Vísir


Vísir - 14.01.1927, Qupperneq 2

Vísir - 14.01.1927, Qupperneq 2
VlSIR YHRrMÉtgÖLSEN Höfnm fyrlrlifðfaBði; Kaidissykiir, Stransyknr, Molasykur. Brjéstsyknr. Símskeyt Áætlnn um tekjur og gjöld bæjarsjóðs ReyJkjavíkur árið 1927. Skömmu eftir áramót í fyrra, birti „Vísir“ ágrip af fjárhagsáætlun bæjarins íyrir áriö 1926. Meö því aö telja má sennilegt, að lesöndum blaösins þyki ekki ófróölegt aö vita nokkur deili á því, hverjar séu aöaltekjulincyr bæjarins og hver helstu útgjöldin, birtist hér á eftir útdráttur úr „Áætlun um tekjur og gfjöld bæjarsjóös Reykjavíkur árið 1927“, eins 0g hún var samþykt af bæjarstjórn fyrir áramótin. Tölurnar i svigum eru settar til samanburöar og sýna þær upphæðir sömu tekjuliöa og gjaldliða árið á undan (1926). — Geta má þess sérstaklega, að niðurjöfnun útsvara eftir efnum og ástsfeöum heíir lækkaö úr rúmlega iýá miljón króna'niöur í tæpar 1200 þús. kr., eða um rúmar 330 þúsundir króna. Hins vegar hefir skattur samvinnufélaga og annara, samkyæmt sérstökum lögum, hækkað um helming, úr 20 þús. kr. upp í 40 þús. krónur. T e k j u r: I. Eftirstöðvar frá fyrra ári kr. 200.000.00 (200.000.00) II. Fasteignagjöld — 307.000.00 (292.000.00) III. Tekjur af fasteignum kaupstaðarins — 103.946.00 (104.000.00) VI. Sala á fasteignum — 7.000.00 (7.000.00) V. Tekjur af ýmiskonar starfrækslu — 165.000.00 (128.000.00) VI. Endurgreiddur fátækrastyrkur — 73.500.00 (67.500.00) VII. Endurgreiddur sjúkrastyrkur 0. fl — 46.600.00 (47.600.00) VIII. Ýmsar tekjur — 35.850.00 (33.750.00) IX. Útsvör: 1. Niðurjöfnun eftir efnum og ástæð- um, auk 5—10% umfram kr. 1.177.618.72 (r.509.229.20) 2. Skattur samvinnufélaga 0. fl. .. — 40.000.00 (20.000.00) — 1.217.618.72 (1.529.229.20) X. Tekjuafgangur á reikningi bæjarsjóðs 1925 — 74.985.28 - - Samtals kr. 2.231.500.00 (2.409.079.20) G j ö 1 d: I. Stjórn kaupstaðarins: 1. Kostnaður við bæjarstjórn 0. fl kr. 28.000.00 (30.000.00) 2. Skrifstofa borgarstjóra —- 37.925.00 (33.030.00) 3. Skrifstofa bæjargjaldkera — 32.000.00 (38.530.00) ’ 4. Skrifst. báfejarverkfr. og lóðaskrárrit. — 30.250.00 (27.853.00) 5. Ræsting á skrifstofum bæjarins .... — 6.000.00 (6.000.00) 6. Talsímar á skrifstofum bæjarins ... — 900.00 (900.00) kr. i35-075-°° (136.313.00) II. Löggæsla — 79.900.00 (85.524.00) III. Heilbrigðisráðstafanir — 177.475.00 (174.775.00) IV. Fasteignir — 60.800.00 (91.000.00) V. Ýmiskonar starfræksla — 178.000.00 (170.000.00) VI. Fátækraframfæri — 456.800.00 (367.800.00) VII. Sjúkrastyrkir 0. fl — 144.000.00 (144.200.00) VIII. Til gatna — 193.000.00 (186.000.00) IX. Ráðstafanir til tryggingar gegn eldsvoða . . — 73.450.00 (78.300.00) X. Barnaskólinn — 133.700.00 (327.228.00) XI. Ýmisleg útgjöld — 101.300.00 (117.400.00) XII. Vegna vanheimtu á útsvörum fyrri ára . ... — 75.000.00 XIII. Ýmsir styrkir — 23.000.00 (32.000.00) XIV. Lán (afborganir og vextir) * 'd — 200.000.00 (205.000.00) XV. Eftirstöðvar til næsta árs .... I. — 200.000.00 (200.000.00) Samtals kr. 2.231.500.00 (2.409.079.20) Khöfn 13. jan. FB. Frá Kínverjum. Símaö er frá London, aö for- réttindasvæði Englendinga i Han- kow sé stöðugt í höndum Kín- verja. Bankar Breta og verslanir og skrifstofur þar i borg eru lok- aðar. Ný samningatilraun á milli stjórnarinnar í Canton og Breta hófst í gær. Stjórnin í Canton hvetur Kínverja til þess að forö- ast æsingar á meðan á samninga- tilraununum stendur. Skærur með Rússum og Rúmenum. Símað er frá