Vísir - 19.11.1927, Blaðsíða 2

Vísir - 19.11.1927, Blaðsíða 2
VISIR Nýkomid: Kaffi, sama góða Kailið og við höfnm haft. Kaffirót, KandLís, óðýr og góðnr, Molasykur. Strásykur. Símskeyti . Khöfn 18. nóv. FB. Bylting í vændum? Fréttaritari dagblaðsins Daily Mail álítur, aS margir konimúnist- ar í Rússlandi muni styðja Trot- ski áfram. — Stalin óttaSist aS l'rotski kynni aö fá meiri hluta á þingi flokksins, sem halda á i næsta mánuöi. Af þeirri orsök tók f lokksstjórnin til þess ráðs að reka Trotski úr flokknum, áður en fiokksþingið kæmi saman. ’ Staiin óttast, að herinn muni gera byltingu. Ráðstjórnin kvað hafa flugvélar reiðubúnar til flótta. Frá ófriðnum í Kína. Frá Hankovv er símað: Nan- kingherinn hefir tekið Hankow. Utan af landi. —o— ísafirði 18. nóv. FB. Réttarhöld í Hnífsdalsmálinu halda áfram. Rannsóknardómarinn óskar þess getið, að hann hafi i rétti í Hnífsdal í dag fundiö hö.f- tmd að atkvæðisseðli, er hann áð- ur taldi ritaðan (af) Friöbjörgu Friðriksdóttur (i) Bolungarvík. Sýkna Kristjáns Ólafssonar hrepp- stjóra í Bolungarvík þar með LSÖnnuð að hálfu og þá sennilega að öllu leyti. Finnur. Vestm.eyjum 19. nóv. FB. Afli. 1 haust og alt til þessa hefir veriS róiö mikið hér á smábáta. Er það óvanalegt hér um þetta leyti árs. Hefir aflast vel á bátana. Heilsufar er sæmilegt, en þó hefir gengið hér slæmt kvef. Vermenn, sem vánalega koma hingað í októ- Ijer og nóvembermánuðum munu að ]>essu sinni, eins og í fyrra, ekki koma hingað fyrr en um ára- mót. Annars var það títt áður, að þeir komu um þetta leyti árs og fengu mat og húsnæði hjá út- gerðarmönnum uns vertíð byrjaði. Munu útgerðarmenn hafa gefið þeim bendingu um, að koma ekki fyrr en i vertíðarbyrjun. Aðgerðir á bæjarbryggjunni fara ntt fram. Hún skemdist í of- viðri í haust. Nýtt útgerðarhverfi. Samkvæmt skipulagsuppdrætti cg ákvörðunum bæjarstjórnar er ákveðið að flytja vinnustaði út- geröarinnar smám saman inn að og upp af Skildingafjöru. I fram- tíðinni verður þar aðalstöð út- gerðar Eyjamanna. Verða þar bygð bátahús, fiskiþrær og annað tilheyrandi útgerðinni, og á alt að vera skipulagsbundið og vandað að gerð. Er þegar hafin bygging fjögurra bátahúsa og er gólfmál þeirra til saman ca. átta hundruð fermetrar. Húsin eru öll portbygð og þannig gerð, aö hægt er að aka bifreið inn í þau. Að ræktun landsins er talsvert unnið. Land, sem hæf- ast er til ræktunar talið í Eyjum, var mælt upp í sumar og því skift. Vegurinn nýi, kringum Helgafell, sem fé var veitt til á fjárlögum, hefir 'skapað ræktunarmöguleik- ana. Er nú byrjað á talsverðri ræktun meðfram veginum báðum megin. Má búast við því, að rækt- unin muni aukast hér svo mjög á næstti árum, að útlit Eyja muni gerbreytast, og einnig, að hin aukna ræktun muni hafa ntikil bætiáhrif á almenningshaginn. Tiiier aðdáunarverSar rilgnðir. ■—1 ■ o~ I. Ástæða virðist mér til þess að láta í ljósi þakklæti fyrir ritgerö eftir Bjarna Sæmundsson, sem eg var að lesa í „Verði“ áðan. Frani- úrskarandi náttúrufræðingur segir þar snildarlega frá athugunum sínum á sjómannaltfi og dýralífi, en hvorttveggja ætti oss að þykja lróðlegt ntjög. Vonandi er að Bjarni ætli sér aö safna þessum fróðlegu ferðasögTim .sínum sant- a»i í bók, og ekki ólíklegt, að ntarg- ir mundu vilja eiga það sent bæði er ritað af ágætri þekkingu og aí snild. Tíðkast það nú mjög, í mörgum löndum, að