Vísir - 25.10.1927, Page 2
V I S I R
Höfum fyrlrljggjandl:
Þ a k j á r n
bo. 24 og 26, 24 og 30 þnmlaoga breitl
Símskeyti
Ivhöfn 24. okt. FB.
ViSsjár með Rússum.
Símað er frá Berlín, aö rúss-
neska blaðið Pravda skýri frá
því, a'S rússneska lögreglan hafi
komist aö því, að andkommúnist-
íu hafi áformaö a'ö veita ýmsum
liinum merkustu ráöstjórnarmönn-
um banatilræöi. Hefir lögreglan
skýrt frá því, aö andkommúnistar
hafi ætlaö að framkvæma áform
sin í Leningrad, þar sem flestir
helstu ráöstjórnarsinnarnir eru
saman komnir í tilefni af bylting-
arafmælinu. Þrjú hundruö og
fimtíu andkommúnistar hafa ver-
iö handteknir.
Uppreistarhugur í Albönum.
Símaö er frá Belgrad, aö blöö-
in í Júgóslafíu skýri frá því, aö
uppreistarhreyfing sé í Albaníu og
sc orsök hennar morðiö á Cena
Bey. Fregnir hafa borist um, að
stjórnin í Albaníu safni herliöi á
landamærunum.
FB. okt. '27.
í borginni Blainé í Washington-
riki í Bandaríkjunum er allmargt
íslendinga og hefir veriö um langt
skeið. Hafa ýmsir falliö í valinn
þar vestra undanfarna mánuöi og
rneðal þeirra er Teitur Hannesson,
ættaöur úr Borgarfjarðarsýslu.
Hann var npkkuö viö aldur, rúm-
lega sextugur, ókvæntur og barn-
laus. Teitur átti 40 ekrur lands
átta milur frá Blaine og bjó þar
góðu búí. Hann hafði mælt svo
fyrir í erföaskrá sinni, aö allar
eignir að frádregnum kostnaði,
skyldi renna í sjóö handa ekkjum
círukknaðra manna á íslandi, og
tii styrktar tæringarsjúkum böm-
um og unglingum hér á landi. Er
talið aö bújörð hans og aörar
eignir muni vera um 35 þúsund
dollara virði.
Teitur haföi verið bókhneigöur
maöur og haft miklar mætur á
Stephani G. Stephanssyni. Mrs.
M. J. Benediktsson, er skrifar um
hann í Heimskringlu, segir aö
hann hafi verið dýravinur mikill
og að svo hafi veriö aö sjá, sem
sumar skepnur hans heföi mikla
ást á honum.
Skípnip.
—o—
Bókmentafélagsbækurnar í ár
eru þessar: Islenskt fornbréfasafn
XII. 4 (1551—1552), Annálar I, 6
og II, 1 (Mælifellsannáll, nema
upphaf, sem áður var komið, Ann-
áll Páls Vídalins og upphaf Fitja-
annáls), Kvæöasafn I, 3 og Skím-
ir, sem hér verður lítilsháttar
gerður að umtalsefni.
Skírnir hefst að þessu sinni á
langri ritgerð eftir dr. Jón biskup
Helgason um Árna Helgason,
stiftprófast. Árni stiftprófastur
hefir vafalaust veriö merkur mað-
ur á marga grein, flug-gáfaður og
manna lærðastur á sinni tíð, en
minna Iiggur þó eftir hann en ætla
mætti og æskilegt hefði verið.
Merkastur verður síra Árni talinn
og lengst getið fyrir hlutdeild sína
i stofnun Bókmentafélagsins. Var
hann annar aðal-stofnandi ]æss,
sem kunnugt er, og forseti
P.eykjavíkurdeildarinnar um langt
skeið. Grein biskups er öll hin
íróðlegasta, einkar hlýlega rituð,
hvergi dregið úr verðleikum síra
Árna, en bresta i fari hans látið
ógetið, ef til hafa verið. Dr. Jón
biskup Helgason er mikilvirkur
íithöfundur, fróðleikurinn óþrjót-
andi, fjörugur og hress í anda, en
honum hættir stundum til að vanda
ritmál sitt miður en æskilegt væri.
