Vísir - 31.10.1932, Blaðsíða 3

Vísir - 31.10.1932, Blaðsíða 3
V I S I R hafa lagt mikið í kostnað við að framleiða liolla, hreina mjólk, sem seld er í flöskum, ög kostar þetta vitanlega alt peninga. Er mikil framför að þessu, og vafalaust hafa hinar fullkomnu mjólkurstöðvar M. R. og mjólkurvinslusstöðin á Korpúlfsstöðum kostað ærið fé og þvi ekki nema eðlilegt, að sú framleiðsluvara, sem fær i alla staði fyrsta flolcks með- fcrð, sé seld hærra verði en sú framleiðsluvara, sem ekki er mikill sómi sýndur. En sé þess nokkur kostur, að mjólk- urverðið lækki frá því sem nú er, treysti eg því fastlega, að sanngjarnir mjólkurframleið- endur taki til íhugunar, hvort ekki sé unt að lækka mjólkur- verðið frá þvi sem nú er. Þótt eg hafi ekki þau gögn í hendi sem þeir, til þess að ræða þetta mál, legst það nú samt í mig, að ef þeir sæi sér fært að lækka verðið, þá mundu viðskifti þeirra aukast. En livað sem ííður þessum -sundurlausu huglejðingum inínum, þá væri fróðleg’t að lieyra álit mjólkurframleið- endanna sjálfra um mjólkur- verðið. Eg trevsti þvi, að þeir taki nú þetta mál til. ihugiinar «g vona að þeir geti bráðlega glatt alþýðu inanna með til- kynningu um lægra mjólkur- verð. Alþýðumadur. Yeðrið í morgun: Hiti í Reykjavík i stig. Ak- ureyri io, Seyöisfiröi -v- 5, Vestmannaeyjum 2, Stykkishólmi -rj- 5, Blönduósi -f- 11, Raufarhöt'n -4- 11, Hólum í Hornafirði -4- 6, Grindavík o, Færeyjum 4. Juliane- haab 3, Jan Mayen -4- 4, Hjalt- ’tandi 7 stig. (Skeyti vantar frá IsafirÖi, Angmagsalik og Tyne- mouth). Mestur kuldi hér í gær -4- 7 stig, minstur -4- 1 stig. Sólskin 1 gær 6.6 st. Yfirlit: I.ægð fyr- ir suðvestan ísíand á hreyfingu norðaustur eítir. Horfur: Subvesí- ttrland: Hvass suðaustan. Snjó- koma eða slydda. Faxaflói: Vax- andi austan eða suðaustan átt. Dá- litil snjókoma. Breiðafjörður. Vestfirðir: Austan gola. Úrkomu- laust, Noröurland, norðausturland, Austfiröir. Stilt og bjart veSur. "Suðausturlaud. Vaxandi austan kaldi. Snjókoma vestan til. Heimabrug'g'un. Á l^ugardagskveld gerði lög- reglan húsrannsókn á tveimur stöðum, þar eð grunur hvíldi á mönnum sem þarna höfðust við, um áfengisbruggun. A öðrum staðnum fanst að eins lítið eitt af heimabrugguðu áfengi og var eigandinn settur í varðhald. Á liinilm staðnum, á Hörpugötu 21, hjá Áma Strand- foerg, sem áður liefir orðið brot- tegur fyrir bruggun, fann lög- reglan, eftir talsverða leit, flösku með heimabrugguðu konjaki og leirbrúsa með .heimabrug'guðum spíritus. Fanst brúsinn í leynihólfi, sem virðist hafa verið ætlað til áfengisgeymslu, og sennilega ntbúið um leið og húsið var bygt. Ennfremur leitaði tög- reglan í útiskúr á húslóðinni. Veitti hún þar eftirtekt tveimur Memmum í gólfi. Kom nú i Ijós, að uudir öðrum hlemmn- suni er steinsteyptur klefi, sem gæti verið sérlega hentugur til áfengisbruggunar. Loftrásar- pípur höfðu verið lagðar inn i klefann. Undir hinum hlemnm- um er brunnur, fullur af vatni, og fundust bruggunartæki i honum. — Bæði málin éru nú til rannsóknar. Málverkasýning' Magnúsar Á. Árnasonar verð- ur opin í dag og á morgun til kl. 10 e. li. — Síðasti sýningardág- ur á morgun. Gengið í dag. Sterlingspund .... Kr. 22,15 Dollar ............... — 6.76 100 ríkismörk ........ — 160.88 — frakkn. lr...... 26.74 — belgur .......... — 93.98 — svissn. fr...... 130.57 — lírur........... — 34.80 — pesetar ............ 55.66 — gylliní ......... — 272.09 — tékkósl. kr.....— 20.17 — sænskar kr. ... — 115.99 — norskar kr......— 113.11 — danskar kr......— 115.24 Hjúskapur. Á laugardag voru gefin sam- an í lijónaband af sira Bjarna Jónssyni, ungfrú Sigriður Jóns- dóttir og Ingvar Þórðarson íré- smiður. Heimili þeirra er á Efri-Brekku við Brekkustig. Síðastliðinn laugardag voru get- in saman í Iijónaband af síra Háif- dáni Helgasyni á Mosfelli í Mos- íellssveit ungfrú Guðrún Norð- cialh og Sigurður Eiríksson, múr- ari. — Heirnili þeirra er 4 Frakka- stig 21. \ Trúlofun sína liáfa nýlega opinberað ungfrú Sigríður Halldórsdóttir, Lokastíg 14 og' Andrés Sigurðs- son,' Grettisgötu 8. Rozsi Cegledi. Næstkomandi miðvikuöag held- ur hin 19 ára Zigöjnamey Rozsi Cegledi hljómleika hér i Gamla Bíó eins og íjá má á auglýsingu á öðrum stað hér í blaðinu. An efa verður ungfiúin Reykvíkingum kærkomin gestur, sem lengi mun verða minst. Þeir, sem til þekkja vita að hér c.r um óvenjulega heitn- sókn að ræða. Það nægir að henda á dóma þá, er hún fékk í Kaup- mannahafnarblööum i haust éftir hljómleika, sem hún hélt i Tivoh. Þeir voru ákaflega viiisamlegir. Danir, sem eru þektir fyrir að tak.i fremur ómilcíum höndum á erlend- um hljómlistarmönnum, hafa að þessu sinni hrugðið út af venjumii og fara miklum lofsorðum um hina koniungu lií.takonu. Væri freist- andi að birta nokkuö af iofsorðum dönsku hlaðanna, en til þess er ekki rúm í hlaðinu. En enginn má sitja sig úr færi að hlusta á þessa sjaldgæfu listakonu. , X. / Sjómannakveðjur. 29. okt. Mótt. 30. okt. FB. Lagðir af stað. Vellíðan allra. Kærar kveðjur til vina og vanda- manna. Skipshöfnin á Snorra goða. (Skeytið er sent yfir loftskeyta- síöðina i Þórshöfn á Færeyjum). 30. okt. FB. Farnir álciöis til Englands. Vel- liðan. Kærar kveðjur. Skipverjar á Venusi. Skip Eimskipaí'élagsins. Gullfoss er á útleið. Goðafoss fer annað kveld vestur og norð- ur um lartd til útlanda. Detti- foss er í Hull. Lagarfoss kom til Ivaupmannahafnar í gær. Selfoss er á leið til Antwerpen. Brúarfoss fer vestur í kveld kl. 6. — Es. Esja var á Norðfirði í morgun. Gyllir fór á veiðar á laugardags- kveld. Es. Eva kom í morgun frá Hesteyri. Tók þar sildarmjöl til útflutn- ings. Lyra er v'æntaníeg kl. 5—6 í dag. Ráðleggingarstö ð fyrir harnshafandi konur Báru- götu 2 er opin fyrsta þriðjudag i hverjum mánuði frá 3—4. Ungbamavemd Líknar Bárugötu 2 er opin hvern fivntu- dag og föstudag frá kl. 3—4. Merkúr. Aðalfundur félagsins verður haldinn í kveld kl. 8% í Iv. R. húsinu, uppi. Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna á fundinn og' mæta stundvislega. Farfuglafuudur sá, sem átti að verða þ. 8. þ. m., vcrður á morgun, þriðjudag, og hefst kl. 9 e. h. Ungmennafé- lagar úr Vestfirðingafjórðungi sjá um fundinn. Breyting þessi var gerð vegna þess að félagar aö vestan fara bráðlega úr hænum. Utvarpið í dag. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 19,05 Grámmófóntónleikar. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tilkynningar. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20.30 Erindi: Frá útlöndum (sira Sig'. Einarsson). 21,00 Tónleikar: — Alþýðulög (Ú tvarp.skýartetti nn). Einsöngur (ungfrú Jó- hanna Jóhannsdóttir). Grammófón: Sjö-slöra- dansinn, eftir Ricbard Strauss. Opið bréf til hr. jóns Þorleifssonar listmálara. —o— Iværi hérra! Þér minnht þess et’ til.vill, að eg átti tal við yður um daginn, cr eg hitti yður á sýningu Magnúsar Á. Ámasonar, en þá urðuð þér svó vondur, að við höfðum ekki full not af samtalinu. En málefnið er þess eðlis, að óþarft er að leyna þvi fyrir almenningi. Eg vil því Ityfa mér að Meggja nokkrar af spurningunum fyrir yður aftur i þeirri' von, að þér svarið þeirn skýrt og afdráttarlaust. 