Vísir - 29.05.1929, Side 2
VISIR
gúmmísólar og hælav
endast þretalt á við leður.
Vatnsheliir — Þægilegir — Öiírir.
Nauðsynlegii* fyrir alla, sem
slíta mlklu skóleðj*!.
Birgðip hér á ataðnum.
Símskeyti
—o---
Khöfn 28. maí. FB.
Kosningar í Belgíu.
Frá Bríissel er símat5: Kosning-
ar til beggja deilda þingsins fóru
fram i fyrradag. FullnaÖarúrslit eru
ennþá ókunn. Samkvæmt hingað til
kunnum úrslitum hafa frjálslyndir
unnið sex þingsæti, flæmski flokk-
urinn þrjú og socialistar tapaS fimm
og kaþólski flokkurinn þremur sæt-
um í neðri deild þingsins.
i Heimsmet í þolflugi.
Frá Forth Worth í Texas er sítn-
að: Amerískir flugmenn, Robbins
og Kelly, hafa flogið hvíldarlaust
í rúmlega hundrað sjötíu og tvær
klukkustundir, og settu heimsmet i
þolflugi. Fengu bensín frá öðrum
flugvélum á fluginu.
Leiðangur til suðurheimskautslanda.
Frá London er símað: Skipið
Discovery, með þátttakendur í suð-
urheimskautsleiðangri D. Mawsons
fer héðan í byrjun ágústmánaðar
til Cape Town, þaðan til suður-
heimskautslandanna. Tólf vísinda-
menn taka þátt í leiðangrinum.
Utan af landi.
—o—
Vestm.eyjum 29. maí. FB.
Skipstjórinn á Rheinland, Ernst
Glusing, var dæmdur til þess að
greiða 5000 kr. í hlerasekt. Sam-
þykti hann dóminn.
Karl Schmidth áfrýjaði. Emma
Reimer var tekin við Ingólfshöfða,
en Rheinland við Portland.
Alþmgishátiðin
og Banáaríkin.
—o—
FB. 28. maí.
Heimskringla skýrir frá þvi þ.
24. apríl, að þann 15. hafi Mr.
Burtness, þingmaður í neðri deild
þjóðþings Bandaríkjanna, borið
fram eftirfarandi þingsályktunar-
tillögu, sem vísað ’var til utanríkis-
málanefndarinnar:
Að heimila forsetanum að þiggja
boð konungsríkisins íslands, um
þátttöku í þúsund ára afmælishátíð
Alþingis og í tilefni af ])ví, að gefa
íslensku þjóðinni standmynd af
Leifi Eiríkssyni.
Með því að ísland, þetta stór-
merka söguland Evrópu, sjálfstætt
ríki í samtfandi við Danmöku. held-
ur hátíðlegt 1930, þúsund ára af-
mæli löggjafar-þingstofnunar sinn-
ar, og hefir boðið Bandaríkjunum
að taka þátt í því; og
Með því. að núverandi löggjafar-
930, á hinum nafnfrægu Þingvöll-
um, skamt frá núverandi höfuðstað
landsins, og á sér, sem löggjafar-
þing, sögu að baki, er nær yfir fleiri
aldir, en löggjafarþing nokkurrar
annarar nútímaþjóðar, og er sem
slíkt fyrirmynd öllum lýðræðis-
stjórnum; og
Með þvi, að fyrsti hvíti maður-
inn, er steig fæti á ameríska jörð,
var innborinn Islendingur, Leifur
Eiríksson (sonur Eiríks rauöa,
Norðmanns, er bólfestu hafði tekið
á íslandi), ötull og æðrulaus far-
maður, sem slóst í för með föður'
sínum til Grænlands, árið 985, og
síðar lagði þaðan í haf til Noregs,
og fann meginland Ameríku, í baka
leið, árið 1000, en með þeim at-
burði hefst fyrst með sanni saga
Ameríku; og f
Með því, aö saga þessarar djarf-
huga smáþjóðar er á margan hátt
