Vísir - 17.10.1927, Síða 3
V I S I R
vor viðfrægja, þar sem úrhrök
allra þjóða leita glötunar í und-
irdjúpi mergðarinnar, — á lík-
an hátt og æfisaga Njáls er rétt-
ari mynd af vitsmunakostum
Islendinga til forna en frásagan
um Hrapp“.
Bókin er rúmar 300 hls. í
stóru broti, auk formála. Er
lnin seld á 10 kr. og fæst í
flestum bókaverslunum bæjar-
ins og einnig beina leið frá Stú-
dentaráði Háskólans.
S óknarnef ndaf undurinn
heist á morgun kl. i, meS guös-
þjónustu í dómkirkjunni. Síra
Magnús Guömundsson í Ólafsvík
prédikar. Eftir messu ganga fund-
armenn í hús K. F. U. M., og sitja
þar vi'S fundarhöld til kl. 7. Meöal
annars veröur þar rætt um bæn-
rækni og breytingar á helgisiöa-
bókinni. Kemur þá væntanlega til
umtals sú tillaga „Strauma", aö
hætta aS fara meö „postullegu trú-
arjátninguna“ vi'S skírn og ferm-
ingu, svo að prestar ]>urfi ekki aS
fara meS þaö, sem þeir sjálfir
kunna að telja „fjarstæöu og hind-
urvitni". Annað kvöld kl. 8flyt-
ur dr. Jón biskup Iielgason erindí
í dómkirkjunni, og síra Þorsteinn
Briem í Hafnarfjarðarkirkju, og
cru allir velkomnir þangað, meðan
rúm leyfir.
Góður gestur.
Hingað er von á góðum gesti,
þegar Dronning Alexandrine
kemur næst. pað er Mr. Gregg,
yfirmaður Rockefellcr Found-
ation, Evrópudeildarinnar. Ilann
kemur hingað að boði lands-
stjórnarinnar, lil þess að kynna
sér rekstur heilbrigðismála hér
á landi. pað er hlutverk Rocke-
leller Foundation að vinna að
bættu heilsufari og efla fram-
farir i læknavisindum.
Straumar.
0. og 10. tbl. í. árg. eru ný-
komin út. I fyrra blaðinu er
meðal annars grein (meðmynd)
um sr. Geir heitinn Sæmunds-
son, vígslubiskup, og önnur um
„Tillögur handbókarnefndar“.
Hefir sú nefnd setið á rökstól-
um síðan 1925 og eiga sæti í
lienni, auk biskups: síra Árni
próf. Björnsson í Görðum, sira
Árni Sigurðsson, fríkirkjuprest-
ur, sira Friðrik Hallgrímsson,
síra Sig. P. Sivertsen, próf., og
síðan á prestastefnunni i sum-
ar: síra Haraldur prófessor Ní-
elsson, síra Bjarni Jónsson,
dómkirkjuprestur, ogsíra Magn-
ús Jónsson, dócent. Siðara blað-
ið liefst á grein eftir sira Pál
porleifsson, er hann nefnir:
„Eins og sakir standa nú“, en
næsl er „Sorgir“, kvæði eftir
Jón Magnússon, skáld. Auk
þess, sem nú hefir nefnt verið,
eru í báðum blöðunum ýmsar
smágreinir og fréttatiningur.
Leikhúsið.
Gleiðgosinn, þýskur gamanleik-
ur í þrem þáttum, var leikinn í
fyrsta sinn í gærkveldi, viö góða
aSsókn. Leikurinn er efnislítill,
eirfs og áSur hefir veriö tekiö fram,-
en bráðskemtilegur í flestum at-
íiðum og yfirleitt mæta-vel með
hann farið. Áhorfendur virtust
skemta sér prýðilega og létu á-
nægjtt sína óspart i ljós, með miklu
cg eindregnu lófataki. — Dómur
mn leikinn verður síöar birtur hér
i blaðinu.
Trúlofun
sína opinberuðu í gær ungfrú
Júlia Guðnadóttir og Sigurður
Jónasson símritari.
Stillur,
hin nýja kvæðabók eftir Jakol)
Thorarensen, er nú komin út og
fæst í bókaverslunum, bæði ó-
bundin og í snotru bandi. Hún er
7 arkir að stærð og- hefir verið
vandað til útgáfunnar eftir föng-
um. ,,Vísir“ vill benda ljóðavinum
b.ér í bænum á, aö vissara muni
að kaupa bókina fyr en seinna,
því að iqjplagið er ekki mjög stórt.
