Vísir - 25.01.1927, Blaðsíða 3
V i51K
ÍOTORCARCI
ÐETROIT.
V MICH.V
XtlSJL/
MOTORS
v DETROIT
'‘S^USA
Hudson og Essex bifreiöar liafa nýlega verið mjög mikið
íendurbættar og eru nú áreiðanlega, og án tillits til verðs, lang
skrautlegustu, þægilegustu og bestu bifreiðirnar, sem hingað
fiytjast.
Væntanlegir kaupendur geri svo vel og snúi sér sem fyrst
iil undirritaðs einkaumboðsmanns verksmiðjunnar á Islandi,
er gefur allar nánari upplýsingar.
S. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að enginn annar
en eg' hefir umboð til að flvtja ofangreindar bifreiðir
til landsins.
sér sé ráðstafað. pessu mikil-
væga atriði virðist mér allir
þeir gleyma, sem rita um Græn-
land nú. Allar þær þjóðir, sem
seilast þarna til landkosta, virð-
ast eingöngu hugsa um, að
gera landið að féþúfu fyrir sjálf-
ar sig, en hirða litið um frum-
byggjana. petta er nú að visu
eðlilegt, af því að landið er nú
illa með farið fótaskinn Dana
einna. Ástandið getur því eigi
versnað, heldur batnað fyrir
Eskimóana, svo framt sem þeir
eru menningarhæfir, ef landið
væri opnað fyrir fólki, sem hæft
er til að gera auðlindir þess
mannkyninu arðsamar. peim
myndi eflaust vegna best undir
friðarstjórn Islendinga.
Eg lit svo á að það sé háska-
leg kenning að segja að vér Is-
lendingar eigim Grænland nú,
af þvi atviki einu, að það voru
íslenskir menn, sem í fornöld
námu það. pegar t. d. Englend-
íngar eða Frakkar stofna ný-
lendur á vorum dögum, þá er
það beinlínis enska eða franska
ríkið, sem gerir þetta, svo að
þá er sjálfsagt að móðurlandið
eigi nýlenduna, enda vilja ný-
lendumenn sjálfir halda stjórn-
artengslum við gamla landið.
En í fornöld Norðurlanda var
þessu á allt annan veg háttað.
pá voru það einstakir menn,
án afskifta ríkisvaldsdns og
jafnvel að þvi nauðugu, sem
hlupu úr landi og námu ný land-
svæði. peir vildu eigi vera í nein-
um stjórnmálatengslum við
móðurlandið þótt þeir siðar tæki
lög þess í mörgu sér til fyrir-
myndar. En svo þegar þeir
höfðu búið nokkra áratugi í
nýja landinu og voru orðnir
nægilega fjölmennir, settu þeir
■sér’lög og stofnuðu sjálfstætt
ríki. pannig var það í Færeyj-
um og þó enn betur hér á ísr
landi um norsku mennina, er
hingað fluttu og þannig varð
það síðar um íslenzku mennina
er fluttust til Grænlands. Ef Is-
lendingargetakrafist Grænlands
nú, fyrir það eitt að íslenzldr
menn námu þar land, þá geta
Norðmenn með sama rétti
heuntað ísland undir sig, af því
að það voru norskir menn, er
námu hér land. petta gildir því
fremur sem það er sami ætt-
sfofninn, er enn byggir land
vort. pess vegna verður að vísa
islíkum kenningum á bug sem
skaðvænum fyrir sjálfstæði
vort. parna þarf að vera vel á
verði vegna innar gegndarlausu
ásælni Norðmanna nú i alt það,
sem vér teljum islenzka eign og
afrelc; og' ennfremur í allt það
sem þeir telja að einhverntíma
hafi verið norskt.
NiSurl.
Jóhannes L. L. Jóhannsson.
Jarðarför
Ólafs læknis Gunnarssonar fer
fram á morgun og hefst meö hús-
kveðju kl. iy2.
Yeðrið í morgun.
Hiti uiú land alt. I Reykjavik
4 st., (engin skeyti úr Yest-
mannaeyjum og Hólum iHorna-
firði), ísafirði 4, Akureyri 4,
Seyðisfirði 4, Grindavík 4,
Stykkishólmi 4, Grímsstöðum 0,
Raufarhöfn 2, Angmagsalik -v-
3, Færeyjum 6, Kaupmannahöfn
1, Utsira 5, Tynemouth 8, Hjalt-
landi 7, Jan Mayen 1 st. — Mest-
ur liiti hér í gær 5 st., minnstur
2 !st. Urkoma 12.1 mm. Kyrstæð
lægð um 710 mm. við suðvest-
urland. Allhvass suðvestan í
Norðursjónum. — Horfur: Suð-
veisturland: I dag og nótt all-
livass suðaustan. píðviðri. Faxa-
flói og Breiðafjörður: I dag
minkandi austan vindur. píð-
viðri. 1 nótt austlæg átt. Vest-
firðir: I dag allhvass norðaust-
an. 1 nótt austan átt. píðviðri.
Norðurland og norðausturland:
I dag og nótt: Austlæg átt. pið-
viðri. Austfirðir og suðaustur-
land: I dag og nótt: Suðlæg átt.
píðviðri.
Maður hrarf
hér í bænum síðastliðið laug-
ardagskveld. Hann hét Sigurjón
Ásmundsson og var bryti á
Hi* F. H. KfertHsson a Ca.
— Hafnarstræti 19. —
— Sími 1520. -
Hrisgrjón.
% F. H. Kjðrtanfi l Co.
— Hafnarstræti 19. —
— Sími 1520. —
M.HJartannlCo.
