Vísir - 09.05.1927, Blaðsíða 3
VlSIR
hefir verið stækkuð að mun og verið þessa dagana að taka upp vörurnar, sem nú voru
keyptar í utanlandsferð í pýskalandi, Svíþjóð og NoregL — Allar vörurnar keyptar í sjálf-
um verksmiðjunum, og þvi getur verslunin selt ódýrara en allir aðrir.
Verslunin er þegar orðin þjóðfræg fyrir ódýrar, smekklegar og góðar vörur.
f dag ern tekin npp:
Borðstotuhúsgögn af nýjustu gerðum.
Allskonar maliogni- og pÓl.VÖPUP, afar tallegt
úrval.
Körfuhúsgögn og sórstakir stólar.
Köpfustólap f*"á kr. 12.00.
Svefnhepbepgisliiisgögn.
BapnakePPUP með himni. verðið á þeim er lægra
en í fyrra og vakti þá undrun um alt land.
Gólfteppi 3X4 metr. (aðeins eitt af hverri gerð).
Enginn hefir sömu vörur á íslandi, því að enginn hefir kost á að kaupa frá okkar
ágætu verslunarhúsum erlendis, sem við höfum einkasölu fyrir. ,
Hvepgi eins smekklegap og ódýpap vöpup.
Stæpstá, ijðlbpeyttasta, ódýpasta og fallegasta biis-
gagnavepslun landsins ep
æ
æ
æ
æ
kic
Bif reiðastj óraf él. Islands
heldur fund í kvöld kl. 9 siðd. á Hótel Keklu.
Stjómin.
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavík
7 st., Vestmannaeyjum 5, IsafirSi
<6, Akureyri 6, Sey'ðisfirði 2,
Stykkishólmi 4, Grímsstöðum 2,
Raufarhöfn 3, Hólum i Horna-
firði 4 (engin skeyti frá Angmag-
salik og Grindavík), Þórshöfn í
Færeyjum 3, Kaupmannahöfn 9,
Utsira 4, Tynemouth 7, Hjalt-
landi 5, Jan Mayen 6 st. frost. —
Mesttir hiti í gær 10 st., minstur
5 st. — Hæð (775 mrn.) fyrir
norðaustan land. Grunn lægð fyr-
ír suðvestan land. — Horfur:
Suðvesturland: í dag allhvass
austan. tJrkomulítið. í nótt suð-
austlæg átt. Faxaflói: í dag og
■í nótt suðaustlæg átt, þykt loft, en
úrkomulítið. Breiðafjörður, Vest-
fir-ðir, Norðurland og norðaustur-
land: í dag og í nótt: Hægur suð-
austan. I>urt veður. Austfirðir og
suðatisturland: í dag og i nótt
Sogn og bjartviðri.
Próf í norrænu.
í kvöld kl. 6 heldur Sigurður
iSkúlason próffyrirlestur um áhrif
cngilsaxneskrar tungu á íslenska
tungti, og annað kvöld kl. 6 talar
Þorkell Jóhannesson tun íslenska
annála fyrir siðskifti. — Fyrir-
lestrarnir fara fram í Háskólan-
tim, og er öllum heimill aðgangur.
Söngskemtun Henrik Dahls,
í gær í Nýja Bíó, var enn skemti-
legra en þær, er hann hefir áður
haldið hér, og er þá mikið sagt.
Hann var ágætlega fyrir kallaður
•og salurinn hreint og beint skalf
af fagnaðarlátum áheyrendanna.
'Á morgun syngur hann í síðasta
sinn, því að hann fer út með Bot-
niu. V.
F ommaimabúmngar.
Fundur var haldinn í gær í
Kaupþingssalnum, til þess að ræða
nm upptöku fornra búninga. Sóttu
hann tfm 40 manns, flest ungir
menn. Ræður flutti Matth. Þórð-
arson, fornminjavörður, Tryggvi
Magnússon, málari, Ríkarður
Jónsson og 'ólafur Friðriksson. —
Allir voru á einu máli um að taka
upp foman þjóðbúning karla, og
var ákveðið, að láta þegar gera
nokkura búninga, og vera í þeim
fyrsta sinni 17. júní n. k. — Bráð-
lega mun boöað til annars fundar,
til þess að ræða frekara um mál
þetta, sem mun hafa mikið fylgi
hér í bænum.
League of Red Cross Societies,
sem er alþjóðasamband Rauða
Kross. félaga i 55 þjóðlöndum,
heldur fund í París um þessar
mundir. Island er i þessum fé-
lagsskap og hefir Sveinn Bjöms-
son sendiherra farið til Parísar
til þess að sitja fundinn í um-
boði lands vors.
