Vísir - 09.08.1927, Síða 4

Vísir - 09.08.1927, Síða 4
V 1 S I R ist til aS hætta. Magnús heldur áfram, en þegar hann hleypur fram hjá áhorfendunum er „pípt“ á hann af öllum áhorfendunum. Hann skeytir því engu en heldur áfram. Dómararnir halda 'nú hraðfund á staSnum um þetta at- hæfi Magnúsar. Dómarar voru þeir Jón Kaldal, Kristján Gestsson og JensJGuSbjörnsson. Yfirdómari Ben G. Waage. Ópin og köllin aS Magnúsi magnast. Dómararn- ir skipa honum aS hætta, þrátt fyrir mótmæli eins þeirra (Kr. G.| formanns KR. Áhorfendurnir klappa dómurunum lof í lófa. Magnús hættir. Ópum léttir ekki fyr en hann er horfinn inn í skúr. Alt verSur kyrt aftur. MótiS heldur áfram eins og ekkert hafi i skorist. ÞrístökkiS hefst. Fjór- ir þátttakendur. Allir frá lR. Lengst stökk ReiSar 13,37 m., þá Sveinbjörn 12,73 m. (nýtt ísl. met) og 3. GarSar 12,01 m. Þá var aSeins eftir 1500 m. hlaup. 1. varS Gígja 4,32,5 mín. 2. Stefán Bjarnason 4,40 mín. og 3. Stefán Runólfsson. ÞaS sem eftir er af mótinu fer fram næstkomandi miSvíkudags- kvöld kl. 8. A5 endingu vil ég segja nokk- ur orS viSvíkjandi fljótfærni Magn- úsar GuSbjörnssonar. Þetta er víst áreiSanlega í fyrsta sinni aS nokkuS þessu líkt hafi komiS fyrir á iþróttamóti hér á landi. Þetta er mjög alvarlegt mál fyrir alla íþróltamenn vora. Menn mega ekki eiga von á neinu þessháttar á íþróttavellinum og allra sist á opinberu móti. Hér verSur því aS taka strangt í taum- ana nú þegar. Meiri hluti dóm- aranna dæmdi hárrétt, áhorfend- urnir dæmdu eins, og ég vona aS forseti I. S. I. sé dómurum sam- mála. En þaS er ekki nóg, Stjórn í. S. I. verSur nú þegar aS úti- loka Magnús um ákveSinn tíma frá þátttöku í opinberum mótum. Þessi aSferS er mjög algeng al- staSar erlendis og þaS fyrir mik- iS minni sakir en hér er um aS ræða. Þetta er mjög leiðinlegt fyrir Magnús, en um það tjáir ekki að tala. Hann hefir með kinnhest- inum unnið til þessa dóms, og ég vona að hann sjálfur sé ekki svo Giimmístimplar eru búnir til í Félagsprentsmiðjunni. Vandaðir og ódýrir. KisiskaffiO: gerir alla glaOa blindur, aS hann sjái ekki aS þetta er nauðsynlegt vegna framtíðar íslenskra íþróttamanna og íþrótta. Það var mjög leiðinlegt að Kristján Gestsson skyldi ekki geta fylgt hinum dómurunum að máli þó að „hans“ maður ætti hlut að máli. Það er galli á formanni að sjá ekki galla sinna eigin manna. Það er ómögulegt að hann vilji leyfa box á hlaupabraut í miðju 10 rasta hlaupi. Magnús á að vera útilokaður um tima sem hlaupari. Þetta er nú mitt álit. Ægir. Aths. Þeirn, sem hlut eiga að máli, er heimilt rúm í Vísi til and- svara. Ritstj. Hitt oí Þetta. —O— Útbreiðsla biblíunnar. Biblían er útbreiddust allra bóka í heimi. Á 111. ársþingi ameríska biblíufélagsins í vor sem leið var sagt frá því, að á síðasta ári liafi verið dreift út 9,917,361 eintaki, og var það hálfri miljón meira en næsta ár á undan. Höfðu þá samtals ver- ið sett í umferð undir umsjón félagsins 184,028,860 bibliu- eintök. I þessum tölum eru ekki taldar með þær biblíur, er önn- ur félög hafa dreift út. Á 123. þingi breska og erlenda biblíu- félagsins, sem nýlega var háð í Lundúnum, var skýrt frá því, að salan til Kína eins hafi num- ið nokkuð yfir 4 miljónir eint., og að félagið hafi gefið út á ár- inu 10,128,087 eintök af biblí- unni, á ekki minna en 592 tungumálum. Oddur Sigurgeirsson. Austur- rikismenn ,hafa sent hingaö fræg- an málara, Henning a'ö nafni, til þess aö mála mynd af Oddi og skeggi hans. Er almælt, aö þeir ætli að hengja hana upp í þing- h.