Vísir - 24.06.1932, Síða 2

Vísir - 24.06.1932, Síða 2
V 1 S I R Girðingareínil GIRÐINGARNET, GIRÐINGARSTÓLPAR, mjög vel galv. úr járni. Sléttur vír, Bindivír, Vírkengir. íferðalðg er best að hafa með sér æ súpuefni í pökkum. Selt í flestum matvöruverslunum, í pökkum fyrir 2 og 6 persónur. Ódýrt og handliægt. Símskeyti London, 23. júní. United Press. FB. Verslunarviðskifti Dana og Breta. Colville majór,sem er full- trúi á ráðuneytisskrifstofu þeirri, er liefir með höndum verslun Breta við meginlands- ríkin, hefir lýst því yfir i neðri- málstofunni, að hann teldi óráðlegt að leggja sérstakan innflutningstoll á danskar vör- ur. Kvað hann engar sannanir fyrir hendi um það, að danska stjómin hafi gert neitt til þess að Danir keypti minna frá Bret- landi en verið hefði. — Cole- ville majór lýsti þessu yfir, er fyrirspurnir voru fram boniar i málstofunni í sambandi við verslunarviðskifti Dana og Breta. Lausanne, 23. júní. Lausanne-ráðstefnan. Herriot og MacDonald hafa náð samkomulagi um livað leggja skuli til grundvallar í viðræðum Frakka við Þjóð- verja á morgun, þ. e. að lausn deilumálanna verði til fram- búðar, að lausn deilumálanna liver sem hún verður, lciði til viðskiftabala og aukins við- slciftatrausts, að ekki verði far- ið fram á það að Þýskaland haldi áfram skaðabóta-greiðsl- um nú eða á meðan lieims- krepjían stendur yfir, og loks, að ef skaðabótagreiðslur hefj- ist á ný að kreppunni lokinni, verði að ganga þannig frá þeim, að engin hætta sé á, að alþjóða- samkomulagið spillist. Iðosýningin. Framh. I stofu nr. 2 sýnir kaffiverk- smiðja Gunnlaugs Stefánsson- ar, Rvík, kaffi og kaffibæti sinn. Verksmiðja þessi hefir verið rckin af fyrirhyggju og dugnaði og mikil áhersla lögð á vöruvöndun. Verksmiðjan hefir margt starfsfólk og vönd- uð tæki. Er kaffibætirinn að öllu leyti framleiddur hér, nema að hráefni til framleiðsl- unnar er innflutt. Verksmiðjan hefir einnig stóya kaffibrenslu, búna nýtísku tækjum, og liefir því ávalt nýbrent og malað kaffi á boðstólum. Hvort- tveggja, kaffibætirinn og kaff- ið, er vönduð verslunarvara, sem hefir náð mikilli út- breiðslu meðaf landsmanna. — Gunnlaugur Stefánsson stofnaði kaffibætisverksmiðju sína árið 1930. Sala á afurðum verk- smiðjunnar sexfaldaðist árið sein leið, enda er nú kaffibætir verksmiðjunnar alment notað- ur um alt land og fer eftir- spumin stöðugt vaxandi. í sömu stofu sýnir Magnús Th. S. Blöndahl h.f. sína fjöl- breyttu og landskunnu fram- leiðslu. Sætindaverksmiðja fé- lagsins er stærsta og elsta sæt- indaverksmiðja í landinu. Var hún sett á stofn 1912. Nemur f r amleiðsla verksmið j unn ar mörgum smálestum á ári (1929: 25 smál.). Þarna í stofu nr. 2 getur nú að lita sýnis- horn af þessari fjölbreyttu sæt- indaframleiðslu. Verksmiðjan býr einnig til allskonar krydd- vörur og margskonar efni til bökunar. Þarna sjá menn m. a. sýnishorn af þessum vöruteg- undum verksmiðjunnar: Á- vaxtalit, möndludropum, cí- tróndropum, vanilledropum, eggjadufti, gerdufti, sódadufti, kökuskrauti, kaneli, neguli, „allrahanda“, engifer o. m. fl. Ennfremur framleiðir verlc- smiðjan