Vísir - 22.10.1927, Síða 3
v . r r
Haust,
—o—
í Ránar faðm er sólin sigin.
Hún sefur þreytt af göngu dags.
í vestur lialda húmsins fákar.
)>eir hrista um loft liið brúna fax.
Úr sporum þeirra dimman drýpur
sem dögg, er klæðir f jall og skóg.
þ>eir fela lctt og hópinn halda,
uns hófar troða bláan sjó.
Frá hljómi dagsins hug minn kallar
svo h.yldjúp þögn um loft og grund,
sem straumur tímans staðar nemi,
og stund og aldir falli í hlund.
Er lífið all í felur farið?
Hvert flýðu björg, sem gnæfðu hæst?
Iivert svifu allir sumar-gaukar?
Hvort sukku jarðarblómin glæst?
Rú fleyga stund, sem komst og kvaddir,
Eg' kalla ljóð mitt eftir þér.
En þú ert burtn frá mér farin
í fjarska þánn, sem enginn sér.
Að grípa strá, sem féll í fossinn,
að finna tár, sem hrundu í mar,
er lieimskra manna ráð að reyna.
— Svo rennur burtu flest, sem var.
En hví skal víla vaskur maður,
þótt verði á hjörtum draumum hik?
pví andann hæst frá dufti draga
hin dýpslu sorgar-augnablik.
pví skal eg allan söknuð syngja
með sumarróm í tómið hljótt
og unað vorsins óði vígja,
þótt um mig falli húm þitt, nótt.
Mér vaxið liefir oft i augum,
hve aumt er þetta jarðlífs hold.
Hin litla stund að lifna og deyja
og leggjast svo í freðna mold!
Nú finst mér litið óttaefni,
að eignast hvíld með fjólu og reyr,
en vita glóa gullnar töflur
i grasi þvi, sem aldrei deyr.
pú kæra vor, í sólar sindri
eg sá þig eins og friða hrund
með geislahadd um enni og axlir,
og öllum fékstu blóm í mund.
Og ellin hlaut að yngja sporið.
þú æskulýðnum kendir flug.
En nóttin ’varð áð dýrðar degi,
sem drungasvefni hratt á bug.
þ>að svifu um þig svana flokkar
og sólskríkjur og þrasta fans.
En allir hamrar opnir stóðu;
þar inni steigstu mjúkan dans.
Og álfameyjar minka þóttust.
pótt rnörg sé fríð — það veit mín trú —
var engin þar svo íturvaxin
né átti slcrautið jafnt sem þú.
j?ii gafst mér alla gleði þina,
þú gafst mér alt, sem fegurst skin.
Og vegánest i vetrarálfur
það verður mér, uns nöttin dvín.
þótt falli blóm og fenni skóga,
þótt frost og býljir herji lönd,
eg geng i Ijósi geisla þeirra,
sem gaf mér, vor, þín milda hönd.
Jón Magnússon.
jMessur á morgun.
í dómkirkjunni kl. n, síra
Bjarni Jónsson (fgnning). Kl. 5,
gíra FriSrik Hallgrímsson (altar-
isganga).
í fríkirkjunni hér kl. 2, síra
A’rni Sigurösson (ferming).
í fríkirkjunni i Hafnarfiröi kl.
2 si'öd. síra Ólafur Ólafsson (miss-
eraskifti).
í Landakotskirkju : Hámessa kl.
0 árd. og kl. 6 sí'ðdegis gu'Ssþjón-
usta með prédikun.
í spítalakirkjunni i Hafnarfirði:
Hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 siöd.
gu’ðsþjónusta með prédikun.
Sjómannastofan: Guðsþjónusta
kl. 6 á morgun. Síra Gu'ðmundur
Einarsson talar. Allir velkomnir,
í Hafnarfjarðarkirkju kl. x
(ferming). - -
Dánarfregn.
Látin er í gærmorgun í Kaup-
mannahöfn frú Jóna V. Fanöe,
dóttir frú Sigþrúðar og Björns
Kristjánssonar, alþm.
Vísir kemur út
tímanlega á morgun. Auglýs-
endur eru vinsamlega beðnir að
koma auglýsingum í sunnudags-
blaðið á afgreiðsluna i Aðal-
stræíi 9 B (sírni 400) fyrir kl. 7
í kveld, en eftir þann tíma og
fram til kl. 9 verður tekið á
móti þeim i Félagsprentsmiðj-
unni (sími 1578). Eins og allir
vita, er langbest aS auglýsa í
Vísi.