— Hafnarstræti 19. —
- Sími 1520. -
Húsmæðnr, reynið P E T-dðsamjðlkina,
B ARNAF AT A VERSLUNIN
á Klapparstíg 37. Nýkom-
ið prjónasilki hvítt og mis-
litt 7 kr. meterinn (tvíbr)
„Svan“, Breiðafj arðarbá tnum.
Lík hans fannst sjórekið i gær
skamt frá Höfða, hér innan við
bæiiin. Óvíst er, með hverjum
hætti Sigurjón hefir beðið bana.
Sjómannakveðja.
FB. 25. jan.
Liggjum á Önundarfirði. Kær
kve'ðja til vina og ættingja.
Skipshöfnin á Menju.
Fermingarböm
dómkirkjusafna'Sarins komi í
kirkjuna sem hér segir: Ferming-
arbörn síra Bjarna Jónssonar miö-
vikudag kl. 5, og fermingarbörn
sira Fr. Hallgrímssonar, fimtu-
dag kl. 5. — Fermingarbörn frí-
kirkjunnar eru beöin aS koma til
viötals viö prestinn á morgun í
fríkirkjunni kl. 5 síöd.
Kvenréttindafélag íslands
heldur 20 ára afmæli sitt á
fimtud. 27. þ. m. á Hótel Island, ef
nógu margar félagskonur taka
þátt í því. Er mjög líklegt, aö
margar þeirra vilji vera meö,
eínkum þær, sem lengst hafa ver-
iö í félaginu og fylgst hafa frá
upphafi meö starfsemi þess. Eru
slíkar tímamótahátíöir hentugar
til að gera yfirlit yfir störf félags-
ins á liönum árum, og einskonar
áætlun um, hvað gera þarf í
framtíöinni. Afmælisfagnaöurinn
hefst kl. 8 síöd. me'S kvöldveröi,
og veröa félagskonur að láta ein-
hverja af stjórnarkonum vita,
hvort þær veröa meö, fyrir kl. 12
á miðvikudaginn.
Menja
er á Önundarfiröi.
Botnía
kom til Leith í fyrramorgun.
Gamla Bíó
sýnir nú ágæta rnynd, sem heit-
ir „Landfiótta höföingjar“. Hún
er tekin eftir skáldsögu Alphonse
Dáudet. Um myndtökuna hefir
séö hinn nafnkunni leikari Victor
Sjöström.
Nýja Bíó
sýnir í fyrsta sinni í kveld mynd
er heitir „Móöurást", — Leikur
Mary Carr aöalhlutverkiö. Leik-
kona þessi hefir sést hér áöur í
kvikmyndúm, og þótt leika vel.
Loftnet
útvarpsstöðvarinnar slitnaði niö-
ur í rokinu í gær, og er þess vegna
óvíst, hvort hægt verður að út-
varpa í dag.
Skáldsagan
Fórniús ást
fæst á aigreiðslu.
Vísis.
Verslunarmannafél. Rvíkur
heldur 36 ára afmæli sitt hátiö-
legt næstkomandi fimtudag meö
kveldskemtun og dansleik. —
Skemtiskráin er mjög fjölbreytt,
og á dansleiknum spila til skiftis
hljóðfærasveit Bernburgs og Ro-
senberg Trio. Aðgöngumiöar fyrir
félagsmenn og gesti þeirra eru
ekki seldir lengur en til annars
kvelds.
Hannes ráðherra
kom frá Englandi í gær og
lagðist að hafnarbakkanum i
morgun.
Lyra
kom x nótt og liggur á ytri höfn.
Hún verður í sóttkví þangað til
annað kveld. Ókunnugt er um far-
þega, þegar þetta er ritað.
Mari,
norskt flutningaskip, kom hing-
að í nótt frá Austfjörðum.
Þór .
kom úr eftirlitsferð í nótt.
GENGI ERL. MYNTAR.
Sterlingspund . .;.....kr. 22.15
100 kr. danskar........— 121.64
100 — sænskar .............— 121.94
100 — norskar............ — 116.53
Dollar .................. — 4.56%
100 frankar franskir ., — 18.25-
100 — belgiskir . — 12.64
100 — svissn.........— 88.13
100 lírur ............. — 20.01
100 pesetar .............— 74.32
100 gyllini .............— 182.88
100 mörk þýsk (gull). — 108.32
U. M. F. Velvakandi
heldur fund í kveld kl. 8)4 í
Kirkjutorgi 4, uppi.
Gjöf
til Hallgrimskirkju, afh. Vísi,* §
kr. frá Stefáni Árnasyni.
Hitt 06 Þetta.
„Herra og frú Losange “
köllúðu þau sig Leopold krón-
prins Belga og Astrid prinsessa
er þau voru í brúðkaupsferð til
Ameríku. pau bjuggu á ódýr-
um gistihúsum og nutu friðar
og hvildar, eins og fólk flesf,
nokkurar vikur, en þegar þau
komu til Parísar þektust þau —♦
og þá var úti friðurinn.
Talandi tölur.
Giftingar í Bandaríkj unum
árið 1925 voru 0,3 færri af
hundraði en árinu áður. Hjóna-
skilnuðum hefir aftur á mótí
fjölgað á sama tímabili um 2,7Í
af hundraði. •— pað er ekki að
furða þótt Bandaríkjamönnum
finnist sér misboðið, ef „fráskil-
in“ frú sækir um landgöngu-
leyfi hjá þeim.
Chaplin.
Charlie Chaplin er langkunnastij
kvikmyndaleikari, sem nú er uppL
Eins og kunnugt er, fór hann ung-i
ur vestur um haf frá London, ætt-f
borg sinni, og hefir leikið fyrir
kvikmyndafélög í Bandaríkjunum,
En nú hefir komið til mála, afí
hann flytti sig búferlum austur tií
Englands. Ef úr því verður, mtm
hann framvegis verða í þjónusttt
breskra kvikmyndafélaga. -- :