efni bóka komi fyrst í blöðum og tímaritum, sumt eða alt. II. Önnur aðdáanleg ritgerð var í Alþýðublaðinu, ræða eftir prófess- or Harald Níelsson. Slíkir menn eru það, sem bjarga kirkjunni, en ekk,i sautjándu aldar menjninyr. Og ennþá betur muiiu þesskonar ntenn geta notið sín, þegar kirkj- an hefir breytt um nafn, og heitir: Alþjóðastofnunin fyrir lífaflfræði Skemtun og' böglauppboð lieldui' Glímufélagið ÁRMANN i Bárunni, sunnudaginn 20. þessa mánaðar, kd. 4síðd. SKEMTÍSKRÁ: ý 1 I rio: pórarinn Guðmundsson, Axel Wold og Eggert Gilfer. Einsöngur: Sigurður Markan. Gamanvisur: Reinhold ’Richter. Einsöngur: Frú Elisabet Waage. J vísöngur: Systkinin frú Elísabet Waage og Sigurður Markan. parnæst hefst bögglaupphoðið og verður þar á boðstólum margt gott og nauðsynlegt, svo sem: Farseðill með einhverju af skipum Eimskipafélags íslands, til Leith, Hamborgar eða Kaupmannahafnar, farseðlar til Vestmannaeyja og Borgarness, góð fataefni, nokkur skippund aí kolum, saltfiskur, allskonar mjölvara, niðursuðuvörur, ávextir í dósum og nýir, skófatn- aður, rafmagnslampar o. þ. h., leirvörur, barnaleikföng, bækur og tímarit, tóbak. og sælgæti, allsk. nauðsynjavörur, bílför, bíómiðar og margt og margt fleira. Aðgöngumiðar fyrir félagsmenn og gesti eru til sölu í Tóbaksversluninni Heklu, Lauga- vcg 6 og í Tóhaksbúðinni, Austurstræti 12. pað sem eftir verður af aðgöngumiðum verður selt í Bárunni eftir kl. 1 á morgun. Aðgöngumiðarnir kosta að eins 1 kr., og er þetta því sérstakt tækifæri til að fá ódýra skemtun, reyna hamingjuna og styrkja gott málefni. STJÓRNIN. og stjörnusamband (The Inter- national Institute for Biodynamics and Interstellar communication). í þjónustu þeirrar stofnunar munu veröa bæöi prestar og læknar. Munu prestarnir kenna mönnum heilbrigöa lífsskoöun, og veita á- reiöanlega fræöslu um framhald lífsins og hættur þær, og erfiö- leika sem bíöa hins fáfróöa og rangstefnda, en aldrei láta sér til hugar koma, aö þaö geti horft mönnunum til heilla, aö fá þá til aö meta forn ævintýri og bábiljur sem sannleikur væri. En læknarnir munu geta hjálp- að öllum, sem til þeirra Ieita, og mun þó starf þeirra verða miklu meir í því falið, aÖ kenna mönn- um hvernig þeir geti látiö sér fara fram, heldur en í því aö gera viö bilanir, enda munu þær brátt veröa mjög miklu sjaldgæfari en nú. En markmiöiö er líkami, sem altaf fer fram og er ekki háöur neinni hrörnun, og heldur ekki þessu herfilega slysi, sem kallaö erdauði. 13.—16. nóv. Helgi Pjeturss. Bending, „Slyngt yrði þér margt, ef ekki fylgdu slysin meö“, mætti eflaust segja um margan þann, er stjórnar bifreiöunum hér á vegunum, og þá er á hjólum renna. Slysin eru orð- in svo átakanlega tíö og alvarleg, að hér v e r ð u r einhver bót á aö verða. Þaö er eigi áhættuminna nú orðiö, að voga sér að ganga yf- ir þvera götuna, en að, hætta sér út á sjóinn í verstu brimveiði- stööum landsins. í hinni svonefndu ,.Bakarabrekku“, eða neöst á Laugaveginum virðist ])ó hættan einna mest, enda er þaö altítt, að menn renna sér þar niöur á hjól- um sínum, án þess aö hafa nokkra stjórn á hjólunum. Láta.hendur og fætur leika lausu, eins og væru það börn, aö'leika sér aö því að renna sér á sleða ofan eftir snjó- fönn eöa freöinni jörö. Menn fara gangandi, akandi og hjólandi jöfn- um höndurn upp ,og ofan götuna sinn á hvern veg hennar, algerlega stjórnlaust