Vísir - 16.05.1927, Page 2
VlSIR
Nú er
Rágmjölið og Hálfsigtimjðlið
komið.
Einnig
MarmeUde, Florsyknr.
CHEVROLET 5 manna opnar bifreiSar af nýju geríSinnij eru
svo vandaðar að öllum frágangi, að menn undrast yfir hvað
hægt er að smíða fallegt og' gott fyrir ekki meiri penínga ©n
þær kosta. CHEVROLET SPORT TOURING eru fóðraðar að
innan með sterku og fallegu skinni og eru ennfremúr úthúnar
sem hinar dýrari bifreiðar, hvað skrrut og þægindi snertir.
Verð hér á stáðnum kr. 3975.00.
Aðalamboðsmenn á islandl fyrir General Motors bifreiðar.
Jób. ÚUfsson & Co. Reykjivik.
Símskeyti
Khöfn, 14- maí. F. B.
Látinn vísindamaður.
Málfræðingurinn próf. Vil-
helm Thomsen er látinn.
Leitin hjá Rússum.
Símað er frá London að yfir-
völdin verjist því, að gefa upp-
lýsingar viðvíkjandi húsrann-
sókninni i byggingu Arcos-firm-
ans rússneska. Arcos-félagið er
rússnesk rikisstofnun og aðalað-
setur ensk-rússneskrar verslun-
ar. Sá orðrómur ileikur á að
bresk rikissjöl hafi horfið og
leiki lögreglunni grunur á, að
þau væri i höndum Areos-fé-
lagsins- Lögreglan hefir gert
upptæk skjöl og skotvopn í
byggingu félagsins. Sendilierra
Rússa hefir mótmælt húsrann-
sókninni og handtekningu
starfsmannanna og segir hann,
að lögreglan liafi einnig ráðist
inn á einkaskrifstofu formanns
verslunar-sendisveitar Rússa,
þrátt fyrir diplomatisk sérrétt-
indi formannsins.
Khöfn, 16. maí. F. B.
Enn um leitina hjá Rússum-
Símað er frá London, að lög-
reglan hafi brotið upp stálskáp-
ana í Arcos-byggingunni, þrátt
íyrir mótmæli Rússa, sem full-
yrtu, að í skápunum væri að
eins geymd friðhelg skjöl stjórn-
málalegs efnis. Yfirvöldin i
London viðiu’kenna, að rann-
sókn hafi einnig farið fram á
skrifstofum verslunarsendisveit-
arinnai’ rússnesku. Yfirvöldin
viðurkenna að formaður sendi-
sveitarinnar sé friðhelgur per-
sónulega, hinsvegar nái frið-
helgin ekki til skrifstofnanna,
þær sé yfirvöldunúm leyfilegt
að rannsaka, ef gildar ástæður
séu fyrir hendi. Tahð er víst,
að mál þetta muni hafa alvar-
legar afleiðingar og búast menn
við því, að stjórnmálasamband-
inu milli Englands og Rússlands
verði slitið, en hinsvegar er tal-
ið ósennilegt að til ófriðar dragi
út af þessum málum, enda þó
lítt verði um spáð enn sem kom-
ið er, þar sem tildrögin til rann.
sóknarinnar og árangur hennar
er óupplýst enn þá.
Andúð gegn Englendingum í
Rússlandi.
Símað er frá Moskva, að
miklar æsingar séu i garð Eng-
lendinga í Rússlandi og mest i
Moskva- Hefir herlið verið kvatt
til verndar við bústað hreska
sendiherrans í Moskva.
Utan af landi.
Akureyri, 14. maí. F. B.
Mokafli við Grimsey og sæmi-
legur afli hér á firðmum.
Mjólk er seld hér á 36 aura
literinn og er það lægsta mjólk-
urverð hér á 12 ára tímabili.
Frá Alþingi.
Þar voru þessi mál til umræöu
á laugardag:
EFRI DEILD.
1. Frv. lil laga um heimild fyr-
ir dómsmálaráðherra til þess að
veita leyfi til veðmálastarfsemi í
sambandi við kappreiðar, 3. umr.
Samþykt var brtt. frá allsherjar-
nefnd um að veita leyfi’S aö eins
til 5 ára í senn, og frv. síöan end-
ursent neðri deild.
2. Frv. til laga um breyting á
lögum um landamerki o. fl., 3.
umr.
3. Frv. til laga um varðskip
ríkisins og sýslunarmenn á þeim,
ein uínr.
4. Frv. til laga um breyting á
lögum um vamir gegn berkla.
veiki, éin umr. — Þessi þrjú frv.
voru öll, samþykt og afgr. sem
lög frá Alþingi.
5. Frv. til laga um gjald af inn-
lendum tollvörutegundum, 3. um-
ræöa, var endursent neöri deild.
6. Frv. til laga um sorphreins-
un og salernahreinsun á Akur-
eyri, 2. umr.
7. Frv. til laga um samþykt á
landsreikningnum 1925, 2. umr.
Hestamannafélagið
Fáknr
heldnr fnnd á Hótel
Hekin kl 8‘L 1 kvöld.
msWfið gerir alla glala.
8. Frv. til fjáraukalaga fyrir
árið 1925, 2. umr. — Þrjú in síö-
astnefndu frv. fóru öll til 3. umr„
eftir tillögum nefnda| þeirra, er
þau voru til athugunar hjá.
9. Frv. til laga um heimavistir
við hinn almenna mentaskóla,
framhald 2. umr. Um þetta mál
möu enn allmiklar deilur. Var
umr. ekki lokiö á laugardag, og
heldur hún væntanlega áfram í
dag.
Önnur mál voru tekin af dag-
skrá.