Bukarest, að rúss- neskir hermenn hafi ráöist á rúm- enskt landamæralið. Rak landa- tnæraliðið Rússa á flótta eftir harðan bardaga. Vestm.eyjum 13. jan. FB. Bæjarstjórnarkosningarnar hér fara fram 26. þ. m„ og eru tveir listar komnir fram. Á lista ihalds- manna eru Páll V. Kolka læknir, Jón Sverrisson yfirfislcimatsmað- ur og Jón útvegsbóndi Jónsson í Hlíð, en á verkamannalistanum eru Þorbjörn Guðjónsson úr 'Kirkjubæ, Guðlaugur Iiansson verkamaður og Jón Rafnsson sjó- maður. flliisilpi - ilPÍðEBlíStSr. —o— Ef eg man rétt, þá hefir á hverj- um yetri undanfarin ár verið talað um atvinnuleysi hér í.bænum, og oft verið farið fram á, að bærinn stofnaði til atvinnubóta. Eg. hefi ekki ílett upp í eldri blöðum, til að styrkja minni mitt í þessu, því. að ef að er gáð, þá er það mjög eðlilegt, að atvinnu skorti hér á veturna fyrir marga þá menn, sem ekki stunda sériðn neina og held- ur ekki fara til sjávar. En að sumrinu er næg vinna fyrir þessa menn að öllum jafnaði, og nauð- synlegt, að þeir séu til að hjálpa mönnum við atvinnurekstur, sem mestmegnis byggist á sumarvinnu. Og það mun lengi verða svo, vegna veðráttufarsins, að miklu meiri vinna fæst að sumrinu en að vetrinum; sumarið verður hér eftir sem hingað til aðalbjargræð- istími alls þorra manna. Þvi er ekki nema eðlilegt, að marga menn skorti atvinnu að vetrinum. Hey- skap, jarðarávinslu, jarðabótum, vegagerðum og fleiru verður eigi unnið að nema að sumarlagi. Húsagerð er mest unnið við að sumrinu; stundum má þó halda húsagerð áfram að vetrinum, en þó þvi aðeins, að blíðskapartíð sé. í staðinn fyrir þessa sumar- vinnu kemur að vetrinum einkum skepnuhirðíng. Þeir, sem í sveit- unum búa, hafa þess vegna nóg að gera allan ársins hring, en kaupstaðarbúana vantar oft vetr- arvinnu, er geti tekið við, er sum- arverkum er lokið. Þó er mikill munur á atvinnu karla og kvenna. Konur hafa frá fomu fari fylgt þeirri reglu, að vetrarkaup væri minna en sumar- kaup. Meðfram,- þess vegna', og svo af því, aö þær eru yfirleitt vinnugefnari, og þeim lætur betur innanhúss störf, hafa þær nóg að starfa að vetrinum. Það er nær eingöngu karlmenn, sem vantar vinnu eða verkefni á veturna. Eg er þeirrar skoðunar, að hægt sé, ef vel er að gáð, að finna verk- efni handa öllum þeim, sem vinnu vantar nú, en samt er hætt við að eigi sé hægt að halda uppi sama kaupi við þá vetrarvinnu, sem menn hafa í viðlögum, þegar aðra almenna vinnu brestur, og finst mér, að menn ættu að sætta sig við það. Eins og nú hagar til, virðast mér örðugleikarnir á því, að allir geti fengið vinnu. vera aðallega i því fólgnir: 1) Að þeir, sem leita að vinnu og þeir, sem þurfa að láta gera fyrir sig minni háttar handtök, farast oft á mis, svo að dálítil þörf fyrir vinnukraft getur verið jafnhliða því, að nokkrir menn ganga iðjulausir, vegna þess, að þeir fá ekki vinnu. Til þess að bæta úr þessu, hafa verið reyndar ráðningastofur, en þær' þáfa ekki hingað til komið að tílætluðum notum, og lagst niður aftur. 