úsinu þar fyrir austan. Oddur er meö svakalegasta nióti á mynd- inni og skeggiö blóörautt eins og slíkum blóðrauöum bolivikka sóm- ir. Er altaf fult af áhorfendum til aö dást aö myndinni. Oddur gerir landinu sóma alstaöar og er vert aö geta þess. (152 Vátryggið áöur en eldsvoðann ber að. „Eagle Star“. Sími 281. (9i4 Siðastliðinn laugardag týndist frá sundlaugunum sundhetta, bol- ur og handklæöi. Skilist til Ólafs Grímssonar, Nýjabæ, Klapparstíg. (146 Rúmfatapoki tapaöist af bíl á sunnudagskveldiö var, likl. austan frá Kambabrún að Lögbergi. — Finnandi skili sem fljóiast í áhaldahús landssímans, Klappar- stig 2, gegn fundarlaunum. (143 Upphlutsbelti fundiö. Vitjist í Melshús viö Suðurgötu. (119 Gleraugu hafa tapast frá Grett- isgötu 22 að Urðarstíg. Skilist á Grettisgötu 22 B. (133 Svartur köttur, ungur, meö hvít- ar lappir, í óskilum, á Óöinsgötu SB. (135 4 herbergi og eldhús, meö nú-- tíma þægindum, óskast nú þegar. A. v. á. (137 VINNA | Kaupakona óskast nú þegar. Gott kaup. Uppl. á Hverfisgötu 18, uppi, kl. 8—9. (147 Drengur óskast til sendiferða um borgina, um lengri eða skemri tíma. Þarf að hafa hjól. Uppl. i síma 2220. (136 Herbergi til leign frá 1. septem- ber á Bergþórugötu 15. (131 Til leigu: 2 kjallarherbergi tif íbúöar eða fyrir verkstæði nú þeg- ar. Uppl. Vesturgötu 12. (129' 4—5 herbergi og eldbús ósk- ast til leigu 1. október. Tilboð auðkent „505“ sendist Vísi fyr- ir 15. þ. m. (9& V. Schram, Ingólfsstræti 6, tekur föt til viðgeröar, hreinsun- ar og pressunar. (117 Dugleg stúlka óskast í vist nú þegar. Theódóra Sveinsdóttir, Kirkjutorgi 4. (127 Vanur sláttumaður óskar eftir heyvinnu í mánaðartíma. Uppl. í síma 1222 frá kl. 7—9. (53 Duglegur kaupamaður óskast, Uppl. i Gutenberg, hæsta lofti, Þingholtsstræti 6. (152 Barnlaus hjón óska eftir 1 her- Ijergi og eldhúsi nú þegar. A. v. á. (149 Til leigu frá 1. október 2 sam- liggjandi herbergi með sérinn- gangi og öllum þægindum og enn fremur 1 sérstakt herbergi, á besta stað í bænum. Uppl. síma 1346. (14S 1 herbergi, eklhús og geymsla til leigu nú þegar. Uppl. Grettis- götu 22 B. (145 Ibúð óskast 1. október, 2—3 herbergi og eldhús. Þrent í heim- ili. Mánaðar fyrirframgreiðsla. — Uppl. í síma 1950. (144 Fjögra herbergja íbúð óskast frá 1. okt. Ábyggileg greiðsla. — Uppl. í versl. Egill Jacobsen. (142 Skrifstofumaður óskar eftir íbúð 1. október. Fáment heimili. Ein- hver fyrirframborgun getur kom- iö til mála. Tilboð, merkt „10“ sem tiltaki hvernig íbúðin er, og leigumála, sendist afgreiðslu Vísis. (140 Nýjar, íslenskar kartöflur á 0,20 pr. Jú kg, gulrófur 0,20 pr. y2 kg, Guðmundur Jóhnnsson, Baldurs- götu 39. Simi 1313. (150 Hurðir og gluggar til sölu með tækifærisverði. Uppl. í sima 765. (150» §pgF'■ Snemmbær kýr (septem- berbær) til sölu. Uppl. Grettisgötu 44 B, frá 7—10 e. h. (141 Kvenreiðhjól í ágætu standi, tíl sölu með tækifærisverði, Þórsgötu _______ 039' Eins-manns rúm, ekki mjög lít- ið, óskast. A. v. á. (138' Karlmannafatnaðarvörur ódýr- astar og bestar í Hafnarstræti 18. Karlmannahattabúðin. — Einnig gamlir hattar gerðir sem nýir. (134 Ennþá fæst rabarbari í Hóla- brekku. Sími 954. (I321 Tómar eikartunnur til sölu í kvöld og á morgun, í Sápubúðinni, Laugaveg 36. (130 HÁR við íslenskan og erlend- an búning fáið þið hvergi betr& né ódýrara en í versl. Goðafoss^. Laugaveg 5. Unnið úr rothári; (753 Rjómi fæst í Alþýðubrauðgerð- inni. (119 Lifandi blóm fást á Vesturgötu 19. Sent heim, ef óskatS er. Símf J9- (29X F f elaraprer.tieaiSj £ SlÐUSTU STUNDU. tók með báðum