Vísir - 04.03.1933, Side 3

Vísir - 04.03.1933, Side 3
V 151R ráðlag kunni góðri lukku að slýra? — Eg segi nei. Þetta er ekkert vit. Þeir hefði getað heyjað nóg fyrir því, þó að þeir hefði ekki keypt eitt einasta lóð af þessum útlenda ,skít“. — Og hvað segirðu um heilsu- leysið í skepnunum? — Held- urðu að það sé eintóm tilvilj- un, að sauðféð er að verða heilsulaust um allar jarðir? — Heldurðu að þetta sívaxandi heilsuleysi stafi af því, að húsakynni fénaðarins eru orð- in betri og hirðingin betri en áður gerðist? — Mér þykir það ólíklegt. — Heldurðu að þessi veikindi hafi koinið svona al- veg upp úr þurru, án nokk- urra orsaka? — Mér þykir það óliklegt. — Og væri þá ekki revnandi, að leita orsakanna í útlenda áburðinum? — Ætli það sé nú alveg áreiðanlegt, að grasið, sem upp af honum vex, sé tiltakanlega holt, þó að það sé grænt og fagurt á að líta? — Eg veit það ekki. — Manni dettur margt í hug og af einhverju hlýtur þessi éhreysti fénaðarins að stafa — -einhverju aðfluttu. — Kannske bændurnir fái það nú í kaup- bæti fyrir peningana, sem þeir láta fyrir útlenda áburðinn, að jarðvegurinn eitrist smátt og smátt, þangað til alt, sem upp af llonum sprettur, verður ban- vænt hverri skepnu.? — Eg veit það ekki. — En manni dettur margt í hug, eins og eg sagði áðan. Og að lokum skal eg segja þér það, að meðan eg tóri, skaEenginn útlendur áburður koma á vallargreyið hérna. Eg tel ekki eftir mér að „aka skarni á hóla“, eins og eg hefi gert hingað til og gefist vel. En eg hefi gert ann- að: Eg hefi lagt í bók „við bankann“ 350 krónur á ári, siðan þessi áburðarkaupa- plága komst i algleyming. — Þessi upphæð hefði farið i .„skítinn“ árlega, ef eg hefði viljað hann. Eg hefi getað séð af þessu hingað til og hefi gaman af að sjá, livað þetta verður orðið mikið, þegar þessi áburðarkaupa-heimska dettur úr sögunni, ef eg lifi þá svo lengi. — Það eru nú orðnar nokkuð margar krónur — hát-t á öðru þúsundi, auk vaxta. Þyki inykjan og „forin“ ekki duga lengur, þá ættum við að nota innlend efni til áburðar,, leita þeirra og hætta ekki fyrr, en við finnum þau. Eg efast ekki um, að þau sé til og detta mér þá einna lielst í hug ýmis- konar sjávarföng, sem annað hvort verða nú að engu gagni eða litlu. Og mér finst ekki al- veg sjálfsagt, að við bíðum eft- ir því, að útlendingar komi hingað, búi til innlendan á- burð og selji okkur síðan dýru verði.“ -— Þannig eða mjög á þessa leið fórust honum orð, hinum aldr- aða ráðdeildarmanni. Eg lof- að honum því, að eg skyldi «inhverntima láta skoðana hans getið á prenti og nú hefi eg gert það. „Vísir“ hefir einn allra ís-. lenskra blaða haft orð á því, að ekki væii ósennilegt, að óhreysti sauðfjárins nú síðustu árin kynni að standa í ein- hverju sambandi við útlenda áhurðinn. Eru nú nokkur ár liðin, siðan er blaðið vakti máls á þessu, og nú mun svo komið, að. menn- eru nokkuð viða komnir á þá skoðun, að litil hollusta fylgi áburði þess- um, þó að vel spretti undan honum. I útlendum blöðum hefi eg séð talað um „eitrun jarðar“ af völdum áburðarins. 20. janúar 1933. K. Messur á morgun. í dómkirkjunni: Kl. n, síra Bjarni Jónsson. Kl. 2, bamaguSs- þjónusta (sr. Fr. H.). Kl. 5, sira FriÖrik Hallgrimsson. í fríkirkjunni kl. 5, síra Árni SigurSsson. í þjóSkirkjunni i HafnarfirSi kl. 1,30. Jón GuSjónsson stud. theol. prédikar. í Landakotskirkju: Lágrhessur kl. 6)4 og kl. 8 árd. Hámessa kl. 10 árd. GuÖsþjónusta meÖ prédik- un ld. 6 síSd. I ASventkirkjunni kl. 8 síSdegis. Allir velkomnir. Dánarfregn. Látin er hér í bænum i gær frú Jónina Jónsdóttir, Hverfisg. 92 B, kona Mariusar Runólfssonar, vél- stjóra. Veðrið í morgun. Hiti um land alt. í Reykjavik 4 st., IsafirÖi 2, Akureyri 1, SeySis- firSi. 2, Vestmannaeyjum 3, Stykk- ishólmi 1, Blönduósi 1, Raufarhöfn o, Hólum í HornafirSi 2, Grinda- vík 3, Færeyjum 5, Julianehaab — 12, Jan Mayen — 6, Angmagsalik — 7, Hjaltlandi 3 st. (Skeyti vant- ar frá Grímsey og Tynemouth). Mestur hiti hér í gær 5 st., minst- ur 2 st. Sólskin 1,4 st. — Yfirlit: Djúp lægS viS suSurströnd íslands, en háþrýstisvæÖi yfir norSaustur Grænlandi. — Iíorfur: SuSvestur- land: Austan hvassviSri. Rok und- ir Eyjafjöllum. SumstaSar dálítil rigning. Faxaflói, BreiSafjörSur: Hvass austan. Úrkomulaust. Vest- firÖir, NorSurland, norSausturland: Hvass austan. Éljagangur í útsveit- um. AustfirÖir, suSausturland: Hvass austan. Þykt loft og dálitil slydda eða rigning. Dómar í áfengismálum. Nýlega hefir sýslumaður Ár- nessýslu dæmt 2 menn fyrir ólöglega meðhöndlun áfengis. Menn þessir voru Markús Jóns- son, Svartagili í Þingvalla- sveit, og Jónatan nokkur í Hvammi í ölfusi. — Var hinn fyrrnefndi dæmdur í 500 kr. sekt og til vara í 30 daga fang- elsi, en hinn siðarnefndi í 600 kr. sekt og til vara 35 daga fangelsi. Markús var tekinn með heimabruggað áfengi, en Jónatan hafði reynst sannur að sök um bruggun. (Sókn). Ný bruggunarmál. Lögreglan hefir gert húsrann- sókn á tveimur stöðum, þar sem grunur lék á, að áfengisbruggun færi fram. Dómur í báSum málun- um fellur bráSlega. 74 ára er í dag Jón Jónsson frá Hvoli, nú til heiinilis á Bragagötu 38. Háskólafyrirlestur Ágústs H. Bjarnason próf. í kveld fellur niÖur, vegna þess aÖ gerS verSur tilraun til endurútvarps frá Þýskalandi. E.s. Goðafoss fór héÖan í gærkveldi áleiSis til útlanda. Á meÖal farþega til út- landa voru: Helgi GuSmundsson bankastjóri, Skúli ÞórSarson og I frú,. Kristján Magnússon og, frú, GuSjón Einarsson, ungfrúrnar Inger Olsen, Áslaug Foss, Carla Proppé, ÁlfheiSur ÞórSardóttir og Anna Kummer, 10 enskir strand- menn pg 16 þýskir. G.s. fsland kom til Leith í morgun á leiS til Kaupmannahafnar. Af veiðum hafa komiÖ Max Pemberton meS 80 tn., Baldur meS 80—90. Hilm- ir með 60—70 og Gulltoppur meS 90 tn. lifrai'. Páll Eggert ólason dr. phil. var þ. 28. febrúar skipaður skrifstofustjóri í fjár- málaráðuneytinu. Um Franz Schubert, austurríska tónskáldiS, flytur Helgi Hallgrímsson kaupm. erindi í Gamla Bíó kl. 3 á morgun. Schu- bert er talinn mestur söngljóða- smiSur (Romance-tónskáld) heims- ins, og eru almenningi kunn mörg lög hans, eins og t. d. „Álfakon- ungurinn“, sem hann samdi aÖeins 17 ára aS aldri, og lagiÖ „Dunar í trjálundi, dimm þjóta ský“ o. f 1., o. fl. Æfi Schuberts var viSburSa- rík, þótt aldurinn yrSi ekki hár. Hann dó um þrítugt. Eg vil hvetja menn aS sækja þetta erindi Helga Hallgrimssonar, enda er hann vel máli farinn og vel aS sér í þessum efnum. B. A. Gullverð ísl. krónu er nú 57.92. Gengið í dag. Sterlingspund.......kr. 22.15 Dollar ................