1. Er þaö satt að þér og fé- lagar yðar, þeir Jón Stefánsson, h iunur Jónsson og Ásgrímur Jónsson, hafið kosið sjálfa ykkur í nefnd til aö velja málverk á svo- kallaða Stokkhólmssýningu ? 2. Að þið hafið valið tíu mál- verk eftir hvern ykkar, eða sam- tals 40 af 70, sem send voru? 3. Að þið hafið Ibœgt frá og’ útilokað flesta af yngri lista- mönnunum og jafnvel ýmsa af þeim eldri og ef til vill vinsælustu listamönnum landsins, svo sem FreymóS Jóhannsson, Magnús Á. Arnason og fleiri, og aS þiS hafiS ekki tekiS nema 1 eða 2 málverk eftir GuSmund Einarsson og Guniilaug Scheving? AS þiS hafiS stuSlaS að j>vi, aS nstdómar sænskra blaða um sýninguna yrðu ekki birtir í is- lenskum blööum vegna þess, aS jieir væm misjafnir og einna harS- astir í ykkar eigin garð ? Þetta eru hinar almennu spurn- ingar. En nú kem eg að samtali okkar og yður sjálfum sérstak- lega. Eg játa það fúsiega fyrir minn hlut, að eg er hvorki lista- maður né listfróður, — þékkingin og vitið á því sviði er öll á yðar hlið. En hér er ekki eingöngu um list aS ræða, heldur og hitt, hvaö réttlátt er eSa ranglátt. Til þess þarf enga listasérfræSi. h?g leyíi mér enu aS halda j)vi fram, að ])aö hafi veriS rangt af ySur, aS setia yður uþp sem dómara yfir verk- um annara, þar sem þér tókuS siálfur j)átt í samkeppninni. ÞaS eru gömul sannindi, aS enginn er óvilhallur í eigin sök. Sem einn af dómnefndarmönnum hafiS þér dæmt ])aö rétt vera, aS send skyldu tiu málverk eftir sjálfan. yður. en ekkert eftir t. d. Magn- us Á. Ámason. Eg ber M. Á. Á. sérstaklega fyrir brjósti vegna ])ess, að eg er honum kunnugastur og veit hvért álit hann vann sér á tiltölulega skömmum tima í menningarmiSstöö eins og San Francisco og víSar. ViljiS þér nú ekki gera mér og ófróSum almenn- ingi þann greiSa, aS birta rök- semdaleiSslu ySar fyrir þessum úr- skurSi, eSa sem sagt segja okkur hversvegna þér álitiS sjálfan ySur svona mörgum sinnum betri en Magnús. Eins væri ánægjulegt og fróSlegt, ef félagar yöar vildu á sama hátt gera grein fyrir af- stöSu sinni. Jón Stefánsson gagn- vart sjálfuni sér og FreymóSi Jó- hannssyni; Ásgrímur- Jónsson gagnvart sjálfum sér og GuSmundi Einarssyni; Finnur. Jónsson gagn- vart sjálfum sér og Ásgeiri Bjarn- þórssyni, — og' sýna okkur meS rökum hversvegna þeir tóku sjálfa sig fram yfir hina. Eg vænti þess fastlega að skrif- að svar yðar verði vifilengju minna og rökfastara en tal yöar. YSar i hróSerni. Árni Sveinbjömsson. Ath. Jóni Þorleifssyni cöv öðrum listamönnum, sem að er sveigt i framanritaSri grein, cr heimilt rúm hér i blaSinu til andsvara. Ritstj. Erlendar fréttir. Genf í september. United Press. - FB. Stytting vinnutímans. Tillögum um að koma á 40_ klukkustunda vinnuviku í iðn- greinunum, vex mjög ört fylgi um allan heim, samkv. skýrsl- um, er nýlega hafa verið birt- ar. ítalska rikisstjórnin hefir farið fram á það við Alþjóða- verkamálaskrifstofuna, að liún taki til íliugunar, að leggja me'ð- mæli um stvttri vinnuviku fyr- ir alheimsviðskiftaráðstefnuna, er haldin verður í vetur. Tillaga þessi hefir fengið mikinn bvr víða um lönd. Þetta er tekið fram í sambandi við aukið fylgi tillögunnar um 40 klst. vinnu- viku: Rikisstjórnir i fjórtán lönd- umgreiddu atkvæði með því á alþjóða verkamálaráðstefnunni í april s.l., að athuganir færi fram um það, hvort unt væri að koma á 40 klst. vinnuviku. Hér var um að ræða rikisstjórn- ir i eftirtöldum löndum: Aust- urriki, Chile, Tékkö-slóvakiu, Danmörku, Frakklandi, Þýska- landi, Grikklandi, ítaliu, Mexi- kó, Persíu, Póllandi, Rúmeníu, Spáni ogUruguaý. 