Vísir - 28.02.1932, Side 2

Vísir - 28.02.1932, Side 2
V 1 S I R Mikii verOIækkun: Nokkrar tunnur og strokka af liryggjum frá Vopnafirði — ágætis súpukjöt — seljum við fyrir ea. helming verðs. Útibúiö bættir. Kaupið fermingar- og tækifæris-gjafir fyrir lít- ið verð. — Dömuveski, Seðlavæski og Buddur. Hálfvirði. ÚTIBÚ Hljódfæraliússins, Laugavegi 38. Símskeyti —o— London, 23. fel)r. United Press. - FB. Gengi. Gengi sterlingspunds miðað við dollar 3,48 %> er viðskifti hófust, en 3,49, er viðskiftum lauk. New Yorlc: Gengi sterlings- punds $ 3,48%—$ 3,48%. Shanghai, 27. febr. United Press. - FB. Ófriðurinn í Asíu. Japanar hafa hertekið Kiang- wanchen. Hayashi hershöfðingi hefir tekið sér aðalbækistöð þar, A undanhaldi sínu hafa Kín- verjar lcveikt i fjölda húsa. Talið er að manntjón þeirra í dag nemi 500. CJtan af landL —s--- Akureyri, 27. febr. — FB. Nokkurir áhugasamir menn hér í bæ hafa gcngist fyrir þvi að stofna hér sparisjóð, er reki lánsstarfsemi. Var stofnfundur lialdinn fyrir nokkuru síðan, lög samin og stjórn kosin. Hana skipa: O. C. Thorarensen lyf- sali, Hallgrímur Daviðsson verslunarstjóri, Jón Guðmunds- son byggingameistari. Rikis- stjórnin liefir nú veitt sjóðnum, sem ber nafnið Sparisjóður Ak- ureyrar, starfsleyfi og fallist á lög lians. Mun hann sennilega taka til starfa i næsta mánuði. Stjómarskrárbreytmg. —o— „Frumvarp til -stjórnskipun- arlaga, um breyting á stjórn- arskrá konungsríkisins íslands, 18. maí 1920“ er nú fram kom- ið á Alþingi og' eru flutnings- menn þess þeir Jón Þorlákx- son, Jón Baldvinsson og Péiur Magnússún, en þeir voru, sem kunnugt er, fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins í milliþinganefnd- inni um skipun Alþingis og kjördæmaskipunina. — Frum- varp þetta er að mestu sam- hljóða frv. því um breytingu á stjórnarskránni, sem þing- menn Sjálfstæðisflolcksins í efri deild fluttu á síðasta þingi. 26. grein stjórnarskrárinnar verður þannig samkv. frum- varpi þessu: „Á Alþingi eiga sæti þjóð- kjörnir fulltrúar. Alþingi skal svo skipað, að hver þingflokk- ur hafi þingsæti í samræmi við atkvæðátölu þá, sem greidd er frambjóðendum flokksins samtals við almennar kosn- ingar. Kjósa skal varaþingmenn á sama hátt og samtímis og þing- menn eru kosnir. Ef þingmað- ur devr eða fer frá á kjörtím- anum, tekur varaþingmaður sæti hans, það sem eftir er kjörtímans. Sama er og, ef þingmaður forfallast, svo að hann getur ekki-setið á ein- hverju þingi, eða það sem eft- ir er af því þingi. Ringmenn skulu kosnir til 4 ára.“ 27. grein stjórnarskrárinnar verði þannig: „Alþingi skiftist í tvær deild- ir, efri þingdeild og neðri þing- deild. Á þriðjungur þingmanna sæti í el'ri deild, en tveir þriðju hlutar í neðri deild. Verði tala þingmanna þannig, að ekki sé unt að skifta til þriðjunga i deildirnar, eiga þeir þingmenn, einn eða tveir, sem umfram eru, sæti í neðri deild. Sameinað Alþingi kýs með lilutfallskosningu þingmenn þá, sem sæti eiga í cfri deild, úr flokki þingmanna í byrjun fyrsta þings á kjörtímabilinu. Hinir eiga sæti i neðri deild.“ 28. gr. stjórnarskrárinnar fellur niður, en hún ræðir um það, hvað gera skuli, er þing- maður deyr eða forfallast, áð- ur en kjörtími lians sé útrunn- inn. 29. grein stjórnarskrárinnar, sem verður, samkv. frv., 28. grein, skal ox'ða þannig: „Kosningarrétt við kosning- xxr til Alþingis liafa allir, kaiJ- ar sem konur, sem eru 21 árs eða eldri, þegar kosning fer franx, hafa ríkisborgararétt liér á landi og liafa verið bú- settir i landinu síðustu fimm árin, áður en kosning fer fram. Þó getur enginn átt kosningar- rétt, nenxa liann hafi óflekk- að mannorð og sé fjár sins ráðandi. Gift kona lelst fjár sins ráð- audi, þólt lixin eigi óskilið fjár- lag með manni sínum. Kosningalög setja að öðru leyti nánari reglur um alþing- iskosningar.“ Fyrri málsgrein 30. greinar stjórnarskrárinnar verður 29. grein og skal orðast þannig: „Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver ríkisborg- ari, sem kosningarrétt á til þeirra.