Vísir - 29.07.1927, Síða 3

Vísir - 29.07.1927, Síða 3
V 1 S I R TIl I*ingvalla sendi ég daglega mínar háfleygu HUDSON- fcifreiðar. Að aka í þeim er yndi. Magaús Skaftijeld. Sími 695, stöðin. BARNAFATAV ERSLUNIN Klapparstíg 37. Sími 2035. Barnaflónels teppi og barna^kyrtur á 95 aura komið aftur. Þaö er alkunnugt, a'S sveitamenn tiér á landi liafa öldum saman far- iö skreiöarferöir mjög langan veg og flutt sjófang í stórlestum frá verstöövum á Snæfellsnesi og Reykjanesi. Nú eru þær ferðir iöngu af lagöar, en þó aö sam- göngur hafi aukist og batnaö stór- tim á síöustu áratugum, þá er furöu lítið selt af fiski til sveita. Að vísu et eitthvað flutt héöan ,af hertum þorskhausum og „trosi“ austur um fjall, en nýr fiskur mun mjög sjaldan fluttur héöan til sveita, svo að nokkuru nemi. Mér hefir stundum flögiö i hug, hvort ekki gæti svarað kostnaði t. d. fyrir einn rnann, sem ætti fiutningabifreið, aö fara tiltekna daga austur yfir ija.ll, jafnvcl alt austnr í Fljótshlíö, meö nýjan fisk og selja hann þar á tilteknum stöö- um, annaö hvort gegn peningum eða smjöri, eins og áöur var. Sú ■versljun þyrfti þó aij sjálfsögöu nokkurn undirbúning, en eg trúi ekki ööru en aö bændum væri hentugt aö fá nýjaln fisk, t. d. tvisvar í viku, því aö lítið er um -nýmeti á mörgum bæjum um slátt- inn, og jafnvel þó aö íá mætti sil- ung í soðið á sumum jöröum, þá er ekki tími til aö sinna þvi um mesta annatimann. En ekki ætti aö vera ókleift aö hafa samtök um að sækja fisk á einhvern tiltekinn staö, einkum þar sem þéttbýlt er, ekki síst, ef svo hagar til, aö dag- legar feröir falli meö hestvagn hvort semi er, eins og þar sem mjólk fer flutt til rjómabúa. Aöal- n.ótbáran gegn þessu gæti verið sú, aö fiskur ffengist ekki ævinlega hér, og er þaö satt, en viö því mætti gera meö því að eiga vara- foröa í íshúsi, sem grípa mætti til, þegar á lægi, og jafnan mætti end- urnýja. Veröiö þætti og sennilega hokkuö hátt, en gæti ekki komiö til mála aö lækka þaö eitthvaö, þegar svo er komiö, aö hvergi í hei'mi er nú greitt hærra verö fyrir íslenskan fisk en einmitt hér? Þaö er aö minsta kosti ótrúlegt, aö slíkt öfug’streymi í verölagi geti haldist árum saman. — Þetta ætti aö minsta kosti aö vera þess vert, aö það væri athugaö. Fram- kvæmdirnar koma af sjálfu sér, ef auðsætt er aö viöskiftin svari kostnaði og geti veriö báöum aö- íljum til gagns og þæginda. Bæjarhúi. Utan af landi. Borgarnesi 29. júlí. FB. Tiöarfarið er ágætt og menn nú sem óöast að binda inn töðuna, sem hirt er jafnóöum, en stöku menn eru komnir á engjaj'. Á harð- vellisengjum er illa sprottið, vegna þurkaiina í vor. Talsvert er unniö að vegagerð- um í héraðinu. Viö Norðurárdals- brautina vinna yfir 20 menn, og er búist við að brautin komist fram undir Hvamm í sumar. Þá vinnur og ámóta stór hópur að vegagerð yfir síkiö hjá Ferjukoti, en eins og kunnugt er, varð vegurinn fyrir íniklum skemdum af flóðum úr Noröurá og Hvítá í vetur. Vegur þessi er orðinn dýr, enda reynst erfitt að ganga svo frá lagningu hans, aö dugaö hafi. Á nú aö leggja brúna og endurbæta veginn, og vona menn, að nú veröi svo frá gengið, aö flóðin fái eigi grandaö veginum. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 st., Vest- mannaeyjum 11, ísafirði 7, Akur- eyri 10, Seyðisfirði 10, (engin skeyti frá Grindavík né Gríms- stöðum), Stykkishólmi 8, Raufar- höfn 12, Hólum í Hornafirði 13, Þórshöfn í Færeyjum 13, Ang- magsalik (í gærkv.) 