Vísir - 26.03.1933, Blaðsíða 3
V I S I R
áreiðanlegar og fullkomnar, að
inínu viti, en eg hefi mælt með
því, að blöðin semdi við út-
varpið, ef unt væri, um afnot
þessara frétta, til aukinnar
fjölbreytni, ef þær fengist með
skaplegu verði. En jafnframt,
frá þvi þessi mál fyrst bar á
góma, hefi eg tjáð stcttar-
bræðrmn mínum, að til mín
persónulega þyrfti ekki neitt
tillit að taka, ef þeir vildi breyta
til, en liinsvegar mundi eg vinna
fyrir F. B. meðan þess væri
óskað, fyrir þau laun, sem lnin
gæti borgað, eða ekkert, ef fjár-
Iiagurinn leyfði engar launa-
greiðslur.
Nú er það siður en svo, að
mér sé að skapi að fara nokk-
urn bónarveg að Alþmgi, fyrir
hönd F. B., um þennan rikis-
styrk. Þingmenn munu, liafi
þeir skap til, samþykkja með
Jónasi Þorbergssyni að fclla
niður þenna mikla styrk, 1600
kr. Ef um spamaðarráðstöfun
væri að ræða, væri ekkert við
þessu að segja, en tillagan er
fram borin með fullyrðingum,
sem ekki eru sannar.
En á það er fyllilega réttmætt
að benda, að litlu stofnanirnar
gera oft sitt gagn eigi siður en
þær stóru, þótt kostnaðurinn sé
minni. Og það ætla eg vera í
þessu tilfelli. Fréttastofan hefir
áreiðanlega gert sitt gagn þann
tæpa áratug sem liún hefir
starfað, og ef þessi stofnun yrði
lögð niður, sem þó væntanlega
verður ekki, mætti vel við una,
ef blöðin hefði sama gagn af
annari stofnun, sem samið
kynni að verða við, miðað við
sama tilkostnað.
Fréttastofan fékk upphaflega
4000 kr. á ári af ríkisfé. Vald-
hafarnir hafa verið að smá-
sneiða af þessari fúlgu og loks
var komið niður í 1600 kr. Nú
vill Jónas Þorbergsson hætta
þessum vitlausa fjárausti'i al-
veg. Það þarf ekki að efa, að
honum gengur gott til. Og liafi
hann þann sónxa af, senx hann
hefir til unnið.
Axel Thorsteinson.
Fjallasvannrinn.
[Vísir hefir birt greinir eftir and-
stæðinga hins svonefnda „Svana-
frumvarps" þm. Mýramanna. Þyk-
ir rétt að leyfa höf. eftirfarandi
greinar að láta í ljós álit sitt á mál-
inu. Hann er hlyntur ])vi, að frv.
verði gert að lögum. — R i t s t j.].
Bjarni alþm. Ásgeirsson flytur
frumv. um breytingu á fuglafrið-
iinarlögunum. Er i frv. lagt til, að
fella niður friðun á álftum nokk-
urn hluta ársins. En hún er eftir
migildandi lögum alfriðuð,
Frumvarp þetta hefir verið rætt
nokkuð einhliða í blöðunum og flm.
sætt. aðkasti fyrir ,,álftadráps“-.til-
lögu sína, eins og það er orðað.
Eg lít: á þetta mál nokkuð öðrurn
augum en þeir, er eg hefi séð á
það minnast, og sting því niður
penna i því trausti, að Vísir Ijái
linum þeSsum rúm.
Höfundar þeir, er eg hefi séð
greinir eftir, hafa slegið á þá
strengi, að álftin væri svo fögur, að
friðun væri sjálfsögð þess vegna,
en aftur á móti gert lítið úr tjóni
því, er hún veldur, og öldungis að
mig minnir gengið fram hjá hættu
þeirri, er svaninum stafar af harð-
Indum. Og hinn höf., „Álftavinur"
minnir mig hann kalli sig, telur til-
ganginn þann helstan með frv., að
gefa bændum kost á ódýru fugla-
kjöti. En það finst honum víst frá-
leitt. Kemst hann að lokutn að
þeirri niðurstöðu, að ef frv. verði
að lögum, þá muni þorpalýður
landsins hlaupa á fjöll upp og elta
álftirnar til dauðs, meðan þær eru
„i sárum“! En hann gerir sér ekki
grein fyrir því, blessaður „álfta-
vinurinn", að frumv. gerir alls ekki
ráð fyrir neinni rýmkuti á friðun
fuglsins á þeirn tíma er hann fell-
ir fjaðrir, svo að í því tilliti gerir
rnaður ekki ráð fyrir að lögfesting
frumv. ylli svaninum neins ónæðis
ófleygum frekara en nú á sér stað.