og án nokkurra reglna. Á þesstt mætti gera mikla bót, wooooc Bæjarfréttir Rosta aðeins kr. 6,50. Uersl. B. H. Bjarnason. meö því að leggja upphækkaöan pall eftir miðri götunni, t. d. á iiokkurn neðri hluta hennar, þar sem ])eir, er yfir götuna þurfa að ganga, gætu staönæmst á. Þeir, sem ferðuðust niður eftir götunni, ættu að fara og færu þá að sunn- anveröu við pallinn, hinir, er að neðan kæmu, færu aö norðanveröu. Sá, sem því ætlaði yfir götuna, af gangstéttinni aö norðan, þyrfti ekki annars aö gæta, en líta til hægri, áður en hann gengi út á pallinn, og líta eftir hvort nokkur kæmi neðan aö, sem hann þyrfti aö óttast að hann rækist á, en er hann væri kominn út á pallinn, liti hann aöeins til vinstri handar og gætti þess, hvort nokkur hætta stafaði af ferð manna, bifreiöa eða hjóla, ofan aö. lYrði þetta auðvitaö gfignkvæmt fyrir þá, er að sunn- an kæmu og ætluöu yfir götuna lrá suðurhliðinni. Upphækkun þessi á götunni (pallurinn), þyrfti vitanlega ekki að vera hærri en tipphækkunin, sem er fyrir austan íslandsbanka, og ekki breiöari en svo, aö 2 eða 3 menn gætu staðið hver við annars hliö; lengdin mætti vera 10—15 metrar, eöa meiri. Væri þessu þannig fyrir komið — sem vitanlega er ekkert nýmæli og því undarlegt, aö ekki skuli hafa verið gert viö því fyrri, — yröi áreiöanlega minna um árekst- ur þarna, enda væri þessa þörf viðar í bænum, t.,d. á krossgötun- um Laugaveg-KIapparstíg, Lauga- veg-Frakkastíg og víðar. Þetta er aðeins vinsamleg bend- ing, sem eg vona aö verði tekin til greina sem allra fyrst, eða eitt- hvað annað örugt ráð, til að tak- marka hin tíðu og alvarlegu slys, sem nú eru óöum aö fara í vöxt. J- Messur á morgun. í dómkirkjunni kl. 11, síra Bjarni Jónsson (altarisganga). - Kl. 2 baniagaiösþjónusta, síra Fr. Hallgrímsson. - Kl. 5, sira Friö- rik Hallgrímsson. í fríkirkjunni í Reykjavík lcl. 5 (ekki kl. 2), síra Árni Sigurðsson. J fríkirkjunni i Hafnarfirði kl. 2, síra Ólafur Ólafsson. í Landakotskirkju: Hámessa k!. 9 árd. og kl. 2J-2 síðd. klukkna- vígsla. Engin síðdegisguðsþjón- usta. í spítalakirkjunni í Hafnarfirði: Hámessa kl. 9 árd. Engin síödeg- isguösþjónusta. í aðventkirkjunni kl. 8 siöd., síra O. J. Olsen. I Sjómannastoíunni kl. 6 síðd.: Guösþjónusta. I Hafnarfjarðarkirkju kl. 1 e. h. Veðrið í morgun. Hiti um land alt. í Reykjavik 7 st., Vestmannaeyjum 7, Isafiröi 4, Akureyri 2, Seyðisfirði 7, Grindavík 7, Stykkishólmi , 7, Grímsstöðum 3, Raufarhöfn 5, Hólum í Hornafiröi 7, Blönduósi 6. Þingvöllum 7, Færeyjum 6, Angntagsalik -f- 3, Kaupmanna- höfn o, Utsira o, Tynemouth 7, Hjaltlandi 4, Jan Mayen 3 st. — Mestur hiti hér í gær 8 st„ minst- ur 4 st. Úrkoma 6,3 rnm. — Grunn lægð viö suðvesturland. Djúp lægð vestur af Irlandi. Suðaustan í Noröursjónum. — Horfur: Suð- vesturland: í dag og nótt allhvass suðaustan. Regnskúrir. Faxaflói og Breiðafjöröur: í dag og nótt 'breytileg átt. Regnskúrir. Vest- firðir: I dag og nótt: Austan og norðaustan. Rigning. Norðurland, noröausturland og Austfirðir: í dag og nótt sunnan átt. Gott veð- ur. Suðausturland: í dag og nótt suðaustan. Regnskúrir. Vísir kemur út tímanlega á morgun. Tekið verður á móti auglýsingum i sunnudagsblaðið á afgreiðslunni (sími 400) fram til kl. 7 í kveld, en eftir þann tíma og fram til kl. 9 í Félagsprentsmiðjunni (sími U?8).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.