Vísir - 21.02.1931, Blaðsíða 3
VlSIR
Ágúst Jósefsson,
Guðmundur Ásbjörnsson,
Hermann Jónasson,
Guðrún Jónasson.
Brunamálanefnd:
Guðmundur Eiríksson,
Ágúst Jósefsson,
Pétur Halldórsson,
Hermann Jónasson.
Hafnarnef nd:
Jón Ólafsson,
Sigurður Jónasson,
Ölafur Johnson,
Geir Sigurðsson.
Vatnsnefnd:
Guðmundur Ásbjörnsson,
Pétur Halldórsson,
■Ólafui' Friðriksson,
Guðrún Jónasson,
Ágúst Jósefsson.
Gasnef nd:
Einar Arnórsson,
Stefán Jóh. Stefánsson,
Guðmundiir Eiriksson,
Haraldur Guðmundsson,
Guðmundur Jóhannsson.
Rafmagnsst jórn:
Jakob Möller,
Pétur Halldórsson,
Stefán Jóh. Stefánsson,
Guðmundur Jóhannsson,
Sigurður Jónasson.
Heilbrigðisrnálanefnd:
Guðmundur Ásbjörnsson,
Ágúst Jósefsson,
Guðrún Jónasson,
Sigurður Jónasson,
Jón Ólafsson.
Bæ jarlaganefnd:
Einar Arnórsson,
Stefán Jóh. Stefá’nsson,
Jón Ólafsson,
Sigurður Jónasson,
Guðmundur Jóhannsson.
Húsnæðisnefnd:
Éinar Arnórsson,
Pétur Halldórsson,
Stefán Jóh. Stefánsson,
Jón Ólafsson,
Sigurður Jónasson.
Alþýðubókasaf nsnef nd:
Jakob Möller,
Guðmundur Ásbjörnsson,
Páll E. Ólason.
Skólabyggingarnefnd:
Pétur Halldórsson,
Guðmundur Ásbjörnsson,
Ólafur Friðriksson,
Guðmundur Eiríksson,
Kjartan Ölafsson.
Stjórn Eftirlaunasjóðs:
Jalcob Möller,
Guðmundur Ásbjörnsson,
Ágúst Jósefsson.
Skólanefnd gagnfræðaskólans
(Ingimarsskólans):
Bogi Ólafsson,
Gústav A. Sveinsson,
Hallbjörn Halldórsson,
Einar Magnússon.
Endurskoðendur bæjar-
reikninga.
Aðalmenn:
Þórður Sveinsson, læknir,
Ólafur Friðriksson.
Varamenn:
Björn E. Ámason,
Vilhj. S. Vilhjálmssön.
III. ,
Um atvinnubótamálið urðu
allmiklar umræður, og' voru
þær að mörgu leyti endurtekn-
ing á umræðum, sem áður hafa
farið fram um það mál. Sner-
ust þær mikið um svo hljóð-
andi tillögu frá Ólafi Friðriks-
syni:
Mjólknrlin Flóamanna
Týsgötu 1. ---Sími 1287.
Vesturgötu 17. — Sími 864.
Daglegar mjólkurafurðir
---- sendar heim. ----
„Bæjarstjórnin ákveður að
auka atvinnubótavinnuna um
tvö hundruð manns, og fara
fram á við bankana, að þeir
láni bænum i því skyni 60 þús.
krónur.“
Var tillögu þessari að lokum
vísað frá með svo hljóðandi
rökstuddri dagskrá frá Einari
Arnóssyni:
„Með ])vi að fjárhágsnefnd
hefir þegar tekið ákvörðun um
að reyna að fá alls um lf/o milj.
króna lán til ýmsra fram-
kvæmda bæjarins, telur bæjar-
stjórnin tillögu um 60 þús. kr.
lántöku þarflausa, og tekur
því fyrir næsta mál á dagskrá.“
Atvinnulausir menn eru senni
lega milli 300 og 400 í bænurn
núna, og það befir altaf verið
tilætlun meiri lilutans í bæjar-
stjórninni að hafa atvinnubóta-
vinnuna svo mikla, að þeir gætu
allir komist þar að, en ekki að
eins tvö liundruð manns; eins
og Ólafur Friðriksson vill vera
láta. Ennfremur er liklegt, að
60 þús. kr. mundu hrökkva
skamt til þeirx*a hluta, enda er
ráðgert að fá ekki minna en
1 y2 milj, kr. til verklegi*a fram-
kvæmda bæjarins. Lántakan
hefir gengið erfiðléga, þvi að
bankarnir hér eru ekki aflögú-
færir, og verður sennilega tek-
ið erlent lán til þessai’a fram-
kvæmda.
En vitánlega þarf að hraða
slikri lántöku sem allra mest.
Ný smjOrlfklsgerð.
—o—
„Smjörlíkisgerð Reykjavik-
ur“ heitir lxin nýja smjörlikis-
gei'ð, sem Magnús Sch. Thor-
steinsson hefir stofnað hér í
bænum. Hún er i nýju stein-
húsi norðan við Háteigsveg,
gegnt Sunnuhvoli. — Húsið
rúmgott, og allur útbúnaður
hinn vandaðasti. Veggir eru
fóðraðir hvítum glerungi en
gólfin lögð steypu úr granít-
mulningi. Auk vélaherbergja og
gevmslu, er skrifstofa forstjóra
og starfsmannalierbergi með
baðklefa. Allar vélar eru af
nýjustu gei’ð og ganga hljóð-
lega fyrii’ rafmagni, en lijól-
reimar eru engar.
Þegar hlaðamönnum var sýnd
verksmiðjan, talaði forstjórinn
nokkur orð og skýrði frá því,
að hann liefði fengið einkarétt
á nýju fjörefnasafni, sem notað
vrði í hið nýja smjörlíki. Það
heitir Éviuiiis og er búið til i
Sviss, og unnið úr „grænu jurt-
inni“. Héfir það að geyma fjör-
iefni (vitamin), sem valda þvi,
að smjörlíki þetta hefir fleiri
tegundir fjörefna, en venjulegt
smjör. — Hin nýja smjörlíkis-
tegund -heitir: „Ljómasmjörlik-
ið“.
Áður en blaðamenn fóru úr
smjörlíkisgerðinni talaði Sig-
urður ritstjóri Kristjánsson
nokkur orð af þein’a hálfu og
árnaði framkvæmdastjóra góðs
gengis og óskaði þess, að iðn-
grein þessi yrði honum til gleði
óg sóma og þjóðinni til hags-
bóta.
Fjármál Breta.
—o---
Úr ræðu Mr. Snowdens.
Þess var nýlega getið í skeyt-
um, að Mr. Snowden, fjár-
málaráðherra Breta, liefði
flutt ræðu i þinginu, sem þætti
ein hin áhrifamesta, sem þar
liefði lengi heyrst. í nýkomn-
um blöðum er margt um ræðu
þessa ritað, og þess Við getið,
að í lok ræðunuar hafi Mr.
Snowden náð þeim tökum á
áheyröndum allra flokka, að
svo hafi virst sem allir hlýddi
alvarlegir og einum huga.
Fer hér á eftir stuttur kafli
úr niðurlagi ræðunnar:
„Eg segi það af allri jieirri
alvöru, sem mér er gefin, að
byrði þjóðarinnar er svo þung
orðin, að gripa verður til rót-
tækra og óþægilegra úrræða,
ef jafnvægl á að líaldast í
f járlagafrumvarpinu og at-
vinnuvegirnir eiga að rétta
við. Útgjöld,-sem verið geta
auðveíd og viðunandi i góðær-
um, verðá ógerleg þegar alvar-
leg viðskiftakreppa sverfur að.
Eg get liisþurslaust sagt það
með þessum orðum: Aukning
skatta eins og nú er komið,
aukning skatta, sem félli á
iðnað, yrði siðasta úrræðið.
Ráðagerðir, sem liafa mikinn
kostnað í för með sér, verða
að biða betri tíma, hversu
æskilegar sem þær kunna að
vera.
Þetta er nauðsynlegt, og.eg
beini því sérstaklega til vina
minna, sem sitja að baki mér
(verkamanna), til þess að
halda við þeim aðbúnaði, sem
nienn eiga nú við að búa, og
engin stétt manna mun að lok-
um græða meira á því en dag-
launamenn, að nú sé gætt sparn-
aðar. *
Fjárhagshprfur ríkisbúsins
eru alvarlegar. Það er kunn-
ugt, að eg mun þurfa að svara
til mikils tekjuhalla í lok þessa
(fjárhags)árs. Ekkert fjárlaga-
frumvarp í veröldinni gæti
slaðisl svo óvænt áfall eins og
þa'ð, sem aukið atvinnuleysi
hefir lagt á útgjöld vor siðustu
tólf mánuði.
Vér stöndum á öruggum
grundvelli, öruggari en
nokkur önnur þjóð í veröld-
inni — og alt og sumt sem vér
þurfum að gera, er að reyna
að komast út úr bráðabirgða
ógöngum. Það getum vér gert.
Til þess útheimtist nokkur
fórnfýsi i svip af allra hálfu.
Og þeir, sem best mega við því,
verða mestu að fórna. í þeirri
al^sherjar fórnfýsi eru ráðherr-
arnir boðnir og búnir- lil þess
að leggja fram drjúgan skerf
af sinni hálfu.“
□ Edda 59312247 = 2.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson. Kl. 2 barna-
guðsþjónusta (sr. Fr. H.). Kl.
5 síra Friðrik Hallgrímsson.
í frikirkjunni kl. 2, síra
Árni Sigurðsson.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 árd. og kl. 6 siðd. guðs-
þjónusta með predikun.
í spítalakirkjunni i Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9 árd. og kl.
6 síðd. guðsþjónusta með pre-
dikun.
Dm Svana
Það er nú rúmur mánuður
síðan h.f. Svanur tók til starfa
og byrjaði framleiðsluna af
Svanasmjörlíki. Það niá með
saríni segja, að á þessum stutta
tíma hefir Svana-smjörlíkið átt
meiri vinsældum að fagna og
náð meiri útbreiðslu en algengt
er um nýjar vörur, sem koma
á markaðinn. — Enda liefir
reynslan orðið sú, að svo að
segja allir, sem hafa.reynt þetta
smjörliki, hafa verið sammála
um það, að það. væri betra og
líkara góðu smjöri en nokkurt
annað smjörlikí, sem þeir hefðu
bragðað.
Til leiðbeiningar fyrir þá,
sem ekki hafa reynt Svana-
smjörlíki, skal liér stultlega
skýrt frá því, livað ein af þekt-
ustu matréiðslukonum þessa
bæjar, ungfrú Helga Sigurðar-
dóttir, kenslukona í matreiðslu
við nýja barnaskölann i Reykja-
vík, segir um Svana-smjörlíki,
eftir að liafa notað það síðan
það kom á markaðinn:
Svaría-smjörlíkið er.svo likt
góðu smjöri, að mjög litinn eða
engan mun er að finría á því
ofan á braúð.
Til að steikja og brúna úr þvi
er það sérstaklega gott, það
verður fljótt og fallega brúnt,
án þess að brenna við.
Fiskur brúnast jáfnt og vel
og með fallegum gljáa, eins og'
úr góðu smjöri, og sama er að
segja um kjöt, það brúnast jafnt
og fljótt.
Kartöflur: Ætli maður að
brúna kartöflur sérlega vel, hef-
ir iríér reynst nauðsynlegt hing-
að til að nota smjör til þess, en
úr Svana-smjörlíki eintómu
reyndust mér kartöflurnar
brúnast jafnvel, eins og úr
smjöri.
Háskólafyrirlestur.
t kveld kl. 6—7 flytur próf.
dr. Ágúst H. Bjarnason þriðja
fyrirlestur sinn um vísindaleg-
ar nýjungar i 1. kenslustofu
Háskólans. öllum Heimill að-
gangur. Fyrirlestrinum verður
útvarpað.
Leikhúsið.
Annað kveld verður leikinn
„Oklóberdagur“, sjónleikur í
þrem þáttum, eftir Georg Kai-
ser, og á undan sýndur „Stig-
inn“, leikur í einum þætti, eftir
Lárus Sigurbjömsson.
Brætt með fiski hafði það
greinilegan smjörkeim og und-
ir það safnast svo að segja eng-
inn sori eða botnfall.
Til baksturs reyndist mér það
sérlega vel, sérstaklega í íinoð-
að fínt brauð og kökur. Það ér
sérlega gott að hnoða úr því,
og þar af leiðandi eins létt að
hreiða deigið út eins og smjör
væri í þvi.
Sérstaklega finst mér þó eft-
irtektarvert, hve vel það •reynd-
ist i „smjörkremi". Mér liefir
aldrei tekist að búa til verulega
gott smjörkrem úr smjörlíki
fyr en ég reyndi Svana-smjör-
líki. Smjörkrem úr því varð svo
gott að mínum og margra ann-
ara dómi, að ekki var hægt að
finna annað en að smjörkreirí-
ið. væri úr besta smjöri. ,
Yfirleitt get ég sagt, að Svana-
smjörlíki hefir reynst mér
miklu betur, og að vera likara
góðu smjöri en annað .smjör-
líki, sem ég liefi notað hér
heima.
Inc.
ísfiskssala.
Júpiter seldi afla sinn i Eng-
landi i gær fyrir 1754 st.pd.
’og Ari fyrir 1536 stpd.
Pétur Sigurðsson
flytur fyrirlestur í Yarðar-
liúsinu á morgun kl. 5 e. h. mu
týnda soninn og synd hans.
Innflutningur.
FB. 20. febr.
Fjármálaráðuneytið tilkynnir:
Innfluttar vörur í janúar kr.
3.477.054.00. Þar af til Reykja-
víkur kr. 2.594.110.00.
í frikirkjunni i Hafnarfirði
kl. 2, síra Jón Auðuns.
Hjálpræðisherinn: Samkom-
ur á morgun: Helgunarsam-
koma kl. 10% árd. Kapt. A. 01-
sen stjórnar. Sunnudagaskóli
kl. 2 síðd. Hjálpræðissamkoma
kl. 8. Lautn. H. Andrésen stjórn-
ar. Lúðrafl. og strengjasveitin
aðstoða. Allir velkomnir.
Heimilasambandið lieldur
fund á mánudaginn kl. 4. Frú
Ensain Árskóg talar.
Þorraþræll
er i dag og mun vera kald-
asti dagur, sem hér liefir kom-
ið á vetrinum.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman i
hjónaband í Kirkjutorgi 4 liér
í bæ, ungfrú Eirikka Árnadótt-
ir og Þorgr. Evjólfsson, Kefla-
vik.
Sigurður Gíslason
múrari, Óðinsgötu 23, á 66
ára afmæli á morgun.
Alþýðufræðsla Guðspekifél.
sunnudaginn 22. febr. 1931:
Hallgrímur Jónsson, kennari
segir frá William Stead og bók,
sem hann reit eftir andlátið,
Samkoman liefst kl. 8y2 síðd. í
Guðspekifélagshúsinu. Aliir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Wolfgang von Gronau,
þýski flugmaðurinn, er flaug
t'i'á Þýskalándi til Vesturheiihs
i fyrrasumar, um ísland og
Grænland, liefir i hyggju að
fljúga aftur vestur um liaf í
sumar, sömu leiðir, til þess að
afla sér frekari reynslu um það,
hvort tillækilegt muni að koma
á reglúbundnum ílugferðuin
milli Evrópu og Vesturheims á
norðurhveli jarðar. — Fregu
um þetta áform v. Gronau var
birt í amerískum blöðum í byrj-
un þessa mánaðar.
i
Belgaum
kom af veiðum í gærkveldi
með 2600 körfur. Fór til Eng-
lands i nótt.
Þetta segir þessi kunna
kenslukona í matreiðslu um
Svana-smjörlikið, og sama hafa
fjöldamargar húsmæður sagt,
sem reynt hafa þetta ágæta
smjörlíki.
Svana-smjörlíki er líka fram-
leitl eftir nýjustu visindaleguni
rannsóknum og inniheldur eíni,
sem eru mjög auðug af A og B ?
| fjörefnum og auk þess (Kloro-
phyl)' blaðgrænuefni, sem gefa
gróðrarsmjöri sinn sérstaka
góða kcim og næringargildi, og
þessi efni eru það, sem meðal
annars gefa Svana-smjörlíki
sinn sérstaka smjörkeim.