ofin í sögu vors eigin lands, fyrir
lærdómsáhrif hinna gagnmerku bók-
menta hennar, og sérstaklega með
landnámi i víðflæmi Norð-Vestur-
landsins, margra búhygginna, af-
kastasamra og gáfaðra manna frá
íslandi, er ásamt afkomendum sín-
um mynda ekki einungis eftirtekt-
arvert brot, í flokk bestu borgara
vorra, heldur hafa einnig lagt álit-
legan skerf til velmegunar, fræðslu-
mála, vísindaþekkingar, viðskifta-
megins, lista og menningar þjóðar
vorrar: Því skal svo ályktað af
ÖldungadeUd og Fulltrúadeild
Bandaríkja Ameríku, á sameigin-
legu ríkisþingi,
Að forsetanum skuli og sé hér
með heimilað, og hann beðinn að
þiggja boð forseta löggjafarþings
Konungsríkisins íslands (Alþingis)
til stjórnarvalda Bandaríkja (Ame-
ríku) að tilnefna opinbera fulltrúa
amerísku þjóöarinnar, til þessara
hátíðahalda þúsund ára afmælis Al-
þingis, þjóðþings íslendinga, með
því að tilnefna og senda fimm sér-
staka fulltrúa, til þess að taka þátt
x þessari hátíð af hálfu stjórnar-
valda Bandaríkja Ameríku; og að
foretanum skuli, og sé hér með
ennfremur heimilað og hann beð-
inn aíi útvega viðeigandi standmynd
af Leifi Eiríkssyni og frambera
nefnda standmynd sem gjöf frá
amerísku þjóðinni, íslensku þjóð-
inni til handa, í tilefni af þátttöku
Ameríkumanna i þessum hátíða-
höldum.
Að til þess að standa straum af
kostnaöi við þátttöku stjórnarvalda
Bandaríkjanna i nefndum hátíða-
höldum, eins og áður er talið, sé
hér með heimiluð veiting þess fjár,
er nauðsynlegt kann að vera, og
teljist þar til fargjald og fæðis-
kostnaður (án tillits til fyrirmæla
hvers kyns áður gildandi laga), laun
myndhöggvara, og önnur þau út-
gjöld, er forsetanum þykir við
eiga. —
Fiinm merkismenn í Bandarikj-
unum standa að þessari tillögu, og
eru tveir þeirra íslendingár, Guð-
mundur Grímsson dómari í Rugby,
North-Dakota. og. Gunnar B.
Björnsson, í St. Paul, Minn., fom
maður skattanefndarinnar í Minne-
sota. Eru þeir í heimfararnefnd
Þjóðræknisfélagsins. Hafa þeir
fengið í lið meS sér hina þrjá, þá:
Mr. Burtness, fulltrúadeildarþing-
mann frá North-Dakota, en hann
flytur tillöguna í fulltrúadeild þjóð-
þingsins, og Öldungadeildarþing-
mennina Shipstcad frá Minnesota
og Frazier frá North Dakota. .
Trjáræktarstöðin
við Raaðavatn.
—o—
Hver á hana? — Hver hirðir
um hana?
—o—
Sagt er að árið 1903 hafi ver-
ið stofnað skógræktarfélag í
Reykjavík. Félag þetta keypti
sér land við Rauðavatn. Þar
skyldu gerðar tilraunir með
skóg- og trjárækt. Fyrstu árin
var mikið að þessu unnið. Við
Rauðavatn var gróðursettur
fjöldi trjáa, síðan komið upp
trjáreitum, sáð trjáfræi og aldar
upp ungar trjáplöntur. Alt virt-
ist vera í foesta gengi og vel á
stað farið, vonir manna á mögu-
leika til trjáræktar að rætast.
En svo lítur út fyrir að þolin-
mæði og hirðusemi skógræktar-
félagsins hafi verið ofboðið.