NEÐRI DEILD.
1. Kosning manns í stjóm
minningarsjóðs Jóns Sigurðssonar
frá Gautlöndum. Kosningu hlaut
Þórarinn Kristjánsson hafnarstjóri
með 16 atkv. Jón Gauti Péturs-
son hlaut xo atkv.
2. Kosning gæslustjóra Söfn-
unarsjóðs íslands fyrir árabilið
frá 1. jan. 1928 til 31. des. 1931.
Deildin endurkaus síra Sigurð
Gumiarsson með þvi að standa
upp.
3. Frv. til laga um Landsbanka
íslands, framhald 2. umr. (at-
kvgr.). — Atkvæðagreiðslan fór
þannig, að samþyktar voru allar
brtt. fjárhagsnefndar, en flestar
aðrar feldar. Einna merkasta má
liklega telja þá brtt., að néma burt
bannið gegn því að bankastjórar
sé alþingsmenn. Eins er leyft að
kjósa þingmenn í bankaráð, en
svo var ekki eftir frv., eins og það
kora frá efri deild. — Þá var á-
kveðið, að bankarátSsmenn skyldu
kosnir í sameinuðu þiiigi, en ekki
í deildunr, o. m. fl. — Feld var
m. a. till. um skyldu til að geyma
opinbert fé og sjóði i bankanum,
um að nema burt ákvæðin á tak-
mörkun á ábyrgð rikissjóðs á
bankanum o-. fl. - Frv. var vísað
til 3. umr. með 18:4 atkv. Á móti
voru Jak. M„ B. Sv„ H. Vald. og
Sv. Ó.
4. Tillaga til þingsályktunar
um verslanir ríkisins, ein umr.
Tillaga þessi er fram borin af
f iárhagsnefnd neðri deildar og
ter fram á að skora á ríkisstjórn-
ina að gera gangskör að að kalla
inn eða semja um skuldir versl-
ana þeirra er ríkið á eða hefir átt.
Einnig að takmörkuð verði svo
sem frekast er unt útlán áfengis-
verslunar. - Till. var samþykt
með samhlj. atkv. eftir nokkurar
umræður.
5. Tillaga til þingsályktunar
um rannsókn á hafnarbótum og
varnir gegn snjóflóðum (síðari
umr.) var afgreidd til stjórnarinn-
ar sem ályktun neðri deildar.
UtvaFpid
í þjónustu mentunarinnar.
Fáar þjóðir hafa meiri þörf á
því en Islendingar, að hagnýta sér
sem best öll þau tæki, sem á einn
eða annan hátt brúa fjarlægðir
manna á milli. Fyrst og fremst
vegna strjálbýlis þjóðarinnar, og
ekki síst vegna þess, að samgöng-
ur vorar og • samgöngutæki geta
aldrei orðið eins og á sér stað
í þéttbýlli löndum.
Eitt af því, sem á marg'vísleg-
an hátt gæti rofið þessa einangr-
un vora, og komið oss að miklu
gagni, er útvarpið. Það virðist svo,
að í byrjun hafi verið litið á það
niál af þingi og stjórn, sem nokk-
urskonar leikfang, sem eigi væri
ástæða til að almenningur yrði að-
njótandi, að minsta kosti þegar
útvarpsleyfið var veitt; enda virð-
ist reglugerð stjórnarráðsins óneit-
anlega bera frekar hag útvarps-
rekenda en notenda fyrir brjósti.
Eg er þess fullviss, að nú líta
fjölda margir alt öðrurn augum á
þetta mál en löggjafarnir gerðu í
öndverðu, enda virðist liggja í
augum uppi, að hér -sé oss lagt
upp í hendurnar eitt af heimsins
hagkvæinustu mentunar- og menn-
ingartækjum, sem völ er á fyrir
oss íslendinga, bara ef oss brestur
ekki framsýni til að færa oss það
í nyt.
Utvarpið getur komið oss að
liði a svo mörgum sviðum, að það
er vart vansalaust að láta reka
lengur á reiðanum, hvað það mál
snertir, enda væri það engfinn blett-
ur á íslendingum, þó þeir yrðu
framarlega í því að taka útvarpið
í þjónustu sína á sviði mentunar-
innar.
Eg ætla aðeins að minnast á fá
atriði á starfssviði þess fyrir oss
íslendinga.
1. Veðurfregnir og veðurspár.
Þess verður ekki langt að bíða, að
veðurfregnir og veðurspár verði
fólki kærkomið, bæði til sjós og
sveita. Menn munu brátt læra að
hagnýta sér gagnsemi þeirra, og
á þann hátt verður fjölda manns-
lifa forðað í framtíðinni, og miklu
verðmæti bjargaö frá skemdtun;
má þar t. d. benda á hey á sumar-
dag. En til þess að veðurskeyti
og veðurspár komi að fullum notr-
um hjá þjóðinni, verður að stuðlá
að því, að fregnirnar komist imi
á hvert heimili.
2. Mentun. Það er oft um þaS
ritað og rætt, að auka þurfi ment-
un landsmanna. En lægi þá ekki
vel við að hagnýta þá leið, er fært
getur öllum, yngri sem eldri, ment-
unina heim á heimilin, — jafnt
heim á afskekta fjallabæi sem í
höfuðstað landsins? Með því aS
útvarpa fræðandi fyrirlestrum, t.
d. þrisvar til .fjjórum sinnumi á
viku eða oftar, ætti almenningur
um land alt kost á haldbetri ment-
un, en fjöldi þeirra unglinga, er
Gúmmískö
með hvítum og gráum botnum höfum við nú fengið í öllum stærðum.
Terðið lágt.
Evannbergsbræðar.
/