í greinargerð frumv. er ofurlítið
minst á engjaspjöll af völdum álfta,
en lítið vilja þeir álftafriðunarhöf-
undarnir leggja upp úr þvi atriði.
En það get eg fullyrt, af margra
ára reynslu, að álftaflokkar eru
ótrúlega fljótir að vinna veruleg
spjöll á slægjum og beitilandi,
einkum þar sem votlent er. Eru
beitarflesjar fuglsins sem nýrótað
flag, því hann rífur með rótum all-
an gróður, bæði grasið og mosann.
Þá er álftin engu síður illúr gest-
ur á uppalningssvæðmn klakstöðv-
anna. Veit eg ekki hve miklu það
tjón nemur, en hitt veit eg, að
bændum þeim, sem eiga að nokkuru
afkomu sína undir þroska og upp-
komu klakfiskanna, er vorkunn,
þótt þeir styggi óvætt þann úr sila-
torfunum, og hirði þá lítt hversu til
tekst með nærfærnina.
Að endingu bæti eg hér við frá-
sögn um atvik eitt er bar fyrir mig
fyrir nokkuru.
Það var um vortima að bóndi
einn, nágranni minn, kom til mín
með miklu fasi og bað mig að ljá
sér byssuhólkinn minn. Eg spurði
hann hverju slíkur vígahugur sætti,
og sagðist honum þá svo frá:
Nokkuru fyrr um daginn hafði
hann verið við vinnu sína kippkorn
frá varphólma álftahjóna nokk-
urra, -og var hólmi sá i smátjörn
lítið undan landi. Umhverfis tjörn-
ina gekk búfé bónda, en hann átti
allmargt gangandi fjár og var hinn
umhyggjusamasti hirðir. Eitt sinn
unx daginn verður honum litið upp
frá vinnu sinni' við hávaða mikinn.
Sér hann þá hvar önnur álftin
ræðst með gargi og grimd að á
einni nýborinni, en ærin leitaði
lambi sínu skjóls undir kviði sér
og varðist svo óvættinum eftir
föngum með hornunum. En er
bóndi sér atburði þessa hljóp hann
upp hart og títt með reku sina
reidda og hugðist að hjálpa ánni úr
þessum vanda, en hún var 3—400
metra undan. En svo urðu snögg
umskifti á þeirn leik, að ærin lá
hryggbrotin er bónda bar að.
Það þykir nú kannske að ólík-
indum, þeim sem dýrka fegurðina
eina saman, að svo fagur fugl geti
framið slíka óhæfu, og sér til
einskis gagns, því hræfugl er álftin
ekki. En eg gæti tilnefnt fleiri
dæmi þessu lík.
Eg vil að síðustu benda þeirn,
sem þykir „álftadráp“ ómannúð-
legt, að þeir ættu að ganga frarn á
grindhoraða álft, frosna niður á
vængjum og fótunx, en þó með lífs-
marki, og vita þá hvort sú tilfinn-
ing gæti ekki hrærst i brjóstum
þeirra, að sá fugl hefði betur fall-
ið að haustdegi fyrir skoti. og orð-
ið þá einhverjum að liði, en sjálfum
sér til kvalastyttingar.
Tel eg að Bjarni bankastjóri eigi
þakkir skilið fyrir frunxv., og eink-
um þó vegna þess, að hann hafði
þor til að risa gegn þröngsýni
þeirra er starblína á einhverja
imyndaða manngæsku, en geta
aldrei losað sig af tjóðurhæli van-
ans. Verði frv. lögfest, sem eg tel
vonandi, er með öllu ósannað, að
fleiri svanir falli fyrir skotum, en
þótt þeir væru alfriðaðir.
M. Blöndal.
Gúmmístígvél
fyrir karlmenn, kvenfólk og börn
í stærstu og fjölbreyttustu úrvali.
0
0
æ
0
0
0
0
0
0
0
1.0.0 F. 3 = 1143278 =
Orgelkonsert
Páls tsólfssonar i fríkirkjunni
Páls ísólfssonar í fríkirkjunni
á fimtudagskveldið sýmdist fá-
sóttari sökum þess, hvað kirkj-
an rúmar marga. Þó mun þar
liafa verið saman kominn mest-
ur hluti þeirra manna hér i bæ,
sem kunna að meta góðan org-
anleik. Munu þeir og ekki lxafa
talið sig hafa farið erindisleysu.
