Vísir - 20.04.1933, Blaðsíða 3
VISIR
j
4
i
| GleðHegs smnars
óskar Yísir öllunt
lesönc/um sínum.
i .... ............
1.0 0 F 1 =31144218 V, 33
E.T 2 - E.K
□ Edda. 59334257. Loka-
fundur. Fyrl. R.-. M.:. Atkv..1.
Listi i □ og hjá S.•. M .-. til
mánudagskv. kl. 6.
Varðarfélagið
hélt fund í fyrrakveld, eins og
auglj'st hafði veriö, og var hann
fiölmennur, enda fyrsti fundur, er
hinn nýkjörni formaður, Gunnar
E. Benediktsson lögfr. stýrði. —
Formaður skýrði frá verkaskift
ingu innan stjómarinnar og ýmsu
því, er stjórn félagsins ætlar að
láta til sín taka nú fyrst um sinu.
1 Síöan hófust fjörugar útnræSur
um mál þau, er varða þjóðina nú.
Þá voru kósnir fulltrúar fyrir fé-
lagið á landsmálafund sjálfstæðis-
manna, er hefst í fyrramálið kl.
ío. Var fundinum ekki loki'S fyr
en á miðnætti.
Barnadagurinn.
Skólabörn eru áinint um að
mæta hvert á sínu skólaleiksvæði
k!. 12,40. Lúðrasveitin Svanur að-
stoðar við skrúðgöngu barnanna í
dag. — Lúðrasveit Reykjavíkur
ieikur á AusturvelH kl. 2,15 í dag.
Sumardagurinn fyrsti og börnin.
Nú þegar sumarið er enn einu
sinni gengið í garð og menn óska
hver öðrum gleðilegs sumars, er
vert að minnast þess, að eigi verð-
ur gleðin á göfugra hátt inn í hug-
ann leidd og henni eins og í hærra
veldi lyft, en með því, að leggja
einhvern skerf fram til að búa
öðrum gleði. —• Samkvæmt enn
óskráðum lögum er sutnardagur-
inn fyrsti orðinn að degi íbarn-
anna, enda á það mjög vel við, að
sá dagur sé helgaður hinum upp-
vaxandi vorgróðri þjóðfélagsins.
t dag gefst bæjarbúum tækifæri
til þess á ýmsan hátt, að búa svo
og svo mörgum börnum holla
sumargleði. Eins og undanfarin
ár, efnir Barnavinafélagið Sumar-
gjöf á sumarsins fyrsta degi til
margvíslegrar skemtunar, sem
börnin annast sjálf um, þó hndir
stjórn fullorðins fólks sé, merki
verða höfð á boðstólum til sölu og
hin góðkunna bók Sölskin, rík af
skemtilegu og fræðandi efni, verð-
ur seld við tiltölulega vægu veröi.
En allur fer arðurinn af þessu til
þess að búa svo mörgum börnum
sem haígt er ánægjulega og heilsu-
styrkjandi sumardagadvöl í
Grænuborg, sem eins og kunnugt
er oröið, er tilvalinn vistarstaður
fyrir börn. —■ Er þess vænst, að
Reykvíkingar láti það ásannast í
dag, hve vel þeir skilja það, að
ekkert má ógert vera til þess að
efla andlegan og líkamlegan
þroska barnanna, og stuðli því
sem best að því að eftirtekjan af
fjársöfnunarstörfum barnanna í
dag verði sem drýgst.
Þ. G. Ól.
Es. Dettifoss
fer héðan á laugardagskveld um
Vestmannaeyjar til Hull og Ham-
borgar.
Es. Brúarfoss
fór héðan í gærkveldi vestur og
norður. Á meðal farþega voru: G.
Eggerz og frú, Ágúst Þórarinsson
og frú, Jóhannes Davíðsson, Hall-
* amímr
GLEÐILEGT SUMAR!
