Vísir - 25.04.1931, Blaðsíða 2
VlSIR
K—A—U—P—M—E—N—N.
Ef ykkur vantar?
JARÐARBERJA-SULTUTAU
(1 lbs. & 2ja Ib. gl. & 7 lb. dnk).
BLANDAÐA SULTU
(1 lb. & 2ja Ib. gl. & 7 Jb. dnk.).
APPELSÍNU-SULTU
(1 Ib. gl.)
þá hringið í síma 45 (3 línur).
Bændaveldið.
—o---
Kjördæmaverslun Framsóknar.
Smásala. — Heildsala.
—o—
Stjórnin lætur jtaó í veðri
vaka, að hún haí'i rofið þingið
sökum þess, að uppvíst hafi
orðið, að í ráði væri að gera svo
stórfeldar breytingar á kjör-
dæmaskipuninni, að bændur
hefðu verið sviftir þeim álirif-
um á stjórnmál landsins, sem
þeir bafi haft um nær 100 ára
skeið. Og Framsóknarflokkur-
inn mun nú ætla sér að slá á
þá strengi, í kosningabaráttu
þeirri, sem fer i hönd, að bænd-
ur verði að slá skjaldborg um
þá menn, sem varðveita vilja
þau helgu „réttindi“, sem bin
gamla kjördæmaskipun lands-
ins veiti þeim.
Það eitt, að kjördæmaskipun-
in er orðin því nær 100 ára
gömul, er nú auðvitað nægilegt
til að sanna það, að hún hlýtur
að vera orðin ranglát og úrelt,
svo stórfeldar breytingar sem
orðið bafa í landinu á þessu
árabili. Enda er ranglæti kjör-
dæmaskipunarinnar svo aug-
ljóst, að engin þörf er á að rök-
ræða það. Og foringjar Fram-
sóknarflokksins reyna heldur
ekki að verja það ranglæti, sem
þessi kjördæmaskipun hefir í
för með sér, með öðru en því,
að með því séu bændum trygð
yfirráðin i landinu.
En nú er það svo, um bænd-
ur, eins og aðra menn, að þeir
skipa ekki allir einn flokk.
Bændurnir hér á landi skiftast
aðallega í tvo flokka. Sumir
þeirra fylgja Framsóknar-
flokknum en aðrir Sjálfstæðis-
flokknum. Það mun láta nærri,
að þeir skiftist til belminga
milli þcssara tveggja flokka. Nú
berjast þessir tveir flokkar um
völdin í landinu, annar helm-
ingur bændanna á móti hinum.
Sjálfstæðisflokkinn fyllir, auk
bændanna, allur þorri ibúa í
kaupstöðunum. En ranglát
kjördæmaskipun veldur því, að
sá flokkur kom ekki að, i síð-
ustu kosningum, nema 14 þing-
mönnum, en sá helmingur
bændanna, sem fyllir Fram-
sóknarflokkinn, kom að 18
þingmönnum. Hver þingmaður
Sjálfstæðisflokksins liafði þó að
baki sér tvöfalda kjósendatölu
á við hvern þingmann Fram-
sóknarflokksins.
Þannig er ]>að augljóst, að
það eru að eins „Framsóknar“-
bændur, sem njóta góðs af
' ranglæti kjördæmaskipunar-
innar. Aðrir bændur landsins
eru svo að segja réttlausir. Og
hin 100 ára gamla kjördæma-
skipun getur á engan hátt trygt
bændastéttinni yfirráðin í land-
inu; hún gefur að eins þeim
bændum, sem fylla Framsókn-
arflokkinn meiri rétt en hinum,
en hún tryggir þeim þó ekki
heldur yfirráðin.
Og foringjar „Framsóknar“-
flokksins, sem með engu móti
vilja unna þeim helmingi bænd-
anna, sem Sjálfstæðisflokkinn
skipar, jafnréttis við Framsókn-
arbændurna. Þeir hafa sýnt það,
að þeim er ekki annara um
bændaveldið i landinu en svo,
að ]>eir cru altaf reiðubúnir að
versla við jafnaðarmennina, og
selja þcim meira og meira af
þeim réttindum og þvi valdi.
sem ])eir lála í veðri vaka, að
þeir vilji láta bændurna sitja að.
En þessi vershin við jafnaðar-
menn er þó þeim skilmálum
bundin, að Framsóknarflokkur-
inn fái að fara mcð völdin.
Framsöknarflokkurinn komst
til valda, með stuðningi jafn-
aðarmanna, eftir síðustu kosn-
ingar. — Jafnaðarmenn seldu
stuðninginn fyrir ýms fríðindi,
en þeir kröfðust auk þess fleiri
þingsæta. — Framsóknarmenn
voru fúsir að versla við þá, en
vildu þó ekki gera neina gagn-
gerða breytingu á kjördæma-
skipuninni, af ótta við það, að
Sjálfstæðisflokkurinn nyti góðs
af því. í fyrstu reyndu þeir að
friða jafnaðarmenn með því, að
selja þeim rétt ])eirra i smásölu.
Þannig samþyktu þeir, að gera
Hafnarfjörð að sérstöku kjör-
dæmi og taka þingmanninn af
íbúum Gullbringu- og Kjósar-
sýslu. Þó að bændur í Gullbr.-
og Kjósarsýslu væri með því
sviftir áhrifum og bændaveldið
rýrt, ])á skifti það ekki máli, af
því að þar átlu Sjáffstæðismenn
í hlut. En Jafnaðarmenn lctu
sér þetta ekki lynda. Þeir vildu
fá þingmannatölu í hlutfalli við
kjósendatölu sína. — Þá fóru
Framsóknarmenn að undirbúa
heildsölu á kjördæmum í hend-
ur jafnaðarmanna. Sú verslun
var fyrirhuguð þannig,,að land-
kjörið skvldi lagt niður og þeim
þingsætum, sem þannig losn-
uðu, síðan skift á milli jafnað-
armanna og framsóknarmanna,
með stofnun nýrra kjördæma
og fjölgun þingmanna i kjör-
dæmum, þar scm örngt væri,
að jafnaðarmenn eða framsókn-
armenn væri í meiri liluta eða
nvti þingmannafjölgunarinnar.
Þannig var það boðið fram,
að gera Siglufjörð og Neskaup-
stað i Norðfirði að sérstökum
kjördæmum, fyrir jafnaðar-
menn, og jafnvel að bæta við
einum þingmanni í Reykjavík.
Og i ráði mun bafa verið, að
bæta við einum ])ingmanni i
Suður-Þingevjarsýslu.
Foringjar Framsóknarflokks-
ins voru þannig ekki að eins
reiðubúnir að gcra brevtingar
á kjördæmaskipuninni, með
fjölgun kjördæma, þeir voru
þess albúnir að svifta bændur
áhrifum, með þvi að leggja nið-
ur landkjörið. Þeir voru þess al-
búnir, að rýra vald bændanna
og auka vald iafnaðarmanna.
Þeir voru ])ess albúnir að taka
upp heildsöluviðskifti við jafn-
aðarmenn á þeim grundvelli, að
taka réttindi og áhrif af Sjálf-
stæðisbændum og fá þau í liend-
ur jafnaðarmönnum í kaupstöð-
unum. — Þannig standa þeir á
verði um bændaveldið í landinu,
foringjar Framsóknarflokksins.
Það var augljóst, að jafnaðar-
menn og framsóknarmenn
liöfðu bohnagn til þess í þing-
inu, að fá það samþykt, að
leggja niður landkjörið. Þegar
af þeirri ástæðu var Sjálfstæðis-
flokkurinn tilnevddur að taka
upp samninga við jafnaðar-
menn, um breylingar á kjör-
dæmaskipuninni, auk þess sem
þeirri kröfu liefir ár frá ári ver-
ið að aukast fylgi meðal Sjálf-
stæðismanna, að' kjördæmaskip-
un og kosningalögum yrði
breytt þannig, að allir kjósend-
ur, hvar sem er á landinu, fengi
jafnt atkvæði um landsmál.
Símskeyti
—o----
Paris 24. apríl.
United Press. FB.
Dánarfregn.
Látin er hér Isabella, frænka Al-
fonso fyrrverandi konungs, áttatíu
ára gömul, eftir langvarandi las-
leika. Hún kom hingað eftir að Al-
fonso afsalaði sér völdunúm.
Madri 24. apríl.
United Press. FB.
Þjóðþingskosningar á Spáni.
Búist ér við, að kosningar til
þjóðþings fati fram 21. júní. Ca-
bellero, verkamálaráðherra, hefir
verið falið að útbúa boðskap um að
veita öllum kosningarrétt, sem hafa
náð tuttugu og þriggja ára aldri, i
stað tuttugu og fimm ára. Einnig
hefir verið hafið undirbúningsstarf
um tilhögun þingkosninganna.
NRP 24. apríl. FB.
Bæjarrekstur á kvikmyndaleik-
húsum.
Hagnaður af kvikmyndasýning-
um í Osló varð kr. 736.000 árið sem
leið, eða 100.000 meira en árið þar
á undan. Tvö hundruð þúsund
krónum af ])essári upphæð verður
varið til menningarmála.
NRP 24. april. FB.
Dómur í máli Diisseldorf-
morðingjans.
Dússeldorf-morðingmn, sem á-
sakaður hafði verið um að hafa
framið fjölda glæpa, var fundinn
sekur um níu morð, og var dæmd-
ur til lífláts.
Ottawa 24. apríl.
United Press. FB.
Frá Watkinsleiðangrinum.
Stjórnarvöldin liafa tilkynt,
að ógerlegt sé að freista þess
frá Canada, að gera tilraun til
að koma til hjálpar Augustine
Cortauld, sem er ])átttakandi
í leiðangri Watkin’s hins
breska til Grænlands. Leiðang-
ur þessi var farinn til þess að
athuga flugslcilyrði á leiðinni
milli Canda og Bretlands um
Island og Grænland. Seinast, er
menn vissu til Courtauld’s, var
hann 140 sjómílur frá Ang-
magsalik.
London: í ráði er að senda
flugvélar til Austur-Grænlands,
um Færeyjar og Island, til að-
stoðar Watkins-Ieiðangrinum.
Srnjdr og smjOrllki.
:-O--
Fyrir nokkrum árum auglýsti
smjörlíkisgerð i Rvík fjörefni
(vitamin) í smjörlíki sinu. Heil-
brigðisnefnd bæjarins lét þá
prófa þessa vöru, með dýratil-
raunum. Útkoman varð sú —
eins og við mátti búast — að
fjörefni var ekki í smjörlíkinu,
sem neinu nam. Rottuyrðlingar,
sem fóðraðir voru á því, tóku
sjúkdóma (avitaminosis), og
vesluðust upp. Nákvæm lýsing
á tilraununum birtust í Lækna-
bl. 1925, 8. tbl.
Á síðustu árum hafa verið
gerðar ýmsar tilraunir, til þess
að smjörlíkið yrði jafngilt
smjöri, að þessu leyti. Aðferðin
sú, að blanda smjörlíkið efnum,
sem verksmiðjur bafa fram-
leitt og talið fjörefnarik. Ýmsar
sm jörlikisverksmiðjur erlendis
liafa varið miklu fé til
slikra tilrauna. En svo má heita,
að allt bafi komið fyrir ekki.
Staðhæfingar smjörlíkisgerð-
anna um fjörefni hafa ekki
staðist rannsóknir á ábyggileg-
um visindastofnunum.
Hið sanna í málinu mun vera
þetta: í verksmiðju má fram-
framleiða smjörlíki, sem jafn-
gildir nokkurn veginn vetrar-
smjöri, að því er fjörefni snert-
ir. En framleiðslan verður svo
dýr, að því fer fjarri, að hún
svari kostnaði. Þess vegna verða
menn — enn sem lcomið er —
að kaupa smjör, til þess að
tryggja sér fjörefni í viðbitinu.
Nýlega auglýsti ein verk-
smiðja í Reykjavík fjörefni í
smjörlíki. Var gefið í skyn, að
framleiðsla verksmiðjunnar
jafnaðist að ])essu leyti á við
smjör, og liefði jafnvel í sér
enn fleiri tegundir fjörefna en
smjör! Þetta hefði einliverstað-
ar erlendis þótt saga til næsta
bæjar. En viti menn. Jafnharð-
an auglýsa liinar verksmiðjur
bæjarins, að þeirra smjörlíki sé
lika auðugt að fjörefnum!
Eg efast um, að svo ógætilega
orðaðar auglýsingar mundu
látnar óátaldar annarstaðar á
Norðurlöndum, af heilbrigðis-
völdunum. Engin af þessum
verksmiðjum hefir fært sönnur
á staðliæfingar sínar. Því miður
eru allar líkur til, að fullyrð-
ingar þessar séu ósannar, og
skyldi enginn leggja trúnað á
auglýsingar um f jörefni i smjör-
líki, nema vottorð fylgi frá
ransóknarstofu erlendis, er heil-
brigðisstjórn landsins tekur
gilda.
Að jafnaði taka menn ekki
lil þess þótt kaupsýslumenn
kríli liðugt í auglýsingum sin-
um, frekar en ])restur sem tal-
ar yfir dauðum manni. Það er
ekki fárast um, þótt eínhver
kaupmaður auglýsi besta sæl-
gætið í bænum eða bestu vind-
lingana.
En öðru máli er að gegna um
lýsing framleiðanda á fjörefn-
um 1 matvælum. Eins og hög-
um þjóðféjagsins og matarliæfi
nú er komið, verður heilbrigði
kynslóðarinnar að byggjast á
réttum hugmyndum, um hita-
gildi og fjörefnagildi aðalfæðu-
tegundanna. Káupmenskan fer
of langt, þegar revnt er að raska
staðreyndum vísindanna í þessu
efni.
Eg lcyfi mér hér með að skora
á heilbrigðisriefnd bæjarins, að
láta gera fjörefnarannsókn á
smjörlíki því, sem framleitt er
liér i bænum. Rannsókn þessa
er ekki unnt að gera hér á landi,
en verður að fela vísindastofn-
ÍXÍOÍXSÍSÍSÍÍOiKXKÍÍÍriOOOOOOriOOÍX
MOTORLAMPAR
x
X
jj ern á&yggilegastlr.
Umboðsmenn:
Þórðnr Srelnsson & Co.
SOOOOOOOOOOiXXXXXÍOOOOOOOOÍ
Girðinganet galv.
í 50 lengdar yds. rúllum, með
%—3 þml. möskvum eru ný-
komin.
Verðið er miklu lægra en
nokkru sinni fyr.
VERSL. B. H. BJARNASON.
un erlendis, sem laka má gilda
til þessara athugana.
G. Cl.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Friðrik Hallgrímsson (ferm-
ing). Engin síðdegismessa.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 árd. og kl. C síðd. guðs-
þjónusta með prédikun.
1 spítalakirlcjunni í Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9 árd. og kl.
6 síðd. guðsþjónusta með pré-
dikun.
Slys.
Sigtryggur Eiríksson lög-
regluþjónn, datt af hestbaki
um ld. 2 í gær, og meiddist all-
mikið. Hann ætlaði upp í sveit
ásamt tveim mönnum öðrum
sér til skemtunar, og reið ung-
um og fjörugum hesti. Réði
hann ekki við hestinn og liljóp
hann á bifreið á gatnamótum
Laugavegs og Barónsstígs. Sig-
tryggur bentist fram af hestin-
um, yfir bifreiðina og kom nið-
ur á andlilið í götuna og meidd-
ist mikið á höfði, en hestinn
sakaði lítið.
Skíðamennirnir komnir fram.
Tómas Bjarnason bóndi í
Helludal kom i nótt að austan,
og segir að skíðamennirnir Guð-
mundur Skarphéðinsson skóla-
stjóri á Siglufirði og Torvö
skíðakennari hafi komið að
Gigjarlióli á sumardaginn
fyrsta. Ilöfðu þeir skilið eftir
farangur sinn í nánd við Blá-
fell. Færð var vond, en menn-
irnir þó ekki þjakaðir til muna,
samkvæmt síðari fregnum.
„Verkin tala.“
Það hefir löngum verið erfitt og
kostnaðarsamt að komast austur yf-
ir Hellisheiði. Og ekki virðist sá
kostnaður fara minkandi síðustu ár-
in, að minsta kosti ekki þegar „stór-
höfðingjar“ og „máttarstólpar þjóð-
félagsins“ eiga hlut að rnáli. Samt
hafa fargjöld með bifreiðum lækk-
að. Síðastliðið ár kostaði ekki nema
5 kr. að sitja i ágætis hifreið austur
að Selfossi, eða xo kr. báðar leiðir.
Einn af höfðingjum stjórnarflokks-