Vísir - 23.09.1929, Side 2

Vísir - 23.09.1929, Side 2
V 1 S I R Nýkomið: flveiti Canadian Maid. Rúgmjöl, flavnemöllens. Háifsigtimjöi, flavnemöliens. Símskeyti / Kaupmh. FB, 22. sept Glímttfaramir. Frá Berlín er símaiS: Glímu- mennirnir hafa sýnt íslensika glímu í Liil)eck, Rostock, Prerov, Stettin og Danzig og nú í Berlín viö ágætan oröstír. Blööin hafa stórhrósað sýningunum og fara að" dáunaroröuni um leiknina og sa.mtökin í leikfiminni. Öll blöðin hylla glímuna sem framúrskarandi íþrótt. Flokkurinn héfir fengið af- bragðs viðtökur allsstaðar. Á sýn- ingunni í Berlín var fólk stórhrif- ið og ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna. Blöðin flytja myndir af glímumiönnunum og frá sýningunum. Kvikmyndir hafa verið teknar af glímunni og kvik- myndirnar sendar út um alt Þýska- land og víðar til sýningar. 3 r (Árni Óla.) Frá Genf. Frá Genf er símað: Þingnefnd Þjóðbandalagsins hefir rætt frakk- neskbreska tillögu, þess efnis, að verðtollar verði ekki auknir næstu tvö árin. Er ætlast til, að þannig lagað tollahlé verði byrjun almenns viðskiftafriðar. Nefndin hefjir samþykt að biðja allar ríkisstjórn- ir að tilkynna hvort þær vilji taka þátt í ráðstefnu um framanniefnt tollahlé. Ráðsfundur Þjóðbandalagsins, sem haldinn .verður i janúar, tekur, svörin til athugunar og ákvarðar hvort og hvenær tollamálafundur- inn verður saman kallaður. Rússar í flugferð. Frá Moskwa er síinað : Flugvél- in „Sovietland“, sem er á leiðinni til Ameríku frá Moskwa yfir Síberíu, tíl þess að rannsaka skil- yrðin fyrir reglubundnum ílug- samgöngum á þessari leið, flaug í fvrrinótt yfir Beringssundið, írá Petrapavlosk á Kamsjatka til Aleuteyjunnar, Altu, á sjö klukku- stundum. Vegalengdin er tólf hundruð kílómetrar. < Löggæslan í Reykjavík. IV. Viðast livar crlendis mun það tiðkast, að lialdið sé ttppi lögregluskólum. — Sumstaðar kosta rikin og bæirnir skóla þessa í sameiningu. Námsgreinir eru einkum þessar: 1. Þjóðfélagsfræði. 2. Lög og reglur, sem lögreglan á sérstaklega að gæta (refsilög- gjöf, heilbrigðislöggjöf, iðnað- arlöggjöf, atvinnulöggjöf o. s. frv.). 3. Frumatriði í rannsókn lögreglumála og sakamála. 4. Eínföldustu atriði refsiréttar- fars. 5. Tungumál. 6. Likams- æfingar og hnefaleikur. 7. Að gera við meiðsli og kunna al- gengar lífgunartilraunir. Allar eru námsgreinir þessar meira og minna nauðsynlegar. Lögregluþjónar eru settir til þess, að lialda uppi aga og reglu í þjóðfélaginu, og þeir eiga vit- anlega ekki að gera það sem „dautt verkfæri“, lieldur af þekkingu og skilningi. M er það og alveg nauðsynlegt, að lög- regluþjónar geti brugðið fyrir sig erlendu tungumáli. Eins og menn vita, hefir lög- reglan hér í bænum engrar til- sagnar notið í lögum þeim og reglum, sem hún hefir verið sett til að gæta. Þarf því engan að undra, þó að lienni hafi ekki farið allir lilutir vel úr hendi. Þá mun og sumum þykja það aðfinsluvert, að ekki skuli hafa verið lagt fram fé til þess, að kenna lögreglunni leikfimi eða einföldustu líkamsæfingar. Er því tæplega hægt að búast við, að framkoma lögregluþjón- anna liafi jafnan verið svo glæsileg, sem æskilegt hefði verið. Þess verður ekki krafist með neinni sanngirni, að lögreglu- þjónarnir afii sér af sjálfsdáð- um þeirrar kunnáttu, sem þeim er nauðsynleg i starfinu. Ríkið eða bærinn eða báðir aðiljar í sameiningu, mega því ekki láta undir höfuð leggjast, að koma á fót námskeiðum fyr- ir lögreglumenn eða lögreglu- mannaefni. Telur lögreglustjóri að hæfilegt mundi að hafa þriggja mánaða námskeið við og við. — Meðan það er ekki gert, segir hann að íslensk lög- regla hljóti að verða miklu miður ment, en lögregla annara mennin garlanda. Launakjör íslenskra lögreglu- þjóna hafa löngum verið bág- borin, og eru þeir að visu eng- in undantekning i því efni. — Laun opinberra starfsmanna liér á landi hafa yfirleitt verið svo lág, að furðu gegnir, að nokkur sæmilegur maður skuli liafa unað þeim kjörum ári lengur. —- Byrjunarlaun lög- regluþjóna eru nú 2000 kr. á ári og fara hækkandi upp í 3000 kr. — Lögregluþjónar eiga mjög örðugt með að afla sér aukatekna, enda samrýmist það illa starfi þeirra, að vera á þönum eftir vinnn-snöpum hingað og þangað. „Hin lélegu launakjör liafa valdið því“, segir i tillögum lög- reglustjóra, „að lögreglan hefir til þess að geta lifað, orðið að leita sér aukavinnu á kostnað löggæslunnar. Þetta er enn einn þátturinn í þvi, að draga lög- regluna niður. Það þarf að bæta launakjör lögregluþjónanna. Það er betra að hafa lögreglu- þjónana heldur færri, sæmilega launaða og sjálfstæða, heldur en marga illa launaða, ósjálfstæða og ldaðna aukastörfum.“ Nokkur orð til upplfsingar Biskupstitill Marteins Meulen- berg hefir vakiS óánægju hér á landi, eftir því sem stóð í Morgun- bla'ðinu fyrra sunnudag. Bisk- upinn hefir víst ekki vænst þess, að þaS mundi móðga íslendinga svo mjög, sem raun er á oröin, að hann yrði, aö nafni til, Hólabisk- up, eða að þaö á nokkurn hátt gæti óvirt minningu hins siðasta kaþólska biskups, Jóns Arasonar. í tilefni af biskupsvígslunni hafa í nokkrum tímaritum og blöðum birst miður vingjarnlegar greinar í garð kaþólsku kirkjunnar. Menn virðast gleyma iþví, að lútherskan er síst íslenskari en kaþólskan. Lúther var þýskur kaþólskur munkur, sem þóttist hafa fengið frá Guði köllun til þess, að gjöra upprersn gegn kirkjunni og prédika nýja trúar- kenningu. Hann var langt frá því að vera þfúður máður. En mælskur var hann og siðfræði hans líkaöi áheyrendunum vel. Þegar Kristján III. Danakon- ungur ætlaði meö ofbeldi að lcoma Lútherstrúnni á hér á Is- landi, mætti hann hinni mestu mótspyrnu. Enda sendi hann hing- aö tvö herskip til þess að kúga ís-* lendinga undir hinn nýja sið. Menn þekkja afdrif ögmundar Pálsson- ar og.Jóns Arasonar, liinna síðustu kaþólsku biskupa. Eftir líflát Jóns Arasonar tók konungur til stn allar kirkju- og klaustraeign- ir á landinu, en tekjurnar af þeim gengu í hans sjóð, enda var hann yfirmaður þjóðkirkjunnar og færðist konungsvaldið þá mjög í attkana, eins og nienn vita. Aft- ur á móti getur víst enginn neitað því, með nokkrum rökum, að hin kaþólska kirkja vaf miklum mun þjóðlegri og alla tíð þrándur í götu konungsvaldsins. Mjög var hin svo nefnda „siðabót!!“ íslending- um óþokkuð í fyrstu og hélst það býsna lengi. Menn hötuðu hina nýjtt kenning, sem þeim var vald- boðin. Mönnum var þröngvað til að taka hina nýju trú. Með þvi að dreifa út rógburði um kirkjuna, páfann, klaustrin, aflát og guðs- móðurdýrkun, tókst smámsaman að útrýma hinni kaþóku trú, sem^ kafði verið lögtekin á Þingvöllum árið 1000 og verið hafði trú ís- lendinga í rúnilega fimm jaldir. Lútherskan hefir sannarlega ekki verið blessun fyrir landið. Hún er það heldur ekki á vorum dögum. í þjóðkirkjunni vex rugl og sund- urlyndi út af ýmsum viðurkendum trúarsannindum. Ef þannig held- ur áfram, verður að siðustu ekki mikið eftir af kristnum trúarlær- dómum. Er það t. d. ekki furðu- legt, að til séu innan þjóðkirkjunn- ar jafnvel prestar, sem þora, eins og Gyðingar og Múhameðstrúar- menn, að neita guðdómi Krists? Hér á íslandi, eins og víðar, virðast menn aðeins hafa hom í síðu kaþólsku kirkjunnar, en aft- ur á móti amast enginn við aðvent- istum, andatrú, guðspeki eða öðr- urn nýungum; en af hvaða ástæðu, er óskiljanlegt í jafn trúfrjálsu landi. Strangan dóm eiga þeir í vænd- um, sem ofsækja eða fyrirlíta kirkjuna. („Sá sem heyrir yður, heyrir mig; sá sem fyrirlítur yður, fyrirlítur mig“), —- einkum þeir, scm neita guðdómi Krists — („hver sem afneitar mér fyrir mönnum, honum mun eg afneita fyrir Föður mínum á himnum“). En vonandi hafa þeir sér það til A.B. B. A. Hjorth & Go. Stoekboim. UmboSsmeim; Þórðar Sveiusson & Go. Bæjarakstur ©r ánœjulegafltur ógr ódýfastur ef ekið ©r í bif?eiðum STEINDÓHS. 'afsökunar, að þeir vita ekki, hvað jveir gjöra. G. Boots. Ath. „Visi“ er ekki ant um viðgang kaþólskrar trúar hér á landi, og fyrir ])ví sér hann ekki ástæðu til að neita um rjrm fyrir ofanskráða grein. — En það viröist liggja nokkurn veginn í augum uppi, að slikar ritgerðir sem þessi sé ekki til j)ess fallnar, að aitka samúð með kaj)ólsku trúboði meðal ís- lendinga. Ritstj. Dánarfregn. 20. þ. m. andaðist hér í bæn- um Ólafur A. Jóhannsson, síma- lagningamaður, Hverfisgötu 64. — Hann var ættaður úr Húna- vatnssýslu, sonur Jóhanns Sig- urðssonar frá Sæunnarstöðum í Hallárdal. Eggert Stefánsson söng í gær íslenska söngva í Gamla Bíó, fyrir húsfylli. Lög- in voru gömul og ný, eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Sigvalda Kaldalóns, Björgvin Guðmundsson, Þórarin Jóns- son og Markús Kristjánsson. Hið snjalla lag Markúsar við „Bikarinn“ hefir orðið hér mjög vinsælt í meðferð Eggerts og í gær söng hann tvö önnur ný lög eftir Marktis, sem áheyrend- um gast einnig vel að. Eggert söng íslensku lögin prýðilega, svo að hann hefir'sjaldan betur sungið. Viðtökur áheyrenda má nokkuð marka af þvi, að hann DRY KHHsH Er besta tannpastað [Fæst alstaðar. varð að endurtaka 6 af 12 lög- um söngskrárinnar og syngja 3 aukalög, þar af tvö erlend eftir Beethoven og Verdi og var þeim einnig ágætlega tekið. Það mun vera í ráði, vegna hinnar miklu aðsóknar í gærdag, að söng- skemtun þessi verði endurtek- in innan skamms og inngangs- eyrir þá hafður lægri en venja er hér. Veðrið í morgun. Hili í Reykjavík 4 st„ Isa- firði 2, Akureyri 5, Seyðisfirði 7, Vestmannaeyjum 5, Stykkis- hólmi 5, Blönduósi 4, Raufar- höfn 5, Hólum í Hornafirði 6 (engin skeyti frá Grindavík og Angmagsalik), Færeyjum 9, Julianehaab 1, Jan Mayen 0, Hjaltlandi 12, Tynemouth 13, Kaupmannahöfn 10 st. - Mestur hiti hér í gær 9 st., minstur 3 st. Urkoma 2,2 mm. — Lægð (um 735 mm.) um 300 km. suður af Reykjanesi, hreyfist hratt norð- austur eftir. Horfur: Suðvestur- land; Stormfregn. Hvass austan og rigning í dag. Gengur senni- lega í norður með kveldinu. Faxaflói, Breiðafjörður, Vest- firðir: I dag allhvass austan og norðaustan. Rigning. 1 nótt sennilega hvass norðan. Norður- land, norðausturland, Austfirð- ir: í dag vaxandi austan átt. Rigning. í nótt allhvass og hvass norðaustan, sennilega bleytu- hríð. Suðausturland: Storm- fregn. Austan livassviðri og rigning í dag. En sennilega norðan átt með nóttunni Innbrot. A siðastliðnum vetri var tví- vegis brotist inn á skrifstofu landsmálafélagsins „Vörður“. Þjófurinn eða þjófarnir stungu upp skrifborð og skápa og stálu meðal annars 50 krónum i pen- ingum og einhverju af flokks- skjölum. Lögreglan hefir haft málið til rannsóknar. Þjófurinn mun enn ófundinn. Ungfrú Gagga Lund fer utan með Drotningunni á miðvikudag. Kveður hún Reyk- vikinga með hljómleikum ann- að kveld í Nýja Bió kl. Sigurður Kristjánsson bóksali er 75 ára í dag.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.