Vísir - 06.05.1927, Síða 3
VÍSíR
ír eftirlit meS þeim verlcum,
sem unnin eru á þeirra áliyrgð.
Veitingahúsin. 1 tilefni af því,
.að tveir menn óskuðu eftir með-
mælum bæjarstjórnar til þess
að reka veitingahús i bænunx
var lögð fram skýrsla um veit-
ingastaði sem nú eru, og eru
þeir alls 23. — Mál þetta var
rætt nokkuð á víð og dreií', og
síðan visað til fjárhagsnefndar
íil frekari athugunar.
Barnaskólinn nýi. Skólabygg-
ingarnefnd hefir nú ráðið Sig-
urð Guðnxundsson húsameist-
ara til að hafa á lxendi forstöðu
skólabyggingai'innar, en eftir-
lilsstarfið með byggingu skólans
hefir hún falið Sigurði Flygen-
ring.
Innan skamrns verður boðin
út steypuvinnan við kjallarann
með lofti yfir.
Elliðavatn. Samþykt var að
bærinn kaupi jörðina Elhðavatn
til þess að geta lxagnýtt engjai’ii-
ar i þágu rafmagnssöðvarinnar.
Erindi frá Verslunarmanna-
félagi Rvíkur um lokun sölu-
búða á laugardögum kl. 4 frá 1.
júlí til 1. sept. var vísað til bæj-
arlaganefndar.
Reglugerð fyrir Íþróttavöllínn
var samþykt.
Sextug
verður í dag húsfrú Sólveigi
Benjamínsdóttir á Sjónarhól i
Haí'nai'firði. Hún er fædd 25.
apríl 18G7 á Hróbjargarstöðum
í Hnappadalssýslu. — Sextán
vetra fluttist hún úr föðurhús-
um suður í Njarðvíkur. par eft_
ir dvaldist hún á Iválfatjörn lijá
séra Árna porsteinssyni og frú
hans. paðan giftist hún 20. júni
1889 Eiríki Jónssyni, af Fjalls-
ætt á Skeiðum, mætum manni
áð allri atgeryi. þau hjón bjuggu
18 ár á Halldórsstöðum á Vatns-
leysuströnd, en fluttu síðan til
Hafnarfjarðar og reistu sér þar
hús það, er húsfrú Sólveig býr
-enn i. þeim hjónum varð 11
bai'ua auðið. Komust niu af
þeim til aldurs.
Húsfrú Sólveig var þegar á
unga aldri mannvænleg, og var
spá allra, er henni kyntust, að
liún mundi verða nýt kona og
góð. Sú spá hefir og ræst. Hún
hefir reynst skörungur um alt,
hyggin og góðfús, enda hefir
mjög á það reynt. Flest árin,
sem þau hjón, Sólveig og Eirík-
ur, bjuggu á Halldórsstöðum,
var fiskileysi mikið og' þröngt
fyrir dyrum hjá l'lestuixi þar
uixx slóðir, og' óixxegð þeirra var
mikil. Eiríkur bóndi vax'ð því
axiöi’g sunxur að leita sér atvinnu
ú Austfjörðum, en húsfreyja var
þá eiix heima með 8 eða 9 börxx,
þegar fraixx i sótti. Ekki áttu þau
yfir að ráða nema rúmlega einu
kýrgrasi, og svo höfðu þaxx ein-
hverja garðrækt. Lætur þvi að
likum, að ekki liafi þá altaf ver_
jð gnægtir innan stokks hjá lxxis-
fi’eyju. Bn því bregða allir við,
«r til þektu, livilikan dugnað,
hagsýni og þrautseigju lxún hafi
þá sýixt. Og ekki liafði lixux æðr-
ast, þótt nokkuð syrti í álinn. —
þ’egar 6 böi’ii voi’u hjá henni á
palli, sitt á hverju ái’inu, og
bóndi hennar austur á fjörðum,
<og lxún fór eigi ein, bar svo til,
Työ til þrjú herbergi
í miðbænum óskast frá 14. maí. Eins árs leigusamningui’, ef
óskast. A. v. á.
að eina kýrin fórst úr miltis-
bruna. Lánstraustið var tak-
nxarkað og úr harla litlu að
spila. Hún leitaði ekki fátækra.
hjálpar, lieldur vann og barðist
nótt með degi, örugg og ástrik
börnum sínuni, svo að þau hjón
gátu bætt sér kxx unx haustið, og
hafði þó bóndi hennar borið
skarðan lilut úr Austfjörðum
það suinar.