Félagið Landnám
hélt aðalfund sinn s. 1. laug-
ardag. J?eir skýrðu frá gerðum
félagsins Sigurður Sigurðsson,
Grímúlfur Ólafsson og Jón H.
porbergsson. — Félagið hefir
litið látið á sér bera, og litið fé
haft til starfa, en þó má þakka
því að miklu leyti fjölgun ný-
býía hér í nánd við bæinn, og
það hefir glætt áhuga á aukinni
jarðrækt út um land. — Um-
ræður urðu á fundinum og
tóku margir þátt í þeim. Voni
allir vougóðir um framtíð fé-
lagsins og væntu sér miidls af
þvi. — Stjórnin var endurkosin,
en í henni eru: Sigurður Sig-
urðsson, Grímúlfur Ólafsspn,
Pétur Halldórsson, Jón H. þor-
bergsson og Jón Ólafsson.
111 tillaga
má það heita, sem einhver
„Bankamaður“ ritar i Vísi s.l.
laugardag, og væri stórháskaleg,
ef nokkur tæki mark á henni. Hún
er auk þess óskynsamleg, svo sem
framast má verða, og ósönn í að-
alatriðum. — Þegar Eimskipafé-
lagið var stofnað, bjuggust marg-
ir við skæðri samkepni Dana og
Norðmanna. Hinu bjuggust ménn
ekki viö, að Islendingar gerðust
sjálfir til þess að vega að félaginu.
ráða því ill ráð og minka það í
aiinara augum. — Eg mótmæíi þvi
harðlega, að verra sé að ferðast
á islenskum en dönskum skipum,
og að þau sé lakari en dönsk skip
í sjó að leggja, og eg tel það blátt
áfram heimskulegt og hættulegt,
að ætla að setja niður fargjöld til
þess eins að auglýsa, að skip
vor séu verri en önnur skip, sem
til landsins sigla. En það er auð-
sætt, að „Bankamaður" ætlast til
þess, að niðurfærsla fargjaldsins
staðfesti þá fjarstæðu hans, að ís-
lensku skipin séu verstu skipin,
sem landsmenn eiga kost á. — En
er nú þessi „Bankamaður" það
flón, að honum detti x hug, að
hin félögin geti ekki sett niður
fargjald líka, ef Eimskipafélagið
riði þar á vaðið? Það er harla
ótrúlegt, að hann sé svo skyni
fekroppinn, því að hann segir sjálf-
ur; að erlendu félögin sé „bæði
margfalt auðugri og voldugri en
vort félag“. Þeir verða vonandi
ekki margir, sem vilja dríta í sitt
eigið hreiður, með þessum „Banka-
manni“. Kunnugur.
Knattspjrrnufélagið Fram.
æfingar hefjast í kveld, sbr.
æfingaskrá á öðrum stað í blað-
inu. Félagar eru beðnir að fjöl-
menna.
Börn,
sem tekið hafa próf i barna-
skólanum í Bergstaðastr. 3,
þurfa ekki að taka próf annars-
staðar í vor.
Kolaskip
kom i gær til h. f. Kol & Salt.
Timburskip
kom i gær til Áma Jónssonar.
ViIIemoes
kom frá Borgamesi í morgun.
Belgaum
kom af veiðum í morgtm.
Botnia
kom að norðan í gærkveldi.
Meðal farþega voru skákmenn-
irnir, sem héðan fóm til Akur-
eyrar, og Jón Gauti Pétursson,
Sigurðiu* Bjarklind og Erling-
ur Friðjónsson.
Sunnudagsblaðið
kom út í fyrradag 'og kemur
aftur út um næstu helgi.
Gjöf til ekkjunnar á Eyrarbakka
afh. Visi: 30 kr. frá stúlku í
Hafnarfirði.
Glóaldin
Epli
Gnlrætnr
Rraðrólnr
Luknr
nýkomið i
Nýlendnvörnðeild
Jes Zimsen.
Kex
og
köknr
nýkomið í
NÝLENDUVÖRUDEILD
Jes Zimsen.
Áheit á Strandarldrkju,
afhent Vísi: 7 kr. frá Þ. K., 2
kr. frá G. J,
Gjöf
til drengsins á Sauðárkróki, afh.
Vísi, 2 kr. frá Ellu litlu.
Körfustólar
nýkomnir i íjöibreyttn
úrvali. — VerOið lækkað.
Hús gagnaverslun
Kristjáns Siggeirss.
Langaveg 13.
Þakkapord.
Kærar þakkir til ykkar allra,
nær og fjær, sem réttuð mér
hjálparhönd og sýnduð mér
samúð og innilegan velvildar-
hug í veikindum minum síðast-
liðið ár. Eg óska þess af heilum
hug, að þið verðið aðnjótandi
þeirrar blessunar, sem hverjum
þeim er heitin, er líknar fátæk-
um og sjúkum, og yklcur borg-
ist rikulega það, sem þið liafið
gert mér og mínum og alt.
Sumarliði Grímsson.
Litla Hvammi.
Mancbetskyrtnr !rá4.50,
Fllbbar,
Blnðt,
Sokkar frá 0.60.
Nýkomið mikiS úrval.
Þór kaupið hvergi jafn góðar og
ódýrar vörur sem 1
Manchestep
Laugaveg 40. Simi 894,
Nýkomið:
FERNIS
Lægsta verð.
Heildsala.
Smásala.
0. Ellingsen.