Vísir - 04.03.1933, Side 2

Vísir - 04.03.1933, Side 2
VISIR Holmblads spil. f jölbreytt urval. — Þessi spil eru viðurkend af öllura spilamönnum. Sími: Einn — tveir — þrír — fjórir. Sfmskeyti Tokio 3. mars. United Press - FR. Landskjálftarnir í Japan. Skömmu eftir að fregnir bár- ust um, að 467 manns hefði beðið bana af völdum land- skjálftanna í þorpinu Taro, fréttist, að 355 manns hefði farist í þorpinu Totan. Óttast menn, að ekki séu öll kurl komin til grafar, og að á þess- um tveimur stöðum hafi far- ist alls yfir 1000 manns. Tokio 3. mars. United Press. - FB. Samkvæmt seinustu opin- berum tilkynningum hafa 1535 manns beðið bana af völdum landskjálftanna, 338 hafa hlot- ið alvarleg meiðsli, en um af- drif 948 vita menn eigi. Peking 3. mars. United Press. - FB. Ófriðuiinn í Austur-Asíu. Kínverjar halda þvi enn fram, að Lingyuan og Chihfeng séu í þeirra höndum. Ennfrem- ur neita Kínverjar því, að her- menn þeirra hafi nokkursstað- ar gefist upp varnarlítið, eins og Japanar hafi borið út. Tokio, 4. mars. United Press. FB. Opinberlega tilkynt, að her- deildir Kawahara hafi hertekið Chengtefuh. New York 3. mars. United Press. - FB. Bankavandræðin í Ameríku. Ríkisstjórinn í New Mexico hefir gefið út bráðabirgðatil- skipun um heimild til þess að loka bönkunum í fjóra daga. — Sumstaðar, — til dæmis í Kansas City — heimila bank- * arnir úttekt, sem nemur alt að 5% af innstæðum. London, 4. mars. United Press. FB. Afvopnunarráðstefnan. 1 tilkynningu frá utanrikis- málaráðuneytinu er rætt um nauðsynina á að hraða störfum afvopnunarmálaráðstefnunnar sem mest. Ramsey MacDonald forsætisráðherra, og Simon ut- anrikismálaráðherra, fara nú til Genf, til ráðstefnufunda. Washington, 4. mars. United Press. FB. Roosevelt gettur í embætti. Franklin Roosevelt verður settur í forsetaembættið á há- degi í dag með mikilli viðhöfn. Miklar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar. 400 sjóliðsmenn, 1000 lögreglumenn og leynilög- reglumenn verða á verði, meðan á athöfninni stendur. Búist er við, að 35,000 manna verði við- staddir. t Best að auglýsa í Vísí. Frá Alþingí í gær. Efri deild. Þar var eitt mál á dagskrá: Frv. til l. um breyt. á l. um út- flutning hrossa. Atvinnumála- ráðh. (Þorst. Briem) gerði grein fyrir frv., sem er flutt til staðfestingar á bráðabirgða- lögum, sem gefin voru síðastl. haust. — Pétur Magnússon vakti athygli á því, að frv. sama efnis hefði verið flutl á síðasta þingi og felt. Kvað hann það hæpna leið, sem stjórnin væri komin út á, er hún gæfi út slík bráðajbirgðalög, þvert ofan í atkvæðagr. á þingi. — Ráðherrann réttlætti lagasetn- ingu þessa með þörf bænda til að nota alla sölumöguleika. — Var frv. síðan vísað til 2. umr. og landbúnaðarnefndar. Neðri deild. Áður en gengið var til dag- skrár gerði þingm. Vest- mannaeyja (Jóli. Þ. Jósefsson) fyrirspurn um það til forsætis- ráðh., hvenær eiga mætti von á því, að norsku samningarnir kæmu til umræðu í þinginu. Ráðherra svaraði, að þeir myndu innan skamms verða birtir, og að fram að þessu hefði ekki þótt ráðlegt að gera það, þar sem staðið hefðu yf- ir samningar við Englendinga, og hefði það getað gert erfið- ara fyrir með þá samninga, ef þeir Porsku hefðu verið orðnir kunnir. Héðinn Valdimarsson stóð þá upp og vítti það, að samn- ingarnir skyldu ekki þegar vera birtir, og lét mörg miður sæmileg orð falla í garð þeirra, sem við samningagjörð þessa voru riðnir, og beindi hann þeim orðum sérstaklega til þingm. Gullbr.