Vísir - 31.07.1929, Síða 2
V í S I R
)) INfemHM i Olseini ((
Flugnaveiðarinn AEROXON
er sá bestl, sem hegt er að fá.
Stifti I hveFjum flugnaveiðara
svo að ekki þaíf að leita að
því þega? á að festa hann upp.
Símskeyti
—o—
Khöfn, 30. júlí FB.
Ný stjórn í Frakklandi.
Frá París er símað: Briand
hefir myndað stjórn, sem er að
öllu leyti eins skipuð og Poin-
carestjómin var, að þvi undan-
teknu, að Poincare á ekki sæti
i stjórninni. Briand er livort-
tveggja í senn, forseti stjórnar-
innar og utanríkismálaráð-
herra. Hinir ráðherrarnir gegna
sömu ráðherrastörfum og áður.
•— Radikali flokkurinn hafnaði
tilboði Briands um þátttöku í
stjórninni.
Frá París er símað: Briand
hefir tilkynt, að gömlu ráðherr-
arnir sitji áfram i nýju stjórn-
inni, þar sem fráfarandi stjórn
hafi ekki fengið vantraustsyfir-
lýsingu í þinginu. Briand lét þá
ósk í ljós, að radikali flokkur-
inn tæki þátt í stjórninni og
bauð flokknum tvö ráðherra-
sæti, án sérstalcrar stjórnar-
deildar. Radikalir höfnuðu til-
boðinu af þvi þeir vildu fá þýð-
ihgarmeiri ráðherrasæti.
Stjórn Briands er ekki talin
öflug. Fyrsta hlutverk hennar
er að taka þátt í Haag-fundin-
um um Young-samþyktina og
heimsending setuliðs banda-
manna úr Rínarbygðum. Menn
búast við, að stjórnin fáitrausts-
yfirlýsingu í þinginu, einkan-
lega vegna þess að radikali-
flokkurinn styður utanríkis-
málastefnu Briands, og þar af
leiðandi nægilegt þingfylgi til
þess að taka þátt í Haag-fund-
inum. Hinsvegar er liklegt, að
til nýrrar stjórnarmyndunar
komi i haust, en þá verða ýms
innanlandsmál lögð fyrir þing-
ið.
Endurnýjun stjómmálasam-
bands milli Englands og
Rússlands.
Frá London er símað: Sendi-
herra rússnesku ráðstjórnarinn-
ar i Frakklandi er kominn hing-
að. Hóf hann samninga í gær
við Henderson um að endur-
nýja stjórnmálasamband á milli
Bretlands og Rússlands.
Utan af landi.
Vestm.eyjum, 30. júlí, FB.
Landskjálftakippir fundust hér
þ. 23. þ. m., sá fyrsti kl. 5,45 síðd.
Var allsnarpur. Ekki heyrist getið
um neinar skemdir af völdum hans.
Fyrri hluta sí'öustu viku góðir
þurkar, en lakari síðustu daga.
Síldveiði í langnet óvenju góð
sem stendur.
Heilsufar í bænum gott.
Þjóðhátíð verður haldin hér,
eins og venja er til á hverju sumri.
Að þessu sinni verður hún haldin
dagana 10. og 11. ágúst.
Frá Vistir-ísiendiapm.
—o—
Hjörtur Þórðarson.
Hjörtur C. Þórðarson, liug-
vitsmaðurinn og iðjuhöldurinn
í Chicago, hefir nýlega verið
sæmdur nafnbótinni Magister
Artium, við liáskólann í Wiscon-
sin. Mun það sjaldgæft, að mað-
ur, sem svo til enga skólament-
un hefir hlotið, er sæmdur á
þennan hátt. — Hjörtur er
kunnur fyrir uppfundningar
sínar um Vesturheim allan og
er nú talinn auðugur maður á
þarlendan mælikvarða.
Dánarfregn.
Þann 15. júni andaðist i Viði-
nesbygð í Nýja-íslandi Þor-
steinn Jónsson Mjófjörð, tæpra
79 ára að aldri. Vinsæll maður
og vel gefinn.
Þann 29. júní andaðist í Win-
nipeg Mrs. Rósa Westman,
kona S. Westmans. Hún var á
sjötta árinu yfir sextugt.
íslendingadag.
nú í sumar eða þjóðhátíðardag
ætluðu Vestur-íslendingar að
halda í ýmsum sveitum og bæj-
um í Bandaríkjum og Canada.
eins og venja er til. Þjóðhátíðir
þessar eru vanalega lialdnar 2.
ágiist, eða næsta snnnudag fyrir
eða eftir 2. ágúst, þegar þann
dag ber ekki upp á sunnudag.
Sumstaðar er þó fslendingadag-
urinn haldinn 17. júní.
I Seattle átti að hafa liátiðina
í Silver Lake skemtigarði þar i
borg þann 4. ágúst og var bú-
ist við, að fslendingar víðsvegar
að af Kyrraliafsströndinni
myndu sækja liátiðina. í Winni-
peg var dagurinn ákveðinn þann
2. ágúst, í skemtigarði þar í
borg.
Efnilegur listamaíur.
Um miðjan fyrra mánuð kom
hingað til lands frá Bandaríkj-
um ungur og efnilegur lista-
maður, sem heitir Kristján
Magnússon, ættaður frá ísafirði,
sonur Magnúsar lieitins Örn-
ólfssonar skipstjóra.
Kristján fór vestur um haf
fyrir hálfu níunda ári og liefir
siðan verið lengstum í Boston
og New York. — Áður en liann
fór frá ísafirði, hafði hann not-
ið nokkurrar tilsagnar i drátt-
list og útskurði hjá Guðmundi
Jónssyni frá Mosdal, og kom þá
þegar í ljós, að hann var mjög
listhneigður. í Boston tókst
lionum að komast í listaskóla
og stundaði þar nám af miklu
kappi og dugnaði og lauk ágætu
prófi eftir 5 ára nám. Síðan
hefir hann unnið með frægum
málurum, og hefir það starf
einnig verið honum ágætur
skóli. Undanfarið ár hefir hann
unnið með Mr. Fzra Winter,
sem er ráðunautur Bandaríkja-
stjórnar í fögrum listum (Com-
missioner of Fine Arls). Ilann
liefir oft sent myndir sínar á
sýningar og lilotið góða blaða-
dóma, eins og getið liefir verið
í Vísi fvrir nokkurum missirum.
Þegar Kristján kom heim í
fyrra mánuði, fór liann fyrst
í kymnisför til Isafjarðar, en
síðan norður til Mývatns og
málaði þar um stund. Eftir það
fór hann aftur til ísafjarðar og
liélt þar sýningu á málverkum
sínum 24. og 25. þ. m. — Nú
er liann hingað kominn og ætl-
ar austur í sveitir til þess að
mála þar, en að því búnu kemur
liann liingað aftur og ætlar þá
að lialda sýningu á málverkum
sínum áður en liann fer vestur
um liaf.
Þess þarf varla að geta, að
Krisfján fór liéðan félaus með
öllu, en hafði (auk unglinga-
fræðslu) notið nokkurrar auka-
tilsagnar í ensku o. fl. hjá cand.
Hans Einarssyni kennara á ísa-
firði, og voru það fararefni hans
út í heiminn. En góðar gáfur,
dugnaður og staðfesta þessa
unga manns hafa sigrast á fá-
tækt og örðugleiknm í fjarlægu
landi, og er Iþað vinum hans
mikið gleðiefni, að hann á nú
góðra kosta völ á listabraut
sinni.
Jarðarför
' Þorláks J. Davíðssonar fór
fram í gær. Síra Bjarni Jónsson
talaði _ í heimahúsum og f lutti lík-
ræðu í kirkjunni. — Vinir hins
Játna báru kistuna í kirkju og úr.
í kirkjunni var sungið kvæði, er
gert haföi Pétur Pálsson skraut-
ritari.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 13 st., ísfirði
'14, Akureyri 15, Seyðisfirið 10,
Vestmannaeyjum 10. Stykkishólmi
11, Blönduósi 10, Raufarhöfn 8,
Hólum í Hornafirði 9, Grindavík
14, Færeyjum 10 (engin skeyti frá
Angmagsalik og Julianehaab), Jan
Meyen 5, Hjaltlandi 11, Tyne-
month 13, Kaupmannahöfn 15 st.,
— Mestur hiti hér í gær 16 st.,
minstur 11 st., úrkoma 4,6 m.m.
— Djúp lægð vestan við Skotland
á ausljur leið. Horfur: suðvestur-
iand: 'í dag og nótt hreytileg átt,
víðast norðan gola. Skúrir í dag,
en birtir sennilega með kveldinu.
Faxaflói: í dag og nótt hæg norð-
an átt. Léttir til. Breiðafjörðtrr.
Vestfirðir, Norðurland: í dag og
nótt hæg norðaustan átt. Víðast
létt skýjað. Norðausturland, Aust-
firðir, suðausturland: í dag og
nótt hæg suðaustan og austan átt.
Skýjað loft og dálítil rigning.
