Vísir - 07.08.1929, Qupperneq 2
V 1 S I R
Höfum til:
Amerískt haframjöl
í 50 kg. léreftepokum.
Hrísgrjón
í ÍIO kg, pokum.
f
Konráð R. KonráSsson
læknir.
Þegar það fréttist liingað, að
Ko'nráð læknir liefði andast í
framandi landi og sviplega 12.
júli, þótti vinum lians eldri og
yngri það ill tíðindi. Menn eru
svo gerðir, að þó ekkert sé viss-
ara en það að dauðinn hitti alla
menn með einhverjum hætti og
einhvem tima á förnum vegi,
og þó að sú reynsla sé jafngöm-
ul mannkyninu, koma dánar-
fregnir mönnum svo að segja
altaf á óvart, og minna menn
óþægilega á það, að að þeim geti
komið innan stundar. Ekki er
þetta hvað síst þegar menn
verða ekki ellidauðir. En það
var ekki þessi hugsun ein, er
greip vini Konráðs við fráfall
hans, heldur eftirsjáin eftir
góðum manni og glöðum.
Konráð var fæddur hér í
Reykjavík 17. okt. 1881 og var
af gömlu Reykvíkingakyni.
Hann var sonur Konráðs Maur-
er Ólafssonar og Ragnheiðar
Símonardóttur. Föður sinn
misti hann ungur og móðir
hans, sem lifir hann, kom hon-
um til menta, og var þó litt
efnum búin, enda varð Konráð
eins og flestir námsmenn að
vinna fyrir sér eftir föngum
meðan á náminu stóð. Árið 1900
fór Konráð í Lærðaskólann í
Reykjavik, sem svo hét þá, og
útskrifaðist þaðan 1906 með
góðri einkun. Lagði hann þá
þegar stund á læknisfræði og
var eitt ár við það nám við
Kaupmannahafnarháskóla og
lauk þar heimspekisprófi. Fór
siðan hingað heim til náms á
læknaskólanum og lauk, 1912,
prófi við háskóla íslands með
góðri 1. einkun. Fór hann þá
utan til þess að fullkomna sig
í ment sinni, og var á ýmsum
spítölum í Kaupmannaliöfn um
árstima. Þá tók hann við hér-
aðslæknisstörfum á Eyrarbakka
i sjúkdómsforföllum Ásgeirs
Iæknis Blöndals, og var síðan
settur héraðslæknir þar að kalla
til ársloka 1914. Eftir það vann
hann þar embættislaus að
læknisstörfum þangað til hann
settist að hér árið 1917, og
starfaði hann hér upp frá þvi.
1914 gekk Konráð að eiga
Sigríði dóttur Jóns prófasts
Sveinssonar i Görðum á Akra-
nesi. Þau eignuðust son, sem dó
ungur, en kjörson tóku þau sér
og lieitir liann Bjami.
Konráð heitinn var vel gerð-
ur bæði til líkama og sálar.
Hann var manna friðastur sýn-
um. Meðalmaðm- tæpur, með
tinnusvart liár. Námsmaður
var liann góður og gáfur hans
sérstaklega farsælar og vel lag-
aðar til þess að koma honum
áfram í borgaralegu lífi, enda
skorti ekkert á það meðan heils-
an entist, því að hann hafði þá
mikið að starfa, og til dauða-
dags naut hann góðs álits sem
lælcnir.
Þótt Konráð heitinn væri vel
gerður um margt var honum
þói ekkert eins vel gefið eins og
lundernið. Hann var smáfynd-
inn, síkátur og skifti aldrei
skapi. Sá, sem þetta skrifar var
með honum daglega í mörg ár
um það leyti æfinnar, sem
mönnum er hættast við að
rjúka upp — á uppvaxarárun-
um — og man aldrei eftir að
hafa séð hann reiðan. Og alveg
fram á síðustu stundu þegar
vanheilsan var komin til liélt
Konráð þessu fágæta og ágæta
skaplyndi. Því fylgdi að Konráð
eignaðist marga vini, en óvini
fáa, enda var hann drengur
góður. Margir vinir Konráðs
eru erlendir menn, og kyntist
hann þeim á því að vera fylgd-
armaður þeirra á skemtiferðum
hér á landi, en það var á náms-
árunum ein aðalvinna lians að
fylgja útlendingum hér. Er það
til marks um góðlyndi hans og
glaðlyndi að þeir.tóku flestir
trygð við hann.
