Vísir - 10.01.1931, Side 3
VÍSIR
IJtvarpið býður upp á
snúning í kvöld
frá kl. 9—12.
Opnið fyrir tælcið yðar og dansið eftir bestu dans-
tögum, spiluðum af heimsfrægum danshljómsveitum.
Takið vel eftir nöfnunum, svo þér getið eignast
lögin
Á GRAMMÓFÓNPLÖTUM
og aansið eftir þeim hvenær og hve oft sem þér viljið.
Þér sem ekki eigið grammófón, getið cignast liann
með góðum kjörum ef þér talið við okkur.
Hlj ódfæpaliúisid. -
Austurstræti 1. Laugavegi 38.
ALBUM
mörg hundruð tegundir.
ÓDÝR.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
skóli kl. 2 síöd. Hjálpræðissamkoma
kl. 8 síðd. Umræðuefni: Méistarinn
er hér og vill finna þig. Kapt. Axel
Olsen stjórnar. Lúðraflokkurinn og
strengjasveitin aðstoða. . Allir vel-
komnir!
Breyting
á útvarpsskrá í dag: Síöasti liö-
ur, kl. 21.15. í staö hljómleika
þeirra Þórarins og Emils veröa
leikin danslög til kl. 23.30—24.
Leiðin fyrir allan hinn mikla ‘
•flutning, er þeir áttu að flytja, j
var ekki sém jxegilegust, þar j
«em þeir urðu meðal annars að t
höggva sér akveg fyrir liestana i
og flutninginn inn í þverhnípt !
isbergið, sem svo bráðnaði i
sólinni og varð því ófær, nema
stöðugt væri höggvið á ný.
Vigfús er skýr maður og at-
"hugull og liefir mjög gott lag
á að segja frá. Frá sjálfum for-
manni leiðangursins, próf.
Wegener, liefir hann fengið
fjölda ágætra mynda og sýnir .
hann 75 þeirra með fyrirlestr-
jnum. Auk þess sýnir hann kort
af Grænlandi og sérkort af
staðnum, þar sem þeir störfuðu
að flutningunum. Margar skin-
andi fagrar landslagsmyndir ;
«ru meðal myndanna, auk þess !
eru þær af starfinu, af Græn- I
lendírigum o. s. frv.
Þótt ekki væri nema vegna
myndanna er vissa fyrir því að
znenn eigi vísa skemtistund i
Nýja bíó á morgun.
.Uessur á morgun.
í dómkirkjunni kl. u, sira Bjarni .
Jónsson. Kl. 2 barnaguÖsþjónusta '
(síra Fr. H.). Kl. 5, sira Friðrik
Hallgrímsson.
í fríkirkjunni kl. 2, sira Árni
Sigurðsson.
í Landalcotskirkju: Hámessa kl.
■9 árd. og kl. 6 guSsþjónusta með
prédikun.
í spitalakirkjunni í Hafnarfirði:
Hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd.
guðsþjónusta með prédikun.
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. i Reykjavík
3 st., Isafirði 0, Akureyri 3,
Seyðisfirði 7, Vestmannaeyjum
5, Stykkishólmi 4, Blönduósi 1,
Hólum í Hornafirði 2, Grinda- j
vlk 4 (skeyti vantar frá Rauf- j
arhöfn, Angmagsalik og Kaup- j
.mannahöfn), Færeyjum 8, Juli- |
anehaab 3, Jan Mayen -t- 3, j
Hjaltlandi 8, Tynemouth 4 st. j
— Mestur liiti liér i gær 6 st„ 1
minstur 0 st. Urkoma 14,4 mm. j
-— Grunn lajgð við norðaustur- \
3and og yfir norðanverðu ís-
landi á lireyfingu norðaustur
eftir. Önnur lægð við Suður-
Grænland, er hreyfist einnig í
norðaustur. Horfur: Suðvestur-
Jand, Faxaflói, Breiðafjörður:
Suðvestan og vestan kaldi og
skúrir í dag, en vaxandi suð-
austan átl og rigning i nótt.
Vestfirðir: Norðaustan kaldi og
snjókoma víða í dag, en snýst i
suðauslur mcð þíðviðri i nótt.
Norðurland, norðausturland:
Breytileg átt og hægviðri. Dálit-
il úrkoma. Austfirðir, suðaust-
urland: Hæg vestan átt, úr-
koinulaust og víða léttskýjað.
PÓsthÚSÍð.
Á morgun eru væntanleg hingað
fyrstu póstskip á þessu ári. Hefir
nú orðið með lengsta móti milli
póstskipsferða, og verða póstsend-
ingar afarmiklar. — Vísir leyfir
sér að beina þeirri áskorun til póst-
stjórnarinnar, að hún geri sérstak-
ar ráöstafanir til þess að flýta af-
greiðslu erlendra bréfa og blaða að
þessu sitini, þvi að tnörgum er
nauðsynlegt að fá bréf svo fljótt
í hendur, að þeir geti svarað þeim
ineð fyrstu ferð, sem fellur til út-
landa.
Fimtugsafmæli
á í dag frú Þorbjörg Mens-
aldursdóttir Bergstaðastíg 46.
Hjúskapur.
í gær voru gefin sahiau í hjóna-
band af lögmanni ungfrú Martha
Oddsdóttir og Siguröur Guöjóns-
son bílstjóri. Heimili þeirra er á
Grettisgötu 57 B.
Trúlofun.
Ungfrú Málfríöur Gísladóttir í
HafnarfirÖi og Magnús Helgason
vélstjóranemi frá ísafiröi.
Frá Siglufirði.
Eftirfarandi skeyti barst FB. frá
Siglufirði 9. jan.:
Stjórn Jaf-naöarmannafél. Sigl-
firðinga biður yður að leiðrétta,
vegna útvarpsfrétta frá yður þ. 6.
jan., að:
„Félagsfundur á Siglufirði neit-
aði engum upptöku í félagið, en í
félaginu er föst dómnefnd, kosin
á aðalfundi, og þurfa innsækjend-
ur að hafa meðmæli þessarar
nefndar, svo félagsfundur geti
gengið til atkvæða um þá. Þessi
meðmæli lágu ekki fyrir, að eins
meömæli tveggja íélagsmanna með
nokkrum (sem inntöku höfðu beð-
ist). Dómnefndin treystist ekki til
að rannsaka allar inntökubeiðnirn-
ar þá á fundinum. Var þvi frestað
atkvæðagreiðslu um innsækjend-
urna til næsta fundar. Innsækjend-
urnir voru ekki allir verkamenn né
alþýðuflokksmenn. Tala röng á
innsækjcndunum, sem útvarpið gat
um.“
íþvóttaskemtun
fyrir börn heldur Glímufélagið
Ármann í Iðnó kl. 3 á morgun.
Sýnd verður íslensk glíma, fim-
leikaflokkur félagsins sýnir leik-
fimi. Einnig veröur íleira til
skemtunar, svo sem: Reinh. Richt-
er syngur gatnanvísur, Isak Jóns-
son kennari segir sögur o. fl. —
Miöar fást í Iðnó á morgun kl.
10—12 og 1—3 síðd. og kosta að
eins 50 aura fyrir börn og 1 krónu
fyrir fullorðna.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur á morgun: Helgunar-
samkoma kl. io)4. árd. Sunnudaga-
Kvæðakveid.
Guðmundur Helgason, ættaður
úr Amarfirði, kveður rímur og
gamanvísur annað kveld í K.-R,-
húsinu, fer einnig með sögur og
eftirhermur. Hann er sagður góður
kvæðamaður og sögufróður.
K. F. U. M.
Vísir hefir verið beðinn um að
skila til allra drengja 10—14 ára
að fjöltnenna á fundinum i K. F.
U. M. á morgun kl. t-L Þeir munu
ekki sjá eftir því. Þeir sem þetta
lesa, eru beðnir að benda drengjum
á þaö. Hver sveit fjölmenni sem
mest.
Listasafn
Einars Jónssonar er opið á
sunnudögum og miðvikudögum, kl.
1—3. Þar fæst enn ritið Myndir
af listaverkum Einars Jónssonar.
Skip Eimskipafélagsins.
Brúarfoss, Goðafoss og Lagar-
foss fara allir frá Leith í dag, á-
leiðis til fslands.
Andri
kom af veiöum í gær með góðan
afla, 2500 körfur, og fór samdæg-
urs til Englands.
K. R.
Hlaupaæfing á morgun kl. ioí
árdegis.
Súðin
var á Norðurfirði t morgun, á
norðurleið.
Pétur Sigurðsson
flyttir fyrirlestur í Varðarhús-
inu annað kveld kl. 8l/2 um and-
vöku-nótt konungsins og ráöherr-
ann í gálganum.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá ónefndri
kónuj 5 kr. frá N. N. og 47 kr. frá
Manna.
Erkldjáknlnn f Badajnz.
(Spánverskt æfintýri).
Steingrímur Thorsteinsson þýddi.
Niðurl.
I fyrsta lagi er lærisveinn yöar
orðinn kardínáli og í annan staö
mun sonur yöar veröa þaö innan
skamms, ef eg’ fæ nokkru ráöiö í
Rómaborg. Eg heföi reyndar
gjarnan viljaö láta hann veröa
erkibiskup i Compostella, en litiö
þér nú á, hvað eg á bágt. Hún
móðir mín, sem viö skildum viö i
Badajoz, hefir skrifað mér versta
ófagnaðarbréf, sem ónýtir öll mín
áform. Hún nauðar á mér og ijij!
þröngva mér til þess aö velja fyr-
ir eftirmann liann Don Pablos de
Salazar, erkidjáknann við mína
fyrri kirkju, trúnaðarvin sinn og
skriftaföötir, og hótar mér meö
því aö hún ípuni deyja af gremju
ef eg ekki læt aö orðum hennar.
Útflnttar ísl. afnrðir t des. 1930.
Skýrsla frá Gengisnefnd.
Eiskur, verkaður ........... 1,272,740 kg. 684,560 kr.
Fiskur, óverkaður .......... 120,990 — 34,960 —
Isfiskur ................... ? — 725,270 —
Sild ....................... 2,972 tn. 81,200 —
Lýsi ........................... 124,180 kg. 60,930 —
Fiskmjöl .................... • 460,900 — 166,4/0 —
Síldarolía.................. 578,000 — 125,930 —
Sundmagi ................... 5,690 — 14,730
Dúnn ....................... 49 — 1,860 —
Gærur, sútaðar.............. 540 tals 1,980 —
Gærur, saltaðar............. 64,910 — 136,840 —
Skinn, söltuð .................... 3,980 kg. 2,060 —
Skinn, hert ........................ 240 — 700 —
Garnir, hreinsaðar.......... 2,500 é21,050 —
Garnir, saltaðar ................. 7,500 — 4,340
Kjöt, fryst ...................... 1,480 — 1,480 —
Kjöt, saltað ..................... 3,938 tn. 407,600
Prjónles............................ 577 kg. 3,470
Ull ............................. 16,377 — 19,870 —
Samtals 2,495,300 kr.
Utflutt i árslok
1930 : 56,964,400 kr.
1929 : 69,400,010 —
1928: 74,283,870 —
1927: 57,451,140 —
I nóv.lok 1930
í nóv.lok 1929
innflutt: 57,241,129 kr.
útflutt: 54,469,100 —
innflutt: 60,530,561 —
útflutt: 65,619,010 —
Aflinn: Fiskbirgðir:
Skv. skýrslu Fiskifél. Skv, talningu fiskiinatsm.
31. des. 1930 : 441,089 þur. skp.31. des. 1930: 126,820 þur skp.
— — 1929: 417,273 —---— 1929: 52,690 — —
— — 1928 : 409,973 —-----------— 1928 : 45,104 — —
— — 1927: 316,151 —-----------— 1927: 56,799 — —
Og hvers er aö vænta, eins og hún
er orðin heilsuláus, ef eg reiti
hana til reiði? Setjið yður í mín
spor og segið mér, hvort yður sýn-
ist þaö rétt gert af mér aö mæöa
móður mína, sem er mér svo inni-
lega ástfólgin?"
Fjarri fór þvi, að Don Torribio
heföi neitt aö athuga viö þessa
sonarlegu ræktarsemi og viö-
kvæmni. Hann félst á þaö í alla
staöi, aö Don Pablos yrði fyrir
happinu, og ekki var að heyra á
honum, aö hamt bæri neina þykkju
til móður kardínálans. Hann fór
rneö honum til Rómaborgar, og
varla voru þeir þangaö komnir
fyrr en páfinn andaöist. Þá gengu
kardínálarnir á fund til páfakosn-
ingar og hlaut þá kardínálinn frá
Spáni öll atkvæöi og varö páfi.
Þegar búiö var aö krýna páf-
ann og öll sú viöhöfn var á enda,
þá fékk Don Torribio leyfi til aö
ganga fyrir páfann til viötals í
einrúmi. Hann kysti fætunia á
lærisveini sinum fyrrverandi og
grét af fögnuöi er hann sá hann
sitja svo virðulega í páfasætinu.
Hann talaöi meö mestu hógværö
um sína löngu og dyggu þjón-
ustu; hann minti hans heilagleik
á loforðin, sem endurnýjuö voru
fyrir skemstu, og fór um þaö fá-
einum oröum, hvílíkur lánsmaöur
hann heföi verið, aö hljóta fyrst
kardínálahattinn og svo rétt á eft-
ir páfakórónuna þreföldu, og lauk
ræöu sinni með svofeldum oröum:
„Heilagi faöir! Viö sonuf minn
erum nú afhuga orðnir allri upp-
hefö og metoröuin og erum hjart-
anlega ánægöir, ef þér aö eins
vilduö leggja yfir okkur fööuriega
bíessun og hugnast okkur með þvi
að veita okkur fé til framfærslu
þaö sem eftir er æfinnar; ekki
þarf það aö vera mikiö, heldur ein-
ungis eins og nægt getur látlaus-
um og lítiljiægum presti og heitn-
spekingi."
Meöan Torribio var aö halda
tölu þessa, var páfinn síns vegar
aö hugsa um hvaö gera skyldi þar
sem kennari hans átti í hlut. Hann
var ekki lengi aö átta sig á því, aö
í rauninni væri Don Torribio
ónytjungur og enda leiðindasegg-
ur, og því varö honum ekki ógreitt
um svör.
„Viö höfum með harmi heyrt/'
sagöi páfinn nýbakaöi, „aö þér,
Ðon Torribio, leggiö stund á
leyndardómsfull vísindi og hafið
undir því yfirskini svivirðileg mök
viö anda myrkranna og lýginnar.
Vér áminnum yður föðurlega, aö
þér afplániö þennan óguölega og
ógurlega glæp með iörun og yfir-
bót. En jafnframt skipum vér yð-
ur að veröa á brott úr löndum
kirkjunnar innan þriggja daga, að
öörum kosti verðið þér ofurseldur
valdi veraldlegrar réttvísi og
dæmdur til að brennast á báli.“
Don Torribio brá sér ekki hiS
minsta viö þessa ádrepu; hann
tók að eins upp aftur töfraoröin
þrjú, opnaöi síöan gluggann og
kallaði eins hátt og hann gat:
„Hýasintha, steiktu ekki nema
eina akurhænu; herra erkidjákn-
inn borðar ekki með mér.“
Þetta kom eins og reiðarslag
yfir ímyndunar-páfann. Hann
vaknaÖi af draumleiðslunni, sem
Don Torribio hafði búið honum
með töfraorðunum þremur. Hann
sá nú, að hann var ekki staddur
i páfahöllinni, heldur í lestrarher-
bergi Don Torribios í Tóledó.
Hann leit á klukkuna og sá, aS
varla var liöin liálf sttuid síöan
hann kom í þetta óheillaherbergi,
þar sent hann hafði dreyrnt svo
þægilega drauma. Á tæpri hálfri
stundu haföi hann ímyndaö sér aS
hann væri töframaður, biskup,
erkibiskup, kardínáli og páfi, og
nú var sú orðin niðurstaðan, að
hann var glópur einn og vanþakk-
látur bófi. Þetta höföu alt veriS
sjónhverfingar uema ]iaö eitt, að
hann haföi gert sig uppvísan aS
fláræöi og ilskufullu lijartalagi.
Hann snautaöi burt þegjandi og
fann múlasna sinn þar sem hann
hafði skilið viö hann. Síðan hélt
hann lieim á leið til Badajoz jafn
ófróöur og hann hafði aö heiman
farið.