Pétur Á. Jónsson
söng í gærkveldi í Gamla Bíó
við ágæta aðsókn og mikinn fögn-
uð af hálfu áheyrenda. Mun hon-
um og sjaldan hafa ttekist hetur
upp. Pétur hefir nú ákveðið, að
syngja í síðasta sinn næstkomandi
þriðjudagskveld og verður það
áreiðanlega síðasta tækifærið hér
til að hlusta á þennan mikla og
glæsilega söngvara. Þarf ekki að
efast um, að aðsóknin muni verða
mikil, þegar Pétur syngur í síðasta
sinn og kveður bæjarbúa.
Vísir kemur ekki út
næstk. föstudag, 2. ágúst, þvi
að þá er frídagur prentara.
Trúlofun
sína opinberuðu í gær ungfrú
Jóhanna Pétursdóttir, Braga-
götu 21 og Hannes Sveinsson,
Njálsgötu 32.
Til Þingvalla.
Notið okkap ágætu skemtiferðir til
Þiugvalla. Ákveðnar ferðip alla daga.
Bifreiðastöð STEINDQRS.
Sími 581 og 582.
Óðinn
kom í morgun úr eftirlits-
ferð.
Bifreiðastöð I
Iíristins og Gunnars og Bif-
reiðastöðin Bifröst buðu 15
símastúlkum austur að Grýlu
og í Þrastaskóg í fyrradag.
Goðafoss
fer í kveld norður og vestur
um land. Meðal farþega verður
herra dr. Jón bislcup Helgason.
Hann ætlar að visitera Vestur-
Isafjarðarsýslu, og er hún eina
sýslan, sem hann hefir ekki visi-
terað.
Dronning Alexandrine
fer liéðan í kveld áleiðis til
Kaupmannahafnar.
Athygli
skal vakin á því, að Vöru-
bílastöð Islands hefir einnig
fólksflutningabifreiðir í förum.
Sjá augl.
Rakarastofur bæjarins
verða lokaðar allan föstudag-
fnn 2. ágúst.
Af veiðum
komu i morgun Max Pember-
ton og Geir. Þeir munu fara
áleiðis til Englands i kveld.
Apríl
kom frá Englandi i morgun.
Skipafregnir.
Esja kom til Isafjarðar fyrir
hádegi í dag.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 2 kr. frá Gamla.
Hitt og þetta.
ísland og innflytjendalögin í
Bandaríkjunum.
Eins og kunnugt er, þá var
innflytjendalögunum í Banda-
ríkjunum breytt fyrir nokkru
og er breytingin nú gengin í
gildi (síðan 1. júlí). Breytingin
leiddi það af sér, að leyfð inn-
flytjendatala frá ýmsum lönd-
um, svo sem Þýskalandi, Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð lækk-
aði, en aftur á móti var um
hækkun að ræða fyrir Bretland.
Nú hefir Eimskipafélag íslands
fengið upplýsingar frá sendi-
herra Bandaríkjanna í Kaup-
mannahöfn, að leyfð innflytj-
endatala frá Islandi til Banda-
ríkjanna helst óbreytt, þ. e. a. s.
100. (F.B.).
Þorlákur J. Davlísson
trésmiður.
Fæddur 1. janúar 1867. Dáinn
21. júlí 1929.
Sungið við útför hans.
A<5 sofna út frá sárri þraut,
og síðast hníga’ i jarðar skaut,
það lækning er,
sem allir hér
að lokum, lúnir, fá. 1
Hve dapurt væri dauðans ský,
og dökkvinn rnikill yfir því,
er æfiraun
og lífsins laun
yrði’ aðeins sóllaus sorg!
Það ljós, sem gaf þér lán og þor,
var ljós, er máir dauðans spor: —*■
Hin fagra brá,
var hrein og há,
og sál þín glöð og góð.
Og lundin rík, og hyggjan hrein,
en hugarró á hvarmi skein.
Þín æfileið
var áður greið,
þótt síðar skygðu ský.
Þú öðlingssvip á enni barst,
ög ætíð sannur drengur varst.
Á frelsismátt
þú hugðir hátt,
og ísland var þér alt.
Er gladdist þú með glöðum hér,
var gætnin eins í fylgd með þér.
Með visku’ og dug,
og heilum hug,
þú ræktir störf þín rétt.
Og vinum þínum varstu kær,
og verður enn, — þó sértu fjær,
því minning þín,
hin milda, skín
sem stjarna’ í húmi hljóð. ,
Hér kveður þig þitt kæra sprund,
er kom til þín á heillastund,
og vann þér flest,
og var þér best,
þá mest á reyndi’ í raun,
Af bikar sorgar bergja hér
þau brjóst sem heitast unnu þér.
Þótt hrynji tár ^
um hlýjar brár, i’
ei viknar dauðans vald.
Að loknu stríði er stefnt á braut,
frá strangri kvöl og dauðans þraut.
Um sólna geim,
fór sál þín heim,
að fagna frelsi’ og dýrð. —
P. P.