Trén eigi vaxið nógu fljótt. þvi
að alt í einu (mér er eigi kunn-
ugt um hvenær) er hætt að
hirða um blettinn. Girðingunni
eigi einu sinni haldið við, svo að
sauðfé og annað foúfé gengur
iþar nú lausum hala.
\ En nú víkur sögunni til
1 trjánna. Fjöldi þeirra hefir átt
við eymdarkjör að biia, foafa
verið gróðurestt i óræktar- óg
næringarsnautt holt. Lítið að
þeim hlúð og eigi séð fyrir
þeirri næringu, er vöntun var á.
Fjöldi hinna gróðursettu trjá-
plantna hefir þarafleiðandi dá-
rið. Eigi getað búið við þessi öm-
urlegu skilyrði. En nokkrar, þar
á meðal furan, hafa lirikt af.
Þessar plöntur hafa í mörg ár
lítið vaxið; eigi getað felt sig við
þau skilyrði, sem þeim voru
boðin, en lifað þó. Að síðustu
liafa þær þó sætt sig við kjör
sín, lagað sig eftir kringumstæð-
unum, notfært sér þau efni, sem
fyrir hendi voru og farið að
þroskast. Þetta eru þau merki-
legustu fyrirbrigði, er orðið hafa
í íslenskri trjárækt.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
tekur fjölda ungra trjáplantna
til fósturs, flestar úr hlýrra
loftslagi sunnan frá Danmörku.
Nokkrar elur það upp í trjáreit-
um. Öllu þessu eru boðin
hörmuleg skilyrði, svelt. Börn-
in þroskast litt, verða kryppling-
ar, en þá er öllu slept út a gadd-
inn, þar sem rándýrin eru fyrir.
En þrátt fyrir alt og alt b}rrjuðu
trén að vaxa. Vilja nú ekki eig-
endurnir viðurkenna fóstur-
börnin sín við Rauðavatn,
vernda þau fyrir rándýrunum,
gefa þeim næringarforða til
eins árs.
Það er .eigi vansalaust hvern-
ig hefir verið farið með trjá-
ræktarstöðina við Rauðavatn,
rétt við þjóðveginn. Hún hefði
getað orðið til að mynda trú á
möguleikum til trjáræktar, en
starfsræksla hennar hefir verið
iþannig, að hún hefir veikt
trúna. En trjáleifarnar sjálfar
benda í öfuga átt. Nú verður að
hefjast handa. Skógræktarfé-
lagið gamla á að vakna af sín-
um væra svefni og hlúa að sín-
um vanræktu fósturbörnum;
allskouar svo sem : Línur, taumar, síldarnet,
snurpinætur, er best að kaupa frá
Johan Hansens Sönner a.s., Bergen
sem er stærsta verksmlðja í Noregi í þessarl
grein og alkunn fyrlr vðruvöndun.
Aðalumboðsmenn:
Þúrður Sveinsson & Co.
annað er eigi sæmandi 1930. En
hvar er skógræktarfélagið? —
Hverjir standa að þvi? Ef það
finst eigi, verður ríkið að kasta
eign sinni á leifarnar og sýna
þeim sóma.
S. Sigurðsson.
Jarðarför
Jóns GuSmundssonar frá Ægi-
síðu verður hafin þar, með hús-
kveðju, laugardaginn 8. júní um
hádegi. Þá verður farin bílfær leið
að Odda, og líkið jarðsett þar, eft-
ir yfirsöng og ræður í kirkjunni.
Búist er við fjölmenni.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 12 st., ísa-
firði 13, Akureyri 16, Seyðis-
firði 17, Vestmannaeyjum 9,
Stykkishólmi 13, Blönduósi 16
(engin skeyti frá Raufarhöfn),
Hólum í Hornafirði 12, Grinda-
vík 9, Færeyjum 10, Juliane-
haab 5, Angmagsalik 4, Jan
Mayen 1, Hjaltlandi 8, Tyne-
mouth 8, Kaupmannahöfn 12
st. — Mestur hiti hér í gær 12
st., minstur 9 st. IJrkoma 6,4
mm. Grunn lægð fyrir vestan
land og norðan, en hæð um
Færeyjar. Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói: í dag og nótt
sunnan og suðvestan gola.