Jakob Thorarensen á miklum vtn-
sældum að fagna um Iand alt og
meðal íslendinga vestan hafs, og
má því lniast við, að'sá hluti upp-
lagsins, sem eftir verður hér i bæn-
um, geti þrotið fyrr en varir. —
,,Stillur“ værða síðar jgerðar að
umtalsefni liér i blaðinú.
Kristján Kristjánsson
frá Seyðisfirði söng í gær
öðru sinni í Gamla Bíó. Aðsókn
var góð og söngmanninum var
fagnað ágætlega.
Eggert Stefánsson
syngur í Gamla Bíó næstkom-
andi 1‘östudagskveld, með að-
stoð Páls ísólfssonar. Á söng-
skránni verða itölsk og þýsk
lög. — Eggfert er á förum héð-
an til útlanda, svo að nú fer að
verða liver síðastur að heyra
hann sýngja.
Ruth Hanson
hafði sýningu í Iðnó í gær,
með aðstoð syrstra sinna. Aðsókn
var mikil og skemtu áhorfend-
ur sér afbragðs vel og létu í ljós
gleði sina með miklu lófataki.
Prófessor Auer
flytur erindi kl. 6 í kveld í
kaupþingssalnum. Allir vel-
komnir.
Félag Vestur-íslendinga
heíir látið leggja fram blöð-
in Lögberg og Heimskringlu á
lestrarsal Alþýðubókasafnsins á
Skólavörðustíg 3, svo að aliir
geti þar átt vísan aðgang að
þeim. •
Lestrarfélag kvenna
opnar barnalesstofu sína á
morgun kl. 4 i pingholtsstræti
28 (Hússtjórnarskólanum). For-
maður félagsins, frú Laufey
Vilhjálmsdóttir, býður börnin
velkomin, en frú Bentína Hall-
grímsson les upp sögu. Börn frá
8 ára aldri fá ókeypis aðgang
meðan húsrúm leyfir. Framveg-
is verður lesstofan opin hvern
virlcan dag kl. 4—6.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga á morgun frú Ólöf Gests-
dóttir og Andrés Ólafsson,
hreppstjóri á Neðra-Hálsi.
Gullfoss
kom að vestan í morgun.
Hann fer til útlanda annað
lcveld.
Esja
köm úr hringferð kl. 6 i morg-
un.
Belgaum
kom frá Englandi í gærkveldi.
Apríl
kom af veiðum í morgun og
fer áleiðis til Englands í dag.
Suðurland
fer til Breiðafjarðarhafna 20.
þ. m. Sjá augl. i blaðinu í dag.
Rannsókn alidýrasjúkdóma.
Frá því ~er skýrt í síöasta blaöi
„Tímans“, aö atvinnumálaráöherra
hafi ákveöið, aÖ fresta til næsta
þings aö skipa mann í dýralæknis-
embætti það, er laust varö viö frá-
fa.ll Magnúsar heitins Einarssonar.
Segir blaöiö, aö fyrir ráðherran-
um vaki. aö komiö veröi hér á fót
vísindalegri stofnun, í sambandi
viö embætti Jætta, er vinni að
rannsókn alidýrasjúkdóma.
Sænskar mjaltavélar
hefir ráðsmaðurinn á Vífils-
stöðum keypt handa búinu þar,
og eru þær knúðar með raf-
magnsmótor og mjólka um 30
kýr á klukkustund. — Ivýrnar
kunna vel við mjaltavéíarnar og
hreyfa sig ekki meðan á mjölt-
unum stendur. Mjaltavélar eru
nauðsynlegar þar, sem margar
kýr eru í fjósi; þær spara vinnu,
eru ódýrar i rekstri og slcila
mjólkinni vel hreinni.
St. Framtíðin nr. 173,
heldur fund í lcveld kl. 8V2.
Indriði Einarsson talar um
bjartsýni.
Víkingsfundur
í kvöld. Systralcvöld. Fjöl-
mennið félagar.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá ónefnd-
,um.
Vega- og brúagerðir 1926.