En oftar reyndi á húsfrú Sól-
veigu en i þetta sinn. prenx ái'-
xnix áður en þau hjón fluttusl
til Hafnarfjarðai’, mistu þau
uppkominn son i sjóinn, Benja-
nxin að nafni, ágætlega efnileg-
an mann. Nokkur síðustu lxjú-
skaparár þeirra hjóna, var Ei-
ríkur bóndi nxjög þrotinn að
heilsxx. Svo íxxisti lxúxx hann í sjó-
inn 1922, ásamt syni þeirra, er
Jón lxét, afbragðs myndarmanni.
Loks varð hún fyrir þeim liarmi
að missa í sjóimx 1925 Bjarixa
son sinn, prýðilega efnilegan
mamx.
Um það ber öllum saixxan, er
best þekkja liúsfrú Sólveigu, að
henni lxaxi „hvorki brugðið við
bana né sár“. Hún hafi altaf
verið sama lietjan, kyr og föst,
úrræðamikil, umhyggjusöm
börnum sínunx og ástúðleg. Og'
aldrei bafi lixui, fyr eða siðar,
neitt það til sparað, er horfa
íxxætti börxxuxxx hennar til ment-
unar og menningar. Er þvi álil
xxllx’a, sem best þekkja til, að
hún hafi verið ágæt eiginkona,
fyrirmyndar móðir og skörung-
ur í liyeiri raun, og sómi sér því
á margan hátt prýðilega nxeðal
íslenskra kvenna. Og „ekki er
að sjá, að elli hana saki“. Hxxn
er ern og örugg enn, úrræðagóð
og ung í anda.
Hún á sex börn á lifi. Eru
þau: Sigi’íðuf, Ijósnxóðir í Hafn.
arfii’ði, sem unx flest er talin
munu kippa i kyn til móður
sinnar, Jón, skipstóri á togai’-
anum „Sindra“, Björn, stýri-
rnaður á sama slcipi, báðir dugn-
aðai’- og framkvæmdar-menn
og eiga báðir í skipinu, og
Benjamín, Ásta og Katrin, öll
efnismenn, lieima lijá móður
sinni.
pað nxá að lokunx segja nxeð
sanni, að hxxsfrxi Sólveig hefir
vei’ið og er unx flest sónxi sinn-
ar stéttar, alþýðunnar.
Og í nafni allra þeirx’a, senx
hana þekkja, árna eg henni
langra lifdaga og hamingju-
samra, og vona, að henni verði
ævikveldið bjart og lilýtt. Hún
á það nxargfaldlega skilið.
25. apiTl 1927.
Hnappdælingur.
Jarðarför
frú Lucindu ísleifsson fór
fram j gær við fjölmenni. Præp.
lxon. Skúli Skúlason flutti liús-
kveðju, en sii*a Bjarni Jónsson
flutti likræðu i dómkirkjunni.
Frændur og Vinir hinnar látnu
báru kistuna í kii’kju, en úr
kirkju starfsmenn stjóriiarráðs-
ins.
Háskólafæðsla.
Dr. Kort K. Kortsen hefir æf-
ingar i dönsku í dag kl. 6—7.
Aðgangur ókeypis.
Um Kristínu Sigfúsdóttur
skáldkonu birtist nýlega grein
i Lundúnablaðinu Tinxes. Segir
þar frá bókunx hennar og sjálfs-
mentun. Ennfremur er getið
um samsæti það, sem konur
liéldu hér í vetur, skáldkonunni
til sænxdar. Greinin er eftir
fréttaritara Tiines hér í bænum,
Mr. II. Little.
Halldóra Henriksdóttir,
pinghollsstræti 5, ekkja Er-
lends heitins Magnússonar gull-
snxiðs, á 76 ára afnxæli á morg-
un, laugardag 7. nxaí.
Heni’ik Dahl
syngur í kvelcl í Nýja Bíó kl.
