Vísir - 11.06.1927, Blaðsíða 3
VtSIR
BARN AFATAV ERSLUNIN
á Klaj parsiÍK 37.
Nýkomia sérle{<a ódýr efni í reifa-
kjóla, einnig úrval af rivitum bró-
<deringum.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Friðrik Hallgrímsson. — Engin
síðdegismessa.
í fríkirkjunni í Reykjavík kl.
2 síra Haraldur prófessor Níels-
son. Kl. 5 síðd. síra Árni Sig-
urðsson.
1 Landakotskirkju hámessa
kl. 9 árd. og kl. 6 síðd. guðs-
jþjónusta með predikun. —Spí-
talakirkjan í Hafnarfirði: Há-
messa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd.
guðsþjónusta með predikun.
Veðrið 1 morgun.
Híti í Reykjavík 8 st., Vest-
xnannaeyjum 8, tsafirði 6, Ak-
ureyri 3, Seyðisfirði 4, Grinda-
vík 9, Stykkishólmi 6, Gríms-
stöðum 0, Raufarhöfn 3, Hól-
um í Hornafirði 5, Færeyjum 4,
(engin skeyti frá Angmagsahk
Og Kaupmannahöfn), Utsira 5,
Tynemouth 8, Hjaltlandi 6, Jan
Mayen 3 st. — Mestur liiti hér
í gær 13 st., minstur 7 st. —
Lægð fyrir austan land og önn-
ur yfir Suður-Grænlandi. Horf-
ur: Suðvesturland: í dag og nótt
norðan átt. Sumstaðar regn-
skiirir. Faxaflói: í dag norðan-
átt. Víðast þurt veður. í nótt
austlæg átt. Breiðafjörður, Vest-
firðir: I dag og nótt hægur norð-
austan. purt veður. Norðurland:
X dag og nótt hægur norðan.
Urkomulítið og kalt. Norðaust-
Urland, Austfirðir: I dag og
nótt allhvass norðan. Snjó og
krapaél. Suðausturland: I dag
«g nótt: Norðlæg átt. Sumstað-
ar regnskúrir.
Guðmundur Hagalín
talar á morgun i Nýja Bió um
„Skin og skugga í þjóðlifi
Norðmanna“. Hefir Guðmund-
lur sem kunnugt er dvalist í Nor-
«gi Jim skeið og haldið þar sam-
. taís 410 fyrirlestra um íslensk
efni og fengið hina bestu
áheyrn, þvi að maðurinn er
mjög vel máh farinn. — Grun-
ar menn að hann muni í þessu
erindi segja frá einkennilegri
efnum en áður hefir heyrst um
hér, t. d. af trúmáium frænda
vorra o. fi. Fjöldi manna er þvi
fullur eflirvæntingar. — G. H.
fer með Esju á þriðjudaginn að
hitta tengdafólk sitt austur
Hvanná.
Leiðrétting.
Á siðustu kappreiðum var
veðféð ekki kr. 7000.00, heldur
var það í kringum kr. 6000.00.
J>etta skiftir að vísu minstu
máli, en ætíð fer best á að hver
saga sé sögð sem réttust. •—
Maður sá, sem átti brúna hest-
inn, sem fyrstu verðl. hlaut á
stökki, veðjaði ekki á hann
einní krónu, hvað þá 100 krón-
n,m. — Stöku menn halda, að
4*1* J>að veðfé, sem gengur
gegnum veðbankann við kapp-
reiðaoHíar, renni að öllu leyti til
Iestamannafél. Fákur. Eins og
gefur að skilja, cr þetta fjar-
stæða. Félagið fær að eins 20%
af því veðfé, sem í gegnum
greipar bankans rennur. Nokk-
ur hluti þess fjár rennur til reið-
vegagerðar, og hinum lilutan-
um er viturlega varið. D. D.
Ath. Vísir liafði fregnina um
upphæð veðfjáHns eftir kunn-
ugum manni, en er fús á að
ieiðrétta það, sem mishermt
kann að hafa verið í frásögn
hans. Um eiganda „brúna hests-
ins“ hefir Vísir ekki sagt eitt
einasta orð í sambandi við veð-
fé.
Góð skemtun.
Eins og getið var i Visi i gær,
og auglýst er í blaðinu í dag,
syngur Karlakór K. F. U. M. á
íþróttavellinum annað kveld kl.
8%. Söngskráin kvað vera skip^
uð úrvals lögum, og þarf ekki
að efa, að fólk flykkist til þess
að heyra kórsönginn, svo sem
jafnan hefir verið, þegar kór-
inn hefir látið til sín heyra op-
inberlega, og ekki mun það
draga úr erindi manna suður-
eftir, að þegar kórinn hefir lok-
ið söngskrá sinni, liefst knatt-
spyrnukappleikur milli Eng-
lendinga af herskipinu „Hare-
bell“ og K. R. — Flogið hefir
fyrir, að í hópi Englendinga sé
„skæðir“ knattspyrnumenn,
enda hafa Englendingar, sem
hér hafa leikið undir sömu
kringumstæðum, reynst skeinu-
liættir og ekki látið sinn hlut
fyrr en í fulla hnefana.
Verslun Dana.
Sendiherrafregn skýrir svo
frá, að í aprílmánuði hafi inn-
fluttar vörur numið 129,6 milj.
króna, en út hafi verið flutt fyr-
ir 114,8 milj. króna. Innfluttar
vörur hafa því numið að verð-
mæti 14,8 milj. króna umfram
útfluttar. I sama mánuði í fyrra
námu innfluttar vörur 115,3
milj., en útfluttar 131,4 milj.,
eða um 16 milj. kr. umfram
innfluttar. Fjóra fyrstu mán-
uði þessa árs eru innfluttar
vörur 43 milj. hærri að krónu-
tali en útfluttar (innf. 520 miij.,
en úlflutt 477 milj. kr.). 1 fyrra
var munurinn 16,3 milj. (innfl.
535,8 milj., en útfl. 519,5 milj.
kr.).
Hvar eru hinir níu?
Svo heitir ný bók sem kem-
ur á markaðinn næsta mánu-
dag og verður til sölu i öllum
bókaverslunum borgarinnar.
Höf. er merkur rithöfundur,
Erik Aagaard, en Árni Jóhanns-
son hefir þýtt og gefur hókina
út. — „Eg hefi aldrei verið sælli,
en á meðan eg var að setja þessa
bók,“ sagði einn þeirra, er vann
að prentun bókarinnar. — Síð-
an mun hennar verða getið nán-
ara hér í blaðinu. Verð 3 kr.
J.
Sendiherrann frá Júpiter
verður leikinn annað kveld
kl. 8, eins og auglýst er á öðr-
um stað í blaðinu. Athygli skal
vakin á þvi, að leikurinn mun
ekki verða sýndur hér aftur á
helgum degi, þvi að þetta er
næstsíðasta sýningin. Siðasta
sýningin fer fram einhvern-
tíma síðar í vikunní,
Einar Hjaltested
söng í gærkveldi í Nýja Bió
við góða aðsókn og hlýjar við-
tökur eftir hina löngu útivist.
Höfðu menn sem von var hug
á að heyra hverjum breyting-
um rödd hans liefði tekið eða
hvort hún liefði minkað nokkuð
frá því er hún lieyrðist hér op-
inberlega fyrir meira en áratug.
En svo var eldd að heyra. Slík
bylmingsraust hefir víst aldrei
heyrst hér á hljómleik, sem Ein-
ar á til þegar liann tekur á þvi.
Gerir hún auðvitað miklar verk-
anir, en er þeirrar tegundar að
liún skipar álieyrendum i mjög
andstæða flokka. pað leynir
sér ekki, að kennarar hafa liaft
rödd Einars til meðferðar, en
svo erfið er hún viðfangs, að
elcki hefir tekist að festa í henni
þann blæjöfnuð og fínleik, sem
mentaður hljómlistasmekkur
hér austan hafs hefir komist
upp á að heimta. Vestan hafs
munu ki*öfurnar vera að ýmsu
leyti ólikar. Sem vænta má, fell-
ur röddin hetur við lög með
dramatiskum blæ, svo sem
heyra mátti meðal annars í
fyrsta laginu „Non e ver“ eftir
Mattei og hinu síðasta úr „Baj-
adser“, sem hann söng aukreit-
is eftir endurteknar, ákafar
framkallanir Úheyrenda.
H.
Norskur vélbátur
frá Rap-verksmiðjunni i Osló,
er nýkominn liingað til bæjar-
ins; kom hann norðan um land
frá Seyðisfirði, og var nokkur-
um mönnum gefinn kostur á að
skoða hann i gær. Norskur
verkfræðingur, hr. Sundre, kom
á bátnum og sýndi hann gest-
unum vélar hans. — I næsta
blaði verður nánara sagt frá
bát þessum, sem nú hefir verið
seldur til Vestmannaeyja.
Stórstúkuþingið
var sett á fimtudaginn og
hófst með guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni. Prédikaði þar séra
porsteinn Briem á Akranesi.