7, Kaup- mannahöfn 18, Utsira 15, Tyne- mouth 13, Hjaltlandi 14, Jan Mayen 5. — Mestur hiti hér í gær 15 st., minstur 6 st. — Grunn loft- vægislægö yfir Vesturlandi og önnur fyrir austan land. — Horf- ur: Suðvesturland og Faxaflói: f dag hægviðri, víða regnskúrir seinni partinn. í nótt sennilega úr- komulaúst. — Breiðafjörður og Vestfiröir: í dag og í nótt: Hæg- ur norðaustan, dálítil rigning. — Noröurland, noröausturland og Austíirðir: f dag og í nótt: ITæg- ur austan, víðast úrkomulaust. - Suöausturland: í dag og í nótt: Suðaustan átt, sumstaöar regn- skúrir. „Árar í bát“! Ekki hefir það þótt karlmann legt, „að leggja árar í bát“, en þó er nú svo komið, aö langflestir sjómenn hér á landi hafa „lagt árar í bát“, í eiginlegri mérkingu þess orðs, síðan farið var aö nota vélbáta. Þess er því ekki að vænta úr þessu, að önnur fjölmennasta stétt landsins veröi þaulvánir ræð arar, eins og verið hafði alt fram yfir síðustu aldamót. — Að vísu má það vera öllum mönnum gleði efni, aö sjómenn vorir eru leysti undan þreytandi róðri, en þó má ekki gleyma því, að róður þykir ein hin karlmannlegasta íþrótt °g þeir, sem tóm hafa tii þess að iðka íþróttir, ætti ekki að „leggj: árar í bát“, heldur temja sér róö ur, því aö fáar íþróttir eru betur fallnar til þess að gera menn hrausta og þolgóða. Nokkurir ungir menn hafa tamið sér þessa íþrótt hér í bænum aö undan förnu og ætla í kveld að jireyta kappróður við hermenn af Fyll eins og auglýst er á öörum stað blaðinu. Æskilegt væri, að sem flestir kæmi til að horfa á þessa góðu íþrótt, hvort sem íslending- um verður sigurs auðið eöa ekki, en um þaö skal engu spáð. Hitt er víst, að ef landar vorir bíða lægra lilut, jiá mun ]iað verða þeim hvöt til þess að leggja meira kapp en áöur á þessa íþrótt, sem forfeður jeirra margir hafa átt líf sitt und- ir, alt frá landnámstíð. ív. Átta álftarungar bætast í dag við álftahópinn á Tjörninni. Náði Loftur ljósmynd- ari Guðmundsson þeim í gær á Ölfusá, öllum í hóp. Voru þeir ckki orðnir fleyg'ir og gat Loftur flæmt þá á land og í hús í Arnar- bæli. Goðafoss fór í gær snögga ferö til Hafn- arfjaröar og kemur aftur i dag. — Á morgun kl. 6 síðd. fer skipið af stað áleiðis til Englands og Þýska- lands. Lyra fór héðan kl. 6 síðd. í gær, á- leiðis til Noregs. Stuttgart, skemtiferðaskipið, íór héöan klukkan 2ýó í nótt. Farþegar þeir, sem til Þingvalla fóru, fengu hið besta veður, sólskin og ágætt út- sýni. Veður var og ágætt hér í bænum og var skemtunum hér hag'að svipað og daginn áður. Kl. 3 var glímt á Austurvelli og var margt áhorfenda, einnig af hálfu Reykvíkinga. — Flugvél skipsins var í gangi allan daginn og fóru rnargir að skoða Reykjavík úr loftinu..—•, í gærkveldi var söng- ur og dansleikur í skipinu. Þar söng Karlakór K. F. U. M. og blandað kór undir stjórn Jóns Halldórssonar, en söngvararnir Pétur Jónsson og Einar Markan sungu einsöngva. — Hr. K. K. Thomsen annaðist viðtökurnar og fórst þaö mjög vel úr hendi. Gest- irnir voru ánægðir yfir viðtökun- um. Af Vestmannaeyjafluginu, sem talað var um aö flugvélin frá „Stuttgart" færi ef til vildi, varö ekkert. Farþegar skipsins þurftu að nota vélina til smáferöa bér yfir nágrenninu allan daginn. Börn, sem unnið hafa í skólagarðin- um í vor, eru beðin að mæta þar kl. 7ýá annað kveld (laugardags- kveld). Mega gjarna bjóða leik- systkinum sínum með sér. * \ Skjaldbreiðarfundur í kveld. Kosning embættis- manna. ódýrt far til Þingvalla býðst mönnum nú hjá Vörubílastöð Meyvants Sig- urðssonar. Er fargjaldið að eins 5 kr. báðar leiöir. Gjafir til ekkna þeirra manna, sem fórust af slysförum, afh. Vísi: 2 kr. frá Þ. G., 3 kr. frá Ó., 7 kr. frá Á. Á. (áheit veg-na góðs Þing- vallaveðurs á sunnudegi í vor). , og árgagnriuu samt svogóðnr. Sé þvotturinn soðinn dálítið með FLIK-FLAK, þá losna ólireinindin, þvotturinn verður skir og fallegur og hin fína hvíta froða af FLIK-FLAK gerir sjálft efnið mjúkt. pvottaefnið FLIK-FLAK varðveitii’ létta, fína dúka gegn sliti, og fallegir, sundurleitir litir dofna ekkert. FLIK-FLAK er það þvottaefni, sem að öllu leyti er hentugast til þess að þvo nýtísku dúka. Við tilbúning þess eru teknar svo vel til greina, sem frelcasí er unt, allar þær kröfur, sem nú eru gerðar til góðs þvottaefnis. N ÞVOTTAEFNIÐ FL/K-FLA K Einkaaalar á Íslandí. I.BRYNJÖLFSSON & KVARAN. Hitt oi Þatta. Ólæsileg skrift. Ýmsir menn hafa löngum velt því fyrir sér, hvernig á því gæti staðið, að gáfaöir og mentaðir menn, einkum þó þeir, sem mik- ið beita pennanum, skrifa venju- lega lélega rithönd. Prófessor nokkur i Vesturheimi hefir nýlega komið með þá kenningu, að þetta stafi af því, að heili þessara manna sé miklu fljótari að hugsa en vöðv. ar þeirrra að korna skriftinni á pappírinn. FJjótt á litið sýnist þetta ekki ósennileg tilgáta, en ýmsir hafa þó viljað fetta fing- ur út i hana. Benda þeir á, að ýmsir hinna afkastamestu rithöf- unda skrifi ekki aðeins sæmilega, heldur gullfallega liönd, eins og t. d. Arnold Bennett. Thomas Flar- dy skrifar lítiö lakar, og H. G. Wells skrifar jáfnvejl mjög vel. E.innig taka þeir það til dæmis, að menn eins og Oxford lávaröur (Asquith) og Birkenhead lávarð- ur skrifi svo greinilega, aö hvert barn geti lesið. Alt eru þetta heimsfrægir menn, og liafa skrif- aö hver öðrum meira, sumir verið siskrifandi áratugum saman. Einn- ig er þaö haft á móti kenningu prófessorsins, að þeir, sem vel skrifa, eru ekki hóti lengur að því en hinir, sem hafa verri rithönd. Vilja menn því halda frám, að í þessu efni sé alt undir því komið, á hvað hver venur .sig í byrjun. Hinu veröi að vísu ekki neitað, að margir eða flestir rithöfundar skrifi illa. En það komi til af því, aö þeir hafi aldrei haft neinn hús- bónda til að finna að skriftinni. Þeir, sem komið hafi festu í rit- hönd sina i annarra þjónustu, eða í stöðu, þar sem læsileg rithönd ■ var þeim nauðsynleg, skrifi aftur á móti vel. — Þessu til sönnunar nefna þeir einmitt sem dæmi þá rithöfunda, er getur hér að ofan: Arnold Bennett var í upphafi málafærslumaður, Thomas Hardy byggingameistari, H. G. Wells dúkakaupmaður. En þeir rnenn, sem ameriski prófessorinn tekur til dæmis, byrjuöu flestir feril sinn sem sjálfstæðir rithöf., t. d. Roose- welt forseti og Nathaniel Haw- thorne, (mörg handrit hans hafa aldrei verið prentuð, sakir þess aö enginn hefir komist frarn úr þeirm). Eins er um Carlyle, sem sagt er aö hafi skrifað afskaplega, og Sydney Smith, sem sjálfur ját- aði, aö skrift sín Væri líkust því, aÖ hersing af maurum hefði slopp- ið út úr blekbyttu og skriðið um pappírinn. Tilraunir á ölvuðum mönnum. I Bandaríkjunum hefir mikið veriö gert að því, síðan bannið. komst á, að finna aöferðir til aö komast vísindalega að rauri utn, hvort menn eru ölvaðir og hversu mikið. Nú þykist læknir nokkur, Dr. Emil Bogen, sem starfar við háskólann Cincinnati hafa fundið aðferð, sem sýni efnafræöislega, bversu mikið af hreinum vinanda sé í líkama manns. Aðferðin er mjög einföld og krefst ekki marg- brotinna áhalda. Sá, sem tilraunin er gerð á, er látinn blása út venju- lega fótboltablöðru. Síöan er loft- inu úr henni hleypt út í gegnum sérstaklega blandaðan vökva, sem breytir lit, frá gulu í grænt, eftii áfengisinnihaldi loftsins, sem mað- urinn andaði frá sér. — Sagt er, aö þessi tilraun bafi verið gerð á

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.