Vísir - 20.05.1932, Page 2

Vísir - 20.05.1932, Page 2
V I S I R I)) INIaimM sÆ'sewIW Sundmagi T iT Kaupum velverkadan l.fl. sundmaga Ekkept hveiti jafnast á við Umboðsmenn: Þórður Sveinsson & Co. Madrid, 19. maí. United Press. FB. Frá Spáni. 700 sprengikúlur hafa fund- ist í nánd við dómkirkjuna frægu í Sevilla. Skotfærabirgð- ir hafa fundist i Sanla Cruz jtér- aði. Inilánríkisráðherrann hefir tlkynt, að tekist hafi að koma i veg fyrir að ráðagerðir syndi- kalista og stjórnleysingja hepnuðust, en áform þeirra var að koma af stað stjómar- byltingu á meðal bænda í Andahisíu. Tokio, 19. maí. United Press. - FB. Útför Inukai. Útför Inukai forsætisráð- herra fór fram í tlag í viður- vist 10,000 manna. Viðstaddir útförina voru fulltrúar keisar- ans og drotningarinnar. — Lík ráðherrans var brent. Ask- an verður grafin í borg þeirri, sem hann var fæddur i. Osló, 19. maí. United Press. - FB. Forvextir lækka. Forvextir lækka um % % í 41/2% frá og með föstudegi að telja. Dublin 20. itiai. United Press. - FB. írar og hollustueiðurinn. Neðri deild þjóðþingsins hef- ir nú samþykt frumvarpið um afnám hollustueiðsins við allar umræður, og afgreitt það til efri deildar þingsins. Utan af landi. —o— Siglufirði 20. ínaí. FB. Húsbruni. Iíúsið Suðurgata 2, „Hauga- sund“, brann lil kaldra kola i morgun. Eldurinn kviknaði frá olíuvél, sem var notuð við að- gerð á gólfi uppi í vesturend- anum. Magnaðist eldurinn svo fljótt, að húsið varð alelda á svipstundu, en fólk bjargaðist án þess að slys vrði af. Sára- litlu af húsmunum var bjarg- að. Haugasund var tveggja hæða timburhús, allstórt. Áttu þeir það Thorarensen læknir og Gunnar Bildal. - í húsinu voru tvær sölubúðir og brunnu allar vörubirgðir, sem þar voru. Iíúsið var lr>’gt í Bruna- bótafélagi íslands. Vörur Thor- arensens, sem átti austurenda, munu hafa verið vátrygðar,, en Gunnars, sem verslaði i vest- ari búðinni, munu hafa verið óvátrygðar. Innbú beggja hús- eigenda, sem bjuggu í húsinu, voru óvátrygð. — Bliðalogn var og tókst hæglega að verja ná- læg hús, án þess að þau yrðu fvrir skemdum. Frá Alþingi í gær. —o— Efri deild. Ed. afgreiddi þrjú frumvörp sefn lög frá Alþingi. 1. Frv. tit 1. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að ábyrg'j- ast rekstrarlán fyrir Lands- banka íslands. 2. Frv. til 1. um viðauka við lög urn skipun barnakennara og laun þeirra. 3. Frvr. til 1. um breyt. á 1., um sjúkrasamlög. Frv. til 1. um lax- og silungs- veiði var samþ. mgð þó nokkur- um breytingum, og endursent Nd., og frv. til 1. um breyt. á 1. um laun embættismanna var vísað til 2. umr. Fimtardómurinn var á dag- skrá, en var tekinn út af dag- skrá. Er búist við að nú verði reynt til þrautar, að lokka Jón í Stóradal eða kúga til fullrar lilýðni við dómsmálaráðherra. En Jón hefir sýnt að liann kann betur við að ráða sér sjálfur og' er því óvist að bann láti kúgast. Neðri deild. Nd. afgreiddi sem lög frá Al- þingi frv. til 1. um viðauka við 1., um eftirlit með skipum og bátum og öryggi þeirra og frv. til 1. um ráðstafanir til öryggis við siglingar. Frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1930 var samþ. og sent Ed. og' frv. til 1. um samþykt á landsreikningnum samþ. og visað til 3. umr. Magnús Jónsson flytur frv. til I. um náttúrufriðun, friðun sögustaða o. fl. Frv. kom til 1. umr. i gær, og var vísað um- ræðulaust til 2. umr. og nefnd- ar. Till. til þál. um björgunar- starf og eftirlit með fiskibát- um fyrir Vestf jörðum og Norð- urlandi var vísað lil stjórnar- innar. Skilað nr fððrnnnm. —o--- III. Það er viðurkent af fram- sóknarmönnum jafnt sem öðr- um, að atvinnuvegir þjóðarinn- ar standi nú svo höllum fæti, að til beinna vandræða horfi. Þeir geti engum álögum á sig bætt og þá vitanlega ekki tekið við nýju, kaupdýru fólki. Fram- leiðslan borgi sig ekki og auk- inn framleiðslukostnaður lílt seljanlegra