Slcýjað Ioft, en lítil rigning.
Breiðafjörður, Vestfirðir: í dag
og nótt sunnan og suðvestan
kaldi. Rigning í útsveitum.
Norðurland, norðausturland,
Austfirðir, suðausturland: I dag
og nótt sunnan og suðvestan
gola. Úrkomulaust og hlýtt.
Prófessor Magnus Olsen
flytur 12. og síðasta háskóla-
erindi sitt í kveld kl. 6 I kaup-
þingssalnum.
Thorkild Roose
skemti með upplestri i Nýja Bíó
í gærkveldi, eins og til stóð, og var
tekið forkunnarvel. Guðm. próf.
Hannesson mælti fyrst nokkur orð
og kynti listamanninu fyrir áheyr-
öndum, en að því loknu hélt Th.
Roose stutta tölu og lýsti meðal
annarp kynnum sínum af Islend-
ingum og íslenskum bókmentum.
—- Að því loknu hófst upplestur-
inn og var viðfangsefnið að þessu
sinni alkunn snxásaga eftir Steen
Steensen Blicher: „Brudstykker af
en Landsbydegns Dagbog“. Sagan
cr prýðilega rituð og skemtileg frá
höfundarins hendi, og Th. Roose
fór frábærlega vel með hana. —
Er ekki ofsögum af ]>vi sagt, hví-
líkur snillingur hann er í þessari
grein listarinnar. — Eftir viðtök-
unum í gærkveldi að dæma, virðist
óþarft að gera ráð fyrir því, að
Th. Roose muni skorta áheyrend-
ur þau kveldin, sem hann skemtir
bæjarbúum.
Foreningen Norden
(„norræna félagið") í Noregí
ætlar á þessu sumri að efna til nor-
ræns stúdentamóts þar í landi, og
hefir boðið Stúdentafélagi Reykja-
víkur þátttöku í þvi. Verður nán-
ara skýrt frá þessu á fundi félags-
ins í Kaupþingssalnum í kveld.
Vatnsréttindin í Sogi,
sem bæjarstjórn samþykti í
vetur að kaupa af Magnúsi
Jónssyni lagaprófessor, liafa nú
verið metin, 'og verður kaup-
verðið samkvæmt því 98 þús.
krónur. Eins og menn muna
var það þáttur í kaupsamning-
unum, að verðið skyldi metið
af 5 manna nefnd, og áttu þeir
sæti i henni Magnús Sigurðsson
bankastjóri af seljanda hálfu,
Jón Þorláksson alþm. fyrir
Reykjavíkurbæ, og þeir Ólafur
Lárusson prófessor, Árni Páls-
son verkfræðingur og Þorsteinn
Þorsteinsson hagstofustjóri til-
nefndir af Hæstarétti. Var það
mat þriggja hinna síðast töldu,
er ofaná varð í nefndinni, en
Magnús Sigurðsson mat rétt-
indin á 265 þús. kr. og Jón Þor-
láksson á 40 þús. kr.
Forseti S. R. F. I.
óskar þess getið, að maður-
inn, sem ætlaði að flytja erindi
á maí-fundi félagsins, sé veikur
þessa dagana, og að þess vegna
verði dráttur á fundinum.
M.s. Dronning Alexandrine
fór til Vestur og Norðurlands
í gærkveldi Id. 6. Fjöldi far-
þega fór með skipinu meðal
þeirra voru: Jón Auðun Jóns-
’son alþm., Böðvar Bjarkan,
Pétur A. Ólaf^son konsúll,
Gunnar Schram stöðvarstj., og
Þrottadagarnir
hvíldardagar
■niuiuiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiniiiiniiiiuiiiiiiiiiiiiiiiii
vinní
4 rru
Fæst víðsvegar.
í heildsðlu hjá
HALLDÖRI EIRÍKSSTNI,
Hafnarstræti 22. Sírni 11