Vísir - 20.10.1931, Page 3
V I S I B
fl Ssaurt bmuS.
Q J ‘4 111 a«8ti etc.
s* /llill Bent hcÍK*
O fiaUIU Vtiíiísat
iáT8T0F&N, Aðalgtrætl 9.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiojunni.
Vandaðir og ódýrir.
Stór verðlæltkiun.
Barinn riklingur, 1 króna pr.
Vs kg. Einnig harðfiskur, 1
króna pr. 'A ltg. Hafið þio
heyrt það.
Von.
nienn eru svo gerðir, að þeim
þykir alt við liggja, að sí og æ
sé verið að tala um þá.
Eg vil nú leyfa mér að biðja
„Vísi“ að birta kafla úr bréfi
frá kunningja mínmn, ungum
manni, sem dvalist liefir í Sví-
þjóð undanfarna mánuði. Er
þar lauslega minst á væntanlega
komu Jónasar til Stokkhólms.
Bréfkaflinn er á þessa leið.
„Heyrt liefi ég þvi fleygt
meðal jafnaðarmanna hér og
jafnvel séð þess getið í blöð-
um, að hingað sé væntanlegur
innan skamms dómsmálaráð-
herrann ykkar eða okkar, Jón-
as Jónsson frá Hriflu. Hafa
jafnaðarmenn eitthvað verið að
undirbúa komu lians og jafnvcl
reynt að lcoma því til leiðar,
að hann fengi að lala liér í út-
varp. Ekki skil ég í því, að það
geti orðið skemtilegur lestur og
£r mér enn minnisstæð útvarps-
íala hans i Reykjavik síðastlið-
íð vor. Öáheyrilegra rabb mun
fágætt og mildll munur var á
þeirri þvælu og ræðu Trvggva
í»órhallssonar. Hún var all-
sköruleg og vel flutt. Um inni-
haldið skal ég ekki dæma. Pað
mun nú liafa verið svona og
evona — vatnsgrautur og vit-
-ieysa. En svo að ég viki aftur
að Jónasi, þá verð ég að segja
það, að mér finst kvíðvænlegt,
ef liann fer að mala hér i út-
varpið. Væri hann snjall ræðu-
maður, liti þetta alt öðru vísi út.
Leiðinlegir ræðumenn eru alveg
óþolandi í útvarpi.
Jafnaðarmenn hér munu hafa
talið sér skylt, að greiða götu
Jónasar efiir föngum, cnda eru
þeir, eins og aðrir Svíar, hinir
mestu greiðamenn og höfðingj-
ar heim að sækjá. Og þeir vita
sjálfsagt líka, að Jónas er einn
af þeirra sauðahúsi í raun og
veru, þ. e. jafnaðarmaður, þó
að liann telji sig fulltrúa bænd
ailná á íslandi.
Vafalaust verður Jónasi vel
iekið hér eða öllu lieldur manni
i ráðherrastöðu frá íslandi. Þar
skiftir nafn mannsins engu
máli. Viðtökurnar éru miðaðar
við embættið, en ekki manninn,
sem emhættinu gegnir. Sviar
eru kurteisir og munu jafnan
sýna háttsettum embættismönn-
um frá öðrum ríkjum fullan
-sóma, liversu sem þeim kann að
geðjast að mönnunum sjálfum.
Jónas mun vera væntanlegur
næstu daga og býst eg nú við,
að jafnaðarmenn fari að skrifa
um hann fyrir alvöru. Vildi ég
nú óska, að hann yrði landi sínu
fremur til sóma en vansa. Það
ær svo leiðinlegt og skaðlegt
fyrir þjóðina, ef litið er á æðstu
embættismenn hennar, eins og
ÆÍnhver viðundur. — Eg kvíði
mest fyrir útvarpsræðunni. Eg
er hræddur um, að hún verði
svo þraut-leiðinleg, að allir
íhlustendur steinsofni ....“.
Þ.
Síðara hefti XII. árgangs er
nú komið út. Efnisyfirlitið er
sem hér segir: „Hvernig vitið
]>ér það?“ (Erindi eftir Einar JI.
Kváran). „Upprisan og Iífið“
(Prédikun eftir síra Arna Sig-
urðsson). —- „Dulrænar mynd-
breytingar efnisins“ (Eftir Sig-
urð H. Kvaran, lækni). — „Pas-
cal Forthuny" (Erindi eftir sira
Kristinn Daníelsson). — - „Nátt-
úru-andar“. — „Dulheyrnir og
fjarsýni“ (Eftir Jakobínu Þ.
Þórðárdóttur frá Laugabóli).
„Ýms dularfull fyrirbrigði“
(Eftir Þórð Kárason frá Stóra-
Fljóti í Biskupstungum). -r-
„Sýn“ (Eftir Ingunni Pálsdótt-
ur frá Akri). — „Þau voru ekki
lengi að liittast“ (Eftir Lóu). —
„Hvernig Robert James Lees
kom upp um Jakob kviðrist-
ara“ (Þýðing eftir síra Kristinn
Danielsson). — „Ritstjóra-rabb
Morguns um hitt og þetta'Ý —-
„Morgunn“ er orðinn kærkom-
inn gestur á mörgum lieimilum
viðs vegar um land. Meðan alt
leikur í lyndi, lmgsa ýmsir lít-
ið um andleg efni. En þegar
sorgin ber að dyruin, snúast
hugir manna inn á við og fara
að leita skýringa og svara við
ráðgátum tilverunnar. — Eg
skal nefna sem dæmi, að ung-
ur bóndi norðanlands misti fyr-
ir skömmu konu sína, sein hann
unni hugástum. Hann hafði vist
lítið hugsað mn „lifið eftir
dauðann“, og yfirleitt látið sig
litlu skifta öll andleg mál. En
sorgin beindi huga lians að ei-
lífðarmálunum. Og hann skrif-
aði kunningja sinum hér i bæn-
um og bað hann að senda sér
nokkur hefti af „Morgni“. —
Kvaðst liann liafa lesið margar
prédikanir og guðsorðabækur í
raimum sinum, og þó að sumar
þeirra væri sjálfsagt góðar, þá
fyndi hann þar litla hugsvölun.
Hins vegar sagðist hann liafa
náð í eitt hefti „Morguns“, og
að lestrinum loknum hefði sér
fundist, eins og ofurlitið færi
að rofa til og byrði sorgarinnar
væri ekki jafn blý-þung og áð-
ur. —- Bjóst hann auðsjáanlega
við, að þar væri helst stvrk að
fá í sorg og söknuði. Honum
voru sendir fáeinir árgangar
„Morguns“, og liann hefir síð-
an látið svo um mælt, að lestur
ritsins hafi orðið sér til mikill-
ar blessunar. — Nú trúi hann
því fastlega, að konan sín lifi
í fegurra heimi, og þá sennilega
á einhverri annari stjörnu. Hall-
ast hann þar að kenningum. dr.
Helga Pjeturss, og kveðst telja
skýringar lians á bústöðum
framliðinna skynsamlegri en alt
annað, sem hann liafi um þau
efni séð á prenti. En aðalatriðið
i sínum augum sé það, að maö
urinn lifi, þó að hann deyi. Og
liann bætir því við, að i raun
réttri sé dauðinn ekki framar
til, þegar vissa sé fengin um
framhaldslífið. Hann sé bara
fataskifti. í dauðanum leggi
maðurinn af sér tötrana mis
munandi slitna tötra.
H. E.
Veðrið í morgun.
, Híti í Reykjavík ú- i st., ísa-
firði i, Akureyri -f- 2, Seyciis-
firði -4- i, Vestmannaeyjum hiti
1. Stýkkishólmi -f- i, Blönduósi
2, Hólum í Hornafiröi 1,
Grindavík 1, Færeyjuni 3, Juli-
anehaab 6, Jan Mayen -f- 3, Ang-
magsalik 10, Tynemouth 7 og
Kaupniannahöfn 10 st. (Skeyti
vantar frá Raufarhöfn og Hjalt-
landi).- Mestur hiti hér í gær 8 st.,
minstur ~ 3 st. Sólskin í gær
8.0 klst. Yfirlit: HáþrýstisvæSi,
779 mm., yfir Islandi. Djúp lægð
yfir Skandínavíu veldur hvassri
norðanátt milli Islands og Nor-.
egs. — Horfur: Suðvesturland,.
Faxaflói,. Breiðafjörður, V*estfirð-
ir: Hægviðri. Úrkomulaust, en
nokkuð skýjáð. Sunnanátt á morg-
un. Norðurland, norðausturland:
Norðan gola eða kaldi, og sum-
itaðar snjóél í dag, eu kýrt og
hjart veður í nótt. Austfirðir, suð-
austúrland: Mirikandi norðan
kaldi. Úrkomulaust og léttir til.
Silí'urbrúðkaupsdag
eiga í dag, 20. okt. Tlieódóra
Kristjánsdóttir og Þorkell Guð-
irandsson, Ljósvallagötu 18.
Stolið úr sparisjóðsbók.
í sumar var stolið 10.000 krón-
iim úr sparisjóðsbók aldraðrar
konu, en eigi varð hún þess vör
fyrr en nýlega. Hafði hún ákveð-
inn mann grunaðan um þjófnað-
inn og gerði lögreglunni aðvart
um hann. Maðurinn var handtek-
iun og meðgekk hann þjófnaðinn.
Mestum hluta fjárins hafði hann
eytt í utanför.
Aflasala,
Hannes ráðherra og Gyllir seldu
i Þýskalandi í gær, Iiaiines fyrir
27.500 niörk, eu Gjdlir fyrir 28.
900. Er þetta ágætt verð. Andri
mun um það bil að selja, því hann
var í Norðursjónum á föstudag á
leið til þýskalands.
T rúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Guðrún Guðmunds
dóttir, Laugaveg 42 og Ottó Guð
mundssoii sjómaður, Hafnarfirði.
Trúlofun
sína hafa nýlega opinberað
ungfrú Guðrúii Daníelsdóttir frá
Isafirði og Guðni Sveinsson,
Laugaveg 99.
Goðafoss
fór frá Hull í gær áleiðis hing
að.
Dettifoss
kom til ísafjarðar kl. 1 í dag
Væntanlegur hingað þ. 22. þ. m
Selfoss
liggur hér nú.
Gullfoss 1
er í Stykkishólmi. Væntanlegur
hingað þ. 22. þ. m.
Brúarfoss
fór frá London í gær, áleiðis
ti! Hull, Leith og Reykjavíkur.
Lagarfoss
var á Mjóafirði í gær.
Strandferðaskipin.
Súðin var í Búðardal í morgun.
Væntanleg hingað á morgun.
Esja var á Seyðisfirði í morgun.
Á að vera hér samkvæmt áætlun
23. ]>. m.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag Guðrún Brynjólfs-
dóttir og Björu S. Jónsson, Suð-
urpól 16; fregn um þetta hafði
misprentast í blaðinu í gær.
Ms. Dronning Alexandrine
kom að norðan í nótt.
Lyra
kom frá útlöndum í nótt.
Gengisskráning hér í
Sterlingspund .
Dollar .......
Dansltar krónur
Sænskar krónur
Norsltar krónur
Þýslt rikismörk
Frakkneskir frankar
Svissneskir frankar
Jelgur . .
Pesetar .
Lirur ...
Gyllini . .
Tékkneskar krónur
dag:
kr. 22.15
— 5.721/2
— 125.85
133.40
125.85
134.98
22.65
112.95'
80.23
51.91
30.02
233.14
17.30
V erslunarmannaf él. Reykjavíkur
hefir nú skift um fundardag.
i'ramyegi.s verðá fundir á mið-
vikudögum. Annað kveld kl. 8J4 í
Kaúpþingssalnum verður spila-
kveld og bókaútlán.
Karlakór Iðnskólans.
Fundur annað kveld í Iðnskól-
anum kl. 10. Mjög áríðandi að all-
ir mæti.
Innanfélags sundmót
hafa staðiö yfir að undanförnu
hér i sundlaugunum innan við hæ-
inn; hjá „Ármann", .„K. R.“ og
„Æg'ir", og lauk síðasta mótinu i
fyrradag. Árangurinn hefir yfirleitt
verið góður, og á suinum vega- ■
lengdum prýðilegur.: —Fyrir vet-
urinn þyrfti bæjarstjórnin endi-
lcga að láta setja nokkur ljósker
við sundlaugarnar, svo. að hægt
sé að halda sundæfingum lengur
áfram á daginn, þó farið sé að
skyggja. Kostnaðurinn er svo að
segja eriginn, þvi ljóskerastaur-
arnir standa rétt við Iaugarnar,
og þarf eigi annaö en að setja
ljóskerin á ]>á. — En fyrir alla
]>á, sem sund iðka, er þetta mik-
ið hagræði, og eins fyrir skóla-
nemendur, sem gætu auðveldlega
lært sund í vetur og iðkað það.
Sundmaður.
Nýja Bíó
sýnir í fyrsta sinn í kveld
þýska lal-, liljóm- og söngva-
mynd, sem kölluð er „Lokkandi
markmið“, Aðallilutverk leikur
óperusöngvarinn Richard Tau-
ber, frægasti söngvari Þýska-
lands nú á dögum. Ivvikmynd
sú, sem liér um ræðir, er fögur
og tilkomumikil.
X.
Gamla Bíó
sýnir í fyrsta sinn í kveld
kvikmyndina „Dóttir frum-
skóganna“. Aðalhlutverk leika
Joan CrawTord, R. Montgom-
erey og Ernest Torrence. Kvik-
myndin er spennandi.
Y.
Námskeið
i Pfaff-útsaum (maskínubro-
derí). í blaðinu í dag auglýsir
ungfrú Emilía Þorgeirsdóttir,
Bergststr. 7, námskeið í Pfaff-
útsaum. IJefir ungfrúin stundað
nám við liannyrðaskóla G. M.
Pfaff saumavélaverksmiðjunn-
ar í Þýskalandi, og sýnir hún
nokkura muni, svo sem púða,
dúka o. fl. í glugga Marteins
ELinarssonar & Co. á Laugavegi
31, í dag og næstu daga. Z.
Söngkensla.
Einar Markan auglýsir í dag
að hann kenni söng í vetur,
Lestrarfélag Kvenna
Barnalesstofa félagsins í Þing-
holtsstr. 28 er opin hvern virkan
ciag kl. 4—6. Öll læs börn velkorn-
in meðan húsrúin leyfir.
.Til veiku konunnar (S.)
afhent Vísi, 2 kr. frá ónefndum.
Til máttlausa drengsins
samkvæmt hjálparbeiðni 19.
okt. 10 kr. frá „Bláu stjörnunni".
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi 5 kr. frá Guðrúnu
írá Ferstiklu, 5 kr. frá E. G. E.
Útvarpið í dag.
10.15 Veðurfregnir.
16,10 , Veðúrfregnir.
18,45 Upplestur úr frönskum
bókmentuni (Prófessor
Jolivet).
19,05 Þýzka, 1.1. flokkur.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Enska, II. flokkur.
20,00 Klukkusláttur.
Erindi: Heimskreppan,IL
(Ásgeir Ásgeirsson, f jár-
málaráðherra).
20.30 Fréttir.
21,00 Hljómleikar (Grammó-
fón—Einsöngur): Verdí
Di provenza il mar (La
Traviata). Verdi: Miei
signore perdono (Rigo-
lctto), sungin af Titta
Ruffo. Rossini: La ca-
lunnia é un venticellí;
Moussorgský: Söngurinn
um flóna, sungin af Cha-
iiapine.
21.15 Upplestur: Þjóðleg fræði
(Jón Pálsson).
21.35 Hljómleikar (Grammó-
fón): Scliubert: Kvartett
í D-moll.
Fermingarkort
margar teg. og fermingarskeyti
íást t góðtt úrvali í Safnahúsínu,
Sveinbjörn Bjfirosson
s k á 1 d. ;
-o - 11
Skáldið Sveinbjörn hníga hlaut,
þjáir meinadrunginn.
Margur reynir þunga þraut,
heljarfleini stunginn.
Óðsnillingur allmargt kvað,
orðs fór kyngi af munni.
Listaslyngur ljóðum að
lék, og hringhendunni.
Traust hans málið, trygð og dáð,
trúarbál margfaldar.
Flutt er sál á lífsins láð,
laus við tái veraldar.
K. S.
Kvæöi
flutt á haustmóti St. Drafnar nr. 5$,
í Reykjavík, 11. okt. 1931.
Guð, þú sem gætir vor,
gjörvöll um æfispor. —
Hvorki hérvistar bliða,
né börmung tímans stríða,
það valdi’ ei við þig skilja,
né vegsemd þína dylja.
Nú herðir haustið raust,
og hrekur stráið laust. —
Sverfur að sortinn hríða,
sumarsins horfin blíða. —
Gefi’ að oss gæti bræður,
guð, sem að öllu ræður.
Velkomið vertu, haust!
Vinda þó blási raust.
Hræðumst ei hretið stranga,
liér þó að bylji’ á vanga. —■
Vitum, að vorsins kraftur
vermir og lifgar aftur.
Höldum nú, halir, fund,
hressum oss þessa stund. —
Kveðjum sumarið sæla,
sólfagra, bliða’, indæla.
Þökkum það guði góðum,
glaðir með hjartans ljóðum.
Öll síðast endar þraut,
alt gengur sína braut.
Hvar sem að lokum lendir,
lífskraftinn drottinn sendir. -
Við skulum vaka’ og stríða,
vetrinum ekki kvíða!
Jens Sœniundsson.