höndum um höfuð hans, lagði það í kjöltu sína og mælti: „Þú skildir ekkert af því sem eg var að segja við þig. Eg elska þig auðvitað og það er langt frá að eg sjái eftir því að eg giftist þér. En stattu nú upp — það er orðið framorðið“. Hann kysti hendur hennar himinlifandi af fögnuði. Hún gat sefað hann og huggað með einu einasta orði. „Eg skal sýna þér hvað eg get gert þig hamingju- sama ef þú bara elskar mig“, mælti hann. „Eg skal ekki víkja frá þér nokkra stund, ef eg get komist hjá þvi, en ef þú hættir að elska mig, mun eg gera þér alt til bölvunar“. „Mig minnir að þú segðist ætla að drepa þig“. „Það ætla eg líka að gera, en eg ætla að ráða fér bana fyrst“. „En viltu nú ekki vera svo góður að fara, svo eg geti haft fataskifti, áður en farið er að borðn“. IV. Sumarið leið i góðu gengi. Beverley gat ekki verið altaf hjá Patience ýmsra orsaka vegna og hún reyndi að telja sjálfri ser trú um, að hún bæri svo heitn elsku til hans, sem henni væri unt að bera til nokkurs manns. Hún naut þessa tilbreytingaríka lífs i ríkum mæli, þótt henni fyndist svo öðru hverju sem hún mundi aldrei ná því, að verða talin meðal þeirra útvöldu í fjölskyldunni. Það var illindalaust á yfirborðinu milli hennar og tengdamóður hennar. Tengdaföður sinn þekti hún varla. Fjölskylda hans sá hann varla nokkurn tíma, hann hafði ekki einu sinni setið brúðkaup sonar síns. Þegar Patience kom til Peele úr brúðkaupsferð sinni, kysti hann hana fyrir siðasakir og sagðist vonast til að „hún gæti mannað Beverley“. Hann var lítill vexti og þrekvaxinn, gráhærður var hann orðinn og andlitið eins og eltiskinn. Dökkeygur var hann, nefið lítið og beint, en hendurnar hvítar og nettar. Hann var enginn framúrskarandi mælskumaður í réttarsalnum, en hepni hans var því að þakka, fyrst og fremst, hve lögfræðisþekking hans var staðgóð og hversu hann var afburðasnjall í því að hitta á veilur annara. Það var sjaldgæft, að hann tapaði nokkru máli sem hann hafði tekið að sér. Málrómur hans var þýður og viðfeldinn, framkoman róleg og ákveðin. Hann kvartaði sart um það, að börn sín hefði ekki tekið hyggindi sín í arf, en hann fyrirgaf þeim það, af því þau gengu undir nafninu Peele. Hann hafði mestar mætur á Hal, af því að hún var gáfuðust systkina sinna. May dáðist mjög að mágkonu sinni og „elskaði“ hana; var Patience orðin leið á sífeldri hugulsemi hennar. Henni geðjaðist betur að Honoru, þvi að hún hafði margt aðlaðandi í fari sinu, en einnig nokkuð hið gagn* stæða. Hún var einstaklega fámálug, en hún hafði lært þá list að hlusta eftir því sem aðrir sögðu og hún var í miklu uppáhaldi hjá þeim sem komu þar á heimilið. Patience var ekki búin að ganga úr skugga um, hvort fámælska hennar stafaði af greindarskorti eða henni fyndist ekki viðeigandi að hún, sem var bara fátækt skyldmenni fjölskyldunnar, hefði sig mikið í frammi,- En víst var um það, að hún hafði lag á að koma sér við frænku sína og þess vegna gat hún komið því fram,- sem hana langaði til. Hún fór annars sinna ferða að mestu og hélt sig oftast i herbergi sinu, það var sagt, að hún væri þar að kynna sér sögu kaþólsku kirkjunnar. Hún var gefin fyrir dulspeki og fann besta svölun sálu sinni i kaþólsk- um trúarbrögðum, en þó hafði hún ekki opinberlega tekið kaþólska trú. 1 ágústmánuði fóru þær þrjár ungu stúlkurnar til Newport, og eftir það hafði Patience meira saman við tengdamóður sína að sælda en áður. Þegar May kom aftur, var hún trúlofuð ríkum manni frá Kabu, sem

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.