Vísir - 08.08.1932, Síða 3
V I S I R
.ann og upp Skeiðin má sjá f jöll
þau og jökla er nú skal telja:
Hengil, Búrfell i Þingvallasveit,
Botnssúlur,, Iválfstinda, Lang-
jökul með Jarlhettum. í nær-
sýn til vinstri eru Ingólfsfjall,
Hestfjall á Skeiðum og Búrfell
i Grímsnesi, Vörðufell. í Hrepp-
unum blasa við hin fögru og
sérkennilegu fell: Miðfellsfjall,
Galtafell, Núpsfjall, Hagafjall
og Skarðsfjall á Landi, aust-
an Þjórsár og nokkuru
neðar. í austri gnæfir Hekla og
sunnar Tindafjallajökull og
Eyjaf jallajökull. Á Ásólfsstöð-
;um er útsýnið mikilfenglegt.
Bærinn stendur utan í hárri
Iiæð. Fyrir innan er Skriðufell
og skógi vaxinn ás, er Vatnsás
nefnist. í suðaustri er Hekla.
Suður af henni liggja Næfur-
holtsfjöll og Bláfell, en að baki
þessara fjalla skin á Tindfjalla-
jökul og sunnar á liinn fagra
.„Eyjafjallaskalla“, sem Bjarni
nefnir í einu kvæða sinna.
Ásólfsstaðafjall er giljótt og
skógi vaxið, innar af bænum.
Er þar víða mjög fagurt um að
litast, lækir i skógi vöxnum
giljum, fossar og skógarlautir.
Er skamt að ganga á Hestfjalla-
hnjúlc. En af Hestfjallahnjúki
er mjög víðsýnt. Má þaðan að
sögn líta öll fjöll og jökla, sem
sjást af Heklutindi, nema þau,
sem Hekla skyggir á. — Fvrir
innan Skriðufell tekur við
„auðnin mikla“. Til vinstri er
skógi vaxinn ás er Dímon nefn-
ist. Inni á dalnuxn eru þessi
fjöll. Fossalda, Rauðu Iíambar,
Stangarfjall. (Undir Stangar-
fjalli bjó Gaukur Trandilsson).
Skelja(staða)fjall og' Búrfell.
Neðarlcga á þessu svæði er
Hjálparfoss, en Gjáin nokkuð
ofar. Er hún hömrum luktur
dalur og rennur Fossá um
hana með mörgum fossum og
flúðum. Er ilt til þess að vita,
;að ferðamenn skul leyfa sér að
fleygja þar pappír, pjáturdós-
um og öðru rusli. Ætti þó að
vera vandalítið að stinga þess-
um hlutum aftur í ferðatöskur
sínar eða grafa þá niður á sönd-
unum í Þjórsárdal. Innarl. á ör-
æfunum er Háifoss. Er liann
afar tilkomumikill og' ætti þeir,
sem koma í Þjórsárdal ekki að
láta undir höfuð leggjast, að
skoða hann. — Að Ásólfsstöðum
i Þjórsárdal liefir verið reist
veitingaliús fyrir nokkuru og
<er þar mjög gestkvæmt livert
sumar. Þykir öllum ágætt þar
.-að vera, enda fer fólksstraum-
urinn þangað sívaxandi ár frá
cári.
Ferðalangur.
Norskar
loftskejtafregnir.
NRP. 6. ágúst. FB.
Vísindaleiðangur leggur af
rstað í kvöld frá Álasundi til
landsvæðis þess, sem Norð-
menn hafa lagt undir sig i suð-
austur Grænlandi. Til farar-
innar Jiefir verið leigl mótor-
„skipið „Veslekari“. Skipstjóri
þess er kapt. Pilskog, en for-
ingi fararinnar er Dr. Gunnar
Horn. Haffræðingur leiðang-
imsins er Kjær, sjóliðsforingi.
Leiðangurinn stendur yfir um
ivo mánuði.
Frá Mývogi (á Grænlandi):
.Síðastliðna föstudagsnótt flaug
norski flugmaðurinn Aagenæs
«uður yfir, til þess að finna
.iendingarstaði. Flaug hann yf-
ir Franz Jósefs-fjörð og Geo-
grapliical Society eyna. Komu
þar i Ijós margar skekkjur á
landabréfinu. Ivringum 10 not-
hæfir lendingarstaðir fundust.
Aagenæs flaug 350 km. og var
þrjár klukkustundir í ferðinni.
Samkvæmt fregn í Aftenpos-
ten ætlar Bernt Balchen að
fljúga í þessum mán. frá Min-
neapolis til Bergen og Oslo, í
gríðarstórri flugvél, með 20
farþega og 6 manna áliöfn.
Ætlun hans er að rannsaka
skilyrði fyrir • reglubundnum
póstflugferðum um Grænland
og ísland.
Samkvæmt fregn i Tidens
Tegn hefir veiðiskipið Elf, frá
Álasundi, sokkið kring um 30
mílur út af Hornsundi. Áhöfn-
inni, 12 manns, var bjargað, og
flutt til Svalbarða.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 11 st., Isa-
firði 9, Akureyri 10, Seyðisfirði
15, Vestmannaeyjum 8, Stykkis-
hólmi 11, Raufarhöfn 10, Fær-
eyjum 12, Julianehaab 4, Jan
Mayen 8, Hjaltlandi 13, Tyne-
mouth 13. — Mestur hiti liér í
gær 14 st., minstur 8 st. Sólskin
4.5 st. Urkoma 7.7 mm. — Yfir-
lit: Lægðarmiðjan er nú yfir
suðurströnd íslands og hreyfist
austureftir. Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói: Stinningskaldi
á norðan. Léttir til. Breiðaf jörð-
fjörður, Vestfirðir, Norðurland:
Norðan og norðaustan kaldi.
Þurt og víðast bjart veður. —
Norðausturland, Austfirðir: •—
Suðaustan kaldi. Sumstaðar dá-
litil rigning. Suðausturland:
Breytileg átt. Sumstaðar all-
hvass. Rigning öðru hverju.
Síra Bjarni Jónsson,
dómlcirkjuprestur, hefir ver-
ið skipaður prófastur i Kjalar-
ness-próf astsdæmi.
Síra Jón Thorarensen,
prestur i Stóra-Núps-presta-
kalli, liefir verið skipaður prest-
ur i Hruna.
Ríkið borgar.
Eg' sá þess getið í blöðunum
nýlega, að tveir menn hefði þá
deginum áður siglt til útlanda,
að sjálfsögðu á ríkiskostnað og
að nafni til í erindum Útvarps-
ins og einkasölu ríkisins á út-
varpstækjum. Þessir menn voru
þeir Jónas Þorbergsson ■ og
Sveinn Ingvarsson. Sennilega
hefði nú enginn þurft að sigla í
þeim erindagerðum, sem þess-
ir memx fóru, og fráleitt nema
einn, enda hyggja menn, að
báðir hafi farið til þess aðallega,
að kaupa grammófónplötur.
Gerast nú smá erindin, en ekki
virðist vera horft í skildinginn
nú fremur en áður, þegar fram-
sóknar-kommúnista langar til
að lyfta sér upp.
H.
Jón Þorláksson
alþm. var meðal farþega á
Goðafossi í gær. Hefir lxann
dvalist í Þýskalandi sér til
heilsubótar síðan skömnni eftir
þinglausnir í vor.
Fimleika og glímusýningu
höfðu Svíþjóðarfarar Ármanns i
gær í Grindavík og Keflavík við
ágæta aðsókn og mikla hrifningu
áhorfenda. Ben. S. Waage, íorseti
1. S. í. var með flokknum og flutti
Stlitt erindi á báðúm stöðunum.
Norsku sendimennirnir
sem hér hafa undanfarið verið
að semja urii verslunarviðskifti
Norðmanna og íslendinga fara
heimleiðis með Lyru á fimtudag.
F.kkert hefir enn verið tilkynt opin-
berlega unx árangur af samninga-
umleitunum þessunx.
Bæjarráðið
kom saman á fund í fyrsta sinn
á laugardaginn var. Borgarstjóri
var kosinn formaður ráðsins en
Stefán Jóh. Stefánsson ritari og
Jakob Möller vararitari.
María Markan
söng í Gamla Bíó á föstudag
síðastl. við ágætar viðtökur áheyr-
enda. Ungfrúin endurtekur söng-
skemtunina annað kveld.
Lögrétta
er nýlega kornin út (2. og 3.
hefti) og flytur margvíslegt efni.
Fremst er greinaflokkur (Um víða
veröld) eftir Vilhj. Þ. Gíslason, en
því næst erindi urn Sigurð Breið-
fjörð skáld, eftir Þorstein Gísla-
son. Efni Lögréttu er svo marg-
breytilegt. að ekki verður alt talið
í fáunt orðurn. Það er yfirleitt læsi-
legt og fróðlegt og sumt skemtilegt.
Lögréttu hefir verið vel tekið i
hinum nýja búningi. Mun kaupönd-
um hafa fjölgað að mun og bætast
nýir við, svo að segja daglega.
Fisksölusambandið
hefir leigt 6 skip til fiskútflutn-
ings i þessum mánuði. Eitt þeirra
er þegar farið og önnur tvö á för-
unt.
Vcðurspárnar.
Því verður ekki neitað, að veð-
spárnar eru nú orðnar okkurn veg-
inn áreiðanlegar og óhætt að. íara
eftir þeirn. Er það rnikil breyting
frá því, sein áður var (t. d. vorið
1926), þvi að þá þóttu spárnar
ekki ganga eftir, frekar en verkast
vildi. Það er vafalaust miklurn erf-
iðleikum bundið, að spá urn veður
hér á þessu umhleypingasama
landi og í rauninni furða, hversu
oft spárnar rætast. — En stundum
getur rnaður orðið fyrir sárum
vonbrigðum, að því er þetta snert-
ir. Spáð var t. d. síðastliðinn laug-
ardagsmorgun, að létta mundi til
þá urn kveldið og gera norðan
kalda hér umhverfis Faxaflóa og á
suðvesturlandi. — Þetta rættist
ekki, og hefir verið .leiðindaveður
síðan oftast nær og úrkorna með
köflum. Við tókum okkur til nokk-
ur, sem treystum veðurspánni, og
lögðum í ferðalag á laugardaginn
og áttum von á norðanátt og bjart-
viðri. Þetta rættist ekki, og varð
veðurspáin til þess, að við eyddurn
miklum peningum (bifreiðakostn-
aður), en hlutum enga skemtun.
Ungur maður.
Fiskútflutningurinn
í júlímánuði. Saltfiskur verkaður
2.056.390 kg. verð 734.200 kr. Á
tímabilinu jan.—júlí 29.Ó52.490 kg.
verð 9:937.070 kr. Á' sarna tima i
fyrra 24.616.320 kg. verð 9.526.130
kr. Saltfiskur, óverkaður 181.120
kg. verð 26.000 kr. Á tírnab. jan.—
júlí 12.239.300 kg. verð 2.392.740
kr. á sarna tima í fyrra 9.857.550
kg., verð 2.552.460 kr. Andvirði
útílutts ísfiskjar i'júli 24.760 kr.,
jan.—júlí 2.333.610 kr. Á sama
tíma fyr.ra 2.542.510.
111 meðferð á götu.
Því miður hefir svo illa tek-
ist til með þjóðleikliúsið, að
kjallarinn undir því hefir ver-
ið grafinn einuni nietra of
skamt í jörðu, eða verið haföur
einum metra of hár. Úr þessu
er nú verið að bæta með því, að
hlaða upp að liúsinu á 3 vegu,
en að sunnan, út að Hverfis-
götu, eru tröppurnar upp að
Ttimatar aðeins 0,75 pr. ‘|2 kg.
Rófur, Næpur, Gulrætur, Agúrkur, Selleri, Persille, Citronur,
Hvítkál, Rauðbeður og Lauk er best að kaupa í
MATARVERSLUN
Tómasap Jónssonar,
Laugavegi 2.
Sími: 212.
Laugavegi 32. Bræðraborgarstíg 16.
Sími: 2112. Sími: 2125.
Norsk fir:
9 I
ia
söker forbindelse með eksportör av törket faare-
kjölt for straks levering. Billett med prisopgave
mrk. „God kvalitet“ i bladets eksp. f. v. b.
innganginum hafðar þeim mun
Iiærri, sem liækkuninni nemur.
