur nauð-
synjamál hennar, síðan hann
kom á þing, því að það er öllum
kunnugt. Ber það hest vitni um
traust lians meðal alþingis-
manna, að þrysvar hefir hann
verið ráðherra á einum áratug,
enda jafnan reynst hinn sami
þjóðskörungur og þjóðvinur.
Sigurður Eggerz hefir jafnan
haldið fram heill og hagsmun-
um bænda á Alþingi, enda er
hann manna kunnugastur hög-
um þeirra, bæði frá æskuárum
og síðan, er hann hefir haft
sýslu í helstu héruðum landsins,
Borgarfirði og Skaftafellsþingi.
— Nú er bændum einkannlega
nauðsyn á, að Sigurður Eggerz
eigi sæti á Alþingi, þar sem hann
er hinn öflugasti talsmaður
þess þjóðnytja-máls,að rikisveð-
bankinn verði reistur við og taki
til starfa. Ekkert fyrirtæki er
bændum jafnmikil nauðsyn á,
að til framkvæmda komi.
pótt Sigurður Eggerz hafi
jafnan komið fram sem þing-
maður alls landsins og hafi víð-
sýni til að virða og meta jafnt
hag allrar þjóðarinnar, þá
mundi honum þó vera hug-
þekkast, að fara með umboð
Dalamanna á Alþingi, þvi að
sjálfur er hann Dalamaður og
ætt hans staðið þar um margar
aldir, þjóðkunnugt höfðingja-
kyn.
Varla mundi leika á tveim
tungum, hvern inn látni þing-
maður mundi helst kjósa i sæti
sitt. peir Sigurður voru jafnan
samherjar i höfuðmálum þjóð-
ar vorrar. Og svo lét Bjarni um
mælt i heiðurssamsæti þvi, er
Reykvíkingar héldu SigurðiEgg-
erz 2. janúar 1915, en þá var
hann nýkominn heim eftir rik-
isráðsdeiluna nafnkunnu:
„Oss nýárið sólstafi sendir og
vor
og síungan hugrnóð i lundu.
Á sigurbraut leiði oss Sigurðar
spor
á svipliýrri örlaga stundu.
Og fylgist nú hendur og liugir
og mál,
sem hvassleikur eggjar og skín-
andi stál!“
pessara árnaðarorða munu
Dalamenn minnast á vetrardag-
inn fyrsta.
Benedikt Sveinsson.
Byssur
Enskar tvihleypnr og eln*
Iileypur og Eleyspatrónur eru
bestar.
Laegsta verð í
versl. B. H. BJARNASON.
Veðrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykjavík
1 st., Vestmannaeyjum o, Isafirði
1, Akureyri I, Seyðisfirði o, (eng-
in skeyti frá Grindavík), Stykkis-
hólmi o, Grímsstöðum 6, Raufar-
höfn 5, Hólum í Hornafirði o,
Þórshöfn í Færeyjum 2, Angmag-
salik í gær -f- 2, Kaupmannahöfn
hiti 9, Utsira 6, Tynemouth 4,
Leirvík 4, Jan Mayen 4 st. —
Mestur hiti hér i gær 3 st., minst-
ur -f- 4 st. — Loftvægishæð fyrir
norðan land. — Horfur: í dag
o g n ó 11: Norðaustlæg átt.
Fremur hægur og gott veður
sunnan lands. Allhvass á norð-
austurlandi, snjókoma á Norður-
landi og Austurlandi.
íslenskir söngvarar.
Eggert Stefánsson hefir nýlega
sungið (í Berlín) íslensk lög á
plötur fyrir ,Polyphon‘ og ,Skan-
dinavisk Grammofon', sama fé-
lagið, sem áður hefir fengið Ein-
ar Markan til að syngja á plötur.
1 fyrra söng Sigurður Skagfeldt
íyrir ,Polyphon‘, og eru þá, að
Pétri Jónssyni meðtöldum, er
fyrstur söng á plötur, fjórir ágæt-
ir íslenskir söngmenn komnir á
grammófónplötur. Allar nýrri
plöturnar eru teknar með raf-
magnsaðferðinni (radió-mikrofón)
eins og yfirleitt allar plöttur, sem
teknar eru nú. x.
Leikhúsið.
„Spanskflugan“ var leikin í
gærkveldi við ágæta aðsókn.
Kornið hefir til orða, að leikið
verði tvisvar næstkomandi sunnu-
dag. Yrði þá fyrri sýningin (lik-
lega kl. 5) aðallega fyrir börn.