— 6.44y4 100 rikismörk.......— 153.52 — frakkn. fr. .... — 22.55 — belgur ..........— 90.57 — svissn. fr....—- 126.09 — lirur ...........— 33.05 — pesetar ......—- 54.12 — gyllini ........ — 261.26 — tékkósl. kr...— 19.29 — sænskarkr.....— 117.46 — norskar kr. .... — 113.56 — danskar kr....— 100.00 Sálræn reynsla. Frú Guðrún Guðmundsdóttir, sem löngu er þjóðkunn orðin fyrir sálræna liæfileika sina, sem hún hefir í ríkum mæli, ætlar að halda fyrirlestur um reynslu sína annað kveld (sunnudag kl. 8y2) i Varðar- húsinu. Eg liefi átt kost á að vera á mörgum tilraunafundum frú GuÖrúnar og verið vottur að miklum og merkilegum hæfi- leikum liennar, og efast eg þó ekki um, að fyrirlestur hennar kann frá mörgu merkilegra að segja, og enginn, sem ann hin- um stórmerku sálrænu rann- sóknum mun iðrast eftir að hlýða á hana. Get eg og vil því örugglega mæla með því, að erindi hennar verði vel sótt. Það verður gott fyrir liana, en enn betra fyrir þá sjálfa, sem hlýða á hana. Kristinn Daníelsson. Barnaguðsþjónusta veSrur á morgun kl. 3 í frakkn. spítalanum. Öll böm velkomin. Nýtt bifreiðaverkstæði hafa þeir Árni Stefánsson og FriSsteinn Helgason opnaS á Hverfisgötu 93. Athugasemd. Valdimar Sveinbjörnsson, sundkennari, skrifar góða grein í „Vísi“ í dag,. um nauðsyn sundkunnáttu, sem seint verður ofbrýnd fyrir fólki. En sá er Ijóður á greininni, að Valdimar hefir valið henni að einkunnar- orSum bau ummæli Halldórs Magnússonar stýrimanns á „Papey“, að líkindi eru til, að allir, sem syndir hefðu verið, hefðu bjargast“. Þessi ummæli eru alls ekki á rökum bygð, því mér er kunnugt um að einn þeirra manna er þama fórust, var vel syndur: Jón Oddsson, vélstjóri. Og svo getur hafa ver- ið um fleiri, þrátt fyrir getgátur Halldórs. Rvik, 1. mars 1933. J. G. Kvöldvaka útvarpsins. Iívöldvakan er sá liður í starfsemi útvarpsins, sem mörgum mun góður þykja og væri þvi nauðsynlegt, að út- varpsráðið vandaði vel val á efni hennar. Kvöldvakan i gærkveldi var hin ánægjulegasta, að undan- tekinni rímu þeirri, sem kveðin var; hún var svo gerólík öðr- um liðum kvöldvökunnar, að vel hefði hana mátt vanta, en ánægjulegt hefði það verið, að í stað nefndrar rimu, hefði kvæðamaður valið eitthvað sambærilegra við efni kvöld- vökunnar, og í því sambandi vil eg nefna hluta úr einni rimu — síðari hlutann af annari Númarímu, erindi 75—100. — Kvæðamanninn má ekki vanta við kvöldvökuna, en nauðsyn- legt er, að hann vandi val á efni því, sem hann notar til þess, að skemta öörum með. 25. febr. 1933. K. E. Fram 25 ára. 2.—4. tbl. Knattspyrnufélags- ins „Fram“ kom út i gær og er útgáfa þessa tbl. helguð 25 ára afmæli félagsins. Flytur blaðið fróðlegar og skemtilegar grein- ir um sögu félagsins með mörg- um myndum. Stofnendur fé- lagsins voru drengir um og yfir fermingu og munu flestir þeirra taldir á bls. 5. í skemti- legri grein, sem heitir „Frá æskuárum Fram“ er lýst stofn- un félagsins og fyrsta sigri á kappmóti, er leiddi marga og glæsilega sigra á eftir sér á næstu árum. — Stjórn fé- iagsins skipa nú: ólafur Þor- varðsson, form. Kjartan Þor- varðsson, ritari. Guðm. Hall- dórsson, gjaldkeri. Lúðvík Þor- geirsson, varaformaður og Ilarry Frederikssen bréfritari. Eru þetta alt áhugasamir, dug- andi drengir og eru þeir, og Frammenn yfirleitt einhuga í að efla gengi félagsins og á það vafalaust glæsilega framtíð fyr- ir höndum. Kveldskemtun heldur kvæðamannafélagið ISunn í kveld í Varðarhúsinu. Húsið opn- að kl. 8. Farsóttir og manndauði í Reykjavík vikuna 19.—25. febrúar (í svigum tölur næstu viku á undan): Hálsbólga 51 (37). Kvefsótt 170 (122). Kvef- lungnabólga 5 (4). Blóðsótt 3 (5). Gigtsótt 2 (1). Iðrakvef 32 (30). Inflúensa 50 (20). Tak- sótt 1 (2). Hlaupabóla 4 (7). Stingsótt 0 (1). Kossageit 0 (1). Þrimlasótt 1 (1). Munnangur 5 (0). Mannslát 6 (8). Landlæknisskrifstofan. (FB). Skemtun Ármanns verður í kveld kl. 9y2 í Iðnó. Stjóm félagsins hefir beðið blaðið að geta þess, að því miður falli sýning gamanleiksins „Jósafat“ niður vegna veikinda aðalleikand- ans. Skemtunin hefst því á fim- leikasýningu drengja og verður síð- an dans til kl. 4. Hin ágæta hljóm- sveit Aage Lorange (5 menn) spil- ar alla nóttina. Sjá nánara um miðasölu í augl. hér í blaðinu í dag. GERI UPPDRÆTTI af allskonar húsum. — Þorleifur Eyjólfsson, húsameistari, Öldugötu 19. Heilagt ár ~ 1933. Um þetta efni flytur síra Sig- urður Einarsson erindi i K R.- húsinu kl. 4 e. h. á sunnudag. — Aðgöngumiðar á 1 kr. eftir kl. 1 FráI|B.||S. R. verða ferðir á sjónleikinn og dansskemtunina á Brúarlandi í kveld. Sími 1720. Útgerðarmenn, skipstjórar. Við bjóðum yður prisma-sjón- auka, stækkun: 10x32 fyrir kr. 125. Sportvöruhús Reykjaríkur. Jón M. Melsteð, Vonarstræti 12, er 70 ára í dag. Nýja hárgreiðslustofu hefir Soffía Wedholm opnað í dag í Aðalstræti 18 (Uppsölum). Leikhúsið. Æfintýri á gönguför verður leikið kl. 3 e. h. á morgun, en Karl- inn í kassanum kl. 8. Síðasta sinn. Lækkað verð að báðum sýningun- um. Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík heldur aðalfund sinn fimtud. 9. mars 1933 í baðstofu fé- lagsins. Sjá augl., sem birt er í blaðinu í dag. Bethanía. Hátiðarsamkoma á sunnudaginn kl. 8y e. h. Stúd. theol. Valgeir Skagfjörð talar. Áheit á barnaheimilið Vorblómið (Happakrossinn) : 2 kr. frá I. B. Minningarsjóður Ólafs Jónssonar læknis: 2 kr. frá Helgu og Jöru, 15 kr. frá B. Ó. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 3 kr. frá M., 10 kr. frá ónefndum, 5 kr. (gamalt áheit) frá H. Útvarpið. 10,00 Veðurfregnir. 10,12 Skólaútvarp (Einar Magnússon kennari). 12.15 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 18.15 Endurútvarp frá Þýska- landi. 19,05 Þingfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tilkynningar. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttiu'. Fréttir. 20.30 Upplestur. Sögukafli. (Einar H. Kvaran). 21,00 Tónleikar (Úvarpskvart- ettinn). Fiðlu sóló (Georg Ta- kács) Corelli-Leonard: La Follia. Frangois Fran- coeur: Sicilienne et Ri- gaudon. Grammófónkórsöngur: Men of England (enskur kór með ork.). Passing by. Drink to me only with thijie eyes (enskur kvartet). I see my Lové at the window. Calliope. Hear Dem Bells (Lions Quartet of Seattle). Danslög til kt. 24. ----rr————---------------'

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.