Vísir - 07.08.1930, Blaðsíða 2

Vísir - 07.08.1930, Blaðsíða 2
V I S I P Nýkomnlr Enskir Tomatap i körfum á 12 11)0. Millennium hveiti í smápokam, ÞÓRÐUR SVEINSSON & Co. Ný ágœt jarðepli á að eins 15 aura Va kg., afar ódýr í heilum sekkjum. Jöbannes Jóhannsson. Spítalastíg 2. Sími 1131. Símskeyti London (UP.) 7. ág. FB. Frá R—xoo Toronto: Commander Scott lét •svo um mælt, er hann kom hing- a'ð í gær frá Montreal, a'ð R—100 myndi ef til vill fljúga til Eng- lands aftur í næstu viku. Kínverskir ræningjar. Shanghai: nokkur hundruö bóf- ar gerðu árás á þorpið Wuyuna- sien í suðurhluta Anwei. Bófarnir komu íbúunum á óvart. íbúarnir bjuggust til varnar, en vörn þeirra stóð eigi lengi. Um tvö hundruS þorpsbúar féllu og einnig allmargt af liíSi bófanna. Bófarnir rændu því næst bú'ðir og híbýli manna og báru loks eld að. Þrjú önnur þorp á þessum slóðum hafa bófa- flokkar lagt í eyði. Atvinnuleysi eykst í Bretlandi. London: Vinnmnálaýáðuneytið hefir tilkynt, að alls séu 2,011,400 menn atvinnulausir í Bretlandi. Tala hinna atvinnulausu hefir á einni vilcu aukist um 38,700 og u'm 857,338 síðan um þetta leyti í fyrra. Verkfall í Frakklandi. Lille: 80,000 vefnaðar-verka- menn í norðurhluta Frakklands hafa nú gert verkfall gegn nýju tryggingalögunum (soda1! insur- ance). Óeirðir halda áfram i bæj- um á landamærum Belgíu og Frakklands, sérstaklega nálægt Menin. Allsherjarverkfall i undir- búningi, í Halluin hafa smiðir, jivottahúsaverkamenn og , fll verkamenn hafið samvinnu um að hefja ^amúðarverkfall. — Riddara- lið heldur vörð á götunum. NRP. 7. ágúst. FB. Frá Noregi. Nýja Rosshafs-bræðsluskipið Sir James Clark Ross, kom til Sandefjord frá Englandi í gær. Skipið er 20,000 smálestir á stærð og getur brætt alt að því 2000 föt á dag. Geymar skipsins taka 110, 000 föt. Skipið fer áleiðis suður á hvalaveiðamiðin á mánudaginn kemur. Þrír menn, allir búsettir i Berg-. en, drukknuðu í gær, við silungs- veiðar í Massfjord. Fulltrúi soviet-Rússlands í Oslo, frú Kollontay, hefir verið útnefnd fulltrúi ráðstjórnarinnar í Stokk- hólmi. Herskipið Tordenskjold kom í gær til Horten úr leiðangri sínum. Gamalinennaskemtnntn verður að forfallalausu á sunnu- daginn kemur kl. 2 til 6 síðd. Hún verður í og umhverfis Ellilieiniilið nýja. Þar eru marg- ir rúmgóðir sahr, svo veðrið þarf ekki að verða til hindrunar; og tjöld eru óþörf. Að öðru leyti alt svipað og fyrri sumur: Allir velkomnir ungir og gamlir, en þó sérstaklega aldraða fólkið, sem sjaldan sækir skemtanir, og þvi ætlað- ar veitingar ókeypis. Aðrir eiga kost á áð kaupa þær, og böm- in fá leikvöll, ef fullorðnir eru i fylgd með þeim. Þess er vænst að bæjarbúar fjölmenni og hlynni sérstak- lega að þessari samkomu, bæði vegna beiðursgestanna, gamla fólksins — hlutist til um að því leiðist ekki, — og vegna stofnunarinnar, nýja hússins, sem fær allan ágóða af skemt- uninni. Mér leiðist að fj ölyrða nokkuð imi hvað brýn nauð- syn er til áð vinir gamla fólks- ins, sýni nú í verki að þeim þyki vænt um þetta nýja hús. Eg liefi lieyrt fjölmarga bæjarbúa tala vel um húsið nýja, og trú eða „dirfsku“ jieirra, sem mest hafa unnið að þvi, og þar eiga ýmsir verktakendur engu síður hlut að máli, en forstöðunefndin. Mig langar til að segja frá því, sem mér liefir þótt best sagt um það efni. Eg spurði bifreiðarstjóra, sem var að sækja mig, hvert liann hefði séð Elliheimilið nýja. „Já, eg kom þar inn um dag- inn“ svaraði hann, „og mér fanst einhver lilýindi streyma á móti mér hvar sem eg fór um húsið.