Vísir - 28.06.1932, Blaðsíða 2

Vísir - 28.06.1932, Blaðsíða 2
V í S I R )) BtoTHm g Olseni CBB Crirdingapeini I GIRÐINGARNET, GIRÐINGARSTÓLPAR, mjög vel galv. úr járni. Sléttur vír, Bindivír, Vírkengir. Vernons Hafpamjel í 7 punda léreftspokum er að margra áliti lang’besta liaframjöl sem hér er selt. Gæðin eru samskonar og í hinu besta haframjöli sem selt er i pappaumbúðum en verðið er miklu lægra. Fæst hvarvetna. Mimið eftir að versl. Ben. S. Þórarinssonap selur best Matrósaföt, bæði með síðum og stuttum buxum, og önnur drengjaföt. Ungmeyja kápur, Kvengúmmísvuntur og alls konar Kvensvuntur og Morgunkjóla. Mikið úrs'al i Borð- dúkum, Handklæðum, Vinnuföt og Ullarband o. fl. o. fl. Símskeyti Glúcago, 27. júní. United Press. FB. Flokksþing demokrata í Banda- ríkjum sett. Flokksþing demokrata til þess að veljaf ríkisforselaefni flokksins var sett hér á hádegi í dag. Oslo, 28. júní. United Press. FB. Inngmannamótið í Oslo. Forsætisráðherrar íslands, Svíþjóðar og Danmerkur voru viðstaddir setningu 20. nor- ræna þingmannamótsins, sem haldið er árlega, og að þessu sinni hófst hér í gær. í ræðu, sem Mowinckel fyrrv. ,ráðherra hélt, ræddi hann um þau áhrif, setn seinasti þingmannafundur- inn i Oslo liefði liaft. Lagði hann til, að mótið lýsti yfir fidl- mn stuðningi við tillögur um nauðsynina á lækkun tolla, sem fram komu > á Lausannenáð- stefnunni þ. 18. júní, en i öðru lagi lagði Mowinckel til, áð þingmannamótið lýsti yfir ánægju sinni \fir tollasain- komulagi Belgíu, Hollands og Luxemburg, og í þriðja, lagi lagði hann til, að mótið sam- þykti, að norrænu löndin gerði alt, sein í jieirra valdi stendur til þess að veita stuðning til- lögum, sem fram koina til þess að bæta viðskiftaástandið i heiminum og viðskiftalega samvinnu. Iönsýningin. Framli. 1 stofu nr. 4 sýnir einnig gos- drykkja- og aldinsafagerðin Sanitas framleiðslu sína. Fram- leiðsluvörur verksmiðjúnnar eru þessar: Gosdrykkir: Sítron, Póló, Kampavín, Hindberja, Appel- sínu og Sódavatnsdrylckir. Líkörar: Dom, Guracao, Ca- cao,Chartreuse, Caloric Punch, Parfait D’amour. Saftir: Kirsubei-jasaft, Hind- berjasaft, Bl. ávextasaft. Enn fremur hefir verksmiðjan á boðstólmn vínberjaedik, edik- sýru, sinnep, gerduft, eggjaduft og allskonar krydd í bréfum og lausri vigt. Sanitas-verksmiðj- an var stofnuð árið 1905 og er elsta gosdrykkjaverksmiðja landsins, enda eru framleiðslu- vörur verksmiðjunnar kunnar um land alt. 1 sömu stofu sýnir Friðrik Magnússon & Co. Vörutegund- ir þær, sem sýndar eru, eru saftir, soyur, bökunarvörur, fægilögur o. fl. Efnagerð Frið- riks Magnússonar var sett á stofn í fyrra. Efnagerð þessi liefir aðsetur sitt á Grundarstíg 11 og hefir á boðstólum efna- vörur, sein nefndar eru Evu- efnavörur, svo sem: Gerduft, eggjaduft, sódaduft, kanel, h. og st., pipar, hv. og sv., allrahanda, múskat, negul, engifer, karry- duft, kúrennur, hjartarsalt, sitrónu, vanilla, kardemommu- og möndludropa, ávaxtalit, eggjalit, vínberjaedik, ediks- isýru, kjöt- og fisksoyur, kirsu- berjasaft, salatolíu, salmialí- spíritus, fægilög o. fl. í ritgerð Sigurðar Skúlasonar um iðnað og iðju íslendinga, sem birtist í Visi í vetur, er komist svo að orði um efnagerð F. M.: „t ná- inni framtið er i ráði að auka framleiðsluna að miklum mun og fara inn á ný svið, enda hef- ir salan gengið prýðilega það sem af er og farið hraðvax- andi.“. Loks sýnir Burstagerðin framleiðslu sína í stofu nr. 4. Eru framleiðsluvörur Burstagerðarinnar vandaðar og snotrar og ætti menn að kaupa vörur Burstagerðarinnar lieldur en samskonar erlenda framleiðslu. Frh. Prestastefoan 1932 Á fimtudag 23. júni hófst prestastefnan hér í bænum með guðsþjónustu í dómkirkjunni, að viðstöddum fjölda presta og miklu fjölmenni sóknarfólks; því að í guðsþjónustu þessari fór fram vígsla þriggja prests- efna, kandídatanná Garðars Þorsteinssonar (skipaðs sóknar- prests í Garðaprestakalli), Jóns Jakobssonar (setts sóknarpriísts á Bildudal) og Jóns Þorvarðar- sonar (aðstoðarprests til Mýr- dalsþinga). Síra Eiríkur Alberts son á Hesti flutli sýnódus-pré- dikun og lýsti um leið vígslu, en við vígslmia aðstoðuðu síra Eiríkur Albertsson, síra Þor- varður próf. Þorvarðarson og háðir dómkirkjuprestarnir. Síra Jón Jakobsson prédikaði eftir vigslu, en siðan vorU ungu prestamir, ásamt biskupi og synodusprestmium til altaris, en dómkirkjuprestar báðir þjónuðu fyrir altari. Kl. 5 síðd. var prestastefnan sett af biskupi í samkomusal K. F. U. M. og liófst með bænar- flutningi og sálmasöng. Voru þar þá mættir 38 andlegrar stéttar menn (meðal Jieirra 6 uppgjafaprestar) og 4 kandí- datar í guðfræði. f Bislcup gaf síðan ítarlegt yfir- lit yfir viðburði næstliðins far- dagaárs. Mintist liann fyrst Jiriggja látinna presta þjónandi, þeirra prófastanna sira Áma Bjömssonar i Hafnarfirði og sira Jóns Pálssonar á Höskulds- stöðum og prestsins síra Sigurð- ar Jónssonar i Lundi og upp- gjafaprestanna og prófastanna sira Einars Jónssonar á Hofi og Stefáns Jónssonar frá Staðar- hrauni, enn fremur prestsins Þórðar Tómassonar í Vemme- tofte á Sjálandi, og loks fyrram prests á Kvíabekk, sira Magnús- ar Ó. Jósefssonar, sem látist hafði vestur í Winnipeg. Einnig mintist biskup látinnar prests- ekkju, Ragnliildar Gísladóttur frá Eyvindarhólmn. Lausn frá prestskap hafði að eins einn prestur fengið, síra Einar próf. Tliorlacíus í Saurbæ. Nýir próf- astar liöfðu verið skipaðir, síra Bjöm Stefánsson á Auðkúlu fyrir Húnavatnsprófastsdæmi, og síra Þorsteinn Briem fyrir Borgarfjarðarprófastsdæmi. — Settir liöfðu verið prófastar síra Bjami Jónsson fyrir Kjalamess- og síra |Þ|orv. Þorvarðarson fyr- ir V. Skaftafellsprófastsdæmi. Prestaköll höfðu verið veitt 5 að tölu (Eyraprestakall síra Einari Sturlaugssyni, Grenjaðarstaðir síra Þorgr. V. Sigurðssyni, Hösk uldsstaðir síra Helga Konráðs- syni, Breiðabólstaður á Skógar- strönd síra Bergi Björnssyni og Garðar á ÁJftanesi kand. Garð- ari Þorsteinssyni). En í þessi prestaköll höfðu verið settir prestar: I Kirkjubæjarldaust- ursprestakall kand. Óskar Þor- láksson, í Bíldudalsprestakall kand. Jón Jalcobsson og í Saur- bæjarprestakall á Hvalfjarðar- strönd síra Sigurjón Guðjóns- son. — Vígslu liöfðu tekið á ár- inu: Próféssor S. P. Sívertsen, sem vígslubiskup, en 5 lcandí- datar hlotið prestsvígslu (að Jjremur síðastvígðum meðtöld- uin). Þá mintist biskup nýrra kirkjulegra lagaboða frá sumar- þinginu 1931 og frá síðasta þingi, skýrði frá kosningu i kirkjuráð af hálfu prestastéttar (kosnir liöfðu verið Þorsteinn próf. Briem og vigslubiskup S. P. Sívertsen). — Nýjar kirkjur höfðu verið reistar í Vallanesi og Skarði á Landi, endurreistar i Gröf i Skaftártungu og á Lága- felli, og væri ]>ær að skoða sein nýjar. Lágafellskirkju hafði biskup vígt, svo og kirkjuna í Vallanesi og á Skarði. Einnig hafði liann lagt hyrningarstein hinnar nýju kirkju Siglufjarðar, sem enn yæri í smíðum. Einnig væri i smiðum ný kirkja i Tjörn á Vatnsnesi. Loks hcfði Skútu- staðakirkja fengið þá einlcenni- legu viðgerð, að steypt hefði verið utan um liana alla se- mentssteypu,. svo að hún væri nú orðin sem úr steini. — Ný prestseturshús höfðu verið rcist á Mosfclli í Mosfellssveit, á Skinnastað og á Vatnsenda í L j ósavatnsskarði. Loks mintist biskup bóka- gjörðar kristilegs og kirkjulegs efnis, tímarita, sem hætt væru að koma út (Straumar og Lind- in) og þeirra, sem enn kæmu út (Prestafélagsrits og Bjarma o. fl.). Þá drap hann að endingu á endurskoðun Helgisiðabókar- innar, sem nú mætti fullger heita af liendi Jieirra vígslubisk- ujis Sig. Sivertsen og dócents Ásmundar Guðmundssonar, er falið hafði verið Jiað verk á sið- ustu prestastefnu. Og mundi J)að verk J)eirra verða lagt fyrir prestastefnu Jiessa og nefndir lcosnar til að yfirfara J>að. Þá fór fram úlhlutun styrkt- arfjár lil 52 prestsekkna og 4 uppgjafapresta. Var alls úthlut- að kr. 9590.00. Enn fremur var lagður fram reikningur Prests- ekknasjóðs, sem við nýár var orðinn 62480.43. Voru að endingu kosnar 4 nefndir til að yfirfara tillögur helgisiðabókamefndar, og að því loknu fundi slitð. Kl. 9 um kveldið flutti vígslu- biskup Sig. P. Sivertsen erindi i dómkirkjunni um starfshætti kirkjunnar. Miðvikudag 24. júní kl. 9 árd. var aftur settur fundur. Flutti Guðm. próf. Einarsson stutta bænargjörð i byrjun fundar. Þá gerði docent Ásm. Guðmunds- son grein fyrir störfmn Bama- heimilisnefndai- á liðnu ári og lagði fram endurskoðaða reikn- inga fjxir þeirri starfsemi. Gat hann Jiess m. a. að nú væri ung- frú Friðjxira Stefánsdóttir við nám i Lundúnum til undirhún- ings barnaheimilisstarfssemi á Siglufirði (daglieimili). Aðal- starfið hefði verið að Ilverakoti i Grímsnesi, sem nefndiu hefði keypt í því skyni. Hefði J>að heimjli verið vel sótt undir á- gætri forstöðu ungfrú Sesselju Sigmundsdóttur. Ritlaun sín fyrir „Kveldræður“ — 1000 kr. — hefir síra Magnús Helgason gefið til Jiessarar mannúðar- starfsemi. Loks var nefndin endurkosin i einu liljóði. Eftir stutt fundarhlé flutti dómkirkjuprestur Bjarni Jóns- son erindi um afstöðu kirkjunn- ar til nýjungastefnu, sem tekið væri að bóla á, meðal vor. — Óskaði fundurinn mjög ein- dregið, að J)etta erindi mætti koma.sem fvrst fyrir almenn- / ^ * s ingssj(3nir. Þá var endurkosinn í lit- varpsráð síra Friðrik Hall- grímsson, í einu hljóði. Og í bókanefnd j)restakalla J)eir vígslubiskup Sig. P. Sívertsen og Ásm. Guðmundsson