Vinirnir munu minnast Kon-
ráðs meðan þeirra nýtur við.
G.
Símskeyti
Khöfn, 4. ágxist, FB.
Frá Vesturför „Zeppelins greifa“.
Frá New ÍYork borg er síma’S:
Dr. Eckener hefir sagt í viðtali,
sem birt er í blöðunum, að „Graf
Zeppelin“ hafi fengið allskonar
veður á leiðinni, en flugið hafi
gengið aö óskum í alla staði. Með-
alhraði loftskipsins var níutíu og
fjórir kílómetrar á klukkustund,
en á fluginu í fyrrahaust eitt
hundrað og ellefu. Farþegarnir
hafa Iátið í Ijós ánægju sina
yíir ferðalaginu. Fulltrúi Zeppe-
linafélagsins hefir tilkynt, að í ráöi
sé að smiða fjögur loftskip. Þau
veröa helmingi stærri og töluvert
hraöfleygari heldur en ,,Graf
Zepj>elin“. Loftskip þessi á að
nota til Atlantshafsferöa.
Stórveldafundurinn í Haag.
Frá Haag er símað: Briand,
forsætisráðherra Frakklands,
Henderson Bretlandsráðherra og
Stresemann, utanríkismálaráðherra
Þýskalands, eru hingað komnir til
þess að taka þátt í Haagfundin-
um um Youngsamþyktina. Fund-
urinn veröur settur í dag'.
Sættir komnar á með Rússum og
Kínverjum.
Frá París er símað til Ritzau-
fréttastofunnar: Skeyti frá Har-
bin herma, aö samkomulag sé
komið á milli fulltrúa kinversku
stjórnarinnar og ráðstjórnarinnar
rússnesku urn eftirfarandi atriði:
1) Hersveitir beggja aðila verða
látnar hörfa undan ákveðna fjar-
lægö frá landamærunum.
2) Opinlter ráðstefna hefjist
innan eins mánaðar til þess að
útkljá deilumálin.
3) Járnbrautarsamgöngur um
Siberíu hefjist aftur, áður en ráð-
stefnan byrjar.
Flugleiðin um Grænland
talin ófær.
Frá Stokkhólmi er símaö til
Ritzau-fréttastofunnar: Flomiann
flugkapteinn hefir sagt í viðtali
við „Nya dagligt allehanda", að
telja megi norðurflugleiðina yfir
Atlantshaf ófæra, þar sem jafn
duglegur flugmaður og Ahren-
berg neyðist til þess að hætta við
flugiö.
Karlakór Reykjavíkur.
Söngflokkar okkar hafa farið
hverja sigurförina eftir aöra utan
lands og innan" á ‘síöustu árum.
Hvarvetna hafa þeir getið sér
hinn besta oröstir og mun nú
flestum ljóst orðið, að raddsöngur
stendur á svo háu stígi hér á
landi, að hann stenst samjöfnuð
viö þaö besta á sama sviði hjá
hinum miklu söngþjóðum fyrir
handan hafið, nágrannaþjóðum
vorum.
Hér eru líka óvenjulega góð
skilyrði fyrir raddsöng; mikið
um góðar raddir og völ á ágæt-
um söngstjóram; þjóðin er söng-
vin og er sönggleðin eitt af sér-
kennum íslenska söngsins. Söng-
stjórarnir hafa unnið afreksverk.
Meðferðin á lögunum er þeirra
verk eingöngu og er hún að jafn-
aði svo góð, að hún fullnægir
ströngum kröfum listarinnar. Is-
lcnski karlakórssöngurinn hefir á
sér ótvíræðan menningarbrag og
það þrátt fyrir það, þótt meðlimir
söngflokkanna séu teknir úr svo
að segja öllum stéttum. Þetta
hygg eg, að megi þakka því, að
hér á landi er menningin ekki að-
allega bundin við hærri stétt.ir
þjóðfélagsins, eins og það er hjá
mörgum stærri þjóðum, heldur
hefir náð tökum á þjóðinni allri.
Við Reykvíkingar getum verið
hreyknir af því, að eiga tvo ágæta
karlakóra. Þjeir rnenn eru tjl,
sem halda því fram, að meiri
nauðsyn sé fyrir okkur aö leggja
rækt við sumar aðrar tegundir
tónlistarinnar en karlakórsöng,
eins og hljóðfæraleik, og vita all-
ir, að hljóðfæraflokkur er til hér
i bænum. En það munu flestir
vilja viðurkenna, að hingað til
hafa karlakórarnir verið stærstu
liðirnir í sönglífi bæjarins og enn
þá mun sú söngiþrótt eiga mest
itök i þjóðinni.
