Vísir - 11.03.1933, Blaðsíða 4

Vísir - 11.03.1933, Blaðsíða 4
VISIR Hjáiparfrímerki. ÞaÖ er í fyrsta skifti i sögu póst- mála íslancls, sem gefin eru út sér- stök frímerki til þess aÖ efla mann- úðar- og velferðarmál meðal þjóð- arinnar. Hafa slík frimerki verið gefin út í flestum löndum heims og hafa komið fyrir þau miklar fjár- hæðir, sem varið hefir verið til styrktar og eflingar ýmsum mikils- verðum málum, sem oft hefði ekki verið hægt með öðru móti að koma fram vegna fjárskorts. Þegar talað er um þjálparfrímerki, þá er átt við frímerki, sem gefin eru út af póststjórnum landanna og notuð eru sem burðargjald, innan lands og utan, — en merkin eru seld fyr- ir hærra verð heldur en burðár- gjaldi nemur. — Þessi hækkun á merkjunum fer til ýmsra sjóða, tii eflingár allskonar velgerðarmálum og öðru, eftir því í hvaða tilgangi merkin eru gefin út. A Norður- löndum hafa hjálparfrímerki verið gefin út — og eru gefin út árlega, sem og um allan heim. Danmörk befir gefið út nierki til eflingar sjóði til útrýmingar krabbameini. í Noregi hafa verið gefin út alls- konar hjálparmerki, t. d. til efling- ar sjúkrahúsi o. fl. í Finnlandi hafa og verið gefin út merki til eflingar fyrir Rauðakross Finn- lands og til ýrnsra annara velgerð- arfélaga. Póststjórnin íslenska hefir nú gefið út hjálparmerki til eflingar sjóði, sem heitir „Líknarsjóður ís- lands.“ A að veita úr sjöðnum fé til ýmsra íélaga og stofnana, sem vinna að bættum högum og kjörum landsmanna, sérstaklega til Slysa- varnafélags íslands, og til eflingar gamalmenna- og barnahælum. Er hér stigið stórt og gott spor í rétta átt, spor sem reyndar hefði mátt stiga fyrir löngu, en betra seint en aldrei. Kristján listmálari Magnússon hefir gert teikningar af merkjum, sem síðar hafa verið þrentuð í Lóndon. A tveim merkjunum, io aura og 35 aura, et' mynd af skipi í • sjávarháska. Myndirnar eru prýðilega gerðar. 20 aura merkið sýnir börn i berjamó og 50 aura merkið er með mynd af gömlum fiskimanni. Kristjáni Magnússyni hefir tekist prýðilega með þessi merki. sem munu fara víða um heim. Frímerki þessi kosta alls : 195 aura og þar af fara 80 aurar í Líknarsjóðinn, en 115 aurar eru burðargjald. Náttúrlega er hægt að kaujia eitt og eitt merki, eftir því sem menn vilja og þurfa að nota. Með því að kaujia þessi fyrstu islensku hjálparfrímerki geta menn á auðveldan og hagkvæman hátt stutt og styrkt þau málefni, sem mikilsverðust eru meðal þjóðar vorrar. .Ettu landsmenn allir að taka þessu máli vel og styðja það "og styrkja með ])ví að nota ein- göngu fyrstu íslensku lijálparfrí- merkin. Ef það er gert, þá mun Líknarsjóður íslands verða fær um að greiða fyrir mörgu því málefni, sem nú nær ekki fram að ganga vegna fjárskorts. G. S. N orskar loftskeytafregnir. —o-- Osló, 10. ínars. NRP. — F'B. Nýja viðskiftasamkomulagið milli íslendinga og Norðmanna var birt í dag. I tilefni af birt- ingunni hefir Mowinkel for- sætisráðherra látið svo um mælt í Dagbladet: „Eg tel það hið mesta ánægjuefni, að nú verður lokið að fullu við þessa samningagerð, því að sam- komulagið ber með sér öll ein- kenni gagnkvæmi og velvildar. I>vi verður eigi ncitað, að af samkomulaginu leiðir talsverða fórn einnig af Norðmanna Jiálfu, en viðskiftasamkomulag næst ekki þjóða milli nú á dög- um, nema gætt sé fylstu velvild- ar af beggja liálfu. Eg vona, að íslensk-norska samkomulagið, sem ber svo mjög merki þess hvert traust íslendingar og Norðmenn bera hverir til ann- ara, leiði til þess, að vinfengið milli þeirra eflist.“ Málarinn Bernhard F'olke- stad lést i nótt 53. ára gamall. Fri Veslnr-íslendiODnm. —o— K. Jóhannesson, vestur-íslenskur fiugmaður, er um f jögur ár hefir stundað flug- kenslu fyrir Winnipeg Flying Club, hcfir nú opnað flugskóla á eigin spýtur og kennir alt, sem að fluglist lýtur. Er skóli hans á stöðvum flugfélagsins Canadian Airways. — K. Jó- hannesson er viðurkendur flug- listarkennari, og svo fær er hann i sinni grein, að við próf í henni, hefir enginn fengið hærri vitnisburð en hann, utan flughersins. (Hkr.—FB.). Gott herbergi með góðum húsgögnum fil leigu strax. Lauf- ásvegi 44. (28!) Sólrík íbúð, 3 herbergi og eldhús til leigu á Grundarst 11. I 3—4 herbergja íbúð með öllum þægindum, til leigu 14. maí i vesturbænum. Tilboð, merkt: „Þægilegt og sólríkt“, leggist inn á afgr. Vísis fvrir Itj. þ. m. ' * (287 Tvær íbúðir, hvor 2—3 her- bergi og eldhús, sem sameina mætti í eina íbúð, til leigu 14. mai í miðbænum fyrir kyrlátí og skilvíst fólk. Á sama stað er stofa til leigu með forstofu- inngangi, neðslu hæð. Góð hús- gögn geta fylgt. Fyrir kyrlátan reglusaman mann. Uppl. i síma 2400, kl. 6—10 e. h. (283 I útjaðri borgarinnar er til leigu strax eða 14. mai íbúð, 3 herbergi og eldhús, sólrik, fag- urt. útsýni, strætisvagn. Hugs- 1 anlegt félagsbú með 2—3 kúm. Uppl. í síma 2400 kl. 6—10 e. h. (282 Ódýr húsaleiga. Heilnæmt loft. 3 herbergi og eldhús með nú- tima þægindum óskast 14. maí. Tilboð Ieggist inn á afgr., merkt „íbúð í vesturbænum“. (281 2 herbergi og eldhús til leigu 14. mai í gamla húsinu á Vest- urgötu 17. (280 1 . herbergi með eldunar- plássi óskast 14. maí. Tilboð, merkt: „15“, scnclist Vísi. (277 3 herbergi og eidhús með þægindum, til leigu 14. maí. — Uppl. á Njálsgötu 40, uppi. (294 íbúð til leigu frá 14. maí í Kirkjustræti 10. —- Uppl. gefur Haraldur Johannessen, banka- fulltrúi, sími 3035. (307 2 herbergi og eldhús með ljósi og hita eru til Ieigu nú þegar eða 14. inai. Uppl. i Hjálp- ræðishernum. (306 Ein rúmgóð stofa, eða tvö minni hcrbergi, ásamt eldhúsi, öskast 14. mai. Simi 2099. (298 3 stofur og eldhús til leigu, auk stúlknaherbergis, með nú- tima þægindum. Simi :i664. (302 Ferðamaður utan af landi óskar eftir forstofuherbergi með húsgögnum, um stuttan tima. Sími 2071. (300 itíotitíoect •r*. •’vrwr'vr' i? Sélpík: íbúð. i ii 4—5 herbergja ibúð i « ;; vesturbænum er til leigu * | frá 14. mai næstk. íbúðin JJ er í nýju húsi með öllum tí 5; nútinia þægindum. Tilboð, 2 í? merkt: ,SóIrík íbúð‘, send- « I ist fyrir 15. þ. m. Ú 2 herbergi og eldhiis með nú- tíma þægindum óskast til leigu 14. maí. Barnlaus hjón. Ábyggi- leg fyrirframgreiðsla. Tilboð, merkt: „S. Á.“, sendist afgr. Vísis. (292 2 herbergi og hálft eldhús til leigu strax og frá 14. mai 4 herbergi og eldliús. Hentugt fyr- ir 2 fjölskyldur. Njálsgötu 4 B. Sími 1901. (295 Tvö herbergi og eldhús eða með aðgangi að eldhusi óskast 14. maí í austurbænum. Tilboð með ítarlegum upplýsingum í pósthólf 846. (279 VINNA í \ Okkur vantar vanan véla- mann.' Smiðastofan Reynir, Vatnsstíg 3. Sími 2346. (284 Duglegan dreng vantar til snúninga og mjólkurflutnings nú strax. — Melbæ, Sogamýri. (271 Stúlka óskast strax. Bræðra- borgarstíg 15. (272 Stúlka óskast til Aðalsteins Eiríkssonar, Lokastíg 11. Simi 2094. (290 Stúlka óskast fyrri hluta dags. Hildur Sívertsen, Mjóstr. 3 (Vinaminni). (301 Hraust og dugleg stúlka ósk- ast í vist nú þegar, til 14. maí. Páll ísólfsson, Austurncsi við Skerjafjörð. Sími 4645. (299 Hárgreiðslustofan Perla mæl- ir með sínum „Wella“ perman- enÞkruIIum. Enn fremur „Gra- tia“ nuddi, sem tekur burt alla óþarfa fitu á stuttum tíma. — Reynið „Gratia“ i 2 vikur, og sjáið mismuninn. (378 Við hárroti og flösu liöfum við óbrigðula meðhöndlun. öll óhreinindi í húðinni, t. d. fíla- pensar, vörtur og bólur, tekið burt. Öll okkar gufu- og rafur- mágnsáhöld eru af nýjustu gerð. Hárgreiðslustofan Perla, Berg- staðastræti 1. Sími 3895. (377 Góð stúlka, sem gæti að' mestu leyti séð um heimili, ósk- ast Laufásveg 38. (297 Stúlka óskast nú þegar á Bræðraborgarstíg 12. (304 UPSKAPUR 1 HÚSEIGNIR TIL SÖLU: Steinhús við Miðbæinn, 2 i- búðir, með nútima þægindum. Eigpaskifti, ef óskað er. Timb- urhús í Vesturbænum, með miðstöð o. fl. Steinvillur í Vest- ur og Austurbænum. Eigna- skifti víða möguleg. Gerið svo vel að spyrjast fyrir hjá mér. Það hefir mörgum orðið nota- drjúgt. Hús tekin í umboðssölu. Elías S. Lyngdal, Njálsgötu 23. Sími 3654! (303 Notuð barnakerra óskast keypt. Uppí. i síma 3194. (285 Gasbökunarofn í góðu ástandi !il sölu með tækifærisverði. A. v. á. (278 Athugið! Peysuföt og upp- hlutir og alt sem að því lýtur er saumað á Smiðjustíg 6. Einnig allskonar barnaföt. — Alls- konar prjón er tekið á sama stað. Fljót afgreiðsla, góður frágangur. — Prjóna og sauma- stofan, Smiðjustíg 6, uppi. NB. Áður Klapparstíg 27. (64 98ö) *uoA U!20<R°I'H -jujox -{j x -.mjjojjnji -{sp ‘8{oj -Bp.nRs ‘mnuunj 1 jofj{gnd^ : ipuerSSijjiJií^ Fasteignastofan, Hafnarstr. 15. hefir til sölu mikið úrval af smáum og stórum húsum. Einn- ig byggingarlóðir og grasbýli. Komið og gerið kaup sem fyrst. Þar sem úrval er mest, gerast kaupin best. Viðtalstími 11—12 og 5—7. Simi 3327. Jónas II. Jónsson. (296 Barnavagnar, stólkerrur, ung- barnakerrur. Mest úrval. Vatns- stíg 3. Húsgagnaverslun Reykja- vilcur. (291 UNGLST. ÆSKAN nr. 1 heim- sækir stúkuna „Vonarljósið“ i Hafnarfirði á morgun. Lagt af stað frá G. T. húsinu kl. 1 e. h. Fargjald 1 króna báðar leiðir. (305 ST. VÍKINGUR og FRAMTÍBIN Afmæli á mánudag. Félagar sæki aðgöngumiða í dag og sunnudaginn kl. 4—8 e. h. í Templarahúsið. (293 F' E1, A GS PRENTSMIÐ J AN. HEFNDIR. gekk né rak með ferminguna og alt var að komasl í vandræði. — Fjöldi ófyrirsjáanlegra atvika höfðu orðið til tafar, jafnvel fjárhagslegir örðugleikar voru teknir að gera vart við sig. Var engu líkara en að óskiljanlegustu óhöpp og hverskonar vandræði steðjaði að Robert Gregory og félagi hans úr öllum áttum. Starfsmennirnir tveir, sem áður voru nefndir, voru orðnir alvarlega uggandi um hag félagsins. Þeir höfðu unnið þama lengi og nú virtist alt vera að hrynja i rústir. Og nú sátu þeir þarna síðla kvelds og ræddu um ástandið. Þá langaði til að finna ein- hver bjargráð og vonuðu i lengstu lög, að það mundi takast. ’■— Én því nieira sem þeir hugsuðu um hag fyrirtækisins, þéss flóknara virtist þeim alt og óskiljanlegra. Hitt var þeim ljóst, að hagur félags- ins var að verða slæmur.----En verra en alt ann- að mótlæti fanst þeim þó það, að Basil Gregory skyldi vera horfinn. — Gregory var ríkur máður og lánstraustið óbilandi Á- eða svo hafði það verið — svo að fjárhagnum var væntanlega borgið — fjár- hag húsbónda þeirra — þó að félagið hallaðist eitt- hvað. — En hvarf hins unga manns var alvarlegur hlutur. Það var farið að hafa alvarleg áhrif á Ro- bert Gregory — og hvað var félagið eiginlega án stjómar og starfsemi þessa duglega manns. Þeir voru ekki kviðafullir vegna Basils. Hann hal'ði lagt litla alúð við störf sín og biar þó úr být- um hærri laun en Jæir. — Hann gat haft það til, að sinna engum störfum dögum sáman, og þó að hann væri i skrifstofunni að nafninu til, var hann heldur afkastalítill og \-irtist ærið áhugalaus. — FJn Jieim þótti þó miklu máli skifta, að hann kæmi í leitirn- ar — ekki hans vegna aðallega, heldur vegna for- eldra hans og fyrirtækisins, sem þeir störfuðu við. Uin þetta voru ]>eir að liugsa og tala og létu verslunarbækurnar eiga sig á meðan. A meðan þessu fór fram —; meðan sex manneskj- ur, tvær hér og fjórar i veitingahúsinu — reyndu að finna ný og ný ráð og fundu cngin nýtilcg, voru tvær aðrar að hugsa um málið, hvor í sínu lagi, og störfuðu báðar af miklu kappi. Um miðnæturskeið kom John Bradlcy út iir litlu húsi við Po Yan-stræti, skamt frá Tung Wah sjúkra- húsi. Þetta cr í Tai-pingshau, fátæku Kinverja-hverfi. Þarna átti heima kínverskur maður einn lítils- háttar, sem John Bradley hafði hlaupið undir bagga með oftar en einu sinni. Hann bjóst við þvi, að liann mætti treysta þessum manni og gæti reitt sig á hann að öllu leyti. — Maður þessi, Sung Fo að nafni, mundi þegar hafa komið á fund Bretans, ef hann hefði gert honum orð, cn Bradley var þeirrar skoð- / unar, að betra mundi að hegða sér öðru vísi að þessu sinni. Hann óttaðist ekkert í Hong Kong og þurfti ekkert að óttast, jafnvel ekki hér í hinu sóða- legasta úthverfi. Sung Fo hafði verið heima og Bradley skýrði hon- uin frá erindi sínu. Iunverjinn hafði lofað, að gera alt, sem í haus valdi stæði, og Bradley taldi ekki liklegt, að liann gæti gert neitt meira að sinni. Hann ákvað því að fara lieim og biða átekta — bíða, vaka og biðja. Það var eins með hann og Ah Wong. Hvorugt vissi neitt örugglega, en bæði grunaði liið sama. ‘— Ah Wong var þó miklu ákveðnari í ágiskunum sínum. Þegar liann hafði skamt farið frá lireysi Sung Fo, nam liann staðar úti fyrir húsi einu, sem hann hafði lieyrt talað mikið um, en aldrei séð eða skoðað. Þetta var ekki ósnoturt liús, bygt úr tigulsleini og niáláð blátt, hærra og öllu veglegra en flest önnúr hús þama í hverfinu. — Eigandinn var kínverskur þfsali, kunnur maður og alræmdur um alt Kina- veldi. Húsið stóð Jxirna snoturt og „meinleysislegt". Þar var ekkert grunsamlegt bið vtra. Hlerar voru

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.