Næst er „Bölviog ragn“ eftir dr.
Guöm. Finnbogason. Ritgerðin er
ekki ófróðleg, gamansöm í aðra
röndina og vel samantekin, en efn-
ið er heldur lítilsvert. Þætti víst
flestum betur til fallið, að dr.
Guðmundur glímdi við merkilegri
viöfangsefni. — Klemens Jónsson
skrifar um '„Bæjarbrag i Reykja-
vik kringum 1870“. Er það góðra
gjalda verö ritgerð. Klemens er
fróður maður um ýmsa hluti og
segir þann veg frá, að lesandann
langar til að heyra meira, en ekki
mundi saka, þó að hann vandaði
inálfar sitt nokkuru betur en hann
gerir að jafnaði. Þessi ritgerð Kle-
mensar um ,,bæjarbraginn“ er
skemtileg að efni til og verður
vafalaust lesin af mörgum.
„Veðrátta og veðurspár" heitir
næsta ritgerð, eftir Jón Eyþórsson
veðurfræðing. Er hún fróðleg
mjög og allvel rituð. — Þá kemur
kvæði eitt mikið, „Ýmir“, eftir
Einar Benediktsson. Ber það mjög
svip annara stórkvæða skáldsins
á síðari árum og virðist harla tor-
skilið á sumum stöðum. — Finn-
ur prófessor Jónsson ritar um
„Kjalleklingasögu", er hann hygg-
u.r að til hafi verið, en nú er týnd.
Leiðir hann nokkur rök að því, að
sagan muni hafa verið til, og seg-
ir frá efni hennar.
Eins og menn sjálfsagt muna,
flutti dr. Sigurður prófessor Nor-
dal erindi hér í bæ og víðar um
------------- JÓH. ÓLÁFSSON & CO.----------------—
Aöalumboðsmenn á íslandi fyrir: GENERAL MOTOR S-bifreiðar.
¥er ðlækfenn á.
CHEVROLET
Chevrolet vörubifreiðin kostar nú aðeins kr. 2900.00 íslenskar uppsett i Reykjavik.
Grammófónar
aðeins bestu og nýjustu gerðir
Hljððfærahúsið
Harmoniknr, Mamhörpnr
Besta tegnndir fáið þið i
Mj óðfærahúsinu.
5íiísíi*,is;;5£iíií50ístt0t5íiíiftí5<i0íií5ti«íiíititt»í5íií5ci0ís00»aíxs0tsís0ti0tstiísosi;
% „ e
Ji Innihgar þákkir fyrir auosýnda vinsemd og kœr- g
S leilc á silfurbrúðhaupsdegi ohkar. ;;
;; Steinunn og Bjarni Einarsson it
« frá Þverá. 5?
KiKtiCúiíititititititititítitiötitiíiíitiOíStitititiíititiíititttititiSiíStitititiSititititstststsw
Flosgarnið komið.
Flosvélai* kr. 3 75.
Verslunii Biliirshri.
Skólavörðustlg 4.
„Tyrkja-Guddu" ekki alls fyrir
löngu,. og íiefir hann nú birt það
í Skírni. Mun þar saman dregið
alt er menn vita um Guðríði. Rit-
gerðin er skeiptileg eins og vænta
mátti. Dr. Sigurður Nordal er
skemtilegur rithöfundur og ef-
laust allmikill lærdómsmaður, en
skemtilegastur er hann þó, þegar
hann gefur ímyndunaraflinu laus-
an tauminn og yrkir í eyðurnar,
er rök verða ekki lengra rakin.
í erindinu um Tyi-kja-Guddu gæt-
ir þessa þó heldur litið.
Einar H. Kvaran ritar um
„Upton Sittclair og auðvaldið í
Bandaríkjunum“, athyglisverða
og ágætlega ritaða greín. Upton
Sinclair er frábærlega gáfaður
maður ,og merkilegur rithöfundur.
íslendingar hefðu áreiðanlega gott
aí því að kynnast verkum hans
meira en þeir hafa gert hingað til.