Er það að visu ókostur og til
nokkuiTa óþæginda, en ekki til
teljandi lýta. Uppfylling lóðar-
innar norðan við húsið verður
til þess, að hækka verður Lind-
argötu til mjög mikilla muna,
og liafði þó slakkinn á götunni
á þessum kafla þegar áður verið
uppfyltur. Af þessari viðbótar-
hækkun leiðir nú, að hæpið er
að komist verði inn í Arnar-
hvál af jafnsléttu. Má jafnvel
gera ráð fyrir að hann fari í
kaf að einhverju leyti, og langt
nær þessi uppfylling upp fyrir
glugga kjallaríbúðarinnar þar.
Hin húsin, sem standa austar í
götunni, næst leikhúsinu, fara
alveg í kaf upp á miðja veggi,
eða vel það. Vær nógu fróðlegt
að fá að vita, hver búhnykkur
er i þessu, og hver greiðir
skaðabætur til húseiganda, sem
hér eiga hlut að niáli, því að
vitanlega er hér að ræða um
rnikla eignarýmun við það, að
liúsin liverfa í jörð ofan.
Borgari.
Gjöf
til bágstöddu ekkjunnar, af-
hent Vísi: 2 kr. frá N. N.
Skip Eimskipafélagsins.
Goðafoss kom í gær frá út- j
löndum. Gullfoss og Selfoss
koma í dag. Brúarfoss er í
Kaupmannahöfn.
Farþegar
á Goðafossi í gær voru 39,
þar á meðal ungfr. Anna Þor-
láksson, María Thorsteinson,
Hanna Jóhannesson, Helga Lax-
ness, stúdentarnir Sveinn Þórð-
arsoii, GunnL G. Bjömsson,
Finnur Guðmundsson og Jón
Gíslason og allmargir útlend-
ingar.
Heita vatnið.
Viljið þér, herra ritstjóri,
birta eftirfarandi línur í heiðr-
uðu blaði yðar og flytja svar
réttra lilutaðeiganda, ef það
skyldi berast, en það vona eg
að ekki bregðist: — Hafa nokk-
urar ráðstafanir verið gerðar
til þess, að nota íramvegis það
heita vatn, sem nú streymir i
sjóinn hér i bænum, engum til
gagns? Eg liefi /eitt þvi athygli
tvo undanfarna vetur, að það
rýkur úr öllum skolpleiðslum á
Bergþórugötu, og Barónsstíg
innan við Austurbæjarskólann,
og við nánari athugun hefi eg
komist að raun um, að lxeita
vatnið, sem rennur gegn um
skólann, muni vera alt að því
60 stiga lieitt, er það lcemur í
liolræsið. Vatn þetta mundi að
sjálfsögðu nægja til þess að
liita nokkur hús þar i nágrenn-
inu, og finst mér nálega óaf-
sakanlegt, að láta það streyma
í sjóinn engum til gagns. Væri
jxeningum þeim, sem spara
mætti í kolakaupum við það að
Gs. „Goðafoss“
fer héðan annað kveld til Pat-
reksfjarðar, Isafjar'ðar, Siglu-
fjarðar og Akureyrar.
ELOCHROM fllmur,
(ljós- og litnæmar)
6x9 cm. & kr. 1,20
«%Xll---— 1,50
Framköllun og kopíering
——— ódýrust. *----------—
Sportvöruhús Seykjavflcur.
taka vatnið til notkunar, betur
varið i þarfir bæjarins. Von-
andi verður þetta rannsakað ná-
kvæmlega. Við höfum ekki efni
á því, að „flevgja peningum í
sjóinn." — Borgari.
Gengið í dag.
Sterlingspund ......Kr. 22,15
Dollar ............. — 6,43
100 rikismörk.......— 153,20
— franskir fr. ... — 25,31
— Belgur ...........— 89,14
— svissn. fr.....— 125,64
— Lírur ........... — 32,99
— jxesetar .........— 52,70
— Gyllini ..........— 259,01
— tékkósl. kr....— 19,17
— sænskar kr. ... — 114,32
— norskar kr. .... — 111,17
— danskar kr.....— 119,09
Gullverð ísL krónu
er nú 58,03.
Útvarpið í dag.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tónleikar: Alþýðulög.
(Útvarpskvartettinn).
20,00 Klulvksláttur.
Söngur.
Píanósóló.
20.30 Fréttir.
Músik.