Vísir - 04.10.1929, Síða 3
V 1 S I R
Sjálfshrifning Eggerts í „Svana-
söngur á heiöi“ náCi til áheyrencl-
anna rae5 skærara fjallabergmáli
og sólskinsstunri, en nokkru sinni
fyr. Yncli hans yfir ab fága og
skreyta það lag, sannar að gleíSin
er Iistinni ekki óvi&koinandi. í
Jaginu „Nótt" var jafnyægis-
íamning, snildin og nieistaraskap-
urinn laus viS fjarrænt mislyndi
TÓskyldra skapbrigSa. Söngur hr.
Eggerts Stefánssonar er líka bein-
línis erfiSisvinna á stundum — svo
•mikið aSstreymi af krafti sækir aS
aöngformum hans, ab þrek og
•sniHi haus hafa nóg aö gjöra.
Aödáun söngvarans fyrir nátt-
úru, uppáhaldsljóð söngskrárinnar,
hefir náð fastari tökum á skap-
muli blæbrigðum, en nokkru smm
íyr.
Þær auðsuppsprettur af list, sem
.þessi söngvari okkar ræður yfir,
ær samfélagsatriði, sem heyrir til
nýjustu og merkilegustu upp-
götvunum.
Jóh. S. Kjarval.
JÞorsteinn Þorsteinsson
skipstjóri í Þórshamri er sex-
tugur í dag. Hann hefir verið mikill
íithafnamaður og hvatamaður að
stofnun margra nytsamra fyrir-
tækja og félaga, nú síðast Slysa-
•■farnafélagsins.
Yísir
er sex síður í dag.
Hjúskapur.
iSíðastliðinn laugardag voru
gefin saman í lijónaband af sira
Bjarna Jónssyni ungfrú. Guð-
björg Kristinsdóttir frá Patreks-
firði og Guðmundur Gíslason,
ajómaður á Skallagrími. Heim-
ili þeirra er á Laugaveg 142.
Jíjúskapur.
28. f. m. voru gefin saman í
hjónaband af síra Bjarna Jóns-
syni ungfrú Sveinbjörg Sveins-
dóttir og Karl Ottesen. Heimili
þeirra er á Lindargötu 7 B.
jErlingur Pálsson
yfirlögregluþjónn er fyrir
-nokkuru kominn af sjúkrahúsi, en
•ekkí farinn að gegna störfum sín-
•um. . | y ft
Frönskukensla
Alliance fraitcaise er byrjuð.
'Fáeinir nemendur geta enn komist
að og eiga þeir að segja til sín í
„Landstjörnunni", helst sem allra
íyrst.
^Magni"
fer til Borgarness í fyrramálið
kl. 7/ri.
lyra
fór héðan laust eftir miðnætti í
•nótt.
Skallagrímur
kom af veiðum í morgun.
Suðurland
kom frá Borgarnesi í gær.
Goðafoss
fer í kveld vestur og norður um
land til Akureyrar, en snýr þar
við. •;
Snjó festi
fyrsta sinn á haustinu hér í bæn-
ttm og nágrenninu síðdegis í gær.
Austanfjalls mun háfa verið all-
rnikil snjókoma. Bifreið, sem var
á austurleið í gær, varð að snúa
aftur skamt fyrir ofan Miðdal,
vegna dimmviðris og snjókomú.
Kristján Kristjánsson
söngvari frá Seyðisfirði heldur
hljómleika annað kvelcl kl. 7þ$ '
Gamla Bíó með aðstoð Árna Krist-
jánssonar.
Í.R.
heldur dansleik í Iðnó annað
kveld. Sjá augl.
Kaustmarkaður K. F. U. M.
hófst í dag kl. 3 og stendur til
sunnudagskvelds. Þar fást margar
gó.ðár vörur fyrir sanngjarnt verð.
KI. 3 á sunnudag hefst hlutavelta
og verður þar fjöldi ágætra muna.
-- Skemtanir verða öll kveldin í
stóra salnum í húsi félagsins.
Fara þar fram ræðuhöld, sÖngur
og h-Ljóðfærasláttur. Veitingar
veröa alla markáðsdagana á mið-
hæð hássins, og fæst þar kaffi,
gosdrykkir o. s. frv. — Gjöfum á
haustniarkíaöinn og hlutaveltuna
er veitt viðtaka til hádegis á morg-
un. Smáar gjafir eru þakksamlega
þegnar, jafnt sem hinar stærri.
Glímufélagið Ármann.
Stúlkur ,þær, sem ætia sér að
stunda leikfimi í vetur hjá félag-
inu, snúi sér til ungfrú Ingibjarg-
ar Stefánsdóttur í Múllerskólanum,
kl. 5—7 síðdegis.
Næturvörður L. R.
Athygli skal vakin á skýrslu í
aukablaði „Vísis“ í dag um nætur-
vörð Læknafélags Reykjavíkur
þrjá síðustu mánuði þ. á. — Er
haganlegast fyrir fólk að klippa
töfluna úr blaðinu og geyma hana,
þvi að oft getur verið þægilegt að
hafa hana við höndina, er vitja
þarf læknis að næturlagi.
Lestrarfélag kvenna.
Útlánsstofan verður opin fram-
vegis á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 4—6, og
ennfremur á miðvikudagskvöldum
kl. 8—9 síðdegis.
Fyrirspurn.
Mig minnir ekki betur, en aö
bannað hafi veriö að aka bifreið-
um um ákveðnar götur hér í bæn-
um, þær er þröngar eru umferðar
og gangstétta lausar. Fyrst í stað
vnun þessu banni hafa verið hlýtt
nokkurn veginn, en hin síðari ár er
þaö að engu haft. Háfermdar vöru-
bifreiðir þeysast um þessa rangala
á fleygiferð og verður hver og einn
að forða sér í dauðans ofboð undan
þessum vörgum. Hafa börn og
gamalmenni oft verið hætt komin
í þeirri viðureign. Reykjavík hef-
ir nú eignast ungan og ötulan lög-
reglustjóra, og vænta margir þess,
að hann láti til sín taka um það,
er aflaga fer í götuumferðinni hér.
Deyfðin virðist hafa verið full-
mikil undanfarin ár og eítirlits-
leysiö, og væri ví'st ekki vanþörf
á, að tekið yröi t' tacmianna all-
skörulega. Eg vildi nú leyfa mér
að spyrjast fyrir úm það, hvort
bifreiðir megi að ósekju fara um
tjarnarbrúna og þrengstu göturn-
ar í bænum. Eg gæti tilnefnt 'göt-
ur, gangstéttalausar og þröngar,
sem' bifreiðir fara um daglega til
þess að stytta sér leið, og finst
mér, að slíkt ætti ekki að vera
láti'ð viðgangast, ef umferð bif-
reiða um götur þessar er bönnuð á
annað borð. En ef til vill er bann-
ið úr gildi felt og- væri þá gott að
fá að vita. uni það. — Eg vænti
svars.
Gangleri.
Til nýrrar kirkju
í Reykjavík, afhent síra Bjarna
Jónssyni : Áheit frá Önnu ltr.
25.00, frá ekkju kr. 30.00, áheit
frá stúlku kr. 10.00, áheit frá
gamalli konu kr. 5.00, frá G. G.
kr. 10.00, áheit frá ónefndri
konu kr. 100.00, frá M. G. kr.
20.00, áheit frá N. N. kr. 7.00,
áheit frá konu kr. 5.00.
Gjöf
til gömlu konunnar á Elliheim-
ilinu Grund afhent Vísi: 10 kr.
frá konu.
Gjöf,
afh. Vísi, til hjónanna á Krossi:
10 kr. frá S.
B ARN AF AT AVERSLUNIN,
Klapparstíg 37. Sími 2035.
Ungbarnafatnaður og annar
léreftasaumur afgreiddur eftir
pöntunum.
Dívanteppi,
borðteppi, veggteppi. Ávalt
mest úrval. Sanngjarnt verð.
Versl. M. Thorberg
Bankastræti 7.
Bæjarakstar
galdm ælisbifreiðar
SO M. ávalt lil lei®u
. -------- hjá
bitreiðastððinni.
Slmar 1216 og 1870.
Járngirðing og skfirar
á Melunum í Reykjavík, eign Landsverslunar-
innar, fæst til kaups nú þegar. — Tilboð óskast.
— Nánari upplýsingar í síma 1990.
Nýkomið
margskonar efni i dyratjöld,
silki í upphluti og hroderingar-
efni.
HANNYRÐAVERSLUN
REYKJAVÍKUR.
Bankastræti 12.
Wlikifl urval
af kven- og barnasokkum,
sömuleiðis kven- og harnanær-
fatnaður.
Nýkomið stórt og fallegt úr-
val. Fjöldi lita og gerða.
Veiðarfæraversl.
„GEYSIR“.
F Æ Ð I.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Vísi: 5 kr. frá G. í„ 4
kr. frá Gunnu (gamalt áheit), 5 kr.
frá S. S.
Enskimám barna.
Sjaldan mun breytiþróunin í ís-
lensku þjóðlífi hafa verið jafn ör
og hún hefir verið núna nokkur
síðustu árin. Þessa gætir alstaðar
en ekki hvað minst í skólamálum
og kenslu. Nýjar stefnur, ný til-
högun og nýjar a'ðferðir gera hvar-
vetna vart við sig. Og þessu er
vel tekið. Þannig er það, að þegar
stofnaður er Montessoriskóli hér í
bænum — að visu ekki í stórum
stíl, þótt svo kunni að Vera að
mjór sé mikils vísir — þá fyllist
hann á fáum dögum og verður að
vísa frá sér. Fyrir svo sem tíu
árum myndi hugníyndinni varla
hafa verið sint. Og fyrir' fimm ár-
um voru þess engin dæmi, að börn-
um væri kjend enska utanskóla.
