Vísir - 15.11.1929, Qupperneq 2
VlSIR
Nýkominn:
Laukur,
■ már, verulega góðup.
Gfimmístígvél
fyrir karlmenn, há og lág. Sér-
staklega góð tegund (King-
fislier) nýkomið í
SKÓBÚÐ VESTURBÆJAR,
Vesturgötu 16.
Ölafnr Rósenkranz
leikfimiskennari.
Hann andaSist hér í bænum í
gær á heimili Hólmfríðar dóttur
sinnar eftir nokkurra vikna legu,
77 ára a‘S aldri.
Ólafur Rósenkranz var fæddur
aö MiiSfelli í Þingvallasveit 26.
júní 1852, en ólst upp hét í bæn-
um hjá Jóni ritstjóra Guömunds-
syni; kom til hans á ellefta ári.
Jón studdi hann til náms og lauk
Ólafur stúdentsprófi þjóöhátíöar-
voriö 1874. Eftirþaöstundaðihann
verslun og barnakenslu fram til
ársins 1877. Þá um haustið (3.
október) var hann skipaður leik-
fimiskennari Læröaskólans og
gegndi því starfi full 30 ár. Árin
1877—83 var hann skrifari bæjar-
fógetans í Reykjavík, og árin
1883—91 stundaði hann verslunar-
störf, en áriö 1891 varö hann
biskups skrifari, og gegndi því
starfi alla biskupstíö herra Hall-
grims Sveinssonar.
Hann varö dyravörður Alþing-
ishússins og háskólans eftir Jónas
Jónson og hákólaritari eftir Jón
son sinn Rósenkranz. Gegndi
hann því starfi fram til 1. okt. í
haust. Á sjötugs afmæli hans,
1922, gáfu háskólakennarar honum
gullúr í viðurkenningarskyni fyrir.
skyldurækni hans í ritarastarfinu.
Ólafur kvongaöist áriö 1874
Hólmfríði Björnsdóttur (prests
Þorvaldssonar í Holti) og voru
börn þeirra Björn kaupmaður,
Hólmfríður forstöðukona á Upp-
sölum og Jón sálugi læknir.
Ólafur Rosenkranz var hinn
mesti vaskleikamaður á yngri ár-
um og átti jafnan miklum vinsæld-
um að fagna.
Símskeyti
F.B. 14. nóv.
Verðfall enn í New York.
Frá New York borg er símað:
Nýtt, stórkostlegt hrun á kaup-
höllinni hér. Hlutabréf 300 fé-
laga, þar á meðal United Steel,
hafa fallið meira en dæmi eru
til áður. Rankarnir hafa gert til-
raunir til að stöðva hrunið, en
þær tilraunir báru engan árang-
ur. Hið stöðuga verðhrun hefir
vakið örvæntingu i borginni.
Kauphallarstjómin hefir bann-
að víxlurunum að breiða út
lausafregnir, er af kynni að
leiða aukna hræðslu á kaup-
höllinni. Blöðin geta sem minst
um hin mörgu sjálfsmorð, sem
framin hafa verið af þeim, er
mistu eignir sínar af völdum
verðhrunsins. Fjöldi sparisjóða
eru tæmdir, en bankarnir fullir
lánbeiðenda. Veðlánarar geta
ekki lengur fullnægt lánbeiðn-
um. Munaðarvörur falla stór-
kostlega í verði, gimsteinar eru
seldir fjæir % 0 hluta fyrverandi
verðs.
Bretar og Bandaríkjamenn.
Frá London er símað: Bretar
ræða mjög tillögu Hoovers for-
seta um að matvælaskip verði
friðhelg á ófriðartímum og telja
hana athugunarverða, og benda
á, að í löndum, sem liáð séu að-
flutningum landleiðis, sé auk
l>ess hægt að nota ýmiskonar
matvælategundir til skotfæra-
framleiðslu, til dæmis fituefni
og sykur.
FlugYélasmíði.
Amerískir verkfræðingar eru
byrjaðir að smiða tvær risaflug-
vélar, sem eiga að geta flutt
fimm hundruð farþega, eitt
hundrað manna áhöfn og liafa
tólf þúsund hestafla hreyfla.
F.B. 15. nóv.
ForVextir lækka í New York.
Frá New York er símað: Fe-
deral Reserve bankinn lækkaði
í gær forvexti úr 5% niður í
4%%, vegna kauphallarkrepp-
unnar.
Nytsamleg- uppfundning.
Frá London er símað: Bretar
hafa fundið upp tæki, sem gerir
skipsmönnum í sokknum kaf-
bátum mögulegt að bjarga sér.
Breski flotinn hefir reynt tækin,
og gáfust þau vel.
f erðfallið
í New York.
Hið mikla verÖfall, sem or'Öi'ð
hefir á verðbréfum í New York,
nam sjö þúsund miljónum stcr-
lingspunda i lok októbermánaðar,
samkvæmt Reuterfréttaskeyti frá
Nevv York, en hefir aukist mjög
síÖan. Eru engin dæmi slíks verð-
falls síðan árið 1907, þegar hundr-
uð miljóna í verSbréfum urðu
einkisvirði á svipstundu, og Banda-
ríkin urSu a'Ö flytja inn 20 miljónir
sterlingspunda í gulli, til þess aS
forSa enn meira hruni.