vörutegunda muni því auka vandræðin og töpin. Spámaður flokksins á þingi hef- ir lagst djúpt að vanda, viða göndum rent og kannað til lilíl- ar hag hverrar atvinnugreinar. Og hann komst að þeirra niður- stöðu, að ekkert borgaði sig „nema ölgerðin". En trauðla mun Jxi ölgerðin geta lélt til muna á öðrum atvinnugreinum, eða tekið við þúsundum manna, sem þar kann að vera ofaukið sem stendur. Saumastofa mín er flutt úr Veltusundi 1 í Garðastræti 8. Helga Guðmundsdóttir. Eggert Glaessen hæs tarét tar málaflutningsmaður Skrifstofa: Hafnarstræti 5. Sími 871. Viðtalstími kl. 10-12. Eins og kiumugt er, sópaði frainsóknarstjórnin að sér mikl- um sæg af fólki 1928—1931 og setti i allskonar vinnu l'yrir rík- issjóð, þarfa og óþarfa, og þó einkum óþarfa. Sóaði hún á þenna liátt miljónum króna, oft i fullkomnu heimildarleysi og vitanlega ekki ósjaldan i ein- hverskonar fávita-æði og taum- lausri löngun uppskafningsins til umsvifa og fjárbruðlunar. Með þessum hætti kepti stjórn- in um vinnuaflið við böfuð- atvinnuvegi lándsmanna og reyndi stundum að sprengja upp kaupið. Það mun þó ekki hafa verið gert vegna hagsmuna verkafólksins, því að henni er áreiðanlega sama hvernig velt- ur fyrir þvi, lieldur mun hafa fyrir henni vakað, að alvinnu- vcgum Reykvíkinga, sérstak- lega stórútgerðinni, gæti orðið jietla til nokkurs óbagræðis og tjóns. Nii er svo komið, sakir fjár- mála-ólifnaðar bændastjómar- innár, að ríkissjóður er þuraus- inn, lánstraustið þorrið og þjóð- arbúskapnum ekið i strand að kalla má. — Er þessi fjármála- niðurlæging ríkissjóðs stjórn- inni að kenna og verður aldrei of þunglega refsað fyrir slílct framferði. Verðhrun á frain- leiðsluvörum landsins er é>við- ráðanlegt, en fjárþurð ríkis- sjóðs er sjálfskaparvíti. Ef fjár- málum landsins Iiefði .verið stjómað af viti og fyrirhyggju síðan 1927, væri ríkissjóður nii skuldlaus ogætti miljónir króna í sjóði, sem verja mætti til margra nvtsamlegra hluta. — Stjórniri eða ríkissjóður gæti nú verið hinn besti vinnuveitandi, tekið á sína arma sæg af at- vinnulitlu fólki, fengið þvi þarf- legt verk i liönd og með þeim hætti létl undir með þrautpínd- um atvinnuvegum og illa slæð- um ahnenningi. En framferði stjórnarinnai- Iiefir verið þannig, að ríkissjóð- ur er nú einskis megnugur. Þar er alt sleikt í botn og engin Icróna til þegar mest á ríður. — Stjórnin hefir hegðað sér eins og skillítill bóndi, sem gaf fé sínu inni allan veturinn í blíðu- tið og kappnógri jörð, en þegar hafísinn lagðist að landinu um sumarmálin og norðanhriðar stóðu vikum saman, þá var heyja-forðinn búinn og bóndinn rak fé sitt xxt á gaddinn, og þar fórst það flest eða alt. — Hann kvaðst fara eftir almanakinu: gel'a vel meðan vetur stæði, en þegar sumar væri komið, yrði Iiver ske])na að sjá um sig sjálf. Stjórnin er alveg eins og þessi bóndi, og kom það einkar-glögl í ljós i „Tímanum- fyrir skömmu. Hún rekur fólk sitt út á gaddinn, þegar rikissjóð- urinn er þurausinn, og sver sig þar greinilega í ætt við hey- lausa ráðleysingjann forðum. Niðurl. „ÞjóDaratkvæöi‘. —o--- Þegar Jón heitinn bevkir fór að safna fé hér i bæ til að stofna elliheimili, þá fanst mörgum það vera „á versta tima“ — á miðju sumri, fólkið út um alt og engir peningar heima. Það tókst samt — og „betur en atvik stóðu til“. Þorri manna laldi slarfið þarflegt og var ckki vonlaus um, að „Sam- verjanefndinni" væri trúandi fyrir þessu „uppátæki“. Siðan eru tíu ár. — Það er komin nokkur reynsla um kosti og galla slofnenda og stofnunar. „Gamla Grund'4 var alt of lit- il, en græddi á tá og fingri, nærri 70 þús. kr. á 8 árum. Gjafir og bæjarstyrkur safnað- ist fvrir og fór svo alt í nýja húsið. En nýja liúsið er of stórt — enn þá, gæti tekið um 10 vistmenn enn —- og það sem lakara er: Það er að sökkva i skuldum. Reksturinn liefði að vísu bor- ið sig, ef öll meðlög liefðu