Fyrirlestur
um Grænland með fjölda
skuggamynda, heldur Ólafur Frið-
riksson n.k. mánudagskveld í
Iðnó. Margir urðu frá (að hverfa,
þegar erindið var flutt síðastl.
sunnudag. — Aðgöngumiðar fást
í Hljóðfærahúsinu.
Móttökuhátíð
fyrir nýja stúdenta verður hald.
in í Bárubúð annað kveld. Að-
göngumiðar fást á Mensa kl. 5—7
í dag. Allir stúdentar velkomnir,
bæði ungir og gamlir.
15000 króna sekt
sætti enski botnvörpungurinn
Venator í gær á Siglufirði, fyrir
veiðar í landhelgi. Afli og veiðar-
færi gert upptækt.
Margrét S. Konráðsdóttir,
Laugaveg 38, auglýsir kenslu í
hannyrðum og allskonar handa-
vinnu. Hún er nýkomin hingað
eftir nær þriggja ára nánf erlend-
is. Áður en hún fór utan hafði
hún numið tréskurð á Akureyri
og vakið á sér athygli fyrir hag-
leik og ástundun. — Utanlands
kynti hún sér allskonar heimilis-
iðnað, og má sjá nokkur sýnis-
horn af verkuin hennar í stofu-
gugga á Laugavegi 38, þar sem
hún kennir. Hún kennir m. a. að
skera í tré og mála ofan í útskurð-
inn. Heitir það Satin-Tarso á út-
lendu máli og er mjög skrautlegt.
Einnig kennir hún að brenna í
tré og skreyta muni með málmi.
Iinnfremur kennir hún allskonar
útsaum og baldýringu, körfugerð
og fleira, sem gott er að kunna.
Þeir, sem vilja, geta fengið að sjá
hina fallegu smiðisgripi og hann-
yrðir, ef þeir koma á kenslustof-
una á Laugavegi 38.
Skátastúlkur
K. F. U. M. halda Basar annað
kveld kl. 8)4 í húsi K. F. U. M.
’Karlakór K. F. U. M. ætlar að
syngja þar nokkur lög.
Vaka,
tímaritið nýja, kemur út á
mánudaginn. — Gerist áskrifend-
ur sem fyrst, þvi að þá verður
ritið sent heim til yðar.
Kvenfélagið Hringurinn
leikur í kveld „Erfðaskrá Bínu
frænku", eins og auglýst er á öðr-
um stað í blaðinu. Leikurinn er
sagður skemtilegur. Aðgöngumið-
ar eru seldir i Iðnó i allan dag.
Gjöf
til gömlu konunnar í Bjarna-
borg, 10 kr., frá stúlkunni, sem
gefur henni þessa fjárhæð mán-
aðarlega.
Gengi erL myntar.
fÉerlingspund ..........kr. 22.15
100 kr. danskar.......— I2i-5o
100 — sænskar ..........— 122.23
100 — norskar.......— 108.89
Dollar.......'. ..........— 4*57)4
100 frankar franskir .. —> 13.24
100 — belgiskir . — 13.18
100 — ) svissn. ... — 88.51
100 lírur .............— 18.83
100 pesetar .......... — 68.41
100 gyllini ......... — 183.11
IOO mörk þýsk (gull). — 108.81
Trúlofun
sína hafa nýlega opinberað
ungfrú Kristín Einarsdóttir og
1 Húbert'Á. Benediktsson.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá N. N., 5
kr. frá E. I.
Áheit
á Bessastaðakirkju, afhen Vísi,
2 kr. frá frú I. Þ.
Saga.
Missirisrit, gefið út í Winnipeg.
Útgefandi og ritstjóri Þorsteinn
Þ. Þorsteinsson. Fyrri bók ann-
ars árgangs er nýlega komin
hingað og fæst hjá bóksölum.
Ritið kostar 8 kr. á ári og má það
kallast ódýrt eftir bókaverði nú.
— Útgef. „Sögu“ gerir sér mikið
far um, að hafa efnið sem fjöl-
breyttast og við sem flestra hæfi.
— Skiftast á kvæði, ævintýri, ís-
lenskar þjóðsagnir, skrítlur, stutt-
ar ritgerðir ýmislegs efnis o. s.
frv. — Vitanlega er þetta ólíka
efni harla misjafnt að gæðum, en
þó flest læsilegt. — Þetta hefti
„Sögu“ hefst á miklu kvæði,
„Erfðir“, eftir skáldjöfur Vestur-
íslendinga, St. G. Stephansson. —
Ræðir það um Ásdísi á Bjargi og
sonu hennar. Ber kvæðið öll ein-
kenni hinna miklu kvæða Steph-
Með S.s. „Lagarfoss“
komu nokkrar
ódýrar
Kveivetrarkápir.
Einnig úrval af