- og Kjósarsýslu (Ól. Thors), sem eins og kunn- ugt er, var annar þeirri manna, sem fóru til Noregs, til þess að semja fyrir hönd ríkisstjórnar- innar. Ól. Thors kvaddi sér þá liljóðs, og sagði, að það hefði verið samkomulag milli samn- ingsaðila, að samningunum yrði haldið leyndum fyrst um sinn. En Héðinn Vald., sem væri einn af utanríkismála- nefndarmönnum, hefði nú lát- ið hafa eftir sér í opinberu blaði atriði úr samningunum, og væri þar skýrt frá bæði rétt og rangt. Hann kvað Héðin því hafa svikið Ioforð það, sem Norðmönnum var gefið í þessu efni og beindi því til forsætis- ráðherra, að vafasamt væri, að slíkur maður hefði rétt til þess, að eiga sæti i utanríkismála- nefnd, eða yfirleitt til þess, að gegna nokkru trúnaðarstarfi þjóðarinnar. Héðinn gerði tilraun til þess að verja gerðir sinar i þessu efni, en tókst það hörmulega, og mátti greinilega sjá, að hann blygðaðist sín fyrir fram- komu sína, en slíkt er fágætt hjá Héðni þessum, bæði i ræðu og riti. Ól. Tbors vakti einnig athygli Héðins á því, að öll þau loforð, sem hann og Jón Árnason framkvstj. hefði gefið Norð- mönnum, liefði verið gefin í umboði ríkisstjórnarinnar, enda lýsti forsætisráðherra yfir því að lokum, að ríkis- stjórnin væri þeim báðum mjög þakklát fyrir, hversu vel þeim hefði • telcist samninga- gerðin fyrir vora liönd. Að þessum umræðum lokn- um, var gengið til dagskrár- innar og voru 5 mál á dagskrá. í. Frv. til laga um bann gegn jarðraski við sjó í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum, til 2. umr. Framsögum. allslierjarnefndv ar, Jóh. Þ. Jósefsson, fór nokk- urum orðum um frumvarpið og var það síðan með litlum breytingum samþykt og vísað til 3. umr. með 16 samhlj. atkv. 2. Frv. til laga um lífeyris- sjóð Ijósmæðra, til 1. umræðu. Flutningsm. Vilm. Jónsson. Málinu var vísað til 2. umr. með 16 atkv. og til fjárhags- nefndar með 14:1 atkv. 3. mál frv. til laga um vörslu opinberra sjóða var tekið út af dagskrá. 4. mál var frv. til laga um viðauka við lög um heimild til að veita lán úr Bjargráðasjóði. Flutningsm. þingmenn Skag- firðinga. Steingr. Steinþórsson fór nokkurum orðum um frv. og var því umræðulaust að öðru leyti vísað til 2. umr. og fjár- hagsnefndar. 5. mál var tillaga til þings- ályktunar um úlborgun á laun- um embættismanna (hvernig ræða skuli). Forseti lagði til, að ein um- ræða yrði höfð um málið, og var það samþykt. . ístandið íRðssIandi Moskwa, 8. febr. United Press. - FB. A. m. k. 300—500 þúsund manns verða tilneyddir að hverfa frá Moskva á yfirstand- andi ári, vegna liinnar nýju til- skipunar um vegabréf sem ríkisstjórnin hefir gefið út, en samkvæmt tilskipun þessari er hverjum einstaklingi innan ráðstjórnarríkjasambandsins gert að skyldu að bera vega- bréf. — Fyrir stjórnarbylting- una vakti vegabréfakerfi það, sem í notkun var í Rússlandi, mikla eftirtekt. Þá þurfti liver borgari að hafa vegabréf, út- gefið af lögreglunni, og var hverjum manni gert að skyldu að sýna vegabréf þetta, ef kraf- ist væri. Nú hefir sem sé verið horfið að þessu gamla fyrir- komulagi, en það er tekið fram, að hér sé að eins um bráða- birgðaráðstöfun að ræða til j þess að koma í veg fyrir óþarfa fólksflutninga innanlands og of mikið framboð á vinnuafli i stórborgunum en einnig er þetta talið vera gert með það fyrir augum, að unt verði að hreinsa til í stórborgunum, bafa betra eftirlit með glæpamanna- hyskinu, sem þar elur aldur sinn. Eins og nú er ástatt eru mikil vandra-ði vegna þrengsla í stór- borgunum i landinu, Moskva, Leningrad, Kharkov og Odessa. Það er nærri ógeriegt að ferð- íilSIIIIIIIIIIIIIIIIIIEIilllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIKIKIIIIIIIIHIi Snurpinætur SS og nótastykki seljum við frá hinni þektu norsku verk- ss smiðju JOHAN HANSENS SÖNNER, 5SS 55 Fagerheims Fabrikker. B e r g e n. ss — Vönduð vinna og efni. Lægst verð og hagkvæmir greiðsluskilmálar. Talið við okkur sem fyrst. = Þórður Sveinsson & Co. S5 IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIKIIIIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIIII ast í strætisvögnum og spor- vögnum vegna þrengsla. Fólks- flutningaerfiðleikarnir í borg- unum eru afskaplegir. Algengt er, að 2—10 manns búi í sama herbergi, íbúðir, ætlaðar einni fjölskyldu, eru nú alment not- aðar af 2—5 fjölskyldum. Til skamms tíma var ástand- ið þannig, að fólk kom liingað í þúsundatali daglega, úr sveita- héruðunum, í von um að geta fengið atvinnu og búið við meiri skemtanir og glaum en í fásinninu heima í sveitunum. í öllum járnbrautarlestum eru mikil þrengsli og oftlega verða menn að bíða dögunum saman eftir járnbrautarfari. Margt af þessu fólki hefir flosnað upp og er á ferðalagi fram og aftur, á meðan það getur, til þess að leita sér atvinnu, setjast að ein- liversstaðar, þar sem það hygg- ur, að betra sé að komast áfram, en þar sem það áður var. Á öll- um járnbrautarstöðvum eru mestu þrengsli. Margt af þessu fólki, sem sumt befir ungbörn meðferðis, sefur i biðsölunum, uns það fær járnbrautarfar. Vegabréfaskipunin er gefin út til þess að ráða bót á þessu ástandi. Menn fá ekki ferða- leyfi innanlands, nema góðar og gildar ástæður séu fyrir hendi, og verður þá að fá árit- un hlutaðeigandi yfirvalda á vegabréfin. — Atvinnulaust fólk í borgunum, sem að eins eykur á erfiðleikana þar, verður sent upp i sveit til starfa, annað- hvort á búgörðunum eða á þeim stöðum, þar sem ný iðn- aðarfyrirtæki eru komin til sögunnar. Talið er að nú verði unt að safna mikilvægum skýrslum um fólksflutninga innanlands og orsakir þeirra, vegna þess, að þetta vegabréfakerfi sem um hefir verið rætt hér, hefir verið tekið í notkun, en til þessa hef- ir verið ógerlegt að safna áreiðanlegum skýrslum um þetta efni. Útleudnr áburðar. Eins og allir vita, hafa bændur landsins verið hvattir til þess mjög eindregið síðustu árin, að verja miklu fé til kaupa á útlendum áburði. — Eru víst margar miljónir króna horfnar í þessi áburðar- kaup, en væri betur kyrrar í landinu. Þegar roskinn bóndi einn fyrir austan, heyrði fyrst nefndan þennan útlenda á- burð, varð honum að orði: — „Það er naumast að við erum orðnir fínir. Nú er okkur sagt að kaupa skítinn frá útlönd- um, auk heldur þá annað.“ — Hann vissi ekki betur, karl- inn, en að hér væri um venju- legan húsdýra-áburð að ræða. Og hann hefir komist af fram á þennan dag, án þess að káupa liinn hálofaða útlenda áburð. — Og eg sé ekki nein mót á því, að hann standi sig ver eða búi ver en nágrannar hans, sem verja miklu fé ár- lega til áburðarkaupa. Hann er talinn vel efnum búinn og mikill lieyfyrningar-bóndi. Eg hitti bónda þennan að máli í sumar, rétt fyrir slátt- inn, og gekk um túnið með lionum. Hann var dálítið hreykinn af því, fanst mér, að túnið hans væri ekki mikið lakara, en tún nágrannanna. — „Og hefi eg þó ekki látið það eftir mér enn þá, að kaupa útlenda „skítinn“. — Eg kalla þetta „skít“, hvað sem hver segir, og þó er það eins og hveiti, eða einhver fjárinn þess háttar.“ Nei. Hann var ekki alveg á því, að elta tiskuna og fara að sækja áburð á túnið sitt til út- landa. — Hann hefði nú búið hálfan annan mannSaldur, að þvi er honum taldist til, og mykjan og „forin“ dugað til þessa. Og túnið sitt bæri því vitni, að sprottið gæti undan öðru, en þessum útlenda skratta, sem allir væri nú að kaupa og þættist ekki geta án verið. Eg maldaði eitthvað i mó- inn, svona að gamni mínu, og sagði sem svo, að bærilega sprytti nú undan útlenda á- burðinum. — Hann var ekki frá því, en sagði sem satt er, að eitthvert hóf yrði að vera á þessari eyðslu sem annari og helst ætti að banna öll áburð- arkaup frá útlöndum. Okkur vanhagaði víst um eitthvað frekara en áburðinn og er það orð og að sönnu. „Það sprettur undan honum eití ár og síðan ekki söguna meir,“ sagði karl. „Þeir verða að kaupa á hverju ári og svo rýja þeir sig inn að skyrtunni fyrir þennan óþarfa.“ Og svo fór hann að segja inér frá því, að aldrei hefði túnið sitt brugðist, nema eftir frostaveturinn mikla, fyrir eitt- hvað 14 árum. Nágrannar sín- ir á báðar hendur hefði ógnar- lega trú á þessum útlenda áburði. Og það gæti verið, að túnin þeirra væri ívið loðnari núna, en það munaði aldrei neinum ósköpum. „En hvað heldurðu að þeir kosti, þessir baggar, sem þeir kunna að fá umfram mig af dagsláttunni? — Það skal eg segja þér. Þeir kosta það, að efnaliag bænd- anna hnignar ár frá ári. Þú sér það sjálfur: Hvaða vit er í því fyrir fátæka bændur, sem berjast i bökkum, að eyða kannske 40—50 dilksverðum í útlendan áburð árlega? Eln þetta gera nágrannar mínir. — Eg þori að segja, að þeir — þessir tveir menn—- eru búnir að fleygja 12—15 hundruð krónum hvor um sig i þennan déskota núna nokkur síðustu árin. Dettur þér í hug, að slíkt

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.