Vísir


Vísir - 14.06.1929, Qupperneq 2

Vísir - 14.06.1929, Qupperneq 2
VÍSIR Flagnaveiðarinn , Aeroxon44 er sá besti, sem liægt er að fá, og auk þess nijög ódýn Hverj- um flugnaveiðara fylgir stifti, svo að ekki þarf að vera að leita að þvi þegar á að festa flugnaveiðarann upp. Veiðir betur en nokkur annar. Símskeyti —o— Khöfn, 13. júní, F.B. Frá Bandaríkjunum. Frá Wasliington er símað: — Efri deild þjóðþingsins hefir felt frumvarpið um rikishjálp til landbúnaðarins. Hoover forseti hafði fallist á frumvarpið, en meiri hluti efri deildar áleit nauðsynlegt, að frumvarpið innihéldi einnig ákvæði um stuðning til útflutnings á korni en Hoover var þessu andvígur. Búist er við, að Iloover gefi út tilskipun, sem lögleiði nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að hjálpa landhúnaðinum. Róstur í Marokkó. Frá París er símað: Marokkó- búar hafa umkringt og ráðist á frakkneska herdeild nálægt Mi- delt. Þrettán menn féllu úr liði Fraleka, en áttatíu voru hand- teknir af Marokkó-mönnum. Utan af landi. —o— Siglufirði, 13. júní. FB. Á þriðjudagsmorgun kom ,Höskuldur‘t reknetaskip hluta- félagsins Bakki með 70 tunnur af sild. Unnu að frystingh henn- ar 10 Akurne’singar, sem voru samningsráðnir í sumar fyrir 200 kr. kaup á mánuði, fritt. Um 11-leytið komu þangað yfir 100 verkamenn undir for- ystu Hermanns bæjarfulltrúa, Gunnars hæjarverkstjóra, Þór- odds, áður lögregluþjóns o. fl. og hindruðu vinnuna, einnig tveggja smiða, sem ráðnir voru fyrir 2—3 kr. tímakaup og nokkurra smádrengja, sem unnu að beinaþurkun. Kröfð- ust þeir að vinnendur Bakka fengi kaup samkvæmt verka- mannataxta Siglufjarðar. Bæjarfógeti var til kvaddur, en færðist undan að koma á vettvang, taldi næryeru sína ])ýðingarlitla. Síðar samdægurs stöðvuðu sömu menn einnig sjómenn, sem nota átlu síldina til beitu, frá að bjarga henni i frysti. Ónýttust því 40—50 tn. Margir þeirra sem kröfðust vinnu- stöðvunar eru í þjónustu bæj- arins. Vinnustöðvun heldur áfram. — Jóhannesson. (Mál jætta er þess eðlis, að FB þótti rétt að leita einnig umsagnar þeirra, sem kröfðust vinnustöðvunar, og simaði því til Hermanns bæjarfulltrúa og bað Iiann að senda skeyti um málið. Skeyti var ókomið frá honum er þetta er skrifað). Siglufirði, 14. júní, F.B. Verkbanninu lokið með sam- komulagi um, að kauptaxti verkamannafélagsins hér gildi. Hermann. Leikhúsið. „Andbýlingarnir“ eftir C. Hostrup. — Lautinant v. Buddinge: Poul Reu- mert. Leikfélag Reykjavíkur hafði hepnina með sér, er því tókst að ná í Poul Reumert hingað til þess að leika, sem gestur nokkur af þeim hlutverkum, sem hann hefir lilotið mestan orðstír fyr- ir. Það er alkunna, að þessi lista- maður er einna fjölhæfastur allra núlifandi danskra leikara og hefir þegar fyrir löngu trygt sér virðingarsæti í danskri leik- listarsögu, og fögnuðu því allir, er þeir lieyrðu, að von væri á honum liingað. Hinsvegar munu sumir liafa efast um, hvort hann rnundi njóta sín að fullu við þær aðstæður, sem hér voru fyr- ir og innan um leikendur, sem töluðu annað mál. Sá ótti reynd- ist óþarfur, — Reumert sýndi í gærkveldi, að lionum hefir tek- ist að samlaga sig svo leikend- unum á þeim fáu æfingum er hann hefir haft með þeim, sið- an hann kom, að eigi varð ann- ars vart en hann væri fullkom- lega í essinu sínu. Og á hinn bóginn höfðu meðleikendurnir auðsjáanlega liaft gott af við- kynningunni við hann; það var eins og hann lyfti þeim með sér.. Meðferð Poul Reumert á hlut- verlci von Buddinge er orðiir klassisk. Hann erfði þetta skop- lega lilutverk eftir Olaf Poulsen og hefir fengið einka- rétt á því um ókomna æfi sína, eins og fyrirrennarinn. Myndin af þessum uppskafningi, sem ætlar að tryggja sér áhyggju- lausa elli með