Vísir - 25.08.1932, Side 2
Haframjöl „Viking“.
By099rjón „Cerena“.
Notið þessar hollu og ódýru tegundirl
Lee og Boehkon
lialda áfram Noregsfluginu,
Nánari fregnir af norsku
fiugmönnunum.
Manilla
fyrirliggjandi.
Þðrðnr Sveinsson & Co.
Osló 24. ágúst.
NRP. — FB.
Flugmennirnir Solberg og
Lee lögðu af stað frá New York
í gœr í fyrsta áfanga Noregs-
flugsins. Frá Lee liafa enn
engar fregnir borist, en loft-
skejúi hefir borist frá Solberg
þess efnis, að liann geti ekki
að svo stöddu lent á New-
foundlandi, vegna livassviðris
og þoku, en hafi nægilegt bén-
sín til 7—8 klst. flugs, og muni
fljúga fram og aftur, þangað
til veður batni og tiltækilegt
verði að lenda.
Siðari N.R.P.-fregn hermir,
að flugvél Solbergs hafi eyði-
lagst í lendingu, en Lee' liafi
lent á\Newfoundlandi (staður
ekki tilgreindur) án þess tjón
yrði að.
Hutdiinson
lendir heilu og höldnu á
Labrador.
St. Johns, N. B. 24. ágúst.
United Press. - FB.
Hutchinson lagði af stað lil
Anticosti kl. 3.40 e. li.
St. Johns, N. B., 25. ágúst.
United Press. - FB.
Hutehinson lenli í Port Me-
nier, Anticosti, kl. 6.45 e. h. í
gær.
Frá von Gronau.
Cordova, Alaska, 24. ágúst.
United Press. - FB.
von Gronau lenti Iiér í dag.
Kom hann nokkuru seinna en
búist hafði verið við, enda
liafði hann beðið Iiagstæðara
^veðurs i Yukatat.
Símskeytl
Madrid, 25. ágúst.
s United Press. - FB.
Ólgan á Spáni.
Ráðherrafundur verður liald-
inn í dag og liefst kl. 11 f. h.
Alcala Zamora verður í forsæti.
United Press hefir fregnað, að
frestað verði að kveða u]>p dóm
yfir San Jurjo og öðrum upp-
reistarleiðtogum, þangað til ráð-
herrafundinum er lokið.
Öflugur lögrcgluvörður er
viðsvegar i Madrid og fleiri
borgum, enda var orðróm-
ur á sveimi i Madrid allan
daginn i gær, að einveldissinn-
ar ætli þá og þegar að gera aðra
tilraun til þess að brjótast til
valda, en kl. 3 i nótt tilkynti inn-
Iiarbour Grace 24. ág.
'United Press. - FB.
Lee og Bochkon lentu kl.
7.20 e. h. i gær og voru í nótt
í Burgeo. — Hinir flugmenn-
irnir, sem eru á leið til Osló,
Solberg og Petersen, neyddust
til að lenda nálægt Darbyhöfn,
skamt frá Harbour Grace. Þeir
meiddust lítilsbáttar, en flug-
vél þeirra ejTðilagðist.
Harbour Grace 24. ágúst.
United Press. - FB.
Lee og Bochkon gera ráð fyr-
ir að halda áfram flugi sínu
til Oslo, í kveld eða fyrramál-
ið, ef véðurborfur verða bag-
stæðar.
anrikismálaráðherrann, að alt
væri með kyrrum kjörum hvar -
vetna í landinu.
Byltingartilrann
einveldissinna á Spáni.
—o—
Spánverskir einveldissinnar
gerðu tilraun til þess þ. 10.
ágúst, eins og kunnugt er orð-
ið af skeytum þeim, sem liing-
, að bárust, að brjótast til valda.
Frá byltingartilraun þessari
er skýrt á þessa leið í enskum
blöðum í símskeytum frá Madr-
id.
„Spánverskir einveldissinn-
ar gerðu tilraun til þess í dag
(þ. gí' 10. ágúst) að brjótast til
valda i Madrid og á fleiri stöð-
uní i landinu. Tilraun þeírra
fór út um þúfur í höfuðborg
landsins, og þeim tókst ekki
að vinna herinn á sitt band, en
i Sevilla liefir þeim orðið
nokkuð ágengí, og þar blaktir
fáni þeirra, er þetta er símað.
En stjópn liins spánverska
lýðveldis liefir gert sínar ráð-
stafanir til þess að dvöl þeirra
þar verði skömm. Fimtán þús-
und fótgönguliðsmenn, liollir
lýðveldinu, eru á leiðinni til
Sevilla, flugvélafloti og fimm
tundurspillar. Sanjurjo hers-
böfðingi tilkynti þar, að hann
hefði mvndað bráðabirgða-
stjórn. Bendir alt til, að liann
bafi stuðning herliðs þess, sem
þar befir bækistöð sína. San-
jurjo hersböfðingi var höfuðs-
maður borgara-varðliðsins, er
lýðveldið var stofnað. Átti
hann mikinn þátt í þvi, að lið
þettagekk í flokk með lýðveldis-
sinnum. Er alment talið, að ef
]>að íiefði snúist á móti lýð-
veldissinnum, þá hefði þeir
ekki náð völdunum i sínar.
liendur, nema með miklum
blóðsúthellingum.