fægilög, soyu og saftir. Vörur verksmiðjunnar eru vandaðar og seldar í snotrum umbúðum. Eru vörurnar kunn- ar um land alt fyrir gæði. Framh. Allsherjarmót í. S. I. —o— Allsherjarmótinu lauk á þriðju- dagskveld. A mánudag var veður svo hvasst, a'ð fresta varð þeim íþróttagreinum, sem áttu að fara fram þá. Varð svo að hafa þessar greinar með fimtarþrautinni, sem annars átti að vera einsömul síðasta kveldið; dróst því allmjög í tímann, að koma dagskránni af, svo að lið- ið var nær miðnætti, er öllu var lokið. 4 X ioo m. boðhlaup: i. verðl. K. R. (A-sveit) 49.2 sek., 2. verðl. Glímufél. Ármann 49.7 sek., 3. verðl. Knattspyrnufél. Vestmanna- eyja 50.4 sek. — B-sveit K. R. var 52.2 sek. — Sumir mennirnir hlupu vel, en skiftingarnar voru afleitar hjá flestum flokkunum. — Þegar skift er, eiga báðir að vera á fullri ferð, færandi og viðtakandi, og á færandinn aldrei að komast jafn- hliða viðtakanda. En þarna var það svo, að færandinn varð stundum beinlínis að biða eftir hinum. Spjótkast (beggja handa): 1. verðl. Aðalsteinn Gunnlaugsson (K. V-) 71.51 m.; 2. verðl. Marínó Kristinsson (Á.) 67.92; 3. verðl. Ingvar Ólafsson (K. R.) 67.61 m. — Kastað var í nokkrum mótvindi, og hefir það dregið úr kastlengd- um. allra keppenda. 10.000 m. hlaup: 1. verðl. Karl Sigurhansson (K. V.) 34 mín. 6.1 sek. (nýtt ísl. met) ; 2. verðl. Magn- ús Guðbjörnsson (K. R.) 36.16.8; 3. verðl. Sverrir Jóhannesson (K. R.) 36.55.4. — Met það, er Karl ruddi nú, var orðið 11 ára gamalt, 34.13.8, sett af Jóni Kaldal 1921, ,og var því mál til komið, að stytta því aldur, eins og fleirum metun- um okkar; yfirleitt eru þau of lang- líf. — Með þessu afreki og því, er hann vann 5000 m. hlaupið um dag- inn, er hann langsamlega besti mað- ur mótsins hvað afrek snertir. Það er þó synd að segja, að hinar ytri kringumstæður á mótinu hafi lagt honum lið til að vinna þessi afrek; þvert á móti hafa þær verið honum andstæðar og áreiðanlga dregið úr getu hans í þessu efni. En þrátt fyr- ir það hefir hann sigrast á þessum örðugleikum og unnið afrek, sem teljast má meðal hinna frækilegustu íþrótta-afreka okkar nútíma íslend- inga. Það væri gaman, að sjá Karl etja kapps við útlenda meistara í þolhlaupum. Trúlegast er, að þeir fengju sig sumir fullreynda áður lyki, ])ví að þótt met Karls sé trauðla sambærilegt við sum er- lendu metin, ef aðeins er notaður hinn venjulegi mælikvarði, tíminn, ])á eru þær aðstæður, er þau sköp- uðust undir, heldur ekki sambæri- legar, svo miklu óhagstæðari er að- staða hans en þeirra til að njóta sín fullkomlega. — Karl er nú 34 ■ ára, og má því búast við, að hon- um íari ekki mikið frarn úr þessu, — besta skeið íþróttamannsins er venjulega milli 25 og 30 ára, — er því vel farið, að honum tókst að skapa sér slíkan minnisvarða um fræknleik sinn, sem met þetta er. Munu allir íþróttamenn, og ekki síst keppinautar hans, telja hann mak- legan þess heiðurs og vel að honum kominn. Reipdrátturinn milli K. R. og Ár- manns fór þannig, að Ármann sigr- aði i tveim lotunum fyrstu, og var því ekki togað oftar. Fimtarþraut. 