Vísir - 24.02.1927, Blaðsíða 3

Vísir - 24.02.1927, Blaðsíða 3
VlSIR greipum mér með vifilengjum og aukaatriðum. Um bæði þrætuatriðin bera jbréfin best vitni. f bréfi Sís frá 4. nóv. 926 stendur: „Áður en vér tökmn afstöðu til þessarar uppástungu ....“. Hér er það hreint og beint sagt að Sís þiggi ekki að svo komnu tilboð N. H., eins og það lá fyrir, mn við- •skifti, eða, eins og bréfritarinn segir, taki ekki afstöðu. þetta er hverjum skynbærum manni, sem bréfið les alveg augljóst. J?að lá fyrir viðurkent tilboð frá N. H. og ef þvi tilboði hefði verið tekið með viðeigandi sam- þykki frá Sis, var samnings- hundið verslunarsamband þeg- ar myndað milli félaganna. En þetta var elcld gert, Sis þáði ekki umboðið. pað þarf ekki að telja mönnuin neina trú um að svona sé, bréfið sýnir það sjálft og kringum það verður ekki kom- ist, þvi það er ekki véfengt að eftirritið sé rétt. pað er þvi fullsannað að stað- hæfing min um þetta atriði var rétt. þá komum við að hinu þrætu- atriðinu. A. K. viðurkennir að hak við liina bréflegu fyrir- spurn Sís hafi legið ótti við það að N. H. mundi selja N. & O. með lægra verði en Sís. Hann virðist og viðurkenna það sem raunar er alkunna, að það sé óheiðarleg verslunaraðferð að selja, að öðru jöfnu, með mis- munandi verði, eftir þvi við hvem er skift. Til þess að reyna nú að komast hjá því, að lála það líta svo út, að di'óttað hafi verið slíkum ólieiðarleik að N. H. i bréfi Sís, kemur hann nú með þá útskýringu og afsökun, að þvi er virðist, að ekki hafi staðið jafnt á með viðskifti N. H. við N. & O. annarsvegar og Sís hinsvegar. En N. & O. segir hann að hefðu fyrst um sinn orðið stærri lcaupendur en Sís og þvi eðlilegt og ekkert óheið- arlegt af N. H. þótt það gæfi N. & O. betri lcjör. petta kveðst hann liafa átt við og viljað fyr- irbyggja, en alls ekki hafa meint að N. H. mundu reka óheiðar- lega verslun. J?etta hefðu nú verið nógu þægilegar bakdyr til að smjúga út um, þegar i óefni var komið, ef A. K. hefði ekki sjálfur verið húinn að harðloka þeim áður. 1 niðurlagi margnefnds bréfs frá Sís er það beinlínis sagt, að Sís muni hvorki þurfa meira né minna en 250 smál. næsta vor, ef til verslunar komi. N. & O. munu hafa flutt inn um 200 smál. árið 1925 og um 300 smál. 1926 (seldist þó ekki alt á ár- ínu). En Sís ætlar, eftir þvi sem bréfið segir að byrja viðskifti sín við N. H. með þvi að kaupa inn 250 smál. Af þessu er auð- sætt að það ætlaði sér að yfir- taka verslunina að mjög miklu leyti, eða, að úr áburðarverslun N. & O. hefði minsta kosti hlot- ið að draga svo mikið að það hefði, eftir þessum plöggum að dæma, orðið minni viðskiftaað- ilji en Sís. Með þessu er fullkom- lega sýnt og sannað að sú eina útskýring sem A. K. vill draga úr aðdróttuninni með og getur gefið, er bláber fyrirsláttur og akkert annað. þessi hugsun, sem bann nú vill láta hafa legið bak við fyrirspurnina, sýnir hin stóra pöntun í enda bréfsins, að gat með engu móti átt sér stað. Bréfið sýnir þvert á móti að Sís stóð betur að vigi gagnvart N. H. hvað vörumagnið snerti heldur en N. & O. pegar