Leiðrétting.
Það mun ekki alveg rétt, sem
segir i Vísi i gær í greininni um
Llelga lækni Tómasson, að hann
sé þriðji íslenski lægknirinn, sem
verður dr. med. við Khafnar-há-
skóla. Hann mun verðá hinn fjórði.
Því Jón Gíslason frá Mógilsá tók
íyrstur íslendinga doktorsgráðu
þar, rétt fyrir aldamótin 1800, en
gerðist síðar læknir í Noregi.
Nýir kaupendur
fá Visi ókeypis það sem eftir
er mánaðarins.
Morgunblaðið
er eitthvað að grobba af þvi i
dag, að það muni vera víðlesnasta
blað landsins og besta auglýsinga-
Ijlaðið-. Þetta er vafalaust rangt.
Vísir er áreiðanlega viðlesnastur
allra blaða hér í Reykjavik og
kaupeudaflestur. Hitt má vera, að
Mgbl. fari eitthvað meira út um
land, en þó skal ekkert um það
fullyrt. Þá er vikið að því, að
Mgbl. sé lesmálsmeira en önnur
blöð. Það er satt. Lesmál Morgun-
blaðsins er mikið að vöxtum. En
hvernig er það lesmál að jafnaði?
Ot í þá sálma mætti fara síðar, ef
Mgbl. óskaði þess. Loks er því
haldið fram, að Morgunblaðið sé
ódýrasta blaðið. Orðalagið ber
með sér, að ekki er átt við það, að
blaðið sé ódýrast að tiltölu eftir
efnismergð, heldur hitt, sem vera
mun ný uppgötvun, að t. d. 200 sé
lægri tala en 125. — Morgunblað-
ið kostar 2 kr. á mánuði, en Vísir
kr. 1.25.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið fyrir almenning frá ld.
t—3 siðd. á sunnudögum og mið-
vikudögum.
Leikhúsið.
GleiSgosinn, hinn skemtilegi
gamanleikiir, verður sýndur ann-
að kveld. Aðgöngumiðar seldir
í dag og ú morgun.
Mishermi
var það sem stóð hér í blaðinu
í gær, að Magnús Kristjánsson,
ráðherra, hefði verið meðal far-
þegá i Lyru í fyrrakveld. Fregii-
in var tekin eftir Morgunblaðinu.
3>anssýningar.
Ásta Norðmann og Lilla Möller
sýna þrjá dansa milli þátta, þegar
leikið verður í kveld í Gamla Bíó.
Aðra þrjá dansa ætla þær aö sýna
milli jiátta annað kveld á sama
stað.
Verslunarmannafélag Rvíkur
hélt framhaldsaðalfund í gær-
kveldi í Kaupþingssalnum. Sam-
jiyktar voru nokkrar lagabreyt-
ingar og samkvæmt þeina kosia
Hardol til að hreinsa W. C. skál-
ar ætti að vera til á liverju lieimili.
Kanpið eina dós í dag.
verður sýnd í Nýja Bíó kl. Z á morgua (sunnud.)
Aðgöngumiðar 1 kr. fuilopðnip. 50 au. börn.
BARNAFATAVERSLUNIN
Klapparstíg 37. Simi 2035.
Sérlega ódýr flauel í mörgum lit-
um, hentug i barnakápur og kjóla.
varastjórn. í varastjórn voru
kosnir: Leifur Þorleifsson bókari
(varaformaður), Egill Guttorms-
scn verslunarm., Halldór R. Gunn-
arsson kaupm., Ásgeir Ásgeirsson
verslunarm. og Árni Einarsson
kaupm.
Skátafélagið Ernir.
Munið eftir æfingunni í fyrra-
málið kl. lOþ^ í Bai'naskólan-
urn.
Fyrsti vetrardagur
er í dag og tekur nú að kólna
austan lands og norðan, en hcr
er blíðuveður.