“ Loks er svo ákveðið, að um- boð þingmanna falli niður, þegar er sljóxiiarskipunarlög þessi öðlast gildi, og skuli þá fram fara almennar kosningar til Alþingis. —o— Svo seg'ir í greinargerð fyrir frumvarpi jxessu, að Jón Bald- vinsson áskilji sér rétt „til að fylgja eða konra fram með“ breytingartillögur við 2. og 4. gr. frv., „að því er snertir skiftingu Alþingis i deildir og fimm ára lieimilisfestu í land- inu, sem skilvrði fyrir kosn- ingari’étti.“ Á eftir frumvarpi og grein- argerð er prentað nefndarálit fi'á fulltrúum Sjálfstæðis- flokksins í milliþinganefnd- inni um kjördæmamálið, fróð- legt ínjög og ítarlegt, en síðast er greinagóð ritgerð eftir Jón Þorláksson unx „Þjóðfélags- valdið nú á dögum.“ Er þar mikill fróðleikur saman dreg- inn og sýnt fram á, liversu kosningafyrirkomulagið hér á landi sé orðið gersamlega úr- ell og langt á eftir timanum. Franxsóknarmenn hafa ekki lálið á sér bæra i kjördæma- skipunarmáliiiu exin sem kom- ið er, og engu áliti skilað. Má ]xað lxeita furðulegt tómlæti. En úr framsóknar-kjördæmuni úti á landi berast nú þær fregn- ir, að stjórnarflokkurinn muni reyna enn sem fvrr að koma í veg fyrir allar verulegar unx- bætur í þessu mikla áhuga- máli jnciri liluta allra lcjósanda í landinu. - Til hins muni liann fús, að grípa niður liing- að og þangað, og bera fram og styðja ómerkilegar kák-breyt- ingar, sem hvergi konxi nærri þeim höfuð-kjania málsins, að allir kjósendur liafi jafnan kosningarrétt. Jafn kosningar- réttur nxegi ekki eiga sér stað hér á landi. - En feigum fót- uni lilýtur sá stjórumálaflokk- ur að standa meðal þjóðarinn- ar, sem þorir ekki að liætta sér út úr skúmaskoti ranglætisins. Frá Alþingi í gær. —'o— Efri deild. I efri deild var á dagskrá tillaga lil þingsálgklnnar nm skipun milliþinganefndar lil þess að íhuga mál iðmiðarins. Fyrri umræða. Forsætisráðh. talaði nokkur orð, en er hann lxafði lokið nxáli sin.u kvaddi sér hljóðs Halldór Steinsson. Hann taldi óþarfa að setja sérstaka milliþinganefnd i þetta mál. Það mundi verða kostnaðarmikið, og þvi heppi- legra að stjórnin tæki rnálið i sínar liendur. Kvaðst hann og ætla að iðnaðarmenn væru því mótfallnir, að tillagan næði fram að ganga á þeim grund- velli, senx hún væri borin fram á. Jón Þorláksson talaði nokk- ur orð og gat þess, að á síðasta þingi hefði í/erið afgreidd lagaheimild til stjórnarinnar, um endurbætur á tollalöggjöf- inni að þvi er iðnaðinn snerti. Enda þótt lög þessi hefðu ver- ið i heimildarformi, h.efði þó verið ætlast til þess, að stjórn- in notaði sér þessa lieimild, en það hefði lnin ekki gert. Hann kvað það og óvei'ðskuldað hnefahögg á iðnaðarmenn, að svo að segja alveg væi'i gengið frani hjá félagsskap þeirra unx að velja nienn í þessa nefnd. Þeir væru búnir að skijiuleggja mest allan iðnað- aratvimiurekstur hér á landi, og vinna þann atvinnurekstur upp sjálfir, með lítilli hjálp þess opinbera. Sérstök nefnd var skipuð til þess að fjalla unx þetta mál, og eiga sæli i lienni: Jakob Möller, Magnús Toi’fason og Ingvar Pálmason. Neðri deild. Tvö mál voru á dagskrá i neðri deild. 1. Frnmv. til laga um hreyt- ing á lögum nr. 55, 27. júní 1921, um skiputag kauptúna og sjávarþorpa. Flutningsm. Magnús Jónsson. Frumvarp svipað þessu hefir leg'ið fyrir undanförnum þingum en ekki náð afgreiðslu. Frunxv. kveður svo á, að liafi skipulagsuppdráttur ekki lilot- ið staðfestingu sljórnarráðs áð- ur en tvö ár eru liðin frá fram- lagningu, sé hann eigi lengur bindandi, og að skaðabætur skuli greiða jafnskjótt og aðili sannai’, að skipulagsbreyting sú, er bætur skal gjalda fyrir, valdi lionum tjóni eða óhag- ræði, enda þótt lnin sé ekki komin til framkvæmda. Úmræður urðu engar um málið, og var því vísað til 2. umi’æðu og allsherjarnefndar. 