— Á skránni voru Prelúdíum
og fúga i e-dúr, eftir Vincent
Lúbeck (samtíðarmann Baclxs,
en 31 ári eldri), Toccata og fúga
í d-moll og Passacaglia í c-moll
eftir Bach, Kyrie eleison og Toc-
cata og fúga i d-dúr, eftir Max
Reger. — Enda þótt þessi lög
væru flest áður kunn áhevrend-
um Páls, teljast þau til þeirra
vísna, sem seint verða of oft
kveðnar. Enda varð ekki sagt,
að Páll væri hér að endurtaka
sjálfan sig, þvi að þessi sígildu
verk birtust að miklu leyti með
nýjum blæ, sem var auðsjáan-
lega að þakka nýrri athugun og
æfingu. Bar leikurinn vott þess,
að Páli sé að vaxa persónuleg-
ur skilningur og.festa í með-
ferðinni. — Enda þótt þess sé
naumast að vænta, að aðdáend-
ur góðrar organtónlistar séu hér
mjög fjölmennir, ætti Páll að
veita þeim þá ánægju, að láta
til sín lieyra nokkru oftar en
lxann hefir gert upp á síðkastið.
Ces.
Alþinfó-
EldhúsumræSunuin verður hald-
iÖ áfrani anna'Ö kveld. Hefjast þær
kl. 9 og verður útvarpað.
Hjónaefni.
í gær birtu trúlofun sína ungfrú
Petrínella Kristjánsdóttir, Grund-
arstíg 24. og Jón Guðmundsson,
bifreiðarstjóri. Bergstaðastr. 32 B.
Hjúskapur.
Laugardag 18. þ. m. voru
gefin saxnan i hjónaband af síra
Friðrik Hallgrímssyni, ungfrú
Halla Einarsdótir og Þorleifur,
Sigurbrandsson, verkstjóri. —
Heimili þeixra er á Bergstaða-
stræti 9B.
40 ára
er í dag Anton Eyvindsson,
brunavörður.
Lanst embætti.
Héraðslæknisembættið í Fljóts-
dalshéraði hefir verið auglýst laust
til umsóknar frá 1. júlí næstkom-
andi.
Löggiltir cndurskoðendur.
Samkvæmt lögum nr. 9, 15. júní
1926 hafa eftirgreindir menn ver-
ið löggiltir endurskoðendur: Björn
F. . Árnason. Jón Guðmundsson,
Jón Sivertsen, G. E. Nielsen og
Franz A. Andersen.
E.s. Brúarfoss
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
London. A meðal farþega voru:
Richard Thors framkvæmdarstjóri
og frú, Eiríkur Leifsson, Leifur
Þorlcifsson, Guðfinna Guðmunds-
dóttir og ungfrú Nielsen.
G. s. Island
kom i gærkveldi að vestán og
norðan.
E.s. Goðafoss
kom í morgun snemma frá út-
löndum.
Höfnin.
Kári Sölmundarson kom inn í
gær með brotna rindu. — Tveir
frakkneskir botnvörpimgar komu
gær til þess að taka kol og salt.
Bifreiðaskoðun.
Bifreiðir þær, í Reykjavík og
nágrenni, sem ekki hafa verið skoð-
aðar á þessu ári, en eru í notkun,
ber a'Ö koma með til skoðunar að
Arnarhváli fyrir næstu mánaða-
mót. Skoðun fer fram daglega kl.
1—6 síðdegis.
Guðmundur Friðjónsson
skáld frá Sandi endurtekur er-
indi sitt „Nesjamenska og stiga-
menska" í Kaupþingssalnum í dag
kl. 6. — Erindi þetta hefir vakið
mikla athygli. Verður það nú flutt
hið þriðja sinni og þarf ekki að
efa, að húsfyllir verður.
Nýja Bíó
sýnir í kveld kvikmyndina
„Hjálp! Ahlaup!“ — Er þetta
þýsk lcynilögreglumyíid. sem sýnir
hverjar eru starfsaðferðir lögregl-
unnar í Berlín. Aðalhlutverk leika
Hans Stúwe, Hans Brausewetter
o. fl. Krikm. verður sýnd kl. 7 á
alþýðusýningu, og kl. 9. — Kl. 5
verður lcvikm. „Húrra krakki!“
sýnd á barnasýningu.
Gamla Bíó
sýnir i kveld kl. 9 kvikm. „Fóst-
urbarnið". Aðalhlutverk leika Paul
Lukas, Dorothy Jordan og Charles
Ruggles, sá hinn sami, sem lék að-
alhlutverkið í kvikm. „Frænka
Charles", er sýnd var nýlega. —
Kvikm. „Dygð og synd“ verður
sýnd á alþýðusýningu kl. 7 í síð-
asta sinn, en á barnasýningu kl. 5
verður sýnd krikm. „Æfintýri
Huck Finns", sem gerð er sarnkv.
skáldsögu eítir Mark Twain.
