Vísir - 04.10.1928, Side 2
VISIR
Höfum fengið:
Kepti:
Blue CPOSS, 6 í pakka.
Holiandia, 8 - —
Beacon, 36 - —
Lifparkæfa frá Steffensena Fabriker
V* og V« k8- dósir-
Nýkomið:
Skautar fyrlr fullorðna og börn
3 teg. nikkeleraðlr og ónikkeier-
aðir, mjög fallegar teg. — Ódýrt.
A. Obenliaupt.
Saltkj Ot
úr Dölum.
Kœf a,
rúllupylsa,
isl. egg.
Verslunin FELL.
öian 2285.
Símskeyti
Khöfn, 3. okt. F. B.
Rreska stjórnin og afvopnunar-
málið.
Frá London er síniað: Stefna
bresku stjórnarinnar í afvopn-
unarmálinu mætir vaxandi mót-
spyrnu andstöðuflokka hennar.
Verkalýðsflokkurinn og frjáls-
lyndi flokkurinn virðast ætla að
vinna að þvi, að afvopnunar-
málið verði aðalmálið í þing-
kosningunum að ári. Búast
menn við, að verkamenn og
frjálslyndir reyni að 'þröngva
stjórninni, fyrir kosningarnar,
til nánari samvinnu við Banda-
ríkin, viðvikjandi afvopnun. —
Er talið líklegt, að þeir njóti
stuðnings allntargra íhalds-
manna til þess.
McDonald flytur ræðu.
Frá Birmingham er símað:
Ramsey McDonald, fyrverandi
forsætisráðherra hefir haldið
ræðu á ársþingi verkalýðs-
flokksins, og réðist hann á ut-
anrikismálastefnu stjórnarinn-
ar. Bar hann fram tillögu þess
efnis, að ársþingið heimta'ði að
setuliðið í Rínarbygðum verði
kallað lieim, ennfremur er þess
krafist i tillögunni, að stjórn
Bretlands skrifi undir alþjóða-
gerðadómst ólssam n i n g, sem
þing þjóðabandalagsins sam-
þykti að niíela með að gerður
yrði,láti frakknesk-breska flota-
málasamkoniulagið falla niður,
og loks, að stjórnin lýsi sig
reiðubúna til þess, að skrifa
undir samning um raunveru-
lega afvopnun. — Tillagan var
samþykt.
„Zeppelín greifi“ í reynsluför.
Loftskipið „Zeppelín greifi“
lagði af stað í gærmorgun í
langa reynsluferð. Flaug loft-
skipið yfir suðvestur liluta
pýskalands, Holland og Norður-
sjúinn og i gærkveldi yfir aust-
urströnd Bretlands.
Kliöfn 4. okt. FB.
Flóð í Belgíu.
Frá Brussel er símað: Storm-
ar og flóð hafa eyðilagt flóðgarð
í nánd við Ypres. Hefir flætt
yfir mikið landsvæði og orðið
stórtjón á ökrum. Margir bú-
garðar eru umluktir vatni.
(Ypres eða Yperen á flæmsku,
er horg í Vestur-Flandri í Belg-
íu, sem mjög kom við sögu i
heimsstyrjöldinni. Borgin stend-
ur við ána Yperlée, sem rennur
í Yserfljót. Er hægt að veita
vatni yfir landsvæði þessi, og
var það gert (í heimsstyrjöld-
inni, i október 1914).
Stærsta flugvél heimsins
í smíðum.
Frá Berlin er símað: Junker-
félagið hefir byrjað á smíði flug-
vélar, sem verður stærsta flug-
vél í heimi. Verður rúm i henni
fyrir fimtiu farþega. Flestir far-
þegaklefarnir verða innan i
vængjunum.
Utan af iandi.
Þjórsá, 3. okt. FB.
Þingmálafund kvað eiga að
lialda á Skeggjastöðum i
Hraungerðishreppi á sunnu-
daginn.
Tilætlunin mun, að bygging
Mjólkurbús Flóamanna verði
komin undir þak í liaust. Á
mjólkurskálinn að standa i
Laugardæla landi, skamt fyrir
austan liús útbús Landsbank-
ans. Hefir undanfarið verið
unnið að aðflutningi timburs,
ceinents o. fl„ og að grefti.