náðst hjá sveitum og einstaklingum, og bæri sig þó miklu betur, ef það væri fullskipað. En það livíla á lieimilinu svo ípiklar skuldir l'rá byggingunni sjáll'ri, að engar likur eru til að rekst- urinn geti. greitt þær allar. En rikissjóður, getur liann ckki hjálpað? — Veit ekki livað hann getur, en sé livað forráða- menn hans vilja. Stjórnin ætl- aði elliheimili á Isafirði og Seyðisfirði 800 kr. livoru á fjárlögum, þingið hefir liækkað það í 1000 kr., og er síst of mikið; en stofnun, sem hefir 5 sinnum fleiri vistmenn og tek- ur gamalmenni al' öllu landinu að lieita má, fær ekkert á fjár- lögum fvrir 1933 enn þá. — Fekk úr ríkissjóði 10 þús. kr. árið 1931 og 5 þús. kr. í ár, eittlivað fertugasta liluta af byggingarkostnaði, en má svo «ekki fá meira. — Ástæður? Húsið er í Reykjavík, og bærinn í stærstu ábyrgðunum! „Hefðuð þið reist það austan heiðar, þá væri annað mál“, segja valdamennirnir. En þá er ekki til annara að leita en til Reykvíkinga, sem engan styrk mega fá úr ríkis- sjóði, en er stundum ætlað að styrkja bæði liann og annað. Það gæti svo sem doltið í þá að sýna alþjóð, að þeir geti séð um þetta elliliæli sjálfir, og lát- ið það njóta þess „ótrúlega bjartsýnis" á hjálpfýsi þeirra, sem koinu því undir þak. Oft er þörf en nú er nauð- syn. Það er þungur baggi einu heimili, þótt stórt sé, að borga um 33 þús. kr. í ársvexti af byggingarskuldum og þyngra þó, að margar eru skuldirnar löngu fallnar í gjalddaga og hægðarleikur að stefna fyrir þær sumar, ef vinarhugur al- þjóðar væri ekki enn eins og múrveggur um heimilið, og enginn fús ti.l að rjúfa hann. En ])að er ófært að nota sér það lil lengdar, og lítil von að þolinmæðin verði óendanleg. Við liöfum skrifað og skraf- að, rælt og ráðgast um þessi málefni öll, við ýmsa góða vini gamla l'ólksins, og reynum nú, að ráði þeirra, að fá mcnn til að fara um bæinn og spyrja livort ínenn vilji alment verða samtaka um að styrkja heim- ilið. — Undirtektirnar verða nokk- urskonar ])jóðaratkvæði um, hvort Elliheimilið eigi að halda áfram á svipaðan hátt og und- anfarið. Verði þær daufar, fell- ur þetta sjálfboðastarf niður, en verði þær góðar, kemst það yfir örðugasta hjallann. F. b. Elliheimilisins. S. Á. Gíslason. I.O.O.F. 11452081/2 = III. Veðrið í morjíun. Hiti í Reykjavík 8 st., Isafirði 8, Akureyri 7, Seyðisfirði 6, Vestm.- eyjum 6, Stykkishólmi 6, Blöndu- ósi 6. Raufarhöfn 5, Hólum í Hornafirði 7. Grindavík 7, Færeyj- um 8, julianehaah 7. Jan Mayen -r- 2, Angmagsalik 6, Hjaltlandi 8, Tynemouth h 2 st. (Skeyti vantar frá Kaupmannahöfn). Mestur hiti i gær 14 stig. minstur 6 stig. Sól- skin 14 stundir. Yfirlit: Lægðin vestan við Bretlandseyjar ])okast mjög hægt norðaustur eftir. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói: Breytileg átt, víðast hægviðri. Sum- staðar smáskúrir. Breiðaf jörður, Vestfirðir: Austan og norðaustan gola. Bjartviðri. Norðurland, norð- austurland: Norðaustán gola. Úr- komulaust. Sumstaðar næturþoka. Austfirðir, suðausturland: Austan gola. Þokuloft og dálítil rigning. Skip Eimskipafélagsins. Brúarfoss fer frá Leith i dag. Selfoss er á útleið. Gullfoss er á útleið. Goðafoss er á Akureyri. Lagarfoss er á Vopnafirði. Detti- foss kom til Hamhorgar í gær. Botnvörpungarnir. Hilmi hefir verið lagt inn í sund- um. Þessir hotnvörpungar hafa hætt veiðum: Draupnir, Trvggvi gamli, Baklur, Andri, Njörður og Geir. Er unnið að botnhreinsun þessa dagana, og 'verður þeim lagt, er henni er lokið. Höfnin. Breska eftirlitsskipið Cherwell kom inn í gær, og frakkneskur botn- vörpungur til að taka salt. Fisk- tökuskip fór héðan i gær, til að taka fisk á höfnum úti á landi. Es. Lyra fór i gærkveldi, Trúlofun. Á hvítasunnudag opinheruðu trú- lofun sína imgfrú Málfríður Tóm- asdóttir, Ægisgötu 26, og Skarp- héðinn M. Waage, Ránargötu 10.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.