7,15 stundvíslega. Allir, sem hlust-
uðu á hann síðast, skemtu sér af-
bragðsvel, og þeir, sém unna góðri
sönglist, og' hnyttilegum vísum,
þurfa aS heyra Dalxl. Hann syng-
ur í kveld flest þau lög, senx
skemtu áheyröndum best síðast, en
auk þess nokkur ný lög til viSbót-
ar. Væri ekki hægt að fá ljóskast-
ara í Bió, svo að áheyrcndur geti
betur séð svipbrigöi söngnxaixns-
ins? Þa'S væri sérstaklega ganxaix,
þegar liann syngur Bellnxans-lög-
in og „Byssaxx lu“. Ósóttir að-
göngum.iðar verða seldir við inn-
ganginn.
Lýra
fór héðan í gærkveldi. Meðal
farþega voru Einar skáld Bene-
cliktsson, Haukxu' Thors og frú,
Ludvig Andersen, Ól. Gunnlaugs-
son, Haraldur Björnsson, Nikulás
Friðriksson. Einnig fór fimleika-
flokkur tiÞNoregs, 13 meyjar og
9 ungir nxenn, undir stjórn Björns
Jakobssonai’,en fararstjóri flokks-
ins er A. Bertelsen.
Alheimsbölið,
nxyndin í Nýja Bíó, verSur að
líkindum sýnt í síöasta sinn fyrir
lækkað verð, í kveld.
Margt aðkomumanna
er statt hér í bænum, sem hafa
komi'ö á síðustu skipum. Þar á
meSal eru: Siguröur H. Kvaran,
síra Arnór Árnason, kaupfélags-
stjórarnir Björn Kristjánsson, Sig-
urjón Sigurðsson, Sigfús Jónsson,
Ólafur Lárusson, Vilhj. Þór, Ingi-
nxar Eydal kennari, Daviö Jónsson
frá Kroppi.
Esja
kom hingaö 5 gær úr hringferö.
Fr. H. Kjartansson,
heildsali, var meöal farþega á
Brúarfossi frá útlöndum.
Slimí
Jilr-jíWí
Regnhlíf ar
í stóru xúrvali nýkomnar frá kr. 7.
Kven- og telpo—
Regnkápur
nýjasta tíska frá kr. 22 í
BRAUNS-VERSLUN.
Ostar
3 teg, nýkomnir.
Tersl. Vísir.
Gaddavir
Girðingarnet
nýkomin, verðið mjög lágt.
]. iorlÉson $ Norðnii.
Símar 103 og 1903.
Nýkomið:
Bjðgnldin
Glóaldin
VersL Vísir.
ILF.
EIMSKIPAFJKLAG
_____ ÍSLANDS GSU
„Goðafoss“
fer liéðan á morgun (laugardag)
kl. .6 síðdegis um Hafnarf jörð,
vestur og norður uni land tíl
Hull og Hamborgar.
Farseðlar sækist fyrir kl. 2
á morgun.
„Brúarfoss"
fer fi’á Hafnarfirði á mánudags-
kveld kl. 12 til Aberdeen, Leith,
Bergen og Kaupmannahafnar.
Nýkomið:
Appelsiunr,
Epli,
Kirtðilor,
Lanknr.
f ð00|[
Skólavörðustíg 22.
Rio-kaffi
óbrent, ágæt tegund,
1.60 V» kg-
WÍBlStdj
Aðalstræti lO.jggg^ Sími 728.
Stórt tveggjamanixafar
fundið fyrir utan lxafnar-
gai’ða í nxorgun. Uppl. á Lög'-
reglustöðinni.
Gjafir til ekkjunnar á Eyrarhakka,
afh. Vísi: 5 kr. frá K. S., 5 kr.
frá hjónunx, 2 kr. frá gamalli konu,
10 kr. frá K. P.
Gjöf
til drengsins á Sauðárkróki, afh.
Vísi: 5 kr. frá Valda og Hidda.
Áheit á Strandarkirkju,
aflxexxt Vísi: 3 kr. frá M. S., 2
kr. frá gaixialli konu.
Feiknin öll af karlmannaföt-
um og sumaryfirfrökkum komil
með Botníu í Falabúðina. Alt
skreðai’asaumað með nýjustu'
tísku, hvergi i boi’ginni eins
fallegt. Ennfremur mildð úurval
af Ijómandi fallegunx golftreyj-
um, kvensumarkápum og margt
fleira. Notið nxx tækifærið og
kaupið þar senx vai’an er falleg-
ust og ódýrust eftir gæ'ðum.
Allir í Fatabúðina. — Best a<$
versla í
FATABÚÐINNI.
Egg
islensk og dönsk, stór og
glæný.