Ræðunni var viðvarpað, svo að
margir gátu hlustað á hana
heima hjá sér. Kirkjan var
næstum fullskipuð í sæti og
gengu templarar með einkenn-
um til og frá kirkju. Á þinginu
eiga sæti 160—170 fulltrúar og
er það því hið fjölmennasta
þing, sem templarar hafa háð
hér á landi. (I fyrra voru 92
fulltrúar). J?á er stórstúkustigið
var veitt, tóku það 64 fulltniar
og 17 templarar aðrir. Svo fjöl-
menn stigveiting er einsdæmi í
sögu stórstúkunnar. pinginu
hafa borist kveðjur og skeyti
víðsvegar að. I gær voru skýrsl-
ur embættism. lagðar fram á-
samt reikningum, og ræddar og
samþyktar.
Blfrn.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman i
hjónaband af síra Fr. Hall-
grimssyni, ungfrú Katrín Hólm
friður Jónasdóttir og Marteinn
Halldórsson, bifreiðastjóri, til
heimilis á Brekkustíg 4.
Hlutavelta
verður haldin að Brúarlandi
við Varmá á morgun og hefst
hún kl. 2. Kvenfélag Lágafells
sóknar og U. M. F. „Aftureld-
Höíum íyriilisgjandi:
Allap teg. af
þ irknðam ðvðxtam.
Verðið mun lægra.
M. Benediktsson & Oo,
Snyrpinót
(lítið eitt brúkuð)
f ágætu standi úr sérstaklega góðu garni með bestu íellingu, tilsölu
nú þegar, fyrir lágt verð.
Veidaffæpavepslunin
Troile & Rothe hf.Rvík.
ELSTA VÁTRYGGINGARSTOFA LANDSINS
STOFNUÐ 1910.
Annast vátryggingar gegn sjó- og brunatjóni með bestu
fáanlegu kjörum hjá ábyígilegum fyrsta flokkð vátrygg-
ingarfélögum.
Margar miljónir króna greiddar innlendum vátryggjendum
í skaðabætur.
Látið því aðeins okkur annast allar yðar vátryggingar, þá
er yður áreiðaniega borgið.
ing“ gangast fyrir hlutavelt-
unni og verður ágóðanum var-
ið til styrktar heimilisiðnaðar-
kenslu i hreppnum. Sjá augl.
Hvítabandið
heldur fund i húsi K. F. U.
M. næstkomandi mánudags-
kveld kl. 8y2. Sjá augl.
Úrslitakappleikur
í knattspymu milli K. R. og
Vals, verður *i kvöld kl. 9
á IþróttaveUinum. Aðgangur 50
aura fyrir fullorðna, en ókeypis
fyrir börn.
Skemtiferð
fór nýlega austur í Rangár-
valla- og Skaftafellssýslur Jón
Ormsson raffræðingur og kona
hans. Ætlar Jón að undirbúa
raflýsingu á sveitabæjum þar
eystra.
Á Álafossi
verður mikil iþróttasam-
koma á morgun og munu menn
fjölmenna þangað héðan úr
bænum.
Sundmenn,
sem eiga að fara upp að Ála-
fossi á rnorgun, eru beðnir að
koma að Álafossafgreiðslunni i
Hafnarstræti kl. 12 og kl. 1%,
og verða þá fluttir uppeftir.
Sundskálinn
í örfirisey verðnr lokaður á
morgun vegna sundskálavigsl-
unnar á Álafossi.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 4 kr. frá St. Ak.,
10 kr. frá N. N., 5 kr. frá J>.
X., 10 kr. frá manninum, sem
fann myndavélina, 1 kr. frá I.
B. S., 2 kr. frá stúlku, 2 kr. frá
IQOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCXXM
Á morgun:
(snnnndag)
Til Þingvalla,
Álafoss,
Vlfilsstaða og
Hafoarfjarðar.
Tii Keflaviknr
*
' daglega.
Á mánudag:
Til Eyrarbakka og
Garðsanka frð
Steindóri.
é
x
X
X
Landsfns bestn bifrefðar.
xaQOOQOQQOQOQOQQOOCXtQQOOQCI
B. B„ 4 kr. frá S. S„ 11 kr. fsá
Hólmverja, 2 kr. frá Magneu
Gísladóttur á Jaðri.
Gjöf
til ekkjunnar á Eyrarbákka,
afh. Vísi: 100 (himdrað) krón-
ur, með innilegri hluttekninga,
frá starfsfólkinu við fiskverk-
unarstöð Kveldúlfs á Rauðar-
árbolti, 2 kr. frá S. S„ 1 kr. frá
N. N.
Áheit
til drengsins á Sauðárkróki,
afhent Visi: 2 kr. frá G., 2 kr.
frá N. N.
Gjöf i'
• til Elliheimilisins GiEWék SÖk
Visi: 3 kr. frá S. S.