Vísir - 25.10.1932, Page 3
V ISIR
ii\ en miklar líkitr væri til þess.
Voru þeir sýknaSir, cn íslcifur og
jón Raf.ns.son vortt dæmdir í 300
kr. sekt hvor, sem átti að afplánast
meÖ þriggja vikna einföldu fang-
«lsi, ef ekki væri greidd innan
ijögurra vikna frá löglegri birtingu
dómsins. — DómsniSurstaÖan í
Hæstarétti varÖ hinsvegar þessi:
Hinir ákærött, Jón Hafliðason og
Kristniundur Jónsson. eiga að vera
sýknir af ákærum réttvísinnar i
máli þessu. — Hinir ákærÖu, ts-
leifur Högnason og Jón Rafnsson,
sæti 30 daga fangelsi viÖ venjulegt
fan'gaviðurværi, en fresta skal
fullnustu refsingarinnar samkvæmt
1. grein laga nr. 39. I9°7- °8 fellur
fullnæging hennar niður. ef hinir
<lómfeldu halda skilyrði nefndra
laga þar að lútandi, svo greiði þeir
og in solidum allan sakarkostnað t
héraÖi og áfrýjunarkostnað máls-
ins, þar með talin málflutningslaun
sækjanda og verjanda fyrir hæsta-
rétti, hrm. Guðmtmdar Ólafssonar
og Theódórs Líndals, 120 krónttr
til hvors. —- Dómintim skal full-
nægja með aðför að lögum.
Silfurbrúðkaupsdag’
eiga í dag frú Helga Guð-
mundsdóttir og Guðmundur
Einarsson seglasauinari.
Trúlofun
sina hala ný.lega opinberað
ungfrú Margrét Ingvarsdóttir
frá Skipum á Stokkseyri og
Kristján Kristjánsson skipstjóri,
Ránargötu 7.
Prestafélagsritið,
14. árg., er nýlega kominn út.
Eins og kunnugt mun er jietta
timarit fyrir kristindóms- og
kirkjumál, gefið úl af Presta-
félagi Islands. Ritstjóri er Sig-
urður P. Sivertsen vígslubiskup.
Prestafélagsritið kemur út í
stóru broti, sama broti og Eim-
reiðin, og er að |k‘ssu sinni 208
bls. Efni er sem hér segir: 1.
Starfshættir kirkjunnar. Eftir
Sigurð P. Sivertsen. 2. Athafna-
fcristindóniur. 8. Nathan Söder-
blom. Eftir Ásmund Guð-
mundsson háskólakennara. 4.
Kristindómur og goðsagnir.
Eftir dr. theol. Magnús Jónsson
prófessor. 5. Gildi skriftamála.
6. Kirkjan og líknarstörfin. Eft-
ir frú Guðrúnu Lárusdóttur. 7.
Sjómannasálmur. Eftir Valdi-
mar V. Snævarr skólastj. 8.
Árni prófastur Björnsson. Eftir
dr theol. Jón Helgason biskup.
Með mynd. 9. Sálrnur. Eftir Jón
Magnússon skáld. 10. Kirkjan
og börnin. Eftir præp. hon.
Þórð Ólalsson. 11. Skirnar-
sálmur. Eftir Kjartan Ölafsson
brunavörð. 12. Veldur trúin
geðveiklun? Eftir dr. med. H. I.
Sclioii. 13. Kirkjur og kirkju-
siðir í Borgarfirði fyrir 00 ár-
um. Eftir Kristleif Þorsteinsson,
bónda á Stóra-Kroppi. 14.
Blindir menn og Blindravinafé-
lag íslands. Eftir Sigurð P. Sí-
vert^sen. 15. Trúarhæfileiki
manna. Eftir dr. med. H. I.
Schou. 10. Útvarpið og kirkjan.
Eftir sira Jakob Jónsson. 17.
Bergkonan við Ásbyrgi. Eftir
síra Knúl Arngrímsson. 18.
Æskulýður nútímans . og lifs-
skoðun Jesú Krisls. Eftir sira
Óskar J. Þorláksson. 19. Eccle-
sia Orans. Eftir sira Jón-Auð-
uns. 20. Tryggingar. Eftir síra
Ingimar Jónsson. 21. Prófastur
Einar Jónsson frá Hofi (In
memoriam). Eftir I. G. 22.
Mælir Kristur gcgn gieðinni?
Eftir sira Gumiar Arnason. 23.
Bókasöfn prestakalla. 24. Sjá,
vinur vor liinn blíði. Sálmalag,
raddsctt af Björgvm Guð-
mundssyni tónskáldi. 25. Lofið
drottin. Lag eftir Friðrik
Bjamason kennara. 26. Til þín,
vor Guð. Lag eftir sira Halldór
Jónsson. 27. Upp gleðjist allir.
Lag eftir Helga Pálsson kaup-
félagsstjóra. 28. Heili og sál.
Eftir dr. med. H. I. Schou. 29.
Langvinn sálsýki frá sjónar-
miði trúarinnar. Eftir dr. med.
H. I. Scliou. 30. Prestafélagið.
Eftir S. P. S. 31. Frá samvinnu-
nefnd Prestafélagsins. Eftir Á.
G. 32. Bamahcimilisstarf þjóð-
kirkjunnar. Eftir A. G. 33. Er-
lendar bækur. Eftir dr. J. H. og
S. P. S. 34. Löggjöf. 35. Ný hús-
lestrarbók. 36. Reikningar
barnaheimilissjóðs þjóðkirkj-
imnar 1931. 37. Ýmislegt. 38.
Reikningur Prestafélags íslands
árið 1931.
Maria Markan.
Þessi unga og glæsilega söng-
mær söng opinberlega, seni kunn-
ugt er. á íslensku vikunni í Stokk-
hólmi, og þótti söngur hennar þar
mjög fagur, enda fékk María
Markan hina bestu bláðadóma fyr-
ir söng sinn og framkomu, og hin
bestu meÖmæli sjálfs Forsell’s mun
hún hafa fengið, og er þess að
vænta, að henni veröi styrkur að
meðmælum slíks manns, á frama-
braut þeirri. sem hún vafalaust
á fyrir höndum, ef alt gengur
aÖ óskuni. — BlaðiÖ „Dagens Ny-
heter" segir' svo m. a.: „Óperu-*
söngmærin María Markan söng
með fagurri rödd sinni tvo ein-
songva, eftir Sigfús Einarsson
(„Gigjan“ og „Augun hláu“) og
einnig lög eftir Markús Kristjáns-
son.“ — í „Nya Dagligt Alle-
handa“ segir svo: „María Markan
söng af næmum skilningi. Hún
hefir fagra sópranrödd, sem ekki
er mjög mikil, en áhrifamikil og
björt. eins og hest. kom fram í
„mezza vocet“ o. s. frv. — „Svenska
Daghladet“ segir að M. M. haíi
injög aukiðá hrifni áheyrenda, hún
hafi vel skólaða og fagra rödd og
hafi sungið af allri sál sinni. —
„Stockholms Tidningen" hælir M.
M. fyrir mentun, glæsilegan söng
og ágætan framburð. — í „Aften-
posten“ 24. sept. eru og birt mjög
lofsamleg ummæli um söngmærina.
— María Markan er vafalaust ein-
hver glæsilegasti söngvari. sem þjóð
vor á nú, og er ánægjuefni.að söng-
ur hennar hefir fengið viðurkenn-
ingu sænskra blaÖa. María Markan
er enn ung kona, og á henni vafa-
laust eftir að fara miki.Ö fram.
Söngvinnr.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss og Dettifoss leggja
af stað héðan annað kveld áleið-
is til útlanda. Goðafoss fór frá
Húll i dag áleiðis hingað til
lands. Sclfoss l’ór frá Siglufirði
i gær áleiðis til úllanda. Lagar-
foss fór frá Bergen i dag áleið-
is til Kristianssand. Brúarfoss
fór frá Leitli i dag, áleiðis bing-
að.
Gengið í dag.
Sterlingspnnd .... Kr. 22,15
Dollar ............. — 6,63
190 ríkismörk.......— 157,93
— frakkn. fr......— 26,29
— lielgnr .........—• 92,34
—■* svissn. fr.....— 128,41
— lírur..............— 34,06
— pesctar ........ 54,66
— gyllini ...........— 267,52
— tékkósl. kr.....— 19,79
— sænskar kr. ... — 114,95
— norskar kr......— 112,48
— danskar kr......— 115,06
Gullverð
isl. krónu er nú 56,28.
Rausnarleg gjöf.
Stjórn Samverjans, scm áður
starfaði að matgjöfum hér i
bænum, - hefir nýverið sent
Mötuneyti safnaðanna bréf
þess efnis, að hún léti 1700 mál-
tiðir ókeypis til starfsemi Mötu-
neytisins. — Máltiðimar verða
átnar úti í Elliheimilinu, en
stjóm Samverjans skipa sömu
menn, sem eru stofnendur og
stjómendur þess. — Samverj-
inn gaf til Mötuneytisins s. 1.
vetur 1000 kr. og nú aðra gjöf
sem er eins mikils virði og eru
xað stærstu gjafirnar, sem
starfsemi Mötuneytisins hafa
Jorisf og flyt eg gefendum hér
með bestu þakkir fyrir. — Hafa
xessar gjafir komið sér vel, þar
sem menn alment muna ekki
eins vel eftir Mötuneytinu og
skvldi. — Hafa hirigað til frem-
ur fáar gjafir borist, enda þótt
ekki allfáir menn hafi sent
rausnarlegar gjal'ir. Ætti
jessi siðasta gjöf stjómar Sam-
verjans ekki að draga úr styrk
rnanna til Mötuneytisins, sem
hefir þegar nú í haust gefið
mörg bundruð máltiðir til þurf-
andi fólks.
23. október.
Gísli Sigurbjörnsson.
E.s. Esja
fer í strand ferÖ næstkomandi
fimtudag, austur um land. Sjá
lUgl.
I' undur Sendisveinadeildarinuar
24. ]). 111. var vel sóttur og fór
ágætlega fram. SkýrÖi umsjónar-
maÖur deildarinnar. Gísli Sigur-
björnsson, fyrir mönnum fram-
komu ungra kommúnista s.l. föstu-
dagskveld, og þótti sendisveinum
slík framkoma komnninistum ein-
um samboÖin. — Nokkurir komm-
únistar voru boÖnir á fundinn. og
þótti sendisveinum broslegar frá-
sagnir þeirra frá Rússlandi. Munu
þeir víst hafa vcriÖ fáir, scm tóku
alvarlega sögnna um niánaðarsum-
arfrí sendisvcina þar í landi — og
fjögra stunda vinnu á dag!!
Fengu kommúnistar líka óspart að
finna þann hug, sem sendisveinar
hera til þeirra — og munu vist
seint fá marga þéirra til fylgis viö
hina háskalegu stefnu sína. - Er-
lendur Vilhjálmsson. sem er með-
limttr í Félagi ungra jafnaðar-
manna, skýrÖi að nokkuru fyrir
sendisveinum sprengingar- og
svikastarfsemi kommúnista meðal
verklýðsfélaganna. Blöskraði ntörg-
um að heyra þær lýsingar -— en
þrer munu allar sannar vera.
Kommúnistar þeir. sem fundinn
sátu, munu hafa heyrt og séÖ
hversu fráhverfir sendisveinar eru
þeirri stefnuþsem lýsti sér í skrafi
nokkurra angurgapa kommúnista,
sem aldrei hafa gerl handarvik, til
þess aÖ hœta eða efla kjör sendi-
sveina. — Fundarstjóri var FriÖ-
finnur FriÖfinnsson, sendisveinn
hjá llamri. og stýrÖi hann fund-
inum vel og röggsamlega.
Pundarmadur.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó sýnir í fyrsta sinni
i kveld kvikmyndina „Ást og
örlög“. Er það amerísk tal- og
hljómmynd i 9 þáttum. Aðal-
hlutverk leika Constance Ben-
nett, fræg leikkona, Paul Cava-
naugh o. fl. — Gamla Bíó sýn-
ir leynilögreglumynd i 7 þátt-
um. Er hún kölluð „Leynisnáp-
urinn“. Kvikmyndin byggist á
skáldsögu eftir Edgar Wallace.
Talið i kvikm. er áþýsku. Y.
Verslunarmannafélaffið Merkúr
heklur skemtifund á fimtudag-
inn í kaffihúsinu Vifli. VerÖur
þar ýmislegt til skemtunar, svo
sent upplestur, einsöngur og dans:
— A morgun verður fundurinn
nánara auglýstur hér i hlaðinu.
Verslunin Dettifoss
heitir ný vefnaðarvöruversl-
un, sem opnuð var í dag á Bald-
ursgötu 30.
Heimatrúboð leikmanna.
Vatnsstig 3. Ahnenn satn-
korna i kveld kl. 8.
Útvarpið i dag.
10,00 Veðurfregnir.
12.15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19,05 , Grammófóntóleikar.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Erindi: Frá Vestur-ís-
lendingum, II. (sr. Benja-
min Kristjánsson).
21,00 Tónleikar: Píanó-sóló
(F2mil Thoi-oddsen).
21.15 Upplestur (Guðbrandur
Jónsson rithöfundur).
21,35 Grammófóntónleikar:
Leonora-Ouverture No. 3
og König Stephan-Ouver-
ture, eftir Beethoven.
Vestan nm haf.
—o—
í 40. tbl. Vísis þ. á. er grein
um Sigurð Helgason, tónfræð-
ing, i tilefni af 60 ára afmæli
hans. Það er altaf gaman, að
Jjeirra sé getið, sem verða ætt-
jörðifsinni að liði eða til sóma.
— Eg' þekki S. H. allvel og.mér
er sönn ánægja að slaðfesta
það, sem sagt er í nefndri grein
í Visi og bæta við fáeinum orð-
um frá sjálfum mér. Þeim,
sem vestur um haf komu á
þeim árum, sem Sigurður
fluttist þangað, er vel kurinugt
um, hvilikum erfiðleikum það
var bundið, að ryðja sér braut
hér vestra. A þeim árum varð
lítið úr mörgu ágætu inanns-
efni, því að baráttan fyrir lífinu
var býsna lxörð. Menn urðu að
neyta síns brauðs í sveita sins
andlitis og liöfðu ekki tíma né
tækifæri til að iðka það, seni
þeim slóð hjarta næst. iÞönnig
var ástatt, þegar Sigurður kom
hingað, þá unglingur að aldri.
Á þeim árum var tónlist litill
gaumur gefinn, hér vestra og
svo var það líka heima. Tónlist-
in var þá ekki metin svo liátt,
að efnilegt væri ungum manni,
að sökkva sér niður í neinar
,músik-grillur“. Þjóðarbrot
okkar hér átti þá litils frama
von, að því er mönnum sýndist;
allir voru fátækir á þeirri tið,
þó að síðar yrði breyting á fyr-
ir mörgum landanum.
Sigurður er þannig skapi
farinn, að hann kýs helst, að
„bvggja sinar eigin brýr sjálf-
ur“. Er undravert, hversu afar
víðtækrar þekkingar hann hef-
ir aflað sér á tónlistarsviðinu;
er enginn vafi á þvi, að honum
mundi innan handar að öðlast
pröféssors-nafnbót, ef liann
kærði sig um. Er ilt til þess að
vita, er slíkir hæfileikanienn
hverfa af ættjörð sinni og vinna
æfistarfið meðal framandi
þjóða. Vil eg skjóta þvi að
stjórn íslands, að reyna að ná
Sigurði heim til fósturjarðar-
nnar. Mér finst undravert hvc
miklu hann hefir afkastað á
sviði tónlistarinnar. Hann hefir
samið að nxinsta kosti 20 söng-
lög og þau þeirra, sem eg liefi
heyrt, . eru ágæt. Hann hefir
stjórnað 15 söngflokkum. T. d.
stjórnar hann nú sænskum
söngflokki hér i Los Angeles,
og hefi eg nokkurum sinnum
verið áheyrandi, þegar sá flokk-
ur hefir komið fram opinber
lega. Eru þær stundir með þvi
ánægjulegasta, sem cg hcfi
„upplifað“ i þeirri grcin, alt
samstilt og stjörnað af mestu
snild.