Q
Linoleum í
miklar birgðir fyrirliggjandi c
nm $
■ 8
K3QOOOOOOOOOOOCXÍOQOOCOOOOO
band af síra Friðrik Hallgríms-
syni ungfrú Unnur Helgadóttir og
Kristján Fr. Kristjánsson, bæði til
beimilis í Mjóstræti 4.
60 ára hjúskaparafmæli
eiga í dag Guðréux og Geir
ívarsson í Örnólfsdal í Borgar-
firði, foreldrar pórðar Geii’sson-
ar lögreg'luþjóns.
I. O. G. T. Bylgja.
Fundur kl. 10 árdegis á morg-
un á venjulegum stað.
Dronning Alexandrine
konx frá útlöndum í nótt. —
Meðal farþega voru: porsteinn
Forsteinssoix ' liagstofustjóri,
Alan Gregg M. D., Pétur Gunn-
arsson kaupm., Guðmundur
Jónmundsson loftskeytamaðui',
Jolian Sieixxen og frú frá Leitli,
frú Juul frá ísafirði. Frá Vest-
mannaeyjum komu Björn Ólafs-
son kaupnx. og Stefán Pálsson
lxeildsali.
Trúlofanir.
Síðastliðinn laug'ardag birtu
trúlofun sína ungfrú Guðrún
Elínmundardóttir frá Hellis-
sandi og Guðmundur Kristins-
son á Hæðarenda við Reykjavík.
— Ennfremur hafa nýlega birt
trúlofun sína ungfrú Kristrún
Eiríksdóttir frá Bíldudal og
Mag'nús Sveinsson í Leirvogs-
tungu. — í gær birtu trúlofun
sína ungfrú f’óra Einarsdóttir,
pórsgötu 15, og stud. theol.
Jakob Jónsson frá Hrauni.
Andlitsmyndir
af nokkrum Reykvíkingum,
eftir Tlieo Henning, verða sýnd-
ar í gluggum hjá Haraldi í
kveld og á morgun, eu teilui-
ingar eftir sama liöfund verða
í búðargluggum hjá S. Ey-
mundsson.
í dag
var Grettisbúð opnuð aftur á
Grettisgötu 46. Eigandi er Þórunn
Tónsdóttir.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugarclag voru gef-
in saman í hjónaband af síra Árna
Sigurðssyni ungfrú Sigrún Sig-
urðardóttir og Helgi Bjarnason,
bæði til heimilis á Ivárastíg 2. —
í dag verða géfin- sainan í hjóna-
Bansleik
halda Gootemplarar í kveld
og hefst hann kl. 9 í G.T.húsinu.
Dansleikur
Skemtifélags Goodtemplara er
annað kveld kl. 9, en ekki i kveld.
Sjá augl.
„Svava“ nr. 23.
Fundur á morgun kl. 1 e. lx.
Munið eftir sparisjóðnum. Skemti-
legur fundur. Fjölmennið!
Gæslurn.
íþróttablaðið,
9.—11. tölublað, er nýlega konx-
ið út. í því eru 16 greinar auk leik-
mótaskýrslna, frétta og smávegis.
Með þessu eru 36 myndir. Öllurn,
sem eitthvað hugsa um iþrótta- og
heilbrigðismál, er skylt að kaupa
og lesa íþróttablaðið. — Nú verða
];essi síðustu tölublöð seld á göt-
unurn á morgun, sunnudag, og
verða þeir vonandi margir, sem
kaupa það og lesa. — Þeir, sem
vilja selja það, komi á Klappar-
stíg 2 kl. io}4—n)4 árd. á morg-
un til að fá blaðið.
Afgrm.
Gjafir
til fátæku ekkjunnar í Suðurpól,
afhentar Vísi: 20 kr. frá N. N.,
5 lcr. frá Maju, 5 kr. fi'á Diddu
Hansen.
Áheit á Sírandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá G. M.,
4 kr. frá L. G., 6 kr. frá B. J., 5
kr. frá N. f. N., 10 kr. frá S. S.,-
5 kr. frá Páli, 3 kr. (gamalt áheit)'
frá N. N., 5 kr. G. G., 5 kr. fyá
I.. G., 5 kr. frá ónefndri konu.
g Frakkaefni
feikna jirval. Ulsterefni nf*
komin. Verðfö viS allra liæfl.
8 G. Bjarnason & Ejeldsted.
sboooooooooocsíiísísísoooooooóí