Skömmu eftir aS verSfalliS hófst,
birti Hoover forseti ávarp, þar
sem hann vakti athygli á þvi,
að grundvöllur verslunarviSskifta
landsins stæSi föstum fótum, og
margir helstu bankar og fjármála-
menn gerðú alt hvaS þeir gátu til
þess aS stöSva verÖfalliÖ, en þaÖ
tókst ekki nema í svip og aÖ litlu
leyti. Þess er sérstaklega getiÖ um
einn auSmann, Julius Rosenwald í
Chicago, sem hefir 40 þúsundir
manna í þjónustu sinni, aÖ hann
hafi boðið að leggja fram allar eig-
ur sínar, (sem nema mörgum milj.
dollara) til þess aÖ hjálpa starfs-
mönnum sínum aS halda hlutabréf-
um sínum.
SíSasta. áratug hefir hvert áriS
verið öðru betra í Bandaríkjunum,
og fólki hefir verið talin trú um,
að þar væri ,,land hinna takmarka-
lausu möguleika.“ Auður manna
hefir aukist svo ört, aS slíks hafa
aldrei veriÖ nein dætni áður, og
menn hafa trúað því, aS þessi auð-
sæld gæti engan enda tekiÖ. Þó að
miklum uppgangsárum hafi áður
fylgt snöggir afturkippir, þá hafa
menn ekki trúaS, aS slík eftirköst
þyrfti að óttast í Bandaríkjunum.
SíSustu sex árin, og. eúikanlega
tvö síSustu ár, hafa hlutabréf sí-
felt veriS að hækka í verSi, og þó
að surnir spáSu verðhruni þeirra,
þá var því enginn gaumur gefinn.
Fyrst í stað gáfu þau mikinn arS
og hækkuÖu ár frá ári í verSi, en
loksins kom afturkippurinn og verS-
fallið, og þá varS óttinn svo mikill,
að hver keptist viS annan um aS
selja, og verðiS féll á fám dögum
um tíu, tuttugu eSa tuttugu og
fimm af hundraöi og jafnvel meira.
Enn er ekki séð fyrir endann á
afleiÖingum þessa verSfalls, sem
ekk-i virðist enn um garð geng-
ið. Sumir telja, að það muni
verSa upphaf að stórfeldum at-
vinnuhnekki og atvinnuleysi, en
aðrir segja því megi líkja vÍS litiS
kýli, sem hafi sprungiS. Telja þeir,
aÖ gróÖi allra hinna stærri iÖnaðar-
fyrirtækja hafi veriS svo stórfeld-
ur hin síðari árin, að þau geti vel
staðist þenna afturkipp.
Til athugunar.
Mér datt í hug að vekja athygli
hinna þjóðlegu reiðhestaeigenda á,
að nú er vegurinn í nágrenni
Reykjavíkur sæmilega góSur yfir-
ferSar. Ennfremur gjöri eg ráS
fyrir, aS RauSavatn sé þaS vel lagt
nú, aS hættulaust sé aS hleypa þar
sprett.
ÞaS er svo sjaldgæft aS hér séu
ísalög, aS ekki veitir af aS nota
þau, þá færi til þess gefst.
í gamla daga riSu hesteigendur
um hverja helgi hér á tjörninni
á veturna, þegar færi var gott,
og þangaS safnaSist múgur og
margmenni til aS sjá tilþrif hest-
anna, og oft voru þá þar upp-
kveðnir harSir dómar yfir mönn-
mn og hestum-
Fyrir löngu er þessu hætt, og
sjaldgæft nú aS þar sjáist feríætl-
ingur á spretti. — Tjörnin nú not-
uS til ístöku og annara þarfa.
Eg hefi, frá því eg man eftir
mér, taliS þá menn lukkunnar
pamfíla, sem átt hafa undir sig
góSan, hest, þótt þeir hafi ekki
átt mörg önnur jarSnesk auðæfi,
enda hefi eg getaS tekið undir meS
hagyrSingnum, sem kvaS:
Oreigarnir eiga best
engu þurfa að kvíða,
oft þeir komast yfir hest,
sem allir vilja ríSa.
Dan. Dan.
Skauta—
stigvél
sterk og ódýr.
HVANNBERGSBRÆSUR.
X>00000cxx>000cx50000«000000í>0000000000txx30000000000000«
Teofani Ni». 1 1
1
1 Vipgfnta „Kíngs Own“
ji 1 ■ A N1 fr r° i: n Wgjj H&V 5,Ou> Bwm St' ’’|SP i. 20 stk. 1.25. 1
XXXX50000000000000000000000000000CÍ500000COOOÖOOOOOCXXX
<r KGFLAVÍK, -fca
Garðar, — Sandgerði,
ÁriBtluQarle-ðir á hverjum degi.
Bifreið istöð Stetndócs
Bímar :
580, 581, 582
Utan af landL
Úr Hnappadalssýslu.
FB. í nóv.
Fjárskaöi varS á Snorrastööum
í KolbeinsstaSahreppi þ. 21. f. m.,
fórust þaðan í sjóinn af næsta
skeri viS Kaldárós fjörutíu og ein
ær og sextán lömb. Tvær fundúst
fastar í skerinu, en hinar rak á
land í einum bunka. Eitt lambanna
var frá Ystu-GörSum, hinar kind-
urnar allar frá Snorrastööum.
Voru þær næstum því allar ætlaö-
ar til ásetnings. Tólf kindum tókst
aö standa af á skerinu og hefir
þaS veriS hörS barátta, því skeriS
fór í kaf. — Veöur var gott um
kveldiS, logn og bjart af tungls-
ljósi, en nálægt fjöni geröi kol-
svart myrkur og foráttuveSur af
landsuðri, óeðlilega fljott aSfall
og mikinn áhlaðanda og varS mik-
iS flóö. Var þess vegna engin
leiS fyrir manninn, sem gætti
kindanna aö komast fram í sker-
iö. — Fyrir þrjátíu árum fórust
fjörutíu ær í sjóinn frá Snorra-
stöSum á J>essu sama ísjkþri og
var þaS á útmánuSum.
Úr Húnaþingi.
í nóv. FB.
Tíðarfar. VeSráttan var hagstæö
fram um miðjan september, breytt-
ist þá til úrfella, er hafa haldist
síöan. Gangnamenn fengu hríöar
og var líöan manna og skepna í
göngunum ill. Fjárheimtur slæm-
ar. Hey náSust víöa áður en ótíS-
ir skall á, en eldsneyti er víS-
ast úti.
Verslunin. Fjártaka mikil i
kaupstöðum sýslunnar, einkan-
lega hjá kaupfélögunum. Þar mest
af kjöti fryst.
í sumar sem leiS seldi Hoepfn-
er húseignir sínar á Blönduósi og
nokkru síSar útistandandi skuld-
ir. Húseignir munu hafa veriS
seldar sem næst / af brunatrygðu
veröi og útistandandi skuldir sem
næst /, af nafnverði. Kaupandi að
skuldunum er talinn fyrrverandi
verslunarstjóri Hoepfner’s á
Blönduósi í félagi viS sýslumann
Húnavatnssýslu. Nánari fregnir
um kaup þessi síSar.
Póstferðir hafa veriS örari í
sumar vegna bifreiSaferðanna, en
óskil, eiknum á blöSum, hafa
vaxiö í svipuðu hlutfalli.
Fasteignamatsmenn ferSuSust
um fjærstu hreppana i sumar, en
hafa veriS tepptir nú vegna ótíðar.
Steinsteypubyggingar á Lækja-
móti, SveinsstöSum og Björnólfs-
stöSum eru nú vel á veg komnar
og hafa bændur, aS sögn, bygt
fyrir lán úr landnámssjóSi.
Hrossasalan. Kaupfélag Hún-
vetninga á Blönduósi lét i sumar
kaupa hesta til útflutnings. VerS
fyrir 4.—8. vetra var kr. 120—160
og fyrir 3. vetra kr. 90—110. Enn-
íremur hefir veriS selt allmikiS af
hrossum til afsláttar, jafnvel alla
leiS suöur í Grindavík.
HéraSsfundur Húnvetninga var
haldinn á Blönduósi þ. 15. sept.
Var hann vel sóttur og stóS langt
frarn á riótt. Spurningar frá
kirkjumálanefndinni voru til um-
ræSu og voru undirtektir mis-
jafnar.
Rafveitur. Stefán Runólfsson,
bróöir Bjarna á Hólmi kom hing-
aS í ágústmánuSi. FerSaSist hann
víöa um 0g athugaSi skilyrSi til
vatnsvirkjunar. Leist honum viSa
vel á staShætti. ÓráSiS enn um
framkvæmdir. í MiSfirSi komust
upp í sumar rafstöSvar á tveimur
bæjum, ASalbóli og Brúarfelli.
Samgöngur hafa mikiS verið
bættar í sýslunni á ýmsum stöS-
um. Ennfremur hefir sími vferíö
lagður heim á nokkra bæi. Þetta
er í framfara áttina og spáir góöu
um frekari framkvæmdir, hin
afskektu sveitaheimili færast
óbeinlínis nær hvert ööru og um-
heiminum.
Verkafólkseklan meiri en áSur.
Margt manna hefir sótt í sjópláss-
in yfir sumariS, ennfremur hafa
hinar miklu framfarir í vega,
brúa og símamálum leitt þaS af
sér, aS bændum veittist enn örS-
ugra aS fá nægan vinnukraft.
VeSurskeytin. Menn kvarta yfir
því, aS veSurskeytin komi óreglu-
lega, stundum komi þau alls ekki
Þvottadagarnir
bvfldardagar
Fæst víðsvegar.
í helldsðln hjá
HALLDÓRI EIRÍK88YHI,
Hafnarstræti 22. Simi 175
mmmBBammmm