V I S I R
Símasamband Sevilla við
aðrar borgir og landsliluta er
slitið, þegar þetta er símað,
svo að erfitt er að fá sannar
íregnir um hvað gerst hefir og"
er að gerast. Samkvæmt sum-
um fregnum, sem borist hafa,
breiðisl uppreistin út um alla
Andalúsiu, en þessar fregnir
hafa ekki verið staðfestar.
Einnig hafa borist fregnir um
það, að jafnaðarmenn í SeviIIa
liafi gert allsherjarverkfall, til
þess að koma í veg fyrir .að
áform Sanjurjo hepnist.
Flugvélar lýðveldishersins
flugu yfir Sevilla seinni hluta
dags í dag" og vörpuðu niður
fregnmiðum frá ríkisstjórn-
inni. Tilkynti ríkisstjórnin
með fregnmiðum þessum, að
byltingin hefði verið kæfð í
fæðingunni í Madyid, og hvatti
allan almenning til þess að
rísa upp gegn Sanjurjo og liði
hans.
Hinn bráðlyndi og stirðlund-
aði hershöfðingi uppreistar-
manna sér sennilega þegar
sína sæng upp reidda. Flann
getur ekki borið sigur úr být-
um. Ilann hefir ekki nema um
tvent að velja: Berjast, fyrir-
fram viss um ósigur, eða gefa
sig og menn sína lýðveldinu á
vald. Giskað er á, að liann liafi
5000 manna liði á að skipa.
Lýðveldisherdeildir eru á leið-
inni frá Madrid, Algeciras og
Ceuta, og floti herskipa er á
leiðinni upp Guadalquivir.
Ríkisstjórnin hefir tilkynt,
að herlið, sem Sanjurjo sendi
til þess að sprengja í loft-upp
brú við Laura del Rio, hafi
verið handtekið af lýðveldis-
hernum áður en því tadíisl að
sprengja upp brúna.
í Madrid var uppreistartil-
raunin Iiafin i dagrenning.
Uppreistartilraun þessi kom
almenningi mjög að óvörum,
en rikisstjórnin hafði einhvern
grun um, hvað var á seyði.
Lögreglan liafði gert ríkis-
stjórninni aðvart, og áður en
byltingartilraunin hófst, var
búið að setja öflugan hervörð
i nánd við stjórnarbyggingarn-
ar og fleiri opinberar bygging-
ar. Brynvarðar bifreiðir voru
og til taks.
Uppreistarmenn lögðu fyrst
leið sína til pósthússins. Nokk-
urir uppgjafaforingjar úr
hernum gengu inn í húsið og
skipuðu varðmönnum þeim,
scm þar vpru, að vekja yfir-
foringja sinn og vikja úr hús-
inu. Varðmennirnir svöruðu
þessu á þann hátt, að þeir
gripu fayssur sínar og miðuðu
þeim á yfirforingjana. Um
fijntíu uppreislarmanna kom-
ust inn i bygginguna, en eigi
tókst þeim að kúga varðmenn-
ina. Barst varðmönnunum
brátt liðsauki. Uppreistarmenn
voru handteknir bardagalaust.
Um sama leyti gerðu 200—
300 sjálfboðaliðar tilrau til þess
að ráðast inn i skrifstöfur her-
málaráðuneytisins. Fvrir þvi
liði voru líka uppgjafa-vfir-
foringjar. Lögreglulið óð þá út
úr húsinu, vopnað rifflum, og
var fvrir því Menedez lög-
reglustjóri.’Lögregluliðið hafði
og vélbyssur við hendina. Upp-
reistarmenn liófu ])egar skot-
liríð á lögregluljðið, sem svar-
aði i sömu mynt, og hljóp brátt
flótti i lið uppreistarmanna.
Sex menn biðu bana í orust-
unni, en um tuttugu særðust.
Lögregluliðið rak flóttann og
handtók marga upprcistífr-
menn.
Nokkrir flóttamenn leituðu
skjýls í húsi ræðismannsins frá
Kúbu. Á meðal þeirra var einn
fyrverandi hershöfðingi. Þrír
fyrrum hátt settir yfirforingj-
ar, sonur hertoga nokkurs o. fl.
Á meðal hinna handteknu var
Cavalcanti, einn af bestu vin-
um Alfonso uppgjafakonungs,
Gobet hershöfðingi, til skams
tima herráðsforingi lýðveldis-
liersins, og herforingjarnir Fer-
nandes, Gonzales og Garrasco.
Fullvíst er, að riddaraliðs-
sveit, sem hafði aðalbækistöð
skamt frá Madrid, i Cetuan las
Victoras, ætlaði að snúast á
svcif með uppreistarmönnum
og var komin af stað á leið til
húss þess, sem liermálaráðu-
neytið hefir aðsetur sitt í. En
herdeildin kom of seint, -—*og
þegar hún varð þess vör, að
uppreistarmenn höfðu þegar
beðið ósigur, sneri hún þegar
við.
Almenningur er lieiftþrung-
inn i garð uppreistarmanna,
sem án efa ætluðu sér að koma
Alfonso að völdum aftur. Þeg-
ar í morgun kom sendinefnd
verkamanna á fund Azana for-
sætisráðlierra og krafðist þess,
að uppreistarsinnar fengi mak-
leg" málagjöld. Lýðurinn fór
svngjandi um göturnar, með
blaktandi lýðveldisfána, en hér
og þar var borinn hinn rauði
fáiri jafnaðarmanna. Miðstjórn
verkamannafélaganna kóm
saman á fund til þess að taka
ákvarðanir um á hvern hátt
verkamenn gæti best stutt rik-
isstjórnina. Miðstjórnin gaf út
áskorun .til verkalýðsiiis um að
vera reiðubúin til þess að
henda sér út í bardagann, ef
nauðsyn krefðj.
Útkoma sumra íhaldsblað-
anna var bönnuð og aðals-
mannaklúbburinn Gran Pena
var lokaður, þar eð grunur lék
á, að þar hefði verið samkomu-
staður konungssinna.“
(Framh.)
Ástand og horfor
I Þýskalandí.
—o—
Framh.
Mælt er, að Ilitler hafi lagt
áherslu á það í viðræðu sinni
við von Papen, að ríkisstjórn-
in nyti að eins stuðnings iðju-
hölda, stóreignamanna og stór-
bænda, tiltölulega fámenns-
hluta borgaranna í landinu.
Hann kvað meginhluta þjóð-
arinnar styðja stefnu Nazista.
Hann kvað þjóðina fá stjórn
við sitt hæfi, ef Nazistar fengi
völdin í sínar Iiendur. Hann
kvað engan flokk hafa eins
mikið fylgi meðal þjóðarinn-
ar, og þess vegna gæti hann
ekki fallist á, að flokknum
væri meinað að hafa mest á-
hrif á stjórn landsins. Að við-
ræðum þessum loknum var til-
kvnt, að Hitler myndi ráðgast
um livað gera skvldi, við helstu
menn flokks síns. En Hinden-
burg forseti fór til Neudeck,
sumarbústaðár síns.
Áður en Hindenburg fór, lét
lianh svo um mælt, að nauð-
i
syn bæri til að koma betra
skipulagi á það, sem gert er til
þess að draga úr atvinnuleys-
inu í landinu.
Blaðið Der Deutsche skýrði
frá því í dag (þ. 13. ág.), að
Hindenburg forseti myndi
segja af sér, ef Nazistar og
miðflokkurinn léti sér ekki
lynda, að ríkisstjórnin væri
áfram við völd.
Það er engum efa undirorp-
ið, að það, sem gerðist í dag,
var Nazistum mjög á móti
skapi. Þeir eiga mikið vanda-
mál óleyst. Þeir liafa krafist
þess, að þeirn væri fengiri völd-
in í hendur, en þeim kröfum
var ekki sint. Þeir liafa senni-
lega náð þvi fvlgi meðal þjóð-
arinnar, sem þeir geta mest
fengið. Þótt þeir fengi eigi
minna atkvæðamagn nú en í
næstsíðustu kosningum, þá
hefir fylgi þeirra rénað sum-
staðar. Hvað taka þeir nú til
bragðs ?
Þora þeir að hætta á að heita
valdi? Með öðru móti virðast
þeir eiýi geta náð völdunum í
sínar hendur.“
1 Framli.
Norskar loftskeytafregnir.
Osló 24. ágúst.
NRP. /— FB.
H. F. Norge á nýtt bræðslu-
skip i smíðum, senr ætlað var
til hvalveiðaleiðangra i suður-
höfum. Skipið er i smíðum í
skipasmíðastöðinni í Nakskov.
Eldur kviknaði í skipinu í gær,
en eftir hálfa aðra klukku-
stund tókst að slökkva eldinn.
Nýja stöðin í Rjukan var
vígð í gær. Aubert forstjóri
kvað svo að orði í ræðu, sem
hann hélt við stöðvarvígsluna,
að erfiðleikar þeir, sem Norsk
Hydro hafi átt við að stríða á
seinni árum, vegna tollmúr-
anna erlendis, fari nú mink-
andi. ‘
Gengi i Osló i dag: London
19.95. Hamborg 138.90. París
22.70. New York 5.77. Kaup-
mannahöfn 106.60. Stokkhólm-
ur 102.75.
Félagsprentsmidjan
Ingólfsstræti — Rcykjavík.
Leysir fljótt og vel af hendi alla prentun.
Sömuleiðis strikun á öllum skrifstofubókum.
Sigli (Seglmærke) fást með litlum fvrirvara.
Pappír, Karton og umslög fynrliggjandi í miklu úrvali.
I