því, að krækja í dóttur koparsmiðsins, er ó- gleymanleg, hvert smáatriði er notað svo meistaralega sem frekast er unt að hugsa sér og af ótrúlega mikilli leikni, bæði að því er snertir láthragð og radd- brigði. Kunnátta leikarans og hugkvæmni er tvímælalaust meistaraleg, liátt hafin yfir það, sem kallað er gott. Og það var eftirtektarvert, hve snildarlega Reumert tókst að binda hin dönsku tilsvör sin íslenskunni. Hann greip jafnvel ekki ósjaldan til þess úrræðis, að endurtaka orð á íslenslcu, þar sem þess var þörf til þess, að halda samhenginu. Það virtist engin áhrif liafa á hann, að hann var þarna innan um ein- tóma íslenska leikendur, og þess mátti viða sjá merki, að hann gerði nieira en að kunna tilsvör leikendanna á dönsku, heldur skildi hann þau einnig á islensku. Hefir liann sannað það betur en áður hefir verið gert, að vel má takast að leika á erlendu máli í íslenskum leik- arahóp, án'þess að áhorfandinn hafi nokkur óþægindi af, eða leikurinn líði við það. Og leikendurnir höfðu gott af samvistunum við Reumert: Það var líf og fjör í þeim. Öllu meira en venja er til, hraðinn á leikn- um í betra lagi og meðferðin F. M. Kj artansson umboðssali, Beykjavik. Selur beint til kaupmanna og kaupfélaga, frá bestu útlendum verslun- arhúsum, allar tegundir af matvörum, með lægsta markaðsverði. — Sérgrein: Allskonar sykur, svo sem: Tea cubes, í heilum og hálfum kössum. Strausykur, margar tegundir. Kandís, dökkrauður, í 25 kg. kössum. Útvega einnig: Hrísgrjón, haframjöl, hveiti, þurk. ávexti, sagó o. m. fl. F. H. E,jartansson, Hafnarstræti 19. Sími 1520. fiest að auglýsa í Yísi. á flestum lilutverkunum sóma- samleg. Brynjólfur Jóhannesson og Hjörleifur Hjörleifsson léku sambýlismennina Ivlint og Ba- salt og komst sá fyrnefndi all- vel frá ldutverkinu, en Hjörleif- ur var fremur hragðdaufur og óþarflega smeðjulegur, þó ást- fanginn ætti að vera. Garðbúa- liópurinn var sæmilegur í fj'rra skiftið, en í síðasta þætti hafði einhver deyfð lagst yfir þá, Koparsmiðina þrjá léku Indriði Waage, Baldur Sveinsson og Gunar Bjarnason. Fór Ind- riði með hlutverk Madsens og tókst að bregða upp prýðilegri mynd af þessu laundrjúga og si-stamandi dauðýfli. — Og Gunnar Bjarnason var spreng- hlægilegur og liafði gerfi, sem ekki gleymist. Baldri tókst og sæmilega með Mikkel. Koparsmiðshjónin léku Frið- finnur Guðjónsson og frú Marta Kalman, og voru þau skemtileg. Söngur frúarinnar var lirein- asta gull og málæðið i góðu lagi. Riklcu dóttur þeira lék Arndís Björnsdóttir, og fór mjög lag- lega með hlutverkið að vanda og hið sama má segja um Þóru Borg, sem lélc Amalíu . Vitanlega var kveldið Reu- merts. Áhorfendur fögnuðu lionum svo vel, að aldrei mun nokkrum gesti hafa verið betur tekið á leiksviði hér í Reylcja- vík. Frá því er liann kom fyrst inn á leilcsviðið, og til þess að tjaldið féll, átti liann fullskip- aðan salinn af glöðum aðdáend- um. íslendingar þykja seinir til að láta hrífast, litið gefnir fyrir að sleppa sér, en í gær varð ann- að uppi á teningnum, því að salurinn hristist af kæti fólks- ins. íslenskum leikendum liefir stundum verið borið á brýn, af þeim sem dæmt hafa um leik og minst liafá vitað, að þeir „yfirdrifi“, sem kallað er. Eftir leik lir. Reumerts í gærkveldi, mun þeim skiljast, að slikt er ekki talin nein goðgá af þeim,- sem snjaílaslir eru og best mentir um leiklist, heldur fylli- lega leyfilegt og sjálfsagt, er sýna skal rnjög sko])legar per- sónur. Reumert var margkallaður fram og fékk að lokum ferfalt húrra og fögur blóm að sigur- launiun. Og liann var vcl að þvi kominn. N—n. Ben. G. Waage forseti í. S. í. fertugur. —o—- Foringi íþróttamanna er fer- tugur í dag. Fyrirmyndar foringi, sannur iþróttamaSur, fullur