Vísir - 04.01.1927, Side 3
VlSIR
I
Meiri penmgar.
Því betra fóður nem þér gefið hænsnum
yðar því betur verpa þau og því meiri
arð gefa þau.
Kaupið SPRATT’S hænsafóður, það
gefur yður rreiri peninga en annað fóður.
Reynið það í dag.
Fæst einsog alt annað gott í
versi. Von.
!
Veðrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykja-
vík 14 st., Vestmannaeyjum 11,
ísafirði 15, Akureyri 16, Seyð-
isfirði 13, Grindavík 13, Stykk-
ishólmi 12, Grimsstöðum 17,
(engin skeyti frá Raufarhöfn),
Hóluni i Hornafirði 13, Færeyj-
um -í- 5, Angmagsalik -h 12, en
hiti i Kaupmannahöfn 4, Utsira
2, Tynemouth 2, Hjaltlandi -t-
1, Jan Mayen 17 st. Mestur
hiti liér i gær 9 st., minnstur
19 st. Loftvægislægð fyrir
suðvestan land. Norðvestlæg átt
í Norðursjónum. — Horfur:
Suðvesturland og Faxaflói: I
dag vaxandi austlæg átt. Snjó-
koma. I nótt hvass austan. Hríð-
arveður. Breiðafjörður og Vest-
firðir: I dag hægviðri. í nótt
vaxandi austlæg átt. Sennilega
snjókoma. Norðurland, norð-
austurland, Austfirðir: 1 dag
hægur norðan. í nótt isennilega
austlæg átt. Suðausturland: í
dag hægur norðan. í nótt vax-
andi austlæg átt. Snjókoma.
Leikhúsið.
„Vetrarævintýri“ verður leik-
ið i 7. sinn annað kveld. Hefir
aðsókn að leiknum verið hin
hesta og síðast þegar leildð var,
urðu margir frá að hverfa, er
eigi gátu fengið aðgöngumiða.
— Aðgöngumiðar verða seldir
í Iðnó í dag ,siðdegis (4—7) og
allan daginn á morgun (frá kl.
10 árdegis), nema milli 12 og 2.
Athugasemd.
Þegar eg las grein Jóns Þor-
lákssonar forsætisráðherra í Les-
bók Morgunblaðsins 31. des., datt
mér í hug, hvort þaS mundi ekki
vera framkvæmanlegt, að leiða
vatn úr EllíSaánum eða annars
staðar frá gegnum hitasvæSiS viS
Laugarnar og fá þaS þannig upp
hitaS þar, áSur en þaS kæmi til
'bæjarins. Tvent væri aSallega
unniS viS þaS, ef þetta mætti tak-
.ast: annaS, aS leiSslan yrSi marg-
falt styttri, svo aS stórfé myndi
viS þaS sparast, og liitt, aS efni
þau í hveravatninu sem Jón getur
um í grein sinni, aS varhugaverS
séu, mundu ekki vinna pípunum
mein aS innan. S.
Læknavörðurinn.
Athygli almennings skal vak-
in á auglýsingu hér í blaðinu í
dag um næturvörð lækna, jan-
úar—mars. — Fólk ætti að
klippa auglýsinguna úr blað-
mu og geyma. Getur það þá
jafnan gengið úr skugga um
?að á svipstundu livert leita
skal, ef veikindi ber að hönd-
um að næturlagi.
Frá Englandi
komu í gær: Snorri goði, pór-
ólfur og Gulltoppur. Reir munu
allir fara til veiða í dag.
Júpíter
kom af veiðum i gærkveldi og
fór áleiðis til Englands í nótt.
Austri
er að búast á veiðar.
Enskur botnvörpungur
kom í gær til þess að
ser aðgerðar.
leita
Suðurland
fer til Borgarness á morgun
með norðanpóst og vestan. —
Kemur við á Akranesi i báðum
leiðum.
Ljósberinn,
barnablaðið, hefir nú komið
út vikulega undanfarin sex ár
og flutt margar góðar greinir
og sögur fyrir börn og unglinga.
Á nýársdag kom út 1. tölublað
sjöunda árgangs og er nú blaðið
stækkað um lielming, en verðið
ekki liækkað þrátt fyrir það, og
ætti það að auka gengi blaðs-
ins. I þessu siðasta blaði byrja
tvær sögur: „Systurnar“ og
„Róbinson liinn nýi eða Pliilip
Ashton“, og mun sú saga eigi
gefa eftir gamla Robinson, sem
allir kannast við. Auk þessara
sagna flytur blaðið ýmisdegt
fleira, sem hörn hafa ánægju
af að lesa. — Foreldrar ættu
að kaupa blað þetta handa
hörnmn sínum.
Hjúskapur.