þessi spilaborg A. K. er hrunin, rís upp sá sannleikur á rústum hennar, að verslunarað- staða Sís gagnvart N. H. var minsta kosti að engu leyti lak- ari en N. & O. Mismunandi verð og skilmálar frá N. H. við þessi tvö félög hefði því verið óheiðarleg verslun, en þar sem' A. K. viðurkennir það nú sjálf- ur, að bak við fyrirspurnina i bréfinu liggi ótti við það, að N. & O. nái betra verði lijá N. H. en Sís, er alveg augljóst orðið, að i fyrirspurninni hggur að- dróttun til N. H. um ófieiðar- leik i viðskiftum — hvort sem þetta fiefir orðið viljandi hjá bréfritaranum eða ekki. J?annig virðist og N. H. hafa skilið þessa setningu bréfsins, eins og eg hefi áður sýnt fram á, því að það tekur svo djúpt í árinni, að það segir beinlínis að það kæmi i bága við heiður sinn og álit ef það gæfi sig inn á þesskonar \erslun, sem þvi skilst að Sis væni það um. petta olli þvi að N. H. kipti að sér hendinni og Sís varð af um- boðinu i bráðína. Að fyrirspumin i bréfinu er klaufaleg og tryggir ekki Sís á neinn hátt fiefi eg áður sýnt. Nú liggja þessi tvö þrætuefni bæði Ijóst fyrir og eins og þau gerðu þegar er bréfin höfðu ver- ið birt. A. K. virðist líka áhta að þau hafi slegið óþarflega mikilh birtu yfir málið. Eg vil ekld drótta neinu óheið- arlegu að A. K. né móðga hann frekar en aðra menn. En i þessu sambandi kemst eg ekki fijá þvi að láta mér detta i hug hvað fiáttur manna og dýra getur oft verið líkur. þegar refnum þyk- ir of bjart yfir, þyi'lar hann upp ^mjöllinni og býr til blindliríð, til þess að geta veitt rjúpurnar. A. K. þykja bréfin slá of miklu Ijósi yfir málið, notar sömu liemaðaraðferð — en virðist að- allega blinda sjálfan sig. pótt A. K. kunni nú sér til gamans að þyrla upp nýjum reyk utan um þessi deiluatriði okkar, sem þó eru alveg aug- Ijós, mun eg ekki nenna að blása á þann reyk oftar. Rvík, 22. febr. 1927. Hermann Jónasson. Ath. Deilu þessari er nú lolc- ið í Vísi. Ritstj. frá Vtt-lslidiiuni. jóhannes Jósefsson, glímukappi, er fyrir nokkum kominn aftur til Vesturheims, en hann var, eins og kunnugt er, að sýna listir sýnar í Erakklandi og pýsklandi í haust og fyrri part vetrar. Mannalát. pann 1, jan. þ. á. andaðist i Langrath í Manitoba, Magnús BARNAFAT A VERSLUNIN á KLapparstíg 37. Skírnar- kjólar kornnir aftur. Kaprasíusson, fæddur hér í Reykjavík þ. 22. des. 1857. Var faðir hans póstur um nokkurra úra skeið mihi Reykjavíkur og Keflavikur. — Magnús fluttist vestur um haf 1892 og settist að i Argylebygð, hjá systur sinni, Guðrúnu að nafni. Kona Magn- úsar var Guðný Jónsdóttir frá Bæ i Andakilshreppi i Borgar- fjaðarsýslu, og lifir hún mann sinn ásamt einni dóttur. Jakob Nesbit, sonur Jens Mýr- dals og konu hans, andaðist ný- lega i Winnipeg. Jakob var 17 ára, fæddur á Akureyri. Brynjólfur porláksson, organisti, kom til Winnipeg i janúar. Hafði hann þá dvahð síðan i ágúst í fyrra við söng- kenslu i Norður-Dakota. Lík Odds sál. Hermannssonar, skrifstofustjóra var, samkv. tilkynningu frá sendih. Dana, sent frá Kaupmannahöfn með Gullfossi sl. þriðjudag. — Var fialdin sorgarguðsþjónusta