docenl. En varamaður var kosinn sira Bjarni Jónsson. Kl. 4y2 siðdegis gaf biskuj) skýrslu um messugjörðir á liðnu ári. Ilöfðu messur orðið alls 3647 innan þjóðkirkjunnar og kæmu þá að meðaltali 37,3 messur á hvern prest (en 9 jirestaköll liöfðu prestslaus ver- ið og orðið að lilita J)jónustu nágrannapresta). Tala altaris- gesta liefði orðið 5023. Fermdir höfðu' verið ca. 1800. Fæðst höfðu á öllu landinu næstliðið ár 2768 (en J)ar af 62 andvana). Látist höfðu alls 1252 (603 karl- ar, 649 konur) og 675 hjón ver- ið saman gcfin, J)ar af 60 með borgáralegri hjónavígslu. Þá var tekið að ræða tillögur lielgisiða-nefndar og lengst af rætt liið fyrirhugaða nýja guðs- J)jónustuform, eins og nefndin liafði gengið frá J)ví. Ósk kom fram J>ess efnis, að tillögumar yrði fjölritaðar, svo að prestar gæti sem best áttað sig á Jæim nýmælum, sem J)ar væru á ferð- inni og var tillaga i þá átt sam- þykt. — Einnig var nokkuð rætt um J)á breyttu tilhögun á skirn- ar-, fermirigar- og altarisgöngu- formi, sem nefndin hafði liugs- að sér. Iin umræðum var ekki lokið um það á þeim fundi, svo framorðið sem var orðið. Var þvi fundi slitið kl. ll/2. Kl. 9 um kveldið flutti bisk- up erindi i dómkirkjunni: H\rað er heilög ritning fjxir vora tíma? Niðurl. Veðrið í raorgun. Hiti í Reykjavík 6 st., IsaíirÖi 5, Akuréyri 4, Seyðisfirði 7, Vestm.- eyjum 7, Stykkishólmi 5, Blönduósi 5, Hólum í Hornafirði 8, Grinda- vík 7, Færeyjum 8, Jan Mayen 3, Angmagsalik 9, Hjaltlandi 10, .Tvnemouth 15. (Skeyti vantar frá Raufarhöfn, Julianehaab og Kaup- mannahöfn). Mestur hiti hér í gær 14 st.. minstur 4 st. Sólskin í gær 7,4 stundir. Úrkoma 1,6 mm. — Yfirlit: Alldjúp lægð fyrir austan ísland. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói, Breiðafjörður: Stinn- ingskaldi á norðan. Víðast úrkomu- laust og léttskýjað. Vestfirðir, Norðurland, norðausturland, Aust- firðir: Norðaustan átt, sumstaðar allhvasst. Kalsaveður og dálítil rign- ing í útsveitum. Suðausturland: Norðan kaldi. Bjartviðri. Siglufjarðardeilan. Verksmiðjustjórnin hefir svarað tilboði verkamanna um ákvæðis- vinnu i verksmiðjunni með J)vi að óska eftir nánari skilgreiningu á því, hvað fólgið væri í ákvæðis- vinnutilboði verkamanna. Gullverð ísl. krónu er nú 60.72. __/ Áttræðisafmæli. Áttræð verður á morgun Kristín Jónsdóttir, sem lengi var á Kaldárhöfða, en riú er á Ellihéimilinu. 0 Íslandsglíman var háð á íþróttavelhnum í gærkveldi. Átti hún að byrja kl. 8% en svo fór að klukkan varð 9 áður en hún byrjaði. Er slík óstundvisi með öllu óþolandi og á síst heima J)ar sem íjirótta- menn eiga í hlut. Veður var óhagstætt, kalt og livasst, en J)fátt fyrir það fór ghman all- vel fram. Keppendur voru átta, en tveir J)eirra, J>eir Kjartan Bergmann og Georg Þorsteins- son, gengu úr í miðjum klið- um vegna lítilsháttar meiðsla. Úrslit urðu þau að Lárus Sal- ómonsson (Á) lagði alla að velh og lilaut því sæmdarheitið „Glimukongur íslands“ — Næstur varð Sigurður Thorar- ensen (A) feldi alla nema Lór- us og l)riðji Þorsteinn Einars- son (Á), lagði alla netna Lárus

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.