Annan nýársdag voru gefin
saman í hjónaband að Görðum
á Álftanesi ungfrú Sigurveig
Steingrímsdóttir, Hafnarfirði,
og Jóhannes Gunnarsson, versl-
unarmaður, Keflavík.
Til fólksins á Steinum,
afhent Vísi: 30 kr. frá G. H.,
5 kr. frá Rangæingi.
Trúlofun
sina hafa opinberað ungfrú
Bryndis G. Ólafs frá Nýjabæ á
Seltjarnarnesi og Jón Guð-
mundsson verslunarmaður frá
Stóra-Hofi á Rangárvöllum.
10 kr., K. S. 5 kr., J. J. 5 kr.,
V. Ó. 5 kr„ N. P. 5 kr., T, p, 5
kr. Samtals 70 kr. — 31.12. ’26.
Ásm. Gestsson.
Sæsíminn
hefir slitnað sunnan við Fær-
eyjar. Verður sennilega gert við
hann bráðlega. Skeyti, sem birt-
ast í blaðinu i dag, voru send
loftskeytastöðinni.
Stefnuvottur.
Þorsteinn Gunnarsson, stefnu-
vottur, hefir sagt þeim starfa af
sér sakir heilsubilunar. í staS hans
hefir veriö skipaöur stefnuvottur
hér í bænum frá næstu áramótum
.0 telja, fyrrum hreppstjóri Einar
Jónsson frá Brimnesi. Hinn ný-
ikipaöi stefnuvottur á heima í
Þingholtsstræti nr. 15 og er síma-
númer hans 1583.
óskastundin,
æfintýraleikur i fjórum sýning-
um, eftir Kristínu Sigfúsdóttur.
Útgefandi bókaverslun Þorsteins
M. Jónssonar á Akureyri. — Vísi
hefir veriö sent leikrit þetta til
umsagnar, og veröur þess getiö
síöar hér í blaöinu.
*
Við ysta haf
heitir ný Ijóðabók eftir Huidu
(frú Unni Benediktsdóttur), sem
bókaverslun Þorsteins M. Jóns-
sonar á Akureyri hefir gefiö út.
Höf. skiftir.bókinni i tvo megin-
ílokka. Heitir hinn íyrri „Frá
æskudögum“ og er skift i þessa
undirkafla: „Úr fornöld“, „Al-
þýöuvísur (atburöir og sagnir)“,
Ýmisleg kvæöi“, „Sveitasöngv-
ar“, „Minjar 1“ og „Þýöingar".
Seinni flokkurinn heitir „Siöari
ar“. Eru þar fyrst kvæöi ýmis-
legs efnis, en síðan „Minjar 11“
og „Tvær þýðingar". — Hulda er
löngu þjóðkúnn orðin af skáld-
skap sínuhi í bundnu og lausu
máli og þykir mörgum hún standa
einna fremst þeirra kvenna, sem
viö skáldskap fást um þessar
mundir hér á landi. — „Við ysta
haf“ er lagleg bók og eiguleg. —
Verður hennar nánara getið síð-
ar hér í blaðinu.
Málverkasýning
Finns Jónssonar er opin í dag
til kl. 10 isíðd. í síðasta sinn,
Gengi erlendrar myntar.
Sterlingspund ........ kr. 22.15
100 kr. danskar ...... — 121.77
100 — sænskar ...........— 122.07
100 — norskar............— nó-35
Dollar ................. — 4.57
100 frankar franskir .. — 18.27
100 — belgiskir — 12.79
100 — svissn. ... — 88.41
100 lírur ..............— 20.64
100 pesetar .............— 70.3:
100 gyllini ........... — 183.08
100 mörk þýsk (gull). — 108.68
:Höíum fyrlrliggjandi:
Ácco Haframjöl
í 45 kg. léreftspokum.
H. Benediktsson & Co.
Sími 8 (3 linur).
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 25 kr. frá S.
B.
A D L O N.
Dansleikur á Hótel ísland n.k.
laugardag kl. 9 e. h. ineð 10
manna liljómsveit. — Aðgöngu-
miða sé vitjað strax í versl. Java
á Laugav. 19 eða í Skóbúð
Reykjavíkur.
Sá
sem tók regnkápuna í forstof-
unni hjá síra Árna Sigurðssyni,
Ingólfsstræti 10, ætti helst að
skila henni á sama stað, því að
til hans sást.
Samsteypustjórn í vændum í
pýskalandi.
Símað er frá Berlín, að gisk-
að sé á, að Dr. Kurtius muni
gera tilraun til þess að mynda
stjórn, með þáttölcu merkustu
manna meðal jafnaðarmanna,
demókrata og miðflokksins og
j? j óðernissinna.
Snjóflóð í Austurríki.
Símað er frá Berlín, að mikið
snjóflóð hafi fallið í Innsbruck,
og 8 menn farist.