i Holmenskirkju, áður en hkið var flutt á skipsfjöl. Síra Hauk- ur Gíslason stýrði guðsþjónust- unni og fjöldi íslendinga tók þátt i líkfylgdinni, þ. á. m. Sveinn Björnsson sendiherra. Veðrið í morgun. Frost um land alt. í Reykja- vík 6 st., Vestmannaeyjum 1, ísafirði 5, Akureyri 10, Seyðis- firði 1, Grindavik 6, Stykkis- hólmi 7, Grímsstöðum 12, Rauf- arhöfn 8, (engin skeyti frá Hól- um í Hornafirði, Tynemouth og Hjaltlandi), Færeyjum 1, Ang- magsalik 11, Kaupmanna- fiöfn 1, Utsira 5, Jan Mayen -f- 3 st. — Mestur hiti hér í gær -4- 2 st., minnstur -4- 6 st. Djúp lægð um 1000 km. suðvestur af Reykanesi, sennilega á norður- leið. Suðlæg átt i Norðursjó. — Horfur: Suðvesturland og Faxa- flói: I dag austlæg átt, vaxandi með kvöldinu. í nótt hvessir sennilega á suðaustan. Breiða- fjörður og Vestfirðir: í dag stilt veður og i nótt vaxandi austan- vindur. Norðurland, norðaust- urland og Austfirðir: í dag stilt veður og úrkomulaust. I nótt austlæg átt. Suðausturland: í dag: Hægur norðan. I nótt: Vax- andi austanvindur. Háskólafræð&la. Dr. Kort K. Kortsen flytur í dag i háskólanum kl. 5—6 fyrir- lestur um nútímabókmentir Dana. Aðgangur ókeypis fyrir alla. Hjónaefni. Trúlofun sína opinberuðu fimtudaginn 17. þ. m. ungfrú Ásta Oddsdóttir (Jónssonar hafnarfógeta) og Carlo Jensen, tannlæknir. bifreiðagúmmí hefur lækkað stórkostlega í verði. dekk Cl. 30X3-1/* kr. 45 00 Slöngur kr. 9.00 31X4 — 5600 — — 12 00 ss 31X4 — 70 00 — — 1200 — — 32X4—V* — 95 00 , — — 15 50 — — 33X4-72 — 98.00 — — 15.50 — 33X5 — 107.00 — — 19.50 30X5 — 105 00 — — 18.00 — — 35X5 — 125.00 — — 21 00 Ballon dekk 29X4,40 — 52.00 — — 9.00 — 30X4,95 — 73.00 — — 1300 — 32X5,77 — 10500 — — 13 50 — — 33X6 — 112.00 — — 15.00 Aðalumboðsmenn á íslandi Jóh. ðlaisson & Co. Reykjavlk. Guðm. Kamban hefir framsagnarkveld i Nýja Bíó kl. 7% síðd. á morgun. Að- göngumiðar kosta 2 kr. og fást i bókaverslunum og við inn- ganginn. Fermingarstúlkur frikirkjusafnaðarins eru af sérstökum ástæðum beðnar að koma til spurninga kl. 5 á laug- ardag, en ekki á morgun, eins og venja er. Verslunarmannafél. Rvíkur heldur fund annað kveld ld. 8% í Kaupþingssalnum. — Ýms félagsmál á dagskrá. Leikhúsið. Munkarnir á Möðravöllum verða leiknir annað kveld. Að- göngumiðar seldir með lækk- uðu verði. Leiðrétting. I auglýsingu frá hf. F. H. Kjartansson & Co., sem stóð í Vísi i gær, hafði af vangá verið sett myndamót af reikningsvél i stað ritvélar, sem auglýsingin hljóðaði um. Timburskip er nýkomið til Árna kaupm. Jónssonar, Kristín Sigfúsdóttir: Óskastund- in. 4,00, ib. 6,00.. Höf eykur enn hróður sinn.með þessum undurfagra ævintýraleik. Kynjaborðið, gullasninn og kylf- an í skjóðunni. 3,00. — Mun hvervetna velcja fögnuð með- al þeirra, sem hún er ætluð, eldd síst vegna htmyndanna. Lie, John: Egill á Bakka. 1,00, ib. 2,50. Ágæt saga handa börnum. Botnia kom til Leith í gær um há- degi. Suðurland fór til Borgarness í morgun. Njörður kom frá Englandi í nótt. Af veiðum kom Ólafur í nött og Snorri goði i morgun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.