1. verðl. Karl Vil- mundsson (K. V.) 2328.18 stig (af- rek í einstökum greinum: langstökk 5.76 m., spjótkast 35.40 m., 200 m. hlaup 25.6 sek., kringlukast 30.92 m., 1500 m. hlaup 5 mín. 25.8 sek.). 2. verðl. Ingvar Ólafsson (K. R.) 2284.86 stig. 3. verðl. Þorgeir Jónsson (K. R.) 2256.00 stig. — Aðrir keppendur fóru ekki yfir 2000 stig. Var mótinu lokið með þessari grein, því að sundið, sem annars hefir verið einn liðurinn í Allsherj- armótinu, var ekki með að þessu sinni, — vegna ónógrar þátttöku( ?) — Ástæða þykir til að vekja sér- staka athygli á þeim ágæta árangri sem Vestmannaeyingar hafa náð á mótinu, þar sem þeir hlutu 119 stig, en höfðu þó fáa keppendur. I fyrrakveld var dansleikur í íþróttahúsi K. R. og voru þar af- hent verðlaunin frá mótinu. Fram- kvæmdi forseti í. S. í. þá athöfn, og fór hún ágætlega fram. Allsherj- armótið er háð um bikar, er það félag fær, er flest stig vinnur á mótinu, og fá félögin stig af 6 fyrstu kepiiendum i hverri íþrótta- grein, — ef svo margir keppa. — Vann K. R. bikarinn með 243 stig- um. Næst varð K. V. með 119 stig, og svo Árrnann með 93 stig. Um bikarinn er kept að eins annaðhvert ár, og heldur K. R. honum því til 1934. En síðast var kept um bik- arinn 1928; vann K. R. hann þá með réttum 200 stigum. — Hæstur að stigatölu varð Ingvar Ólafsson (K. R.) með 32 stig; næstur Karl Vilmundsson (K. V.) 26 stig; 3. Þorgeir Jónsson (K. R.) 25 stig, og nokkrir aðrir' fengu yfir 20 stig. — Eftir að forseti hafði útbýtt verðlaunum Allsherjarmótsins, af- henti hann Jóni Jóhannessyni, fim- leikameistara, bikar þann, er um er kept í einmenningsleikfimi, ásamt meistaraverðlaununum. — Einnig fengu reiptogsmenn Ármanns bikar að verðlaunum fyrir sigurinn í reiptoginu. — Var þessari athöfn fylgt með mjög mikilli athygli af öllum viðstöddum, og sigurveg- urunum klappað lof í lófa, er þeir heimtu verðlaun sín. — Að síðustu var hrópað húrra fyrir öllum og sérhverjum þátttakanda mótsins. — Að lokum var dans stiginn af rniklu fjöri til kl. 2. Síðustu fregnir: Samkvæmt seinustu fregnum að norðan, eru allar horfur á, að Verkamannafélag Siglufjarðar muni klofna, þar sem félagið vill banna verkamönnum að gera nokkrar til- slakanir. Verkamenn í verksmiðj- unni hafa þegar boðið talsverða til- slökun, og er talið líklegt, að þeir muni nú ganga að tilboði stjórnar síldarverksmiðj unnar og segja sig úr verkamannafélaginu. Guðm. Skarphéðinsson er farinn í skemti- ferð að Hólum, og hefir þvi hlaupið af vettvangi, þegar hann sá lþrdttakveld. —o— I kveld kl. 8M2 fer frain íþróttakepni milli Iv. R. og íþróttafólksins frá K. A. á Ak- ureyri. Fyrst sýna K. A.-stúlk- urnar leikfimi undir stjórn kennara síns, Hermanns Stef- ánssonar. Er þetta sami flokk- urinn og sýndi á Þingvöllum á Alþingishátíðinni og vakti þá óskifta aðdáun áhorfanda. Auk þess keppa þær við K. R.stúlk- ur i liandknattleik og 4 X 80 m. boðlilaupi. Handknattleik- ur er mjög falleg og skemtileg íþrótt, og eflaust verður gam- an að liorfa á leik þeirra stúlknanna í kveld. Tvisvar áð- ur hafa K. A. og K. R. kept í liandknattleik og' unnið sitt skiftið hvort. Nú liefir verið gefinn farandbikar til að keppa um i þessari grein. Að lokum keppa piltarnir að norðan við Iv. R.