Árni Pálsson ritar stuttorða,
glögga og vinsamlega grein um
Jón heitinn Jacohson, landsbóka-
vörð, skýrir frá helstu æviatriðum
lians og störfum í opinberri þjón-
ustu. — Ólafur prófessor Lárus-
son skrifar langa og lærða grein
um „Refsivist á íslandi“, doktors-
rit Björns Þórðarsonar, en dr.
Páll Eggert Ólason ritar um
„Feril Passíusálmahandrits síra
I-Iallgríms Péturssonar“.
Þá er komið að þeirri ritgerð-
inni, sem mörgum mun þykja
merkilegust og snjöllust í þessu
hefti Skírnis, en það er minning-
argrein Árna Pálssonar um Georg-
Brandes. — Eins og kunnugt er,
var Georg Brandes einn hinn
mesti og mikilvirkasti bókmenta-
höföingi, sem uppi hefir veriö á
Norðurlöndum og heimskunnur
maöur. Liggja eftir hann ósköpin
öll af ritverkum, misjöfnum nokk-
uð aö gæöum, en sum eru þann
veg úr garði ger, að geyma munu
nafn hans langt fram í aldir. Á. P.
hefir sýnilega miklar mætur á
Brandesi, en stillir 'þó aðdáun
sinni mjög í hóf. Ritgerðin er
cinkar-fróðleg um störf Brandes-
ar, sigra hans og ósigra, og ævi-
langa baráttu. Hún er samin af
mikilli mælsku og skörungsskap,
málið þróttmikið, hljómþungt og
hressandi. Eru slikar ritgerðir um
stórmenni framandi þjóða mikill
fengur íslenskri alþýðu.
Síðast í heftinu eru ritfregnir
eftir Sigurð Nordal, Jón Ófeigsson
og Jón Eyþórsson, og loks skýrsl-
og reikningar Bókmentafélagsins
1926.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 2 st„ Vestm,-
eyjum 3, ísafirði o, Akureyri 1,
Seyðisfirði 1, Grindavík 1, Styklc-
ishólmi — 1, Grímsstöðum —■ 5,
Blönduósi -~ 1, Þingvöllum i,
Raufarhöfn o, Hólum í Hornafirði
2, Kaupmannahöfn 6, Utsira 8,
Tynemouth 14, Hjaltlandi 11, Jan
Mayen 4 st. — Mestur hiti hér
í gær 2 st„ núnstur o st. — Djúp
lægð fyrir sunnan land, hreyfist
hægt austur eftir. Hæð fyrir norö-
an land. — Horfur: Suðvestur-
land : í dag og iiótt minkandi aust-
an hvassviðri. Úrkomulítið. Faxa-
flói og Breiðafjörður: 1 dag og
nótt austán og norðaustan. Senni-
lega úrkomulaust. Vestfirðir:
Stormfregn: í dag og nótt hvass
rorðaustan. Þykt loft en úrkomu-
btið. Norðurland í dag og nótt all-
hvass norðaustan. Snjóél í útsveit-
um. Norðausturland og Austfirðir:
Stormfregn í dag: Allhvass aust-
an. I nótt hváss noröaustan. Snjó-
lcoma. Suðausturland: Stormfregn:
í dag og nótt hvass norðaustan.
Snjókoma.
Es. Island
kom til Kaupmannahafnar kl. 7
í morgún.
Dronning Alexandrine
fer kl. 6 í kveld vestur og norð-
ur um land til Akureyrar, en snýr
þar viö. Meðal farþega: Jónas
Jónsson, ráðherra, Guðjón Samú-
elsson húsameistari, Magnús Guð-
mundsson fyrv. rýðherra, Th.
Krabbe, Hjalti Jónsson framkv,-
stj., Rasmunssen verkfræðingur.
ísfiskssala.
í gær seldu þessi skip afla sinn
i Engíandi: Snorri goði fyrir 867
sterlingspund, Walpole fyrir 724
st.pd., Karlsefni fyrir 933 st.pd.
og Apríl fyrir 897 st.pd.
Ingunn,
fisktökuskip til Bookless, ligg-
ur hér þessa dagana. Tekur fisk
fyrir hann 0g Edinborg.
Skemtifund
heldur verslmiarmannafélagið
,.Merkúr“ í kveld kl. 8yí, á Skjald-
breið. Þar veröur til skemtunar: