Vísir - 09.03.1933, Síða 3

Vísir - 09.03.1933, Síða 3
VISIR ið síldveiðiiímabil, við eins mörg erlend fiskiskip eins og jjær kynnu að óska, um kaup á nýrri síld til bræðslu. Það síld- armagn, sem norsk verksmiðja tekur á móti samkvæmt slik- um samningum, að viðbættu því, sem verksmiðjan kynni að kaupa við og við frá erlendum fiskiskipum, má þó ekld sam- anlagt fara fram úr 60%. af bræðslusild verksmiðjunnar á því síldveiðatímabili. 3. gr. Norskum síldveiðiskip- um er lieimilt að þurka og gera við veiðarfæri sin á Siglufjarð- ar- og Akureyrarhöfn. Meðan á því stendur skal skipið, sem í hlut á, liggja við akkeri eða festar, og liafa uppi merki, seni nánar verður ákveðið. 4. gr. Norskum síldveiðiskip- um skal heimilt að fara með veiðarfæri sín i land og gera við þau á Akureyri og Siglu- firði. Meðan á þvi stendur skal skip það, sem i hlut á, liggja við akkeri eða festar, og hafa uppi uánar ákveðið merki. 5. gr. Norskum fiskiskipum er heimilt að nota veiðibáta sína til flutninga og vatnstöku í Reykjavik, á ísafirði, Skaga- strönd, Siglufirði, Krossanesi, Akureyri, Raufarhöfn, Seyðis- firði, Eskifirði, i Vestmanna- eyjum og Hafnarfirði, en til vatnstöku þó þvi að eins, að það komi ekki í bága við einkarétt fil afhendingar vatns. 6. gr. Norskum fiskiskipum, sem aflienda ekki síld til sölt- unar í móðurskip eða í annað erlent skip, slcal heimilt að selja i land til söltunar alls 500 tunn- ur af reknetaskipi hverju og 700 tunnur af snurpinótaskipi. Fyrir norsk fiskiskip, sem uppfylla þetta skilyrði og hafa gert samning yfir síldveiði- tímabil við síldarverksmiðju á Islandi, liækkar þessi tunnu- tala upp i 700 tunnur fyrir rek- netaskip og 1200 tunnur fyrir snurpinótaskip. Ef þessi söluheimild verður afnumin eða torvelduð með sér- stökum lagaákvæðum eða.öðr- um fyrirmælum yfir\alda, get- ur norska stjórnin, þrátt fyrir ákvæði 18. greinar, hvenær sem er sagt upp, Samningi þessum :með 3 mánaða fyrirvara. 7. gr. Norskum fiskiskipum, sem ekki láta af liendi síld til söltunar i móðurskip eða ann- að erlent sldp, og hafa gert samning yfir sildveiðitimabil við sildarverksmiðju á íslandi, skal heimilt að búlka afla sinn og það, sem til útgerðarinnar þarf, á höfnunuin á Siglufirði og Akureyri. Hlutaðeigandi hafnarstjórn skal fyrirfram tilkynt, að slík búlkun fari fram, og skipið, sem i tilut á, skal, mcðan á verlcun stendur, liggja við akkeri eða festar og hafa uppi nánar ákveðið merki. 8. gr.. Norsk fiskiskip greiða afgreiðslugjald og vitagjald cinungis þegar þau koina frá útlöndum. og laugardagiun ■verður það sem eftir er af ú söluvörum selt með tækifærisveröi. JlMa/ctuAfánaAon 9. gr. Það telst ekki viðkoma í útlöndum, er síldveiðaskip liefir samband við annað skip utan landhelgi, ef hið siðar- nefnda skipið hefir einnig greitt lögboðin gjöld á íslandi á veiði- tímanum, og hefir ekki síðar liaft samband við útlönd eða við önnur skip, sem beint eða ó- beint hafa liaft sainband við útlönd eftir að liin lögboðnu gjöld voru int af hendi. Sýna ber skilríki fyrir þessu frá skipstjóra liins skipsins. 10. gr.- Nú varpar skip akk- erum utan löggiltra hafna, og grciðast þá ekki opinber gjöld ef skipið liefir ekki samband við land. 11. gr. Norsk fiskiskip, sem leita neyðarhafnar á íslandi, skulu að eins greiða venjuleg gjöld fyrir tollskoðun og lieil- hrigðiseftirlit, og liafnsögu- mannsgjald og liafnargjald o. þvl. að eins ef um slík afnot er að ræða. 12. gr. Norsk fiskiskip, sem geta sannað, að þau hafi rekið inn í landhelgi vegna straums og/eða storms, skulu ekki sæta ákæru, ef það er ljóst af öllum atvikum, að þetta hafi elcki átt sér stað vegna stórkostlegs gá- leysis eða ásetnings, í þeim til- gangi að veiða eða verka aflann innan landhelgi, enda sé jiessu kipt i lag svo fljótt sem auðið er. 13. gr. Ef norskt fiskiskip vill ekki greiða sekt, heldur óskar að dómur gangi, skal skipinu þegar slept, gegn geymslufjár- greiðslu, en ekki haldið þar til dómur fellur. II. kafli. Innflutningurinn á söltuðu ístensku kindakjöti til Noregs. 14. gr. Aðalinnflutningstoll- urinn skal strax lækkaður nið- ur í 15 aura pr. kg., að viðbætt- um venjulegum viðaukum, fyr- ir innflutningsmagn, er nemi alt að 13000 tunnum árið 1932 —1933. 15. gr. Eins fljótt og unt er verður lagt fyrir Stórþingið frumvarp um tækkun á aðal- tollinum niður í 10 aura pr. kg., og um lieimild til þess að endur- greiða íslensku ríkisstjórninni mismun þess tolls, sem greidd- ur liefir verið, þ. e. 15 aura að- altolli pr. kg., og tollsins sam- kvæmt nýja aðaltollinum, í báðum tilfellum með venjuleg- um viðaukum, og að þvi er snertir innflutningsmagn, er nemi 13000 tunnum árið 1932—- 1933. 16. gr. Nýi aðaltollurinn, 10 aurar ]ir. kg., skal gilda fram- vegis um eftirfarandi innflutn- ingsmagn af söltuðu íslensku kindakjöti: a) Árið 1933—34 fyrir 11500 tunnur, en af þeim flytjist ekk- ert inn frá 1. júlí til 15. október, 8000 tunnur frá 16. október til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. b) Árið 1934—35 fyrir 10000 tunnur, en af þeim flytjist ekk- ert inn frá 1. júli til 15. október, 7000 tunnur frá 16 október til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. c) Árið 1935—36 fyrir 8500 tunnur, en af þeim flytjist ekk- ert inn frá 1. júlí til 15. október, 6000 tunnur frá 16. október til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. d) Árið 1936—37 fyrir 7000 tunnur, en af þeim flytjist ekk- ert inn frá 1. júli til 15. október, 5000 tunnur frá 16. október til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. e) Árið 1937—38 og síðar fyr- ir 6000 tunnur, en af þeim flytj- ist ekkert inn frá 1. júlí til 15. október, 5000 tunnur frá 16. október til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. III. kafli. Gildistaka og uppsögn. 17. gr. Samingur þessi geng- ur i gildi og endurgreiðslan samkvæmt 15. grein fer fram, þegar eftirfarandi skilyrði eru fyrir hendi: þegar Stórþingið hefir tekið ályktun í samræmi við 15. grein liér á undan. jiegar Alþingi hefir, ef með þarf, samþykt nauðsynlegar breytingar á fiskiveiðalöggjöf- inni, þegar samningum milli land- anna liefir verið koinið í lag, annaðhvort með afturköllun uppsagnaiánnar af íslands liálfu, eða með því að gera nýj- an verslunar- og siglingasamn- ing, er byggi á sömu megin- reglum og samningar og yfir- lýsingar, sem nú eru í gildi, en hefir verið sagt upp, og ekki seinna en 15. apríl 1933. 18. gr. Samningi þessum get- ur hvort ríkið fyrir sig sagt upp með 6 mánaða fyrirvara, þó þannig, að af íslands hálfu má ekki segja upp samningnum þannig, að liann gangi úr gildi á tímabilinu 1. júni til 30. sept- ember, og frá Noregs liálfu ekki þannig, að hann gangi úr gildi á tímabilinu 1. október til febrú- arloka. Þessu til staðfestu hafa und- irritaðir skrifað nafn sitt undir samkomulag þetta, sem er gert í tveimur eintökuin á íslensku og tveimur eintökum á norsku. Osló, þann 17. sept. 1932. Fyrir Island: Ólafur Thors. Jón Árnason. Fyrir Noreg: T. Anderssen-Rysst. S. Johannessen. Veðrið í morgun. Hiti um land alt. í Reykjavík 2 st., ísafirði 3, Akureyri 6, Seyðis- firði 8, Vestm.eyjum 5, Grímsey 4, Stykkishólmi 2, Blönduósi 4, Rauf- arhöfn 5, Hólum í Homafirði 7, Grindavík 2, Færeyjum 9, Juliane- haab — 17, Angmagsalik — 3, Hjaltlandi 7, Tynemouth 8 st. (Skeyti vantar frá Jan Mayen). Mestur hiti hér í gær 8 st., minst- ur 1. Úrkoma 5,7 mm. Yfirlit: Lægð fyrir norðan land, á hreyf- ingu norðaustur eftir. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói, Breiða- fjörður, Vestfirðir, Norðurland: Vestan gola eða kaldi. Smáskúrir eða slydduél. Norðausturland, Aust- firðir, suðausturland: Suðvestan kaldi. Viðast jiurt og bjart veður. Slys. Maður að nafni Jóel Guðmunds- son, Grettisgötu 45, datt af palli á vörubifreið í gærmorgun. Meiddist hann mikið. — Lögreglan hefir málið til rannsóknar. Áfengismál. Guðm. Sigurðsson, Barónsstíg 61, hefir verið dæmdur fyrir brot á áfengislöggjöfinni, i 40 daga fang- elsi við venjulegt fangaviðurværi. 800 kr. sekt og 200 kr. i skaðabæt- ur. Eins og kunnugt er, kviknaði í út frá bruggunartækjum í her- bergi hans. — Lögreglan tók Berg nokkurn Hallgrímsson, Hverfisgötu 94, fyrir bruggun og áfengissölu. Dómur í máli hans fellur bráðlega. Jón Gunnarsson, samáhyrgðarstjóri, átti 79 ára af- mæli i gær. Dr. Björg C. Þorláksson flytur fyrirlestur i Háskólanum kl. 8 síðd. í dag. Efni: Rannsóknir lífeðlisfrœðinga á meltingarkerfinu. Öllum heimill aðgangur. E.s. Súðin er væntanleg hingað í kveld. E.s. Hekla fer í kveld frá Port Talbot áleiðis til Barcelona. Botnvörpungarnir. Karlsefni er farinn á saltfisks- veiðar. Arinbjörn hersir fór á veið- ar í morgun. — Af veiðum hafa komiÖ i nótt og morgun: Hannes ráðherra, Skúli fógeti og Belgaum," allir með fullfermi. 4 Sendiherrafrétt. Dagmarleikhúsið í Kaupmanna- höfn átti hálfrar aldar afmæli síð- astl. jiriðjudag, og var afmælisins minst með leiksýningu. Til sýning- ar var valið leikritið „Fjalla-Ey- vindur“, eftir Jóhann Sigurjónsson. Aðalhlutverk léku Poul Reumert og Bodil Ipsen. H. M. S. Godetia kom liingað í gær. Herskipið á m. a. að grenslast eftir hver orðið liafi afdrif breska botn- vörpungsins James Long. Erlendir botnvörpungar, tveir frakkneskir og einn spænsk- ur, komu inn í gær og í morgun. Dönsku skipin. Ms. Dronning Alexandrine kom hingað í morgun frá útlöndum. Gs. ísland kom til Kaupmannahafnar í morgun. Sameiginlegan skemtifund halda Verslunarmannafél. Rvík- ur og Félag matvörukaupmanna á Hótel Borg annað kveld. Til skemt- unar verður einsöngur, gamanvísur og dans. Sjá augl. Aukafundur. verður haldinn í hæjarstjórninni kl. 8)4 í kveld, samkvæmt áskor- un 5 bæjarfulltrúa. Rætt verður m. a. um kosningu rafmagnsnefndar og lækkun rafmagnsverðsins. Félag útvarpsnotanda heldur fund í Kaupjiingssalnum annað kveld kl. 8)4. Sjá augl. Skuggasveinn verður leikinn laugardag og sunnudag næstk. fþróttaskólinn á Álafossi. Atfiygli skal vakih á augl. um íþróttaskólann á Álafossi, sem birt er i blaðinu í dag. Skólinn tekur til starfa 28. maí næstk., og eftir likum að dæma og aðsókninni í fyrra, komast færri að en vilja. Kennarar skólans Iverða- Sigriður Sigurjónsdóttir og Vignir Andrés- son. Til utanbæjarmannsins, samkv. hjálparbeiðni 5-/3.: 3 kr. frá G. G. „Vaxtartakmark andlegs þroska“ heitir erindi, sem Pétur Sigurðs- son flytur á fundi i „Septímu“ ann- að kvöld. Gestir. K. F. U. M. A—D býðst einstakt tækifæri til að styrkja sumarstarfið og Skálasjóð á fundinum i kveld. Barnafataverslunin, ^augaveg 23. Sími 2035. J uuimivui vegna verðfalls dönsku krónunnar eru mikið ódýr- ari en áður. Jeg undirrituö 1 vil biðja mina lieiðruðu o viðskiftavini að atliuga, að 2 eg liefi ekki lengur síma S 2070. En framvegis verð- B ur tekið á móti pöntunum S á Prjóna- og saumastof- g unni, Smiðjustíg 6 og á S Saumastofu E. Jónsdóttur, x Laugavegi 24 C. x iotltit itxitit X300; sctitit icotit iotititit Ahcit á Strandarkirkju, afhent Visi: 5 kr. frá H. Þ. J. K. R. Æfingar i dag og á morgun eins og venjulega. Heimatrúboð leikmanna, Vatnsstíg 3. Almenn samkoma i kvöld kl. 8. Útvarpið. 10,00 Veðurfregnir. 10,12 Skólaútvarp. (Síra Sig. Einarsson). 12.30 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 18.40 Barnatími. (2 smátelpur lesa upp). 19,05 Þingfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20,00 Ivlukkusláttur. Fréttir. 20.30 Erindi: Holdsveikin á Is- landi, II (Sæm. Bjam- lijeðinsson, próf.). 21,00 Tónleikar. (Útvarps- kvartettinn). Einsöngur. (Pétur A. Jónsson). Grammófón: Einsöngur (Gamaley): Rússland undir snjó. (Yvonne Printemps) Lulli: Au clair de la lune. Mar- tini: Plaisir d’amour. Chabrier: Danse Slavé og Féte Polonaise úr „Konungur móti vilja sínum“. (Konsert ork., Inghelbrecht). Ðýraverndunarfélag Islands. Reykjavík, 4. mars 1933. Oss hefir borist frv. til laga um breytingar á fuglafriðunarlögunum frá 1913, sem komið hefir fram á Alþingi, þar sem meðal annars er lagt til, að svanir skuli vera rétt- dræpir hvar sem þeir finnast á tíma- bilinu frá 1. okt. til I. maí ár hvert. Vér lítum svo á, að með frv. þessu, ef að lögum verður, sé að því stefnt, að auka drápshug manna, og virðist þó ekki á slíkt bætandi. Fuglafriðunarlögin hafa göfgað hugsunarhátt þjóðarinnar og glætt hjá henni þann skilning, að fugl- arnir séu einhver mesta prýði lands- ins, og skylda mannanna sé að vernda þá prýði, í stað þess að eyði- leggja hana með óþörfu fugladrápi. Öll tilslökun frá því, sem gilt hefir fram að þessu um friðun fugla, mundi því spilla Jieim góða árangri, sem náðst hefir í þessu efni. Um svanina er það að segja, að enginn fugl þykir meiri prýði í ís- lensku fuglalífi, enda hefir verið reynt á síðari árum að hæna hana

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.