Sigurður gleymir því aldrei-
og síst þegar hann kemnr frarn
opinberlega, að hann er Islend-
ingur. Lætur hann þú ætíð get-
ið þjóðernis síns og þykir okk-
ur vænt um það.
Nú standa Olympiuleikarnir
yfir hér i borginni og má því
segja, að mikið sé um dýrðii'.
Borgin er skrevtt fánum allra
þeirra þjóða, sem einhvem þátt
taka i leikunum. Island tekm'
ekki Jjátt í þeim, því miður, eix
fyrir atbeina Sig. Helgasonar
blaktir fáni íslands hér meðal
annara þjóðfáua. Hér á aðal-
skemtistaðnum eru sæti fyrir
40 þúsund rnanns (dalverpi
með bogamynduðum sætaröð-
um i brekku). Þar andspænis
er hvelfing, sem nefnd er „Skel-
in“. Þama eru nii daglega (á
kveldin) haldnar samkomur í
sambandi við Olympiuleikana,
og einungis það, sem þykir
skara fram úr á listasviðinu,
fier aðgang. Einn daginn, 2.
ágúst, var þar haldin hljómlist-
arsýning, og komu fram 24
þjóðflokkar i þjóðbúningum
sínum, sem margir voru afar-
skrautlegir. Saknaði eg þar is-
lenska kvenbiiningsins, cn Sig-
urður Helgason bætti mér þetta
upp, þvi að liann kom þar fram
með söngflokk sinn, íslending-
um og Svíum til rnikils sóma,
Samkomugestirnir munu liafa
verið á líka margir og á þjóð-
hátiðinni á Þingvöllum 1930.
Orðlengi þetta ekki meira, eu
vona að þér birtið línumar í
lieiðruðu blaði yðar.
Los Angeles, Cal., 8. ág. 1932.
Þorgils Ásmundsson.
(3847 Hellman ave.).
Moont Ererest.
London, 26. sept.
United Press. - FB.
Enn ein tilraun verður gerít
til að klífa upp á liæsta fjalls-
tind i heimi — Mount Everest,
sem gnæfir 29.141 fet ensk yfir
sjávarflöt. ’Þrettán menn a. m.
k. liafa beðið bana við tilraunii'
til þess að klífa upp þennaix
snævi þakta fjallstind í Hima-
layafjöllum. Fjallið er afar erf-
ilt uppgöngu og óveðrasamt, en
á leiðinni um Tíbet er stöðug
liætta frá þjóðflokkum, sem er
illa við ferðálög hvítra maniia
um „hið helga land“ sitt. Dalaí
Lama, æðsti valdamaður Tíbet,
hefir nú veitt leyfi til þess, a'ö
Breska landfræðifélagið og The
Alpine Club sendi menn til þess
að klifa upp fjallið. Er búist við,
að þessi nýi leiðangur leggi af
stað snemma næsta sumars. —
Bretar gerðu tilraunir lil þess.
að ganga á Mount Everest 1921»
1922, 1924 og 1925. Árið 1922
höfðu leiðangursmenn með sér
oxygen-geyma og mun það vera
i fyrsta skifti, sem fjallgöngu-
menn hafa haft oxygen með-
ferðis. Tveir leiðangursmanna.
G. I. Finch kapteinn og J. G.
Bruce klifu 27.300 fet upp f jall-
ið og hafði enginn maður kom-
ist jafnhátt fjTi'. I leiðangrinum
1924 voru flestir þeirra, sem
höfðu verið í leiðangrinum ár-
ið 1922. Var Bruce liershöfðingi
(C. G. Bruce) leiðangursstjóri,
eins og 1922.1 þessum leiðangri
komust þeir E. F. Norton her-
deildarforingi og dr. T. H. So-
merwell 28.200 ensk fet upp í
fjallið. — Arið 1924 fórust tveir