Alþýðufræðsla Guðspekifélagsins.
Martha Kalman flytur þrjú sam-
stæð erindi, i dag og tvo næstk.
sunnudaga, um hina innri hlið til-
verunnar (1. Áhrif náttúrunnar á
oss. 2. Álfar og náttúruandar.
3. Devar og englar). Erindin hefj-
ast kl. 3 í húsi félagsins rið Ing-
ólfsstræti. Allir velkomnir.
Náttúrufræðifélagið
hefir samkomu mánudag 27. þ.
m. kl. 8% síðd. í náttúrusögubekk
Mentaskólans.
Sjónxannastofaxx.
Sanxkoma í dag í Varöarhús-
inu ld. 6. — Al-lir velkomnir.
Bethanía.
I dag verður sambænarstund kl.
2 e. h. Smámeyjadeildin hefir
fund kl. 3%. Almenn samkoma kl.
8y%. S. Á. Gíslason talar. Allir vel-
komnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Vatnsstíg 3. Samkomur í dag.
Fyrir trúaða kl. 10 f. h. Fvrir börn
kl. 2 e. h. Almenn samkoma kl. 8
e. h.
Áheit á Strandarkirkju.
afhent Vísi: 5 kr. frá S.
Ctvarpið.
10,40 Veðurfregnir.
11,00 Messa í dónxkirkjunni.
(Sira Sigurgeir Sigurðs-
son). *
13,20 Fyrirlestur Búnaðarfél.
íslands.
i 15,30 Miðdegisútvarp. Erindi:
Alþýðu friðarhreyfingin,
I. (Inga L. Lárusdóttir).
Tónleikar.
18,45 Barnatími. (Kórsöngur
barna).
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Grammófónsöngur.
Lög úr óperum eftir Ver-
di: Kvartet og kvintet úr
„Grimuballinu“. Terset
úr „I Lombardi“. Kvartet
xir „Rigoletto“.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Erindi. í klaustri. (Síra
Garðar Þoi'steinsson).
21,00 Grammófóntónleikar.
Beethoven: Píanókon-
sert i Es dúr (Backhaus)
Einsöngur. Giordani:
Lög úr A drea Chenier:
Nemico Jella patria
(Giulio Frecosi). Come
un bel di maggio (Benja-
mino Gigli). Lokadúett-
inn (M. Sheridan & A.
Pertile).
Danslög til kl. 24.
Erlendar fréttir.
Tokio, 8. mars.
Ágengni Japana.
Ýmsir af mikilsm^tnustu em-
bættismönnum og stjórnmála-
mönnum landsins liafa lýst þvi
yfir, að Japanar muni aldrei
láta af liendi umráðaréttixm yf-
ir Karolinu og Marsliall-eyjum
í Kyrrahafi, en Þjóðabandalag-
ið fékk Japan þenna umráða-
rétt í hendur, nema þeir verðí
til neyddir með valdi. Eyjar
þessar eru mikilvægar frá sjó-
hernaðarlegu sjónarmiði. Opin-
ber tilkynning hefir enn ekki
komið unx þetta frá ríkisstjóm-
inni, en flotamálaráðuneytið'
hefir tilkynt, að i ágúst i sum-
ar fari fram flotaæfingar i nánd
rið eyjarnar og verði varið til
þeirra 6 miljónum yen. Ráðgert
er, að 200 herskip taki þátt í *
æfingunum, flugvélaskip, flug-
vélar og loftskip. — Eixxu af
yfirmönnuin japanska flotans
liefir lýst því yfir i blaðinu
Nichi-Niclxi, að Japan sé reiðu-
búið að leggja alt í sölurnar til
þess að halda eyjunum, enda
þótt Þjóðabandalagið hverfi að
því ráði, að láta umráðaréttinn
I í hendur Bandaríkjamánna. —
Sunxir stjórnmálamenn Japans
halda þvi fram, að i rauninni
komi þetta bandalaginu ekkert
við, því að Japan hafi fengið
umráðáréttinn i liendur samlcv.
Vei'salafi'iðarsmaningunum, áð-
' ur Þjóðabandalagið komst á fót.
Nýir sendiherrar.
Roosevelt forseti hefir, að því
er hennt er í amerískum hlöð-
um þ. 14. þ. m., útnefnt Robert
Worth Bingham ‘dómai-a, sendi-
herra Bandax'íkjanna í Bxæt-
landi. — Sendilierra Bandarikj-
anna í Fi'akklandi liefir verið
útnefndur Jesse Isidor Sti-auss.
Er lxann kunnur stjórnmála-
maður og Frakklandsvinur mik-
ill. (FB.).