Vegamálastjóri skýrir svo frá
í Tímariti V. F. L, að úr ríkis-
sjóöi liafi veriö greiddar um 900
Jiús. kr. til vegamála áriö sem leiö
og framkvæmdir liafi verið meö
langmesta móti um land alt. Meira
var lagt af nýjum akbrautum en
nokkru sinni áöur. Sérstaklega var
lagt kapp á, að vinna að Norður-
landsveginum. Er ráögert aö hægt
verði áriö 1932 að komast á bif-
reiö úr Borgarnesi að Vatnsskaröi.
Byrjaö var á nýjum vegi yfir
Vaðlaheiði, og er áætlað, að hann
verði kominn alla leið aö Fnjósk'
órbrá 1931. Þá verður og væntan-
lega um líkt leyti lokiö viö ak
færan veg yfir Skagafjöröinn, frá
Víðimvri aö Silfrastööum, og
nokkuö fram um láglendi Eyja-
fiaröar. — Vegalengdin frá Borg-
arnesi til Akureyrar er um 325
km. (Frá Borgarnesi aö Vatns-
skaröi 206 km„ yfir Vatnsskarö
aö Víðimýri,-i7 km„ frá Víöimýri
aö Silfrastööum um 25 km„ frá
Silfrastöðum aö Bægisá 52 km„ og
írá Bægisá til Akureyrar 25 km.).
— Gert er ráö fyrir, aö af þessari
vegalengd (325 km.) veröi 256 km.
bifreiöafær vegur 1932, en 69 km.
vegur ólagöur. Eru Jiaö spottarnir
„yfir Vatnsskarö“ og frá Silfra-
stööum til Bægisár. — Bygðar
voru 12 nýjar brýr á árinu, allar
úr járnbentri steinsteypu, auk
nokkura smábrúa. Stærsta brúin
æ
Nýkomiö:
Golftreyjur úr sllki og nll.
Sokkar afar mikið og vanðað úrval.
Kragar, Dúkar, Slædur.
Peysur íyrir börn og fallorðna.
Lífstykki, Brjóstköld, Belti
og margt fleira. Alt mjög vandaðar nýtisknvörnr.
LifstykkjabúLðin
Austurstræti 4.
rr,
Spáspilin
eftir hina heimsfrægu frönsku spákonu, Lenormand eru kom-
in aftur. Einnig barnaspil á 50 au. og Whistspil frá 75 au.
K. Einirsson & Björnsson.
Bankastræti 11. Sfmi 915
»OOOOOOOIIOOOOIKIOOOOCaOOOOO»
Regntrakkar 1
,. Sí
nýkomnir, margar tegundir x
ogjitir.
Aliatnaðnr
ódýraslur í bænum.
Mest úLFval.
VörnMsið.
gooooooooooooooooopoooooöe
Svaladrykknr
sábesti.ljúf-
fengasti og
ódýrasti, er
ságosdrykk-
ur, sem
framleiddur
er úr límon-
aðipúlveri
frá Efna-
gerðinni.
Verð aðeins 15 aura —
Fæst hjá filium kaupmfinnum.
Efnagerð Reykjaviknr.
Kemisk verksmiðja.
Sími 1755.
Greymsla.
Tökum reiðhjól til geymslu yfir
veturinn, eins og áður. Sótt
heim til eigenda ef þess er óskaS
Fálkinn,
var yfir Miöfjaröará í Húnavatns-
sýslu (78 metrar að lengd og kost-
aöi 45 þús. kr.). í sumar hafa
margar brýr veriö geröar, en mest
þeirra er brúin yfir Héraösvötn.
Er hún á svonefndum Grundar-
stokk, rúmir 130 metrar á lengd.
itOOOQOOQOQOOOQQOQOQQQOQOQ*
I eldhnsid:
Kry ddílát, 5 gerðlr
Kryddliillur
3 gerðfr,
Krukkur fyrir
Rtid, Sago, Kartöfln-
mjöl. Syfcar, Hvelti.
Saltkassar,
Kökukefli,
SleifaHillur
með slelfnm.
Kökuform.
Kleinujárn
og ótal margt annað
er nýkomið
með lægsfa verði.
H. Biering.
Laugaveg 3. Sími 1550.
öoooooooooooooooooooooooöi
Spaðkjötið
er komið og verður sent heim
til þeirra sem pantað liafa,
næstu daga. Nokkuð af lcjötinu
er óselt.
Samband Isl. Samvinnufélaga.
Sími: 496,
Kanpnm vel skotnar
RJDPDR
Fr. Steinholt & Go.
Bankastræti 6. Sími 1712