“ Eg er að vona að langflestir verkamennirnir, sem unnið hafa að þessu stórhýsi og miklu fleiri bæjarbúar eigi þátt í því að gest- ur verður var við slík hlýindi í tómu og köldu liúsi. Og þeir skifta vafalaust þúsundum, sem óska þess að þreytt og' lasin gamalmenni verði þar jafnan vör- við sivaxandi hlýindi á ó- komnum árum.---------- Við liöfum verið spurðir að því hvers vegna við höfum ekki hlutaveltu í sambandi við þessa skemtun til ágóða fyrir húsið. Aðalorsök þess er, að við liöfum engan tíma afgangs til jiess. For- stöðunefndin hefir orðið að Iialda 2 til 3 fundi flestar vikur i nærri 2 ár vegna byggingar- innar, og Iiefir að því er oss flesta snertir í raun og veru ekki haft tómstundir til þess, og því síður til allrar jieirrar fyrirliafn- ar sem fylgir stórri hlutaveltu. Hitt er og, að vér treystum því að bæjarbúar séu smámsam- an að ná þeim þroska að þeim sé ljúft að styðja góð fyrirtæki með beinum g'jöfum, þótt „happdráttavon“ sé ekki í boði. Til minnis og leiðbeiningar skulu hér talin þau meginatriði sem koma til greina við þessa skemtun: Söngmenn og ræðumenn, sem vilja skemta, eru beðnir að láta okkur vita um það, sem fyrst. Sömuleiðis sjálfboðahðar við kaffiveitingar. Það þarf einar 8 stúlkur á laugardagskveldið á undan, kl. 6 til 8, til ýmiskonar undirbúnings í nýja húsinu, og miklu fleiri á sunnudaginn frá kl. 1. Bifreiðaeigendur, sem vildu sækja eða flytja fóthrum gam- almenni, eru beðnir að segja Ilaraldi Sigurðssymi til sín. (Sími 135 eða 685). En liins vegar ættu ekki aðstandendur jiess fólks að treysta þvi að nefndin geti séð um flutning, heldur panta þeim sjálfir flutn- ing frá bifreiðastöðvunum. — Þó ættu menn að segja til gam- alla einstæðinga á laugardag, ef unt verður að fá bifreið. Ivaupmenn og bakarar eru vinsamlega beðnir um vörur, eins og fyrri, og síst má gleyma gosdrykkjagerðum. — Vörur þeirra er kærkominn styrkur. Ýmsar húsmæður hafa sent áður „heimabakaðar kökur“, og gjöra væntanlega enn. Æskilegt væri að fá ahar gjaf- irnar til Elliheimilisins nýja á laugardaginn, en auðvitað verða þær sóttar, ef óskað er. Aðalatriðið er þó að allir komi með hlýindi og góðan hug, }>á keppast menn við að gleðja hverjir aðra og fara ánægðir heim að kveldi. S. Á. Gíslason. P.S. Hin dagblöðin eru vin- samlega beðin að segja frá aðal- efni þess, sem hér er sagt að ofan. S. Á. G. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 st., ísa- firði 7, Akureyri 7, Seyðisfirði 7, Vestmannaeyjum 12, Stykkis- hólmi 8, Blönduósi 6, Raufar- höfn 6, Hólum í Hornafirði 10, Færeyjum 14, Juianehaab 12, Hjaltlandi 13, Tynemouth 12 st. Skeyti vantar frá öðrum stöð- um. Mestur liiti liér í gær 14 st., minstur 7 st. — Eægðin fyrir suðaustan Island er að fyllast upp. Hábrýstisvæði yfir Græn- landi. Víðáttumikil lægð suður af Grænlandi á hægri hreyfingu austur eftir. Horfur: Suðvestur- land: Hæg norðaustan átt. Létt- skýjað vestan til.. Ef til vill skúrir austan til. — Faxaflói, Breiðafj örður: Norðaustan kaldi. Léttskýjað. Vestfirðir, Norðurland: Norðaustan kaldi. Þykt loft og rigning i útsveit- um. Norðausturland, Austfirðir: Minkandi norðan átt. Rigning. Suðausturland: Norðaustan kaldi. Sumstaðar skúrir. Bæjarstjórnarfundur verður haldinn í dag kl. 5. Slökkvistöðin. Tvær af bifreiðum slökkvi- stöðvarinnar eru nú, að dómi slökkviliðsstjóra, orðnar svo úr sér gengnar, að nauðsyn ber til, að fengnar séu nýjar bifreiðir í þeirra stað. Brunamálanefnd leggur til, að bæjarstjórn sam- þykki, að kaupa tvær bifreiðir í þessu skyni, og veiti til kaup- anna og útbúnaðar bifreiðaima alt að 7000 kr., til Hðbótar fé því, sem veitt er á fjárhags- áætlun bæjarins til viðhalds slöklcváteekja. Fljót ferð. Þeir Helgi Jónasson frá Brennu og Tryggvi