2) Einstakir menn, sem mestan hluta ársins ganga að vinnu hjá öðrum, hafa eigi verkefni hjá sér, er þeir geti gripið í, þá er vinna hjá öðrum bregst. Það er í raun- inni eðlilegt, að þessir menn hafi eigi hjá sér verk til ígriþa, er venjuleg vínna fæst eigi. Sumum hugkvæmist eigi nein verkefni, en Jiótt mönnupi detti einhver verk- efni í hug, er venjulega annað til fyrirstöðu, svo að ekkert verður úr framkvæmdum. Það, sem einna helst er til hindrunar, er 1) verk- færaleysi, því að flest ígripavinna útheimtir einhver áhöld eða verk- færi, 2) vöntun á efni til að vinna úr, 3) vöntun á húsrúmi, þvi að við fæst af þessari ígripavinnu er unt að fást, þar sem húsnæði er svo lítið og óhentugt og hjá flest- um þeim, sem daglaunavinnu stunda hér. Og síðast en ekki síst 4) erfiðleikamir á því, að koma þessari ígripavinnu í peninga; menn verða að eiga það undir hepninni, hvort og hvenær þeir geti selt þá muni, sem þeir hafa búið til. Og þegar svo er, þá er engum Iáandi, þótt hann gangi ekki að því með miklum áhuga að útvega sér verkefni til að grípa í. Efasemdirnar við það að geta gert sér peninga úr þessari vinnu, hljóta að draga úr mönnum áhug- ann og kjarkinn til framkvæmda. Hér hafa verið taldir nokkrir erfiðleikar, sem hjálpa þarf ein- staklingunum með að komast yfir. Og mér dettur þá í hug, að flest af þessu séu tilvalin verkefni fyrir heimilisiðnaðarfélag. Slíkt félag ætti að geta bent mönnum á verk- efni, sem heppilegust væri, útveg- að efniviðinn, verkfæri og áhöld, sem við ættu, og það með góðum kjörum, og komið lagi á sölu iðn- aöarins, svo að þeir, sem eitthvað ynnu, mættu eiga vísa peninga fyrir störf sín. Sennilega ætti fé- lagið öllu erfiðast með að ráða fram úr húsrúmsleysinu, en gæti þó efalaust rétt þar hjálpandi hönd. Hér er Heimilisiðnaðarfélag Islands. Mér er fremur lítið kunn- ugt um störf þess; en tel víst, að það vinni að þessum málum, og veki menn til starfa. En þeg- ar talað er um atvinnuleysi, ætti það aldrei að sitja þegjandi hjá, heldur benda á það, sem það get- ur gert til að draga úr atvinnu- leysinu. Eg gæti trúað, að það yrði ýmsum að liði. Hins vegar hefi eg ekki látið mér detta í hug, að Heimilisiðnaðarfélag íslands gæti ráðið algerlega bót á því at- vinnuleysi, sem virðist vera hér nálega á hverjum vetri, nema það fái til þess öflugan stuðning frá bæjarfélagi og landsstjórn. Vegna veðráttufars og annara landshátta, má sem sagt búast við meira eða minna atvinnuleysi hér á veturna, meðan menn hafa eigi lært að haga atvinnu sinni þannig, að þeir hafi til taks einhverja inni- vinnu, er veðrátta hamlar útivinnu. Það ber að mínum dómi vott um hlálegt minnisleysi, svo eg eigi segi fyrirhyggjuleysi, að fara þá fyrst að hugsa um atvinnubætur, er vetraratvinnuleysið er skollið á, þvi að það er hér viðlooandi á hverjum vetri. Það er annars leitt að tala um atvinnubætiMT, því að orðinu fylgir illur dámur. I augum sumra eru atvinnubætur sama og atvinna, sem veitt er í gustukaskyni, og þá er ekki langt til þess, að þeir skoðist nokkurs konar gustuka- menn, sem þar taka vinnu. En aðrir líta svo á, að það sé skylda ríkis og bæjarfélaga að sjá þeim fyrir vinnu, sem atvinnulausir eru, og þeir, sem vinnu fá við þessar atvinnubætur, taki aðeins það, sem þeir sem mannfélagsborgarar eiga heimtingu á. Þótt þeir, sem þessa skoðun hafa, hafi töluvert til síns máls, því að óneitanlega ættu þessi mannfélög að haga högum sínum og háttum þannig, að engir þyrftu að ganga iðjulausir, sem sýna af sér tilhlýðilega viðleitni til að afla sér atvinnu, þá er þó varla holt að ala þessa skoðun mjög í brjóst- um almennings, né framfylgja henni út í ystu æsar, því að hætta er á því, að sjálfsbjargarviðleitni sumra sljófgist þá, og þeir vilji láta rétta sér alt upp í hendurnar. En þá eru menn komnir út á háskalega braut. öllum opinberum Utan af landi. —o— /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.