2. Frumv. til laga um hreyt- ing á lögum nr. 29, 3. nóv. 1915, nm þingsköp Alþingis. Flutningsmaður Magnús Jóps- son. Samkvænit frunxvarpi þessu skal bæta iðnaðarnefnd við þær nefndir þingsins er nú éru fyrir. I greinargerðinni segir: „Iðnaður er að aukast nokkuð hér á landi, og þyrfti þó betu.r að verða. Til þess að mögu- leikar verði fyrir því, þarf að taka viturlegá og af þekkingu á málefnum iðnaðai’ins. Flest slík niál cru svo sérstaks eðlis, að ólxeppilegt virðist að þurfa að vísa þeim málum til nefnda, sem í raun og veru eru skip- aðar með önnur mál i lxuga.“ Umræður urðu engar. Var frumv. vísað til 2. xuiiræðu og allsherj arnefndar. Ternm glaðir. r—O—H Nú er einkunx talað um tvent i landinu. Annað er kreppan, exx hitt er islenska vikan. Þó að þessar systur séu ekki neixxar sérstakar þokkagyðjur, þá er óþaríi að óttast. Ráðherrann okkar sagði í fyrra: „Vér treyst- unx á 3 banka, senx efldir liafa verið að f jármagni“ og vér héld- uni að þetta villuljós væri leið- arstjarna. Nú er svo komið, að vér getum ekki keypt inn í land vort nenxa brýnustu lífsnauð- synjar. \rér verðunx að vísu nauðbeygð til að kaupa jarð- epli fyrir svo sem hálfa nxiljón króna, því að vér erum sprott- in upp úr grjóti. Vér sjáunx alt í kringuixi okkur grjót, og ekk- ert nema grjót. En fyrstu mán- uði þessa eina árs getunx vér neitað okkur uin að flytja inn Sportröruhús Reykjavíkur. erlent kjöt og erlendan fisk. Kjötið fæst hjá Saiiibandinu og fiskurinn er á íxxiðunum kring um vort blessaða land. Og guði sé lof fyrir jiað, að á ýmsum sviðuiu eru að gerast framfarir, og á öðruni sviðurn er lialdið vel í liorfi. Á þessu ný- byrjaða ári lnxfa verið opnuð 2 stór „moderne“ kaffihús og boðskapur er koniinn uni það þriðja. Á öllunx þessunx stöðuxn auk liinna gömlu er húsfyllir. Enn fremur fær Leikfélagið altaf fult lixis, þegar því mis- hepnast ekki að handsama svartasta leirburðinn og þvætt- inginn, sem finnanlegur er á jarðriki. Á söluslað kvikmyftda- lxúsanna er nxikill troðningur. Enda er mikil huggun að því, á vandaræðátímunx, að fá slík- ar sendiixgar til landsins, eins og t. d. þetta stóra M„ sem nú hefir verið sýnt. Menn liafa hér skilið, að þörf er á að velcja fagi’ar liugsjónir hjá ungu kyn- slóðinni. En það er ekki nóg að skoða þessa nytsönxu mynd og fylla öll samkomuhús bæj- arins og tala unx kreppxnia. Vér þurfum að gera fleira, og eg skal segja ykkur, livað vér skul- um gera. Vér skuluni fara aust- ur í Slátui’liús og kaupa tvær sauðargærur handa liverju okk- ar. Vér skuluni binda þær sam- an á toginu, og steypa þeim yf- ir okkur, og láta blóðliálsana skýla höfðinu, þangað til lamb- liúslxettur verða unnar. Vér skulunx kaupa okkur stór skæði úr hrossleði’i eða nautsleðri og herpa þau að fótum vorunx með löngum þvengjum, og vér mun- um finna, að þetta er einkar við- eigandi og, þjóðlegur búningur. Og vér skulum gleðjast, þrátt fyrir kreppuna, því að ennþá er oss heimilt og skylt að kaupa tvær ei’lendar vörutegundir. — Blessað tóbakið getum vér svo að scgja fengið í hverri búð. En lxina vörutegundina getunx vér fengið úr .Áfengisverslun ríkis- ins. Nú skulum vér liervæðast gegn öllum Jónum á Klappar- stíg, Snæbjörnum og Höskuld- um, þessum körlum, senx sagt er að reki innlendan iðnað bak við lögin. Vér skuluixi gera meii-a. Á þessu yfirstandandi ári skulunx vér gex-a stærri kaup við Spánverjann en nokkuru sinni fyr og vér skulum x’eykja nxeira og drekka nxeira á þessU ári en nokkuru sinni fyr, Með því leggjum vér fjárnmni okkar í guðskistu ríkisins unx leið og' vér sjáum fyrir líkamlegri og andlegri lxeilsu vorri. Vér verð- imi að gripa eitthvert ráð, sem lýsir búmensku vorri og sköi’- ungsskap, þegar í harðbakkann slær. Enda íxiun sú þjóð vex’ða viða. fræg, sem á svipstundu ætlar að búa að simxi eigin framleiðslu í ölluixx greiniuxx, og liefir ekki efni á að kaupa aðr- ar vþrutegundir en tóbak og á- fengi. Guð blcssi þessa þjóð, þing liennar og stjórn. Einn kreppuráðherra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.