-menn í ýms- um lilaupum, bæði langlilaup- um og sprettlilaupum. Má vænta góðs af þeim Norðling- um, eftir þeim liðleik og lipurð, samfara góðu þoli, sem þeir sýndu i knattspyrnukappleik við Val í gærkveldi. Reykvíkingar liafa oftlega farið til Akureyrar til að keppa í íþróttum, og ætíð fengið ágæt- ar móttökur lijá íþróttamönn- um og öðrum bæjarbúum. Ættu Reykvíkingar að launa þeim gestrisni og góðar mót- tökur á fyrri tímum með því að fjölmenna á völlinn í kveld. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 11 st., ísafirði 10, Akureyri 12, SeyÖisfir'Öi 12, Vestmannaeyjum 10, Stykkishólmi 13, Blönduósi 10, Hólum í Horna- firði 13, Grindavík 11, Færeyjum 12, Julianehaab 9, Angmagsalik 9 fyrir þessi úrslit málsins. Samkvæmt fregn frá ísafirði, hefir Finnur Jónsson gert tilraun til að fá sjó- menn til þess að leggja síld inn í Goos-verksmiðjuna, hjá Steindóri Hjaltalín, upp á þau kjör, að þeir fengi „það verð fyrir innlagða síld, sem eftir kann að verða að frá- dregnum öllum kostnaði“. Sjómenn kváðu heimta, að ekki verði greitt lægra verð fyrir málið en 3 kr., og hafa sagt, að þeir færi ekki til Siglufjarðar í sumar, nema gengið væri að tillögu verksmiðjustjórnar- innar að öllu leyti. stig. (Skeyti vantar frá Raufarhöfn, Jan Mayen, Hjaltlandi, Tynemouth og Kaupmannahöfn). Mestur hiti hér í gær 12 st., minstur 8. Úrkoma 0,9 mm. Yfirlit: Grunn lægð fyrir norðvestan land. — Horfur: Suð- vesturland, Faxaflói, Breiðafjörð- ur: Norðvestan kaldi. Bjartviðri. Vestfirðir, Norðurland, norðaustur- land: Norðan gola. Víðast skýjað, en úrkomulaust að mestu. Austfirð- ir, suðaustur land: Norðvestan og norðan gola. Úrkomulaust og víða bjartviðri. Biskupinn herra Jón Helgason flytur Syno- dus-erindi í dómkirkjunni i kveld kl. 9: Hvað er heilög ritning fyrir vora tíma? — Allir velkomnir. Menn geri svo vel að haía með sér sálmabækur. -—■ Erindinu verður út- varpað. Sjötugsafmæli á í dag Ólöf Guðmundsdóttir, Skólavörðustíg 43. Jónsmessa er í dag. Athugasemd. 1 gærkveldi hlustaði eg i útvarp- inu á hið snjalla og eldmóði þrungna erindi, það er síra Sig. P. Sivertsen flutti í dómkirkju lands- ins, en mér til mikillar gremju lieyrði eg jafnframt hversu söngur- inn við þá athöfn var óvenjulega lélegur: Mér virtist að enginn söngmaður hafi sungið uppi hjá orgelinu og alls ekki neinn söng- flokkur, að eins einróma raddir hér og þar út um alla kirkju. Þótti mér með þessu lítill sómi sýndur hinuirt merka og mikilsvirta fyrirlestrar- manni, sem er einn af æðstu mönn- um kirkjunnar hér á landi, er hann ílutti erindi i sjálfri dómkirkju landsins að viðstöddum fjölda presta víðsvegar að af landinu og í áheyrn ótölulegs fjölda útvarpsnot- anda um land alt. — Ilefir ekki dómkirkjusöfnuðurinn fastan söng- flokk? Sé svo, hví mætir hann ekki við slík tækifæri? Útvarpsnotandi. Kappleikurinn í gærkveldi fór svo, að Valur sigr- aði K. A. með 1:0. Leikur norðan- ntanna var lipur og góður.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.