Slikt og því likt virtist engum
detta í hug. En haustið 1924 hóf
Mr. Little enskukenslu sína og
áður en veturinn væri á enda voru
íoreldrar, er sóttu 'tíma hjá hon-
um, farnir að senda börn sín til
hans. Munu það hafa verið börn
dr. Gunnlaugs Claessens, sem fyrst
voru hjá lionum, en skjótlega bætt-
ust við önnur og næsta vetur voru
þau orðin nokkuð mörg. Skrifaði
hann skenitilega og athyglisverða
grein um þessa barnakenslu sína í
timaritið The World Today, eitt
hið merkasta tímarit Englendinga.
.Sagði hann þar frá ýmsu kátlegu.
Þó voru þar ekki nema fáar einar
a.f mörgum skemtilegum sögum,
„er hann hefir sagt þeirn er þessar
línur ritar. Þannig var það eitt
sinn að barið var að dyrum hjá
honum og þegar hann opnaði voru
þar fyrir tveir smákrakkar, börn
Ölafs konsúls Proppé, sem ekk-
ert gátu sagt nema tvö orð,
„English lessons", er þeim höfðu
verið kend eins og páfagaukmn
áðuræn þau fóru að heiman. (Það
vitnaðist seinna að] faðir þeirra
var tvisvar búinn að fara nýið
þau, en hafði i hvorugt skiftið
hitt Mr. Little heima). Nöín sín
og heimilisfang voru ]>au með á
miða. En þó að viðræðurnar gætu
ekki orðið nriklar fengu þó börnin
tilætluð erindislok og þess var
ekki ýkja langt að. bíða að þau
gætu talað við kennarann um það
sem fyrir augu og- eyru bar og
Verslun M. THORBERG.
Bankastræti 7.
til sölu með tækifærisverði ef
samið er strax.
Magnús Brynjólfsson.
Framnesveg 65.
Upplýsingar 6—8.
Drengur
getur fengið að bera út Fálkann
í austurbæinn. — Uppl. á afgr.
Bankastræti 3 frá 5—7.
Nýkomið:
Hvítkál, gulrætur, rauðrófur,
purrur, appelsínur, epli, banan-
ar, vínber.
Hjörtur Hjartarson.
Bræðraborgarstíg 1. Sími 1256.
legubekkja-ábreiðnrnar
komnar aftur í
Edinborg.
jafnvel svarað honum útaf þegar
hann lagði gildrur fyrir þau.
Næsta stóra stigið í þessa átt
var tekið síðastliðið haust er stofn-
aður var sérstakur enskuskóli fyr-
ir börn. Hefir Vísir áður skýrt frá
þvi, hv)ern árangur kenslan bar
þar. Mun mega telja að málið sé
nú komið á góðan rekspöl, því a,
m. k. tvær viöurkendar kenslukon-
ur, þær frú Anna Bjarnardóttir frá
Sauðafelli og frk. Heba Geirsdótt-
ir, hafa i haust auglýst ensku-
kenslu fyrir börn. Þetta er vel íar-
ið, þvi ef rétt aðferð er höfð reyn-,
ist börnum þaö mjög auðvelt að
nema erlend mál. En nauðsyn
enskukmmáttu er nú orðin flestum
ljós, enda verður hún æ lærari
með hverju árinu sem líður. Er
þess að vænta, að foreldrar noti
j essi tækifæri, sem nú bjóðast, og
láti börn sín læra ensku eftir því
sem ástæður leyfa.
U ppg jaf akennari.
Sel fæði á Laugaveg 11. Upþí.
Lilja Benjamínsdóttir.
Minna erfiði þvottadaginn.
Húsmæður! Notið Sunlight sáp-
una til að hjálpa yður, því hrein
og mjúk froða hennar nær burt
öllum óhreinindum.
Sunlight sápan gerir þvottinn
hvítan sem mjöll, án nokkurs
erfiðis.
Hún er óviðjafnanleg til að þvo
úr henni lök, nærfatnað og glugga-
tjöld.
Lever Brothers Ltd.,
Port Sunlight, England.-
Appelslnur
Epli
Vínber — Bjúgaldin
Perur — Tomatar
Hvítkál — Rauðkál
Gulrætur — Laukur
Gulrófur — Akraneskartöflur
Halltíór R. Gunnarsson.
Aðalstræti 6. Sími: 1318.
Kulda-
Mfup.
Skinnhúfur með loðkanti á
drengi og fullorðna nýkomnar.
Verðið hefir lækkað.
Yeiðarfæraversl.
„GEYSIR“.