Vinna sömu menn að bygging-
unni og unnu að Laugarvatns-
skólanum. Fyrir verkinu eru
þeir Arinbjörn Þorkelsson og
Sigurður Bjargmundarson. —
Mjólkurskálinn mun vera 40
metrar á lengd, eða vel það, og
um 12 metra breiður.
Hvammst. 3. okt. FB.
Mikill síldarafli í lagnet síðustu
daga, og góður fiskafli. 1 gær
fengu menn 5—6 strokka í net,
en síldaraflinn var mestur í
gær.
Slátrun stendur yfir. Hefir
verið slátrað ca. 5—600 fjár á
dag, síðan sláturtíðin hófst, þ.
24. sept. Nú er verið að skipa
út frystu kjöti í e/s. Brúarfoss.
Rafmagn hefir verið leitt í
læknisbústaðinn og sjúkraskýl-
ið i sumar. Er það framleitt
með vatnsafli.
Útgerð er miklu meiri liér í
sumar en fvrr. SigurðurPálma-
son kaupmaður sendi 100 tonn
fiskjar með skipi, sem liéðan
fór.24. sept. Fiskbirgðir á staðn-
um ca. 40 tonn. Bátar liafa ver-
ið hér í sumar frá Reykjavik
og ísafirði, og lagt upp fisk hér.
Mótorbátabryggju og fiskskúr-
um lét SigurðurPálmason koma
upp í sumar.
ísafirði, 3. okt. F. B.
Mikil smásíldarveiði undan-
farið i Seyðisfirði. Hefir feng-
ist um 900 tn. í eina vörpu.
Síldin er söltuð til útflutnings
og er í góðu verði.
Afarmikið hefir einnig veiðst
af smokkfiski í Djúpinu í sept-
embermánuði. Sumir bátar
fengu mörg þúsund yfir nótt-
ina. Ishúsiri hér á Isafirði eru
full af smokkfiski, svo að ekki
er liægt að laka á móti meira.
porskveiði er lítið stunduð
hér sem stendur, enda rýr afli.
Botnvörpungarnir Hávarður Is-
firðingur og Hafstein leggja út
á saltfiskveiðar þessa daga.
Hnífsdalsmálið
var þingfest í fyrradag. Verj-
andi er skipaður Páll Jónsson
lögfræðingur fyrir Eggert Hálf-
danarson og Hannes Hálfdan-
arson, en Lárus Jóhannesson
hæstaréttarmálaflm. fyiár Hálf-
dan Hálfdanarson. Verjendur
tóku tveggja mánaða frest.
Látin er fyrir mánuði frú
Björg Jónsdóttir, kona Valdi-
mars þorvarðssonar, kaupm. í
Hnífsdal, 67 ára að aldri.
Nýtisku frystihús með vél-
um er nýreist í Bolungarvik.
Þánarfregn.
í gær andaðist hér í bsenum
Kristín Filipusdóttir, Skólavörðu-
stígf 30. Hún var fullra 88 ára aS
aldri og hafði verið hér i hænum
SPECIAL
85
24 stk.
1 króna.
85
Speeíals eigarettur
reyktar áf Specials-mönnum.
<35
8B
8B
8B
m
nær 60 ár, og Ljó lengi í Skóla-
stræti 5. Veröur æfiatriöa hennar
getiö síöar.
Kaupsamningar.
Fyrir þrerri árum tókust samn-
iugar um kaupgjald milli útgerö-
armanna og sjómanna og áttu aö
gilda til 1. janúar 1929, en ef hvor-
ugur aöili segöi þein* upp fyrir 1.
okt. þ. á., áttu þeir. einnig að gilda
næsta ár. Nú hafa Sjómanafélög
Reykjavíkur og HafnarfjarÖar
sagt upp þessum samningum frá
1. janúar 1929. Einnig hefir Vél-
stjórafélag Islands og Félag ísl.
loftskeyitamanna sagt upp samn-
ingum viö útgeröarmenn frá 1.
janúar n. k. — Útgeröarmenn hafa
kosið þriggja manna nefnd til þess
aö semija við þessi þrjú félög, og
eru þessir menn i nefndinni: Jón
Ólafsson, Ólafur Thors og Páll Ól-
afsson.
Háskólafyrirlestrar.
Hingað er kominn Dr. N. G.
Christensen, forstöðumaöur kenn-
araskóla ríkisins i Danmörku.
Hann ætlar aö flytja 8 háskóla-
fyrirlestra í kaupþingssalnum, og
verður hinn fyrsti fluttur kl. 6—7
i kveld. Erindin verða um dansk-
ar bókmentir, frá Georg Brandes
til Joh. V. Jensen. Höfundurinn
ætlar aö segja frá stefnubreyting-
um þeim, sem oröiö hafa í bók-
mentum Dana á jiessu tímabili.
Bæjarstjórnarfundur
veröur haldinn i dag á venjuleg-
um tima. Mörg mál á dagskrá,
þar á meöal kosning í skólanefnd
ungmennaskólans.
Sýning
Jóns Þorleifssonar í Austur-
stræti 12. uppi, er opin daglega
frá kl. 10 aö morgni til kl. 11 aö
kveldi. Þar liafa þe^ar selst 13
málverk.
Ungmennaskólinn.
Skólastjóri ungmennaskólans
liefir farið þess á leit, að fá smíða-
stofu barnaskólans til afnota i vet-
ur fyrir nemendur ungmennaskól-
ans. Vill skólanefnd veröa viö til-
mælum þessum meö því skilyrði,
aö smíöakennari barnaskólans hafi
kensluna á hendi og kenslustund-
irnar verði ákveönar í samráöi við
skól astj óra ha rnask ó 1 an s.
Tilraun
er nú verið aö gera til þess aö
ná á flot e.s. íslending, sem sökk
inni i Sundum fyrir nokkuru.
Dráttarháturinn magni og tvö skip
önrair vinna aö þessu verki.
Síra Árni Sigurðsson,
fríkirkjuprestur, liefir fíutt
sig á Skálholtsstíg 7 (landshöfð-
ingjahúsið).
ÞjóðleikhúsiÖ.
Auglýst er í dag eftir tilhoöum
i að grafa fyrir grunni Þjóðleik-
hússins. Á þaö að stand'a við
Hverfisgötu, ofan viö Safnahúsiö.
N autgripaflutningur.
Á síðari árum heíir tíðkast að
flytja nautgripi hingað til bæjar-
ins i flutningabifreiðum. Stunduin
h.efir komiö fyrir að gripirnir hafi
meiðst í þessum flutningum, þ. e.
a. s. núist meira eða minna undan
vagngrindunum. En viö þessu má
gera meö ]jví aö festa. poka meö
dálitlu heyi innan á grindurnar,
hæði til hliöa og að aftanvei-öu.
Þetta hafa margir hifreiöastjórar
gent og gefist vel. Öllum, sem
flytja stórgripi til bæjarins í flutn-
ingabifreiöum, er ráöið til þess,
að taka upp þessa einföldu aðferð.
Fundir
í K. F. U. M. byrja í kvöld kl.
8)4 í aðaldeild félagsins.
Almeimur fundur
presta og sóknarnefnda í Reykja-
vík veröur haldinn 17.—19. þ. m.
Hefst hann kl. 1 miðdegis (17.
okt.) með guðsþjónustu í dóm-
lcirkjunni. Síra Ólafur prófastur
Maguússon í Arnarbæli prédikar.
Island
fór frá Færeyjum kl. 5 í gær,
áleiöis hingaö. Kemur hingað ann-
aö kveld.
Hjúskapur.
í dag veröa gefin saman af síra
Ólafi Ólafssyni ungfrú Unnur Ein-
afsdóttir og Ingólfur Matthíasson,
loftskeytamaöur á Belgaum.
Trúlofun
sína hafa nýlega birt ungfrú
Kristím Guönadóttir frá Skarði ;í
Landi og Sigurjón Sigurjónsson,
Hverfisgötu 16.
1 rúlofun sina hafa opinberað
ungfrú Kristjana Hafstein og Arn-
ljótur Jónsson, stud. juris.
Ungfrú Sólborg Guðbrandsdótt-
ir, Skólavöröusttíg 25 og Jón Guö-
laugsson, sjómaður, Lindargötu
10, hafa nýlega birt trúlofun sína.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá S. V., 2
kr. frá stúlku, 5 kr. frá frú, 5 kr.
fiá S. Á., 5 kr. (gamalt áheit) frá
verslunármanni, 35 kr. frá Lólö,
26 kr. frá X. X., 5 kr. frá Villa,
5 kr. frá sjúklingi á Landakots-
spitala.