Þessar hugleiðingar era skrif-
aðar í tilefni af því, aö Ivarlakór
Reykjavílfur efnir til samsöngs i
Nýja Bió á morgun kl. 7^2-
Söngflokkurinn er nýkominn úr
söngför um Vestur- og Norður-
land, þar sem hann átti hinum
bestu viðtökum að fagna og
hjartanlegri hrifningu áheyranda,
að morgni til, er hægt að komast til
og heim að kveldi, i hinum vinsælu bifreiðum
Karlakór Reykjavíkur er emi ung-
ur, aðeins fárra ára, en þó era
hljóð söngmanna orðin svo vel
samstilt, að maður undrast yfir, að
þetta hafi getað orðið á svo stutt-
um tíma, og er flokkuriim oi'ðinn
svo góður, að hann skipar sæti
við hliðina á hinum ágæta karla-
kór K. 'F. U. M. Söngstjórinn, hr.
Sigurður Þórðarson, hefir lagt
mikla áherslu á veikan söng, „fal-
settsöng", og hefir sumum fundist
hann gera það um of. /lEn því
má ekki gleyrna, að með „falsett-
söngnum" stækkar það svið, sem
söngmönnunum er gefið, til þess
að ná meári áhrifum i listflutn-
ingi. Ekki svo að skilja, að flokk-
urinn syngi ekki sterk lög. Heyrt
hefi eg flokkinn syngja sterk lög,
eins og t. d. Ólaf Tryggvason,
með afbrigðum vel.
Sjálfsagt setja söngelskir menn
sig ekki úr færi að hlusta á þenn-
an ágæta söngflokk, sem aldrei
hefir verið l>etri en núna.
Söngvinur.
Nýjnngar!
Grainmofo'n-
plötnr,
NÓTUR.
Ekkeit sumarleyfl
án
. ferðafúns.
Allar tegundli*,
Verð frá 55 kr.
Hljóðfærahúsið.
Jarðarför
Konráðs læknis Konráðssonar
fer fram á morgun og hefst kl 1.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 8 st„ ísafirði 7,
Akuréyri 8, Seyðisfirði 9, Vest-
mannaeyjum 7, Stykkishólmi 8,
Blönduósi 5. Hólum í Hornafirði
10, Grindavik 8, (engin skeyti frá
Raufarhöfn, Angmagsalik, Tyne-
mouth, Kaupmannahöfn og Juli-
anehaab), Færeyjum 9, Jan Mayen
4, Hjaltlandi 1-1 st. — Mestur hiti
hér í gær 12 st„ minstur 5 st. —
Alldjúp lægð norðaustur af Fær-
eyjum á hreyfingu austur eftir.
Háþrýstisvæði yfir Grænlandshafi.
Töluverður hafís 11 sjómílur norð-
austur af Dröngum á Ströndum.
— H o r f u r: Suðvesturland: í
dag allhvass norðan. Léttskýjað. í
nótt og á morgun sennilega breyti-
leg átt og sumstaðar skúrir. Faxa-
flói, Breiðafjörður og Vestfirðir:
í dag og nótt norðan átt, sumstað-
ar allhvasst. Léttskýjað. Norður-
land : í dag og nótt norðan kaldi.
Ský'jað loft og dálitil rigning i út-
sveitum. Norðurausturland, Aust-
firðir: í dag og nótt allhvass
norðan, þykkviðri og rigning öðra
hverju. Suðausturland: í dag og
nótt norðan átt, sumstaðar allhvass.
Léttskýjað.
Max Pemberton ”1
seldi afla sinn í Englandi í gær
fyrir 685 sterlingspund.
Pétur Jónsson
hélt kveðjuhljómleika í Gamla
Bíó í gærkveldi við ágæta aðsókn
og var tekið forkunnar vel og íært
mikið af blómvmi.
Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri er nýkominn
heini af fundi búvisindamanna í
Helsingfors. Hann ferðaðist viða
um Finnland og Noreg eftir fund-
inn og fór síðan til Færeyja.
Ungbarnavernd Líknar
er lokuð til 23. ágúst.
Þvottadagarnir
hvfldardagar
Látið DOLLAR
vinna fyrir yður
J
Fæst víðsvegar.
1 heildsðla hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI,
Hafnarstrœti 22.
Sími 175.