æsku- fjörs, sístarfandi að framgangi hins góSa málefnis, bjartsýnn og réttsýnn og er sjálfur eitt besta dæmi'S á hollhrif íþróttanna. íjiróttamenn þekkja best sjálfir hve geysimilvi'S starf hann hefir unniS fyrir þá og þeirra málefni. Það starf liefir verið leyst af hendi meS ósérplægni hins áhuga- sama hugsjónamanns, sem aldrei liugsar um laun, en helgar alla sína krafta og frístundir þjóS- lieilla máli. Slíkt starf vei*Sur heldur aldrei metiö til peninga, en þa@l get eg fullvissað 'forsetann um, aS í dag eru þa'S ekki hundr- uö heldur þúsundir ungra manna, sem færa honum hugheilar þakkir fyrir starf hans' á liönuni árum og telja þaS- íþróttunum mikla gæfu, aö eiga svo áhugasaman foringja. Fáir foringjar munu vinsælli en Benedikt G. Waage. Enda er þaö engin furöa, því aö hann er hinn u.’ikli friöárstillir, sem skilur manna best, að innbyröisdeilur i íþróttafélagsskapnum mundu veröa honum að fótakefli, eins og alstaöar verður þar sem þær komast aö. Allir góöir íþróttamenn og vinir taka undir meö forsetanum og segja: Sameinaöir stöndum vér, og berum eitt mesta velferöarmál þjóöar vorrar fram til sigurs. Þaö er besta afmælisgjöfin sem vér gefum honuni. E. Ó. P. Símskeyti —o-- Atlantshafsflug. Frá Old Orcliard er símað: Frakknesku flugmennirnir As- solant Lotte og Lefevre flugu af stað liéðan í gærmorgun kl. 10 (Ameríkutími) og ætluðu að fljúga hvíldarlaust til Parísar. Samtínris lagði ameríska flug- vélin „Græna eldingin“ af stað héðan til Evrópu. Flugvélinni hvolfdi og hrotnaði annar vængurinn, en flugmennina sakaði ekki. I) Bæjarfréttir Í1 Yeðrið í morgun. Reykjavík liiti 12 stig, ísa- firði 7, Akureyri 6, Seyðisfirði 9, VestmaUnaeyjum 9, Styklcis- hólmi 7, Blönduósi 6, Hólum í Hornafirði 11, Færeyjum 9, Hjaltlandi 11, Tynemouth 12, Kaupmannahöfn 15, Jan May- en 2, Angmagsalik 6, Juliane- haab 4. (Vantar skeyti frá Raufarhöfn og Grindavík). — Mestur liiti i Reykjavik í gær 16 stig, minstur 7 stig. Lægð (740 mm.) við Færeyjar, lireyf- ist norðvestur eftir. Horfur: Suðvesturland, Faxaflói,Breiða- fjörður, í dag og nótt: Norðan kaldi. Þurt veður. Vestfirðir og Norðurland í dag og nótt: Norð- austan lialdi. Viðast úrkomu- laust. Norðausturland og Aust- firðir: í dag og nótt: Allhvass norðan og norðaustan. Rigning. Suðausturland. í dag og nótt: Norðan og norðaustan átt, all- hvass austan til og sennilega rigning. ólafur ólafsson kristniboði og frú hans fará seint í .þessum mánuöi til útlanda, en hér á landi hafa þau dvalist um 14 mánaöa skeið. Er ferð ];eirra heitiö til Noregs og búast þau við að verða þar fyrst um sinn. En í september í haust er gert ráð fyrir, aö þau leggi af staö til Kína, en þar er ekki frið- vænlegt um þessar mundir og mundi mörgum þykja ófýsilegt, að leggja leiö sína þangaö. — Ólafur hefir farið um mikinn hluta landsins, síöan hann kom hingað í fyrra vor, og var um áramótin búinn aö halda um eöa yfir 100 almennar samkomur og auk þess marga smáfundi um trúmál. — Hann hefir og sýnt fjölda skuggamynda frá Kína, og með þeim hætti auk- ið þekkingu hérlandsmanna á því merkilega landi. Innan fárra daga er yæntanleg á markaðinn bók frá hans hendi. Er þaö ræðusafn, sem Kristniboðsfélagið í Reykjavík gefur út. — 'Ólafur Ólafsson er merkilegur maður fyrir margra hluta sakir, óvenjulega áhugasam- ur, gáfaöur vel, viöræðugóöur og ritfær. Hafa allmargar r.itgerðir eftir hann birst hér í blaðinu á undanförnum árum, og hafa þær yfirleitt verið vel skrifaðar, fróð- legar og skemtilegar. Dýrtíðaruppbót opinberra starfsmanna verð- ur í ór 40%, en ekki 34%, ems og greitt hefir verið fram til þessa. Er hækkunin gerð sam- kvæmt þingsályktun frá siðasta

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.