Vísir - 04.10.1929, Síða 2

Vísir - 04.10.1929, Síða 2
V I S I R Vetrarfrakkar failegir og vandaðir nýkomnir. Manchester. Sveitabændur I Verslun undirritaðs er nú svo vel birg af allskonar varningi, að aldrei liefir í annan tíma verið meir. ---:: MIKIÐ ÚRVAL. — LÁGT VERÐ. ::----- Hér verður aðeins fátt eitt greint af mörgu: Búsáhöld, Bygg- ingarvörur og Smíðatól — feikna útval, Steinolíulampar og alt þ. t. h. 25% undir verði annara, hvít Skilvinduolía á kr. 1,50 pr. ltr., Nautabönd 1,25, galv. Bandajárn, Borðbúnaður af öllu tæi, þ. á. m. hnífar á 55 au., Taurullur — Tauvindur og Mjólk- urbrúsarnir orðlögðu 20% undir verði annara. Hárklippur, af- bragðs tegund á 4,00, Rakvélar 1,50 og alt annað þessu likt. Hin mikla vaxtahækkun bankanna snertir ekkert vöruverð vort, þar sem verslunin vinnur einvörðungu með eigin fé. — Vöruinnkaup manna hljóta þar af leiðandi í bráð og lengd að reynast happasælust í Versl. B. H. BJARNASON. Símskeyti Khöfn, 3. okt. FB. Stresemann látinn. Frá Berlín er síma'5: Strese- mann utanr,íkismálaráöherra and- a'Sist í morgrm. Banamein hans var hjartabilun. Frá Berlín er símaö: Einn stjórnarflokkanna, nefnilega Stre- semannsþjóöflokkurinn, er and- vigur tillögum hinna stjórnar- flokkanna viövíkjandi atvinnu- leysislögunum. Miiller ríkiskansl- ari hefir hótað aö segja af sér, ef þjóöflokkurinn greiöi atkvæði á móti lögunum. Stresemann var ósammála þjóðflokknum í þessu máli og ætlaöi aö gera tilraun til þess að koma í veg fyrir, að af stjórnarfalli yrði. Stresemann hef- ir legið í kvefveiki að undanförnu, er> fór á fætur í gær, til þess að reyna að koma í veg fyrir mót- spymu ' þjóðflökksins gegn at- vinnuleysislögunum, en seint i gærkveldi fékk hann aðkenningu af slagi og lamaðist þá líkami hans hægra megin. í morgun fékk hann slag aftur og reið þaö honum að fullu. Stjómarskifti og nýjar kosningar í Egiftalandi. Frá London er simað: Stjórnin í Egiptalandi hefir læðist lausnar og er nú búist við, að þingræðis- stjórn komi í stað einræðisstjórn- arinnar. Líklega verður bráða- lrirgðarstjórn mynduð til }>ess að gangast fyrir nýjum kosningum. Aðalmál kosninganna verður bresk-egipski samningurinn. Búast menn helst við, að þjóðernissinnar komist til valda að kosningum af- stöðnum. t Sköhlífar í afar stóru úrvali. Karla frá 4,75 Kvenna frá 5,75 Barna frá 3,00 Kventáhlífar á 1,50 Hvannbergsbræður. Khöfn, 4. okt., F.B. Stjórnarskiftum afstýrt í Þýska- landi. Frá Berlín er símað: Ríkis- ]>ingið liefir samþykt atvinnu- leysislögin, og verður þannig komist hjá stjórnarfalli. Bráðabirgðastjóm í Egiftaiandi. Frá Cairo er símað; Fyrver- andi stjórnarforseti Adly Yeg- hen pasha, sem hlyntur er starf- semi wafd-flokksins, hefir tekist á hendur að mynda stjórn, sem menn búast við að verði við völd þangað til þingkosningar liafa farið fram. KonungssambaDdið og blekkingar stjórnarliða. —o--- - I. Inngangur. Siðastliðið vor hófust blaðadeil- ur með þeim Jokobi Möller og Idaraldi Guðmundssyni. ritstjóra Alþýðublaðs'ins, uni kouungs-sam- band íslands og Danmerkur. — Deilur ]>essar féllu niður, er Har- aldur fór úr bænum, til þess að taka þátt i fundahöldum úti á k.udi. Um nokkurt skeið var svo hljótt um málið í blöðunum. En er svo var um líðið, að líklegt mætti lykja, að -deilur þessar væri gleymdar þorra manna, tók Har- aldur til máls á nýjan leik. Hann hætti sér þó ekki langt út á þann hála ís, er hann hafði verið stadd- ur á, þá er deilurnar við J. M. féllu niður. Hann grcip til þess hand- hæga ráðs, að fullyrða, að Sjálf- stæðismenn mundu þess albúnir, að ,,halda í“ konungssambandið við Danmörku, eftir að sambandslög- in væri úr gildi fallin. Haraldur Guðmundsson var ekki einn um ]>essar fullyrðingar, þó að undarlegtpnegi virðast. — Ritstjóri „Tímarís" gerðist þegar í stað sporgöngumaður hans i þessu máli og hóf sama sönginn. Hann endurtók staðhæfingar Flaralds og bar þær á borð fyrir lesendur ..Timans“. Sannleikurinn er sá, að Sjálf- stæ'ðismenn hafa hvorki lýst yfir því, né gefið í skyn með einu orði, að þeir vilji hafa konungssam- band við Danmörku eftir 1943. — En þeir hafa sagt, að konungs- sambandið félli ekki niður með sambandssáttmálanum, og ena- fremur, að það gæti orðið hættu- legt, að rugla þessum tveimur málum saman. Með því að skilningur stjórnar- liða á þessum máluin virðist ærið þokukendur, ef ekki er um vísvit- andi blekkingar að ræða af þeirra hálfiú, þykir rétt að skýra hér með fáum orðum frá áliti fræðimanna á konungssambandinu. — II. Konungssambandið fyrir 1918. íslendingar hafa jafnan litið svo á, sem konmigssamband íslands og Danmerkur væri til orðið af hend- ingu, en ekki méð samningi eða samkvæmt ósk landsmanna. Og erlendir þjóðréttarfræðingar, svo sem þeir Franz von Liszt, Niko- laus Gjelsvik og Ragnar Lund- borg, hafa algerlega fallist á þessa skoðuti íslendinga. — Knud Berlin játar, að íslendingar hafi ekki samið um konungssambandið, en vill ekki fallast á fyrnefnda skoðun að öðru leyti. En álit hans skiftir engu máli í þessu sambandi, sakir þess, að hann telur, að grundvöllur konungssambandsins hafi hrunið árið 1918, þegar ís- land varö sjálfstætt riki. Hann fullyrðir, að semja hefði þurft af nýju um konungssambandið 1918, til þess aö það stæði áfram. En samband, sem orðið ter til af hendingu, en ekki „umsamið eða viljað“, fellur niður, ef annar hvor aðili gerir ráðstafanir í þá átt. íslendingar geta því sagt upp konungssambandinu, þegar sam- bandslögin eru fallin úr gildi, ef þau hafa ekki gert neina langvar- andi breytingu á því. Skýpsla um „Hinn almenna Mentaskóla" skólaárið 1928—1929 er nýlega komin út. í byrjun skólaársins voru nemendur 240 alls (126 i lær- dómsdeild og 114 í gagnfræða- deild). Á föstu kennaraliði skól- ans varð sú breyting, að Johannes yfirkennari Sigfússon lét af kenslustörfum. Iiafði hann verið ketmari við skólann því uær aldar- fjórðung. Sjóðir skólans, undir umsjón rektors, eru þessir: Bræðrasjóður kr. 48712,14; Legat dr. Jóns Þorkelssonar rektors kr. 1377,68; Minningarsjóður 25 ára stúdenta frá Reykavíkurskóla kr. 6988,02; Legat dr. Jos Cal. Poes- tions kr. 247,68; Gullpennasjóður kr. 5539,15; Verðlaunþsjóður P. O. Christensen lyfsala og konu hans kr. 3600,96. „Nokkrar ný- ungar“ nefnist einn þáttur skóla- skýrslunnar og er þar m. a. sagt frá breytingum þeini og endttr- bótum, sem gerðar hafa verið á skólahúsinu og kensluáhöldum skólans siðustu misserin. — Þá er og minst á Hornafjarðarförina í vor, er stjórnin veitti nemöndutn 5. bekkjar ókeypis far þangaðaust- ur á öðru strandvarnarskipi ríkis- irís. Mun sú för hafa veriö bæði fróðleg og skemtileg. „En frá sjónarntiði skólans mundi annar tími hefur fallinn til slíks ferða- lags en júnímánuður, er prófannir (gagnfræðapróf og stúdentspróf) eru hvað mestar“, segir í skýrsl- ttnni. — Þá er það og talið meðal nýunga, að rektor hafði fyrir skömmu !borist bréf frá kenslu- málaráðuneytmu, þar sem fyrir- skipað er, að stærðfræðikensla sktfli falla niðjir næsta vetur í máladeild skólaus, en í stað hennar skuli kend bókfærsla „og eftir þennan vetur aukin franska, sem svarar stærðfræðitímum í 5. og 6. bekk“. Málverkasýniug. —o— Hér i borginni er útlendur mað- itr, sem heldur málverkasýningu, málarinn Helge Zandén frá Sví- þjóð. Hann hefir ferðast til Norð- urlands í sumar, en lengst af búið á Þingvöllum, til að ransaka list- gildi náttúrunnar þar. Er eftirtekt- arvert að sjá, hvemig hann skilur þetta verkefni sitt. Með mörgtmi fallegum teikningum af kletta- landslaginu þar, sýnir hann okkur snildarlega vinnusemi og undir- 6ygging til frjálsrar sköpunar, á mismunandi stórum flötum, með formi og birtu. í lit er hr. Zandén sannsöglismaður, sem bræðir lit- ina frjálslega á léreftin, enda þaul- kunnugur í „komposition" og mis- munandi efnisþyngd landslagsins. Reykvíkingar myndu auka skiln- ing á íslenskri málaralist með að kynna sér þessa fínu sýningu. Jóh. S. Kjarval. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 0 st., ísafirði 1, Akureyri 2, Seyðisfirði 1, Vestmannaeyjum 3, Stykkis- hólmi 1, Raufarliöfn 0, Hólum í Hornafirði 4, Grindavík 4, Færeyjum 3, Julianehaab -4-1, Angmagsalik -4-6, Jan Mayen -4- 3, Hjaltlandi 7, Tynemouth 7 (engin skeyti frá Blönduósí og Kaupmannahöfn). — Mestur hiti hér í gær 5 st., ininstur -4-1 st. Úrkoma 13.7 mm. — Víð- áttumikil og grunn lægð fýrir suðvestan Island, á mjög hægri hreyfingu norðaustur eftir. — Horfur: Suðvesturland, Faxa- flói, Breiðafjörður, Vestfirðlr: 1 dag og nótt sunnan og suð- austan kaldi. Skýjað loft og sumstaðar dálitil snjóék hjorð- urland, norðausturland, Aust- firðir I dag og nótt sunnan og suðaustan gola. Úrkomulaust að mestu. Suðausturkmd: 1 dag og nótt sunnan kaldi. Skúrir eða krapaél. Stúdentafélag Reykjavíkur hélt fund í gærkveldi i íþrótta- húsi K R.. til þess að mótmæla setningu Pálma Hannessonar i rektorsembættið. Thor Thors tók fyrstur til máls og var búist við snörpum umræðum. En svo undarlega vildi til, að þær fór- ust fyrir með öllu, þrátt fyrir mjög ítrekaðar áskoranir af hálfu fundarstjóra og fleiri. En samþykt var þessi tillaga með öllum ]>orra greiddra at- kvæða: „Stúdentafélag Reykjavíkur mótmælir setningu Pálma Hannessonar í rektorsembætti Mentaskólans, og telur að með henni hafi verið brotnar regl- ur þær, er gilt hafa og gilda eiga um embættaveitingar.“ Eggert Stefánsson. Nokkrar fleiri myndir á list- gildi hans, eftir tvær seinni söng- skemtanirnar, sem vegna anna ckki gátu birst fyr en nú, en les- endur.eru beðnir vdvirðingar á. Hið óþekta og tvíræða við hinn stóra persónuleik söngvarans hér hefir sett nýja liti á ókunnugleik- ann og talið fram spegilmyndir náttúrunnar í margbreyttum tón- um, sem fylla hugann minningum um mál, sem er í ræktun, um þjóð, sem veitir sjálfri sér athygli. Fa/Ies }t y* « rt É.k K.&Á # ff** M kli JJaialduijflinateMi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.