XX50000000ÍXXXXXXXX5000000C
Síðustu. nýjungar:
Úr, speglar, munnhörpur, leikföng
<>g tilbúin blóm, margskonar teg*
undir og mismunandi verð alt frá
30 kr. og þar yfir.
F. W. H. Hegewald
Hanau No. 140 (Germany).
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Bitt oOetta.
Flogið yfir Vesúvíus.
Nýlega flugu tveir'breskir flug-
menn yfir eldfjalliö Vesúvius, sinn
í hvorri flugvél, fen gosmökk lagöj
upp úr fjallinu aÖ vanda. Þeim
farnaðist báðum vel, en þó þykir
það ekki hættulaust. — Sir Allan
Cobham, sem nú er kunnastur allra
breskra flugmanna, og einn mesti
fíugmaður í heimi, var að fljúga
ineð auömann einn frá Bandaríkj-
unum fyrir fimm árum, og komu
þeir þá til ítaliu. Auðmáður þessi
sló upp á því viö Cobham, aö hann
flýgi með sig yfir Vesúvíus, og
var hann til í það. En þegar þeir
ilugu yfir gíginn, fóru þeir heldur
neðarlega, og lentu í hitastraumi
frá gígnum og fieygðust í einni
svipan 1000 fet í loft upp, með
ofsahraða, en jafnframt kom yfir
þá gas eða einhver ólyfjan, úr
raekkinum, svo að Cobham lá við
yfirliði í svip, en rétti við furðu
fljótt og tókst á síðasta augnabliki
að forða sér og félaga sínum frá
bráðum bana.
MALTÖL
Bajerskt ÖL
PILSNER.
BEST. - ÓDÝRAST.
INNLENT.
Áheit og gjafir
til fríkirkjunnar í Rvík: frá
G. J. 25 kr., J. B. 10 kr„ ANN
Símskeyti
—o—
Khöfn, 3. jan. FB.
Tekjuhalli Bretlands.
Símað er frá London, að
tekjuhalli Englands sé tuttugu
og þremur miljónum sterlings-
punda hærri en i fyrra. Verður
því nauðsynlegt að leggja á
nýja skatta sem því svarar.
riistððiarnar i j
í 300. tbl. Morgunblaðsins birt-
ist grein með þessari fyrirsögn.
Greinarhöfundur kvartar sáran yf-
ir Iþví misrétti, er honum ifinst
bæjarbúar hafi verið beittir, með
því að stöðvuð var öll bilaumferð
á jóladaginn.
Mér finst ummæli greinarhöf.
vera á fremur litlum rökum bygð,
og vildi eg ráða honum til að fá
sér betri fræðslu áður en hann
ritar fleiri ádeilugreinar á bílstjóra
og bílastöðvar. Eg vil fræða greín-
arhöfund á því, að bifreiðastöðv-
arnar eða framkvæmdastjórar
þeirra eiga minstan þátt i því, að
lokað var á jóladaginn. Upptökin
eru frá Bifreiðastjórafélagi ís-
lands. Það kom rnálinu af stað,
og vann algerlega að því, að það
næði fram að ganga. Eg get ekki
skilið hvaða réttlæti getur verið,
i því að bílstjórar fái ekki einn
dag frían, eftir að vera búnir að
vinna alla helgidaga ársins. Sið-
ferðislega finst mér það óréttlátt,
að unna þeim ekki þeirrar ánægju
að geta verið sem frjálsir menn,
þennan stórhátiðisdag, óátalið af
þeim, er ekki þekkja neitt út í
starf þessarar stéttar.
Eg veit, að allur fjöldi manna
er svo andlega þroskaður, að hann
metur jóladaginn meira en aðra
daga, og þeir munu vera Biíreiða-
stjórafélaginu þakklátir fyrir það
að trufla ekki helgi dagsins með
bílaumferð og bílaskrölti.
Eg vil ráða greinarhöfundi til
þess aö afla sér betri upplýsinga
í máli þessu en hann virðist hafa
fengið, áður en hann reit grein
sína, fari hann að skrifa meira
um mál þetta. Hann mun alt af
geta fengið þær upplýsingar, er
hann óskar eftir, lijá stjóm Bif-
reiðastjórafélags íslands.
Greinarhöf. kemst svo að orði,
að það sd skylda bifreiðastöðv-
anna að hafa opið jóladagana
framvegis. En mér er spum: I
hverju er sú skylda fólgin? Eru
það bifreiðastöðvarnar sem skapa
jólagleði einstaklinga. Og eiga þeir
menn, er starfa að bílaakstri, ekkí
eins mikla heimtingu á jólagleðí
eins og Morgunblaðs-greinarhöf-
undurinn ?
Bðstjóri.
\