HAUKSBÚÐ.
fataliteinsttM og iihm
£®bs«»«j34 tffbu. 1300 .HeBfeiaoik § M
unnmmuuKUunuuuuunummmmn
Við endurnýjum notaðan fatnað yðar og ýmsan
húsbúnað, sem þess þarf með, fljótt, vel og ódýrt.
Talið við okkur eða símið. Við sækjum og send-
um aftur. ef óskað er. , v,- G L EÐ1LEG T SUM A R!
ur Kristjánsson og frú, Magnús
Friðriksson og frú o. m, fl.
Sjómannakveðjur.
FB. 19. apríl.
Gleðílegt sumar. Þökk fyrir vet-
urinn.
Skipsh. á Kára Sölmundarsyni.
Óskum vinum og vandamönnum
gleðilegs sumars. Þökkum vetur-
inn.
Skipverjar á Geysi. I
(jleðilegt sumar. Þökk fyrir vet-
urinn. Kveðjur.
Skipverjar á Tryggva gamla.
Bestu sumaróskir. Þökkum vet-
urinn. Kveðjur.
Skipverjar á Garðari.
Gleöilegt sumar. Þökk fyrir vet-
urinn. Kærar kveðjur.
Skipv. á Agli Skallagrímsssyni.
Gleðilegt sumar. Þökk fyrir vet-
'.írinn.
íslendingar á Euskal Erria.
Gleðilegt sumar. Þökk fyrir vet-
urinn. jgj
Skipshöfnin á Mai.
Gleðilegt suinar og þökk fyrir
veturinn
Skipshöfnin á Snorra goða.
Bestu sumaróskir. Iðikkum vet-
urinn.
Skipverjar á Max Pemberton.
Óskum vinum og vandamönnum
gleðilegs sumars. Þökkum vetur-
mn.
Skipverjar á Kóp.
A morgun
verður drogið um happdrættis-
bíl í. R. í dag er því síðasta tæki-
færið að kaupa miða; er ekki að
furða þótt margir séu „spentir“
að heyra úrslitin, því að bæði er
bíllinn ljómandi íallegur og
margra peninga virði. M.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: io kr. frá N. O.,
2 kr. gamalt áheit frá ónefndum,
5 kr. gamalt áheit frá J. Gv.,
Hafnarfirði, io kr. (ársgamalt)
frá I. O., 5 kr. írá R. og P., io
kr. frá P. T. J., io kr. frá K, I„
1 kr. frá N.
Heimatrúboð leikmanna,
Vatnsstíg 3. Almenn samkoma i
kvöld kl. 8.
1-
Danssýning Rigmor Hanson,
t Iðnó á annan páskadag, tókst
prýðisvel. Húsið var troðfult og
létu áhorfendur óspart í ljósi á-
nægju sína, enda varð að endur-
taka marga dansana. — Sérstaka
hrifningu vakti rússneskur dans,
er sex ungir menn dönsuðu ljóm-
andi vel, en frú Rigmor sjálf dans-
aði glæsilega sóló fyrir framan.
Er það alveg nýjung hér, að hún
dansar sóló um leið og margir
samdansendur, og leit það mjög
vel út. — Sama er að segja um
slæðudans, sem er dansaður á tá,
og tarantella, sem 8 ungar stúlkur
dönsuðu með miklu fjöri og ná-
kvæmni, og dansaði frú Rigrnor
sjálf með þeim. Samkvæmisdans-
arnir voru mjög vel æfðir og sam-
taka, og sama má segja um leik-
íimina. — Það mætti telja upp
margt, svo að löng grein yrði úr,
en í heild sinni má segja, að aldrei
hafi sýning betur tekist hjá frú
Rigmor Hanson, og geta ‘menn þá
imyndað sér hve afburðagóð hún
var, og má búast við nijög mik-
illi aðsókn á sunnudaginn kemur,
í Iðnó kl. 3, en þá verður skemtun-
in endurtekin. Þ.
Eimