Vísir - 26.11.1931, Page 2

Vísir - 26.11.1931, Page 2
V I S 1 R )) BtoHm i Qlsem (Gi Nýtí Pressugep er nú afíur fyrirllggjandi. n -o — I’arís, 25. nóv. Mótt. 26. Unitecl Press. FB. Mansjúríudeilan. Framkvæmdaráö ÞjótSabanda- lagsins liélt fund um Mansjúríu- ófriöinn, og stóð hann fram eftir kveldi. ÁkveiSiS var aiS senda þeg- I.Y stjórnunum i Japan og Kína uppkast aö samþykt, er fer fram á, aö Japan og Kína hverfi á brott meö heri sína, en nefnd skipuð af bandalaginu taki deilumálin til rannsóknar. I.ondon, 25. nóv. Mótt. 26. United Press. FB. Gengi sterlingspunds, miöaö viö dollar, 3.68%- New York: Gengi sterlings- ptinds 3.6ÓJ4. Washington, 25. nóv. United Press. FB. Aukakosningar í U. S. A. Demokratar hafa unnið sigur í aukakosningum í tveimur kjör- dæmum í Texas. Þingmenn demó- krata i fulltrúadeild Þjó'ðþingsins <-ru nú 218 talsins, republikana 216, en verkamenn og bændur (Far- mer-Labour) hafa einn þingmann. Kaupmannahöfn, 25. nóv. United Press. FB. Kreppuráðstafanir Dana. A sameiginlegum fundi beggja deilda ríkisþingsins, tilkynti Stau- ning íorsætisráöherra, aö ríkis- stjórnin heföi til íhugunar ýmis- konar víötækar ráöstafanir til þess aö aðstoða bændur landsins. Einn- ig kvað forsætisráðherrann i ráði að takmarka innflutning á óþarfa varningi. Frá Grænlandi Frásögn Jóns Jónssonar frá Laug. VI. Leitin að Wegener. Um miðjan apríl var leitin hafin að Wegener. Tveir Þjóðverjar og fimm Grænlendingar tóku þátt í henni og fóru á fimm hunda- sleðuin. Þeir komu að hástöð- inni 7. maí, og fréttu þá, hvern- ig komið var. Sama dag komu einnig til hástöðvarinnar báðir mótorsíeðarnir, sem lagt höfðu af stað 30. apríl frá vetrarhús- inu. I ]>eim voru tveir Þjóðverj- ar og tveir Grænlendingar. Eftir stutta viðdvöl lögðu all- ir þessir menn af stað ofan jök- ulinn. Dr. Sorge fór með þeim, sem voru á hundasleðunum, en I)r. Löve fór i öðrum mótor- sleðanum. Dr. Georgi varð einn eftir á hájökulsstöðinni á meðan. Þeir, sem fóru með hunda- sleðana, hófu leit að Wegener og Rasmus á heimleiðinni, og þegar þeir höfðu farið rúma 200 km. fundu þeir lík Wegen- ers, 180 km. frá jökulröndinni. Var það vandlega saumað innan í svefnpoka lians, og hafði Rasmus veitt þvi svo virðuleg- an umbúnað sem föng voru á. Hann hafði stungið skíðum Wegeners niður í snjóinn hjá líkinu, og komu leitarmenn fyrst auga á þau. Annars má búast við, að líkið hefði seint fundist eða aldrei. Ekki sáust á því nein kalsár, og var það ó- skaddað með öllu. Engin bréf eða skilríki fund- ust lijá líkinu. Hafði Rasmus tekið alt slíkt með sér, og verð- ur ekki vitað, hvenær Wegener andaðist, eða mcð hverjum hætti. En þá hafa þeir félagar enn verið á réttri leið, og haft nægar vistir. Rasmus hefir ekki fundist, en leitarmenn komu á slóð hans um 150 km. frá jökul- röndinni, og liafði hann þá enn verið á réttri leið. Leitarmcnn létu lík Wegen- ers óhreyft og liéldu áfram til vetrarhússins til ]>ess að til- kynna lát hans. Dr. Sorge fór skömmu síðar á hundasleða til hástöðvarinn- ar til móts við Dr. Georgi, og liéldu þeir rannsóknum sínum þar áfram fram i ágústmánuð. VII. Flutningar og rannsóknarferðir. Eg hélt altaf áfram flutning- um frá ströndinni upp að vetr- arhúsinu fram í ágústmánuð, og jafnframt flutti eg alt ofan til sjávar, sem leiðangursmenn gátu án vcrið, en á meðan því fór fram, voru sleðaferðir farn- ar inn á jökulinn til vísinda- rannsókna, samkvæmt fyrir- mælum Dr. Kurt Wegener, sem hélt kyrru fyrir í vetrarhúsinu fram um miðian ágúst. En þá lagði hann inn á jök- ulinn til ]>ess að vitja um lík bróður sins, og hitti á þeirri leið alla ]>á, sem unnu að vís- indarannsóknum á jöklinum, en ]>eir komu allir til aðalstöðv- arinnar á tímabilinu frá 1. til 15. september. Mótorsleðarnir voru sendir eftir Dr. Georgi og Dr. Sorge i ágústmánuði, og bjóst Dr. Kurt Wegener við að inada þeim, en þeir fórusl á mis á jöklinum og sáust aldrei í Grænlandi, þvi að Georgi og Sorge höfðu slutta viðdvöl í Kamarjuk og liéldu heimleiðis á Grænlandsfarinu Hans Egede. Guðmundur Gíslason og j Lissey vóru siðastir á jöklin- j um. Þeir lögðu af stað um 10. ágúst, ásamt tveimur Græn- lendingum, og ætluðu á hunda- sleðum alla leið til liástöðvar- innar, ef svo illa tækist til, að Georgi og Sorge gæti ekki kom- ist til bygða á mótorsleðunum, en á heimleiðinni var þeim ætl- að að mæla jökulhæðina á svæð- inu frá 200 km. að 100 km. frá jökulbrúninni. Þeir komust alla leið að há- stöðinni, og voru mótorsleðarn- ir þá aðeins ófarnir, og urðu langt á undan þeim til bygða. En ]>á voru mótorslcðamir svo úr sér gengnir, að ]>eir komu að engum notum úr því. En Guðmundur og Lissey komu á hundasleðunum 25. september til stöðvarinnar, og vóru þeir síðustu, sem komu af jöklinum. Daginn eftir lagði Guðmuud- ur af stað, ásamt Lissey og þremur öðrum Þjóðverjum, og fegu þeir far á „Gertrud Rask“ til Kaupmannahafnar, en það- an fór Guðmundur með Lissey til Þýskalands, og er þar enn, og veit eg ekki, hvort hann kemur lieim fyrir áramót. (Niðurl.) Meira nra Grnnd. Teofani ©f orðið i92E á boi’ðið. Peysnfatafpakkarnip eru komnir aflur, einnig herra-regnfrakkar, góðir og ódýrir, verð frá 49,75. Mér þótti þaö nýlunda og hún góö, aö sjá í dag grein í Vísi um Elliheimiliö ,,Grund“, sem eg haföi ekki sjálfur skrifað. Mér hefir lengi fundist þeir offáir, sem skrif- uðu um slíkar stöfnanir og veriö stundum hálfhræddur viö aö blaöalesendum mundi leiðast aö sjá varla greinar eftir aöra en mig um Elliheimilið. En nú skrifa eg óhræddur, því að öllum mun finnast eölilegt aö eg taki til máls, þegar aðrir hefja umræðurnar. Fyrst og frcmst er skylt að jiakka öll hlýlcgu ummælin í fyrr- nefndri grein, og engu siður aÖ aöfinningarnar eru sýnilega ritað- ar í vinahug til hælisins, og gamla íólksins. Ein þeirra er þó sérstaklega reist á, fullum misskilningi eða ókunnugleika. Athugull talar um aö fæöi sé 60 kr. og „húsaleigan“ 80 kr. fyrir vistmenn á mánuöi, en því fer meir en lítið fjarri aö þaö sé reglan aö fólk greiöi 140 kr. á mánuði fyrir sig á Grund. Sann- leikurinn er þessi eftir skýrslu forstjórans í dag: Einir þrír einstaklingar greiöa meira en 115 kr. á mánuði, hefir einn þeirra 2 herbergi og hinir tveir óvenjumikla aöhjúkrun. Ell- efu greiða 115 kr., eru „einbúar“, 25 greiða 100 kr„ eru flestir rúm- íástir. Hinir allir, eða um 70, greiða minna, 80 til 90 kr. á mán- uði. í ]>essu meðlagi felst mikið meira en fæöi og húsnæði, sem sé hiti, Ijós þjónusta, hjúkrun, læknishjálp, aðgangur að baðhcr- bergjum, kafíistofum og öðrum þægindum, sem heimilið veitir. — F.n mismunurinn á meðgjöfinni, 80 til 115 kr„ stafar af ]>vi hvar her- bergin eru i húsinu og hvort um einbýli eða sambýli er að ræða Átylla greinarhöfundar fyrir ]>essari „80 kr. húsalcigu", sem hann talar um, er sú, að vilji ein- hver fá aö vera eiusamall í stofu, sem ætluð er 2 eöa 3 vistmönnum, ]>á væri þeim manni ætlað að greiða 140 kr. á mánuöi fyrir alt saman, en um þaö hafa • sárfáir beðið eins og skýrslan sýnir, enda stjórnamefnd óljúft að láta, því að þá mundu offáir komast í húsið. Um hitt má segja í fáum orð- um: Hringingarlögn verður sett i oll herbergi, þegar fært verður að borga þaö verk, — hún er í flest- um sjúkrastofum nú. Heimsókn- artimi og ýmsar fleiri heimilisregl- ur verða settar um áramótin, Vild- um læra af reynslu áður en þær væru ákveðnar, svo að síður þyrfti að breyta þeim fljótt aftur. — Enginn hefir verið eöa er tekinn á heimilið nema hann hafi læknis- vottorð fyrir að vera ekki með uæm veikindi. — Heimiliö tekur engan framvegis með „æði eða brjálsemi“, en mörg gainalmenni . ganga i barndóm" og teljum vér ekki rétt að úthýsa þeim, ef ]>au eru ekki hávaðasöm. Annars er greinarhöfundi og I Skátastúlkur! Félagsíundur verður haldinn annað kveld (föstudag) kl. 8 í K. F. U. M. Áríðandi að allar mæti og stundvíslega. Q000£xxxx>000000000i5000000t bverjum öðrum velkomið að koina eitthvert föstudagskveld að Grund til fundar viö stjórnarnefndina. Leiðbeiningar og sanngjarnar að- finslur eru oss kærkomnar á þeim fundum. Betur sjá augu en auga, og oss er vel Ijóst, að það er meiri vandi cn vegsemd, að hafa stjórnarnefndarstörfin alveg í hjá- verkum, eins og vér höfum orðið aö gera öll þau ár, og gerum enn, alveg kauplaust, aðrir en forstjór- inn þetta síðasta ár. Athugull vill láta ríkið taka heimiliö að sér. Ekki væri ég þvi andstæður, ef gömlu fólki yrði vistin ódýrari og hagfeldari við ]>að; en ég veit ekki annað en að vist í sjúkrahúsum rikisins, öðrum en berklahælum og holdsveikra, sé miklð dýrari en á Grund, — og mér er kunnugt um, að ríkisstjórn hefir til þessa verið ófáanleg til að veita ellihælinu sjúkrahúsrétt- indi, og Alþingi styrkt það til- tölulega litið, svo að ég liefi litlar \-onir um, aö ríkið hlaupi verulega undir bagga með gamla fólkinu í jiessu tilliti. Hitt má vel vera, að Reykja- vikurbær taki hælið bráðlega að j sér frekar en orðið er. Vér höf- um alveg nýlega farið fram á við bæjarstjórn, að ellihælið fái 10 þús. kr. styrk og 20 þús. kr. lán úr bæjarsjóði í janúar n.k„ til aö standast aðkallandi skuldir frá byggingunni, og óskað eftir að bæjarstjórn bætti 2 eða 3 mönn- um í stjórnarnefndina sem vildu vinna ]>ar kauplaust, eins og vér. ' Komi heimilinu ekki slíkur fjár- styrkur frá bæ eöa borgurum, sjá- um vér enga leið til að reka heim- ilið áfram, og eigum þá, samkv. skipulagsskránni, að bjóða bænum að taka við heimilinu alveg. — Reynslan ein getur skorið úr því, hvort reksturinn verður ódýrari og vistin hagfeldari við þá breytingu. En vonandi láir oss enginn kunn- ugur, þótt kreppan valdi oss nokk- urri ]>reytu, og vér séum fúsir til að veita öðrum óþreyttum tæki- íæri til að ráða fram úr ýmsum vandamálum heimilisins. En ekki skorumst vér undan að vera meö í ráöum, meðan heilsa leyfir og bæjarbúar sýna í verki, aö þeir óska. 24. nóvember 1931- S. Á. Gíslason. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 5 st„ ísafirði 1, Akureyri o, Seyöisfirði 1, Vest- mannaeyjum 6, Stykkishólmi 3, Blönduósi -4- 1, Raufarhöfn 1, Hóhim í Hornaíirði 2, Grindavík 5, Færeyjum 6, Julianehaab 11, Angmagsalik —• 7, Jan Mayen 3 (skeyti vantar frá Hjaltlandi og Kaupmannahöfn) Tynemouth 8 st. — Mestur hiti hér í gær 7 st., minnstur 3 st. Úrkoma 0,6 mm. — Alldjúp lægö vestan viö Bretlands- eyjar, á hreyfingu norðaustur eða norður eftir. Horfur: suðvestur- land, F'axaflói: Vaxandi austan kaldi. Allhvass viö suðurströndina. Sumstaðar dálítil rigning. Breiða- fjörður, Vestfirðir, Norðurland, uorðausturland: Austan átt, vax- andi í nótt. Úrkomulaust og víða léttskýjað. Austfirðir: Stilt og bjart veður í dag, en vaxandi aust- an átt i nótt og nokkur rigning. Suðausturland: Vaxandi austan kaldi þegar líður á daginn, og nokkur rigning. Bæjarbruni. Á sunnudagskveld brann bær- inn Skjögrastaðir í Vallahreppi í Suður-Múlasýslu. Er þetta af- skektur fjallabær og var veður vont. Heima var að eins kona með 2 börn. Tókst henni aö bjarga nokkru af innanstokksmunum úr baðstofu, en sumir brunnu. Er hjálp barst, tókst aö verja önn- ur hús, en baðstofan brann. (Samkv. viðtali við Ak. FB.). Landsmálafélagið Vörður heldur fund i Varðarhúsinu annað kveld kl. 8J4. — Prófessor Magnús Jónsson alþm. hefur um- ræður um fjármagn og vinnu. Ver kom af veiðum í gærmorgun. Es. Esja á a'ð fara í síðustu strand- ferð á þessu ári 4. des. næstlc. Allir þeir, sem ætla að biðja okkur að senda vör- ur til Jólagjafa eða gegn póstkröfu út á land eru vinsamlega beðnir að tilkynna ]>að sem fyrst og helst fyrir 1. des. J&m&ttíKfáaaScn

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.