Magnússon, verslunar- maöur, fóru héöan síöasta laugar- clagskveld kl. 11 og var förinni heitið að sæluhúsi Feröafélags- ins viö Tjamá, skamnit frá Hvít- árvatni. Fóru þeir í bifreið að Laug, en þaöan á hestum. Hingað komu þeir aftur kl. 3 á mánudags- nótt. Þeir riöu Hvitá á Hólmavaði báöar leiðir. Húsnæðisvandræði munu veröa hér t bænum í haust meö allra rnesta móti. Hef- ir mjög litiö veriö reist af nýjutn húsum 5 sumar, en aðstreymi fólks til bæjarins i haust veröur fráleitt minna en verið hef- ir undanfarin ár á sama tima. — Munu dæmi til þess, að fólk hafi reynt í alt sumar að fá sér íbúðir leigöar til vetrarins, án þess að þaö hafi nokkurn árangur boriö. Flugfélagið. Á fundi hafnarnefndar 30. f. m. skýrði hafnarstjóri frá þvi, að dráttarbraut sú, sem Flugfélagið hefir farið fram á, aö bærinn léti gera í Vatnagörðum, hafi verið boöin út og að lægsta tilboð hafi verið 16500 kr. En Flugfélagið hefir áætlað allan kostnað við nauösynlegan útbúnað í þessu skyni um 40 þúsund krónur og hefir fariö þess á leit, að höfnin eða bærinn kosti flugstöð á ofan- nefndum stað. — Hafnarstjóra og Olafi Johnson, hafnarnefndar- manni, hefir verið faliö að tala viö stjórn Flugfélagsins og gera tillög- ur um fyrirkomulag flughafnar fyrir Reykjavik. Hjúskapur S. I. sunnudag voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Kristin Gisladóttir (prests frá Mosfelli) og Pétur Sigurðsson frá Árná- nesi. Trúlofun sína opinberuðu siöastliöinn laugardag ungfrú Áslaug Ásgeirs- dóttir (Torfasonar) og Höskuld- ur Ágústsson vélstjóri. Hröð ferð. Tveir ungir húsgagnasmiðir, Arni Skúlason og Guömundur Grímsson, fóru með „Esju“ t il Borgarfjaröar siöast liöinn laugar- dag (2. ágúst). Þeir félagar fóru síðan á hjóli víðs vegar um Borgarfjörð. Þeir lögöu af stað frá Gilsbakka áleiðis til Reykja- víkur í gær (miðvikud.) kl. 7 árd, Uröu þeir aö ganga nærri því alla leiðina frá Gilsbakka aö Húsafelli yfir hraunið, og tók það tvo tima. Síðan hjóluöu þeir frá Húsafelli til Þingvalla á 5)4 klst. og frá ÞingvöIIum til Reykjavíkur á 2)4 klst. Alls mun sú leið, er þeir fé- lagar fóru i gær. um 125 km.; voru þeir alveg óþreyttir, er þeir komu til Reykjavikur og létu hiö besta yfir ferö sinni. S. Trúlofun. Nýlega hafa birt trúlofun sina, ungfrú Sigríður Hrefna Guð- mundsdóttir, Uröarstíg 14 og Ingibergur Guömundsson bifreið- arstjóri, Njálsgötu 13. Nankinsföt allar siærðir: Buxur ú drengi frá 2 ára aldri. Jakkar og buxur á imglinga frá 8 ára aldri og allar stærðir á fullorðna. Jakkar, streng- og smekkbuxur. Hvítir jakkar og sloppar, fýitr bakara, verslunarmenn o. s. frv. og hvitar buxur. — Ennfremur liinar járnsterku MOLESKINNSBUXUR komnar aftur. HIÍ filllWSfll \ Cl. Austurstræti 1. Ttme to Re-tire Get a FISK TftAOC MARK REQ. U. S. PKT. Q& FISK ágætu dekk og slöngur nýkom- ið í ýmsum stærðum. Gæðin alkunn. BíMjórar! Biðjið um FISE- dekk, ef þér viljið fá varanlega vöru með góðu verði á bílbjól yðar. 1 [Eflill Tilhjálfflsson Grettisgötu 16. Dansleikur íþróttamanna. Það skal tekið fram, að dans- leikurinn er haldinn sameigin- lega af hátíðarmótsnefndinni og knattspyrnumöimum í þeim tvennum tilgangi að hylla verðlaunamennina frá Alþiiigia- hátíðarmótinu og fagna Fær- eyjaförunum. Aðgöngumiðar aS dansleiknum fást lijá Haraldi Ámasyni i dag og á morgun, og við innganginn, ef eitthvað er óselt. Kaattspymumót B-liðsins. í kvöld kl. 8)4 keppa K. R. qg Valur. ! ' Kristileg samkoma á Njálsgötu 1, kl. 8 í kveid. Allir velkomnir. Til fátæku ekkjunmr 2 kr. frá Ömmu. Áheit á Strandarkirkju afheiit Vísi, 50 kr. frá N. N.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.