Vísir - 24.02.1933, Blaðsíða 3
VISIR
y."-"-. Skóverslun Stefáns Gunnarssonar,
— Austurstpæti 12. —
Gengið í dag1:
Sterlingspund ...... kr. 22.15
Dollar .............. — 6.51% I
100 ríkismörk .... — 156.03
— frankar frakkn. — 25.82
belgur ........ 91.54
-— frankar svissn. . 127.19
— lirur ........... — 33.43
pesetar ........ — 54.31
— gyllini ......... — 263.67
Tékkósl. kr. . . — 19.45
sænskar kr. ... — 117.71
— norskar kr. . . . :— 113.81
— danskar kr. ... — 100.00
GuMverð
íslenskrar krónu er nú 57.25.
Jíoræna félagið.
Tala félagsmanna er nú 240, en
ekki 140, eins og stóð í fundargerÖ
þeirri, sem birt var hér í blaðinu
fyrir skömmu.
Leikhúsið.
„Æfintýri á gönguför" verður
leiki'Ö í Iðnó í kveld. Hefir það nú
verið leikið síðan á jólum, og að-
sókn jafnan hin besta. Sú nýbreytni
befir verið upp tekin fyrir nokk-
uru, að nú skiftast þeir á um að
leika hlutverk birkidómarans. Brynj-
ólfur Jóhannesson og Haraldur Á.
Sigurðsson. Hefir mörgum þótt
þetta vel til fundið, og viljað sjá
báða og bera saman. Aðgöngumið-
ar að sýningunni í kveld eru seld-
ir við lækkuðu verði.
Verslunarskólablaðið
kemur út á morgun, í sambandi
við nemendamót Verslunarskóla
íslands. Blaðið er í stóru broti, 32
síður að stærð. í því eru greinar
um Verslunarskólann, félagsmál
nemenda, almenn verslunarmál og
fleira. x.
Nemendamót
Verslunarskóla íslands hefst ann-
að kvöld kl. 8. Meðal skemtiatriða
verður þýskur gamanleikur, sem
þýddur hefir verið af Emil Thor-
oddsen. Gamlir nemendur, sem
sækja ætla mótið, ættu að tryggja
sér aðgöngumiða i tíma. Þeir verða
afhentir i dag kl. 3—-6 e. h. í Iðnó,
•og á morgun eftir kl. 1. x.
Es. Lyra
fór héðan í gær.
Snæfellinga, Hnappdæla
og Mýramanna mót verður hald-
ið 3. mars næstk. að Hótel Borg.
Allir, sent ættaðir eru úr þessum
sýslum, eða hafa dvalist þar lang-
dvölurn, fá aðgang að mótinu. Sjá
nánara i augl., sem birt er i blað-
inu i dag.
Öskudagsfagnaður
með grintudansleik verður hald-
inn á Vifli kl. g e. h. á Öskudag.
Ferðasýningin í Sundhöllinni.
Þeim, sem séð hafa sýningu
Ferðafélagsins í Sundhöllinni, verð-
ur ljóst, hve salakynnni eru hentug
þar, því annan eins sýningarsal mun
hvergi að finna á landinu. — Um
sýningarnar þar inn frá er ])að
flestra dómur, að þær sé stórmerki-
legar. Vörusýningarnar smekkleg-
ar og kortasýningarnar eftirtektar-
verðar. Hafa margir sem séð hafa
þessa sýningu látið svo um mælt,
að þeir hafi eiginlega aldrei gert
sér ljóst, fyrr, hve merkilegt verk
verið sé að vinna þar sem mæling
landsins er. Á sýningunni má sjá
nýjustu mælingarnar, sem enn hafa
ekki verið gefnar út, en íela í sér
stórmerkar landfræðilegar uppgötv-
anir. Þá er það víst, að myndirnar
af gömlu íslandskortunum þykja
merkilegar. Og mörgum mun þykja
fróðlegt að sjá safnið sem þarna er
af bókum um Island. — Ljós-
myndasýningin ein væri þess virði
að fólk þyrptist í Sundhöllina og
gæfi sér góðan tíma til að skoða.
Því að þar er krökt af úrvals-
myndum, snildarlega völdu efni,
sem notað er með góðri kunnáttu.
Er sýning þessi vottur þess hve óð-
fluga ljósmyndalistinni hefir fleygt
fram hjá áhugamönnum síðustu ár-
in. Myndirnar eru á 6. hundrað
talsins og sýnendur 40—50. —
Varla þarf að draga í efa, að verði
veður sæmilegt á morgun og á
sunnudag muni fólk fjölmenna i
Sundhöllina. Á.
Dansskemtun.
heidur Iðnskólinn annað kveld í
K. R.-húsinu. Hljómsveit Hótel ís-
lands leikur. Mönnum er ráðlagt að
tryggja sér miða í tíma, því að-
sókn verður mikil. að vanda.
Farsótlir
og manndauði í Reykjavík vik-
una 12.—18. febr. (í svigum töl-
ur næstu viku á undan): Háls-
bólga 37 (48). Kvefsótt 122
(152). Kveflungnabólga 4 (7).
Barnaveiki 0 (1). Blóðsótt 5
(9). Gigtsótt 1 (1). Iðrakvef 30
(39). Inflúensa 20 (0). Taksótt
2 (3). Hlaupabóla 7 (2). Munn-
angur 0 (2). Stingsótt 1 (1).
Kossageit 1 (4). Þrimlasótt 1
(1). Mannslát 8 (7). Landlækn-
isskrifstofan. (FB).
Kveðjuskeyti.
Svohljóðandi símskeyti barsl
Sigfúsi Einarssyni tónskáldi
fyrir nokkrum dögum, i tilefni
af hljómleikum, sem danska
kórfélagið gekst fyrir kveldið
áður:
„Sigfús Einarsson,
Reykjavík.
Þegar sunginn var „Sangen
i Norden“ mintumst við liins
framúrskarandi þáttar, sem
þér áttuð í söngmóti voru
1929. Hljómleikarnir i gær-
kveldi gengu stórkostlega. —
Hjartanlegar kveðjur.
Friðrik konungsefni
heiðsforseti
og' Dansk Korforening.“
Eins og menn rekur minni
til, var söngmót mikið í Kaup-
mannahöfn sumarið 1929, og
tóku þátt i því úrvalskórar allra
Norðurlanda og Finnlands. —
„Sangen i Norden“ var eitt að-
alverkið, sem sungið var á mót-
inu, og Iiafði eitt tónskáld frá
liverri þjóðinni lagt fram ljóða-
flokk um land sitt og tóna þess.
Sigfús Einarsson varð fyrir val-
inu fyrir Islands hönd og
stjórnaði líka íslenska kórnum.
Gal Sigfús og kórinn sér binn
besta orðstír, og blutu Islend-
ingar mikla sæmd af. Var það
ekki síst verk Sigfúsar, að svo
vel tókst til. — (FB.).
Litla leikfélagið
sýnir „Álfafell“ næstkomandi
sunnudag í Iðnó kl. 3,30. — Að-
sókn að leiknum er góð og
skemta börnin sér bið besta.
Skuggasveinn
var leikinn i gærkveldi við
mjög mikla aðsókn og skemtu
áhorfendur sér auðsjáanlega
hið besta. Hafa sumir leikhús-
vinir séð leikinn öll kveldin,
sem búið er að sýna hann að
þessu sinni og segja ýmsii’, að
þeir þreytist aldrei á því, að
horfa á þetta fjöruga og gam-
G.s. Island
I
fer sunnudaginn 26. þ. m. kl.
8 síðdegis til Leith og Kaup-
mannahafnar (um Vestmanna-
eyjar og Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla á
morgun. — Fylgibréf yfir vör-
ur komi á morgun.
SkipaafgreiSsIa
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. - Sími: 3025.
Hún er altaf í
sólskinsskapi.
Vinir hennar öfúnda hana af því,
hve góöu skapi hún er altaf í. En
leyndarmál hennar er ofur einfalt.
Hún neytir Kellogg’s All Bran til 1
morgunverðar, og fær því aldrei
vott af harðlífi.
Kellogg’s All Bran er ljúffengur
kornréttur, sem inniheldur kjarn-
mikil efni, er styrkja meltingarfær-
in, B-fjörefni og járn, sem er blóð-
styrkjandi efni. Það er 100% korn,
því að engum utan að komandi efn-
urn er í það bætt, og áhrif þess til
að vinna bug á meltingarleysi eru
100%. Engin suða. Neytt með
kaldri mjólk eða rjóma. Fæst hjá
kaupmanninum, sem þér skiftið við,
í rauðu og grænu pökkunum.
_____________________________ivý
■mwirinr r—igi
ansama verk hius mikla þjóð-
slcálds. Næst verður Skugga-
sveinn leikinn á sunnudags-
dveld.
Ctvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
18.30 Fyrirlestur Búnaðarfé-
lags íslands.
19,05 Þingfréttir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
— Lesin dagskrá næstu
viku. —
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Kvöldvaka.
Erlendar fréttir.
Útvarpið og börnin.
Dr. Garrj^ Cleveland Meyers,
ameriskur sálfræðingur, hefir
fvrir nokkuru baldið fvrirlest-
Byggingarsamviimatélag
Reykjavíkar.
Framhaldsaðalfundur íelagsins verður lialdinn í
Kaupþingssalnum þrið.judaginn 28. febrúar n.k. kl.
8% síðd. Stjórnarkosning og önnur aðalfundarstörf.
Teikningar þær, er frammi lágu á siðasta fundi,
verða til sýnis félagsmönnum í húsi Búnaðarfélags ís-
lands, uppi. Ennfremur geta félagsmenn, gegn sýn-
ingu félagsskirteinis, fengið keyptar kopíur af teikn-
ingunum hjá Axel Sveinssyni, verkfræðing, Skóla-
vörðustíg 6 B (8—9 síðd. sími 2290), skrifstofu húsa-
meistara ríkisins, Arnarhváli, og Þóri Baldvinssyni,
Arnarhváli, sími 4814.
Stjórnin.
Tilkyooing frð byggingarnefod
Fundir byggingarnefndar eru venjulega haldnir
2. og 4. fimtudag hvers mánaðar.
Umsóknir um byggingarleyfi ásamt u]ipdráttum
verður að afhenda á skrifstofu byggingarfulltrúa fyr-
ir kl. 5 síðdegis þriðjudaginn í sömu viku. Korni þær
seinna, fá þær ekki afgreiðslu á fundinum í þeirri viku.
BorgaFSt j ópinn.
1000-1200 krónur.
Sá sem gelur lagt fram sem meðeigandi í tryggu fyrirtæki
eða lánað gegn góðu veði 1000—1200 kr. getur fengið vel laun-
aða og létta atvinnu við verslunarstörf. Lysthafendur leggi
nöfn sin inn á afgr. Visis, merkt „A. B. C.“
Tíminn
birtir í morgun yfirlit um rafmagnsmál Reykjavíkur og liina
fyrirhuguðu Sogsvirkjun
samkvæmt tilboði, sem lá fyrir bæjarstjórnarfundi í gærkveldi
ur í „The Instilute on Parent-
Child Relationships“. Telur sál-
fræðingurinn útvarpið koma að
mildu gagni og verða mönnum
til mikillar skemtunar, sé það
skynsamlega notað, en ýmislegt
af því, sem amerískar útvarps-
stöðvar útvarpi hafi haft mjög
slæm áhrif á börn og gert þau
taugaveiklaðri en þau vorii fyr-
ir, valdið svefnleysi þeirra o. s.
frv. „Eg vil alvarlega ráða frá |
þvi, að börnum sé sagðar sög- ]
ur, sem gera þau skelkuð. Ug á
heimilum, þar sem börn eru, og
mikill hávaði af útvarpstækj-
um getur ekki hjá því farið, að
það hafi slæm áhrif á börnin.
Einnig verður að koma í veg
fyrir, að börii lilusti á frásagnir
af glæpamönnum, handtöku
glæpamanna, baráttu þeirra við
lögregluna o. s. frv., þetta liefir
alt taugaæsandi áhrif, og getur
jafnvel komið börnum og ung-
lingum út á rangar brautir.
(UP. — FB.).
Bandaríki Austur-Asíu.
Samkvæmt símfregn frá San
Fransisco þ. 3. þ. m. hefir jap-
anskur stjórnmálamaður, Tos-
liico Toketomi, látið svo um
mælt, að japanska stjómin geri
sér vonir um að á komist stofn-
un Randaríkja Austur-Asíu, þ.
Uppboö.
Opinbert uppboð verður hald-
ið á afgreiðslu Bergenska gufu-
skipafélagsins mánudaginn 27.
þ. m„ kl. 2 e. h. og verða þar
seldar kartöflur, 75 sekkir,
hver 50 kg. og 229 sekkir, hver
25 kg.
Greiðsla fari fram við ham-
arshögg.
Lögmaðurinn í Reykjavík,
24. febr. 1933.
Bjðm þórðarson.
e. Japans, Mansjúriu og Kina.
„Þróunin ætti að fara í þá átt,
að þessi ríki sameinist, vegna
sameiginlegra stjórnmála- og
viðskifta-hagsmuna. Þetta
ríkjasamband mun verða til efl-
ingar friðinum í Austur-Asíu.“
Toketomi var á leið til starfs
við sendisveit Japana í Was-
hington, er bann leyfði, að
blöðin i San Francisco birti
þetta eftir sér.