40 klst. vinnuvikan hefir mik- ið fylgi i ítaliu, einss og glögt kemur í ljós i bréfi de Miche- les til Alþjóða-verkamálaskrif- stofunnar. -— Landssamband ítalskra atvinnurekenda i ftaliu hefir greitt atkvæði með iliug- un tillögunnar og livatt lil al- þjóðasamvinnu í málinu. Ymsir atvinnurekendur í Bretlandi, Belgíu, Frakklandi, Tékkóslóvakiu, Austurriki og Bandarikjunum, hafa tjáð sig hlynta styttri vinnuviku. Bif- reiðafélögin Ford, Minerva, Fi- at og Citroen, hafa tjáð sig hlynt fækkun vinnustundafjöld- ans. Standard Oil Co. áformar stytting vinnntímans í 40 klst. á vilui. Thomas E. Campbell, sem er forseti nefndar, er hefir til íhugunar kjör starfsmanna ríkisins í Bandar., hefir lýst því vfir, að 30 klst. vinnuvika væri nægilega Iöng. Hoover forseti liefir tjá'ð sig Myntan því, að atvinnurekendur og verkamenn komi sér saman um styttri vinnutíma. í bráðabirgðalögum í Bandarikjunum, vegna krepp- unnar, um vinnu, sem er styrrkt fjárhagslega af ríkinu, er bá- mark vinnustundafjöldans 30 klst. á viku og lágmarkslaun ákveðin. Allir starfsmenn rikis- ins verða að vera mánuð i auka- leyfi, án launa. Samkvæmt boðskap, sem út var gefinn i Þýsltalandi þ. 5. júní, er stjórninni heimilt að fækka vinnustundum niður í 40 klst. á viku. í ýmsum öðruni löndum liafa verið bornar fram tillögur, lagafrumvörp, eða gerðar ráðstafanir, sem fara i sömu átt. — Af þessu er aug- ljóst, a'ð stytting vinnuvikumi- ar verður eitt þeirra stórmála, sem alheims viðskiftamálaráð- stefnan fær til meðferðar. Prag, 5. október. Unitcd Press. - FB. Frá Prag'. Hermálaráðuneytið i Tékkó- slóvakiu vinnur sem stendur að undirbúningi víðtækra ráðstaf- ana, til jæss að verja höfuðborg ríkisins fyrir flugvéla- og loft- skipaárásum, ef til ' ófriðar kæmi. Einnig verður bráðlega skipuð nefnd manha, sem á að hafa það hlutverk með hönd- um, að æfa borgarana, ine'ð þa® fyrir augum, að hægt sé að koma þeim fljótt og' skipulega á þá sta'ði, þar sem þeim er eigi bætt, á meðan flugvélaárás stendur yfir. Loks liefir komið til orða, að gera byggingaleyfi i höfuðborginni því skilyrði bundið, að þannig sé frá kjöll- urum húsa gengi'ð, að ibúunum sé í engu liætt, er þeir leita þar skýlis, þótt sprengjum sé varp- að á húsin úr flugvélum. Moskwa, 3. október. United Press. - FB. Byltingarafmæli í Rússlandi, I’rátt fyrir fjárhagserfiðleik- ana i landinu verður efnt t4 hátiðahalda enn meiri en venju- lega um gervalt landið þann >7. nóv., til þess að minnast bylt- ingarai’mælisins, að þessu sinni 15. byltingarafmælisdagsins. — Mest verða hátíðahöldin í Mosk- wa. -— Hefir maður, að nafni Boris Malkin, verið útnefndur af ráðstjórninni til þess a'ö liafu á hendi formenskustörf í nefnd þeirri, sem á að sjá um hátíða- höldin. Hefir liann fengið í lið með sér fjölda kunnra lista- manna og húsameistara, til þess að sjá um skreytingu borgar- innar, og er ráðgert, að ýmis- legt verði gert til varanlegrar prý’ði hennar, m. a. með þ\i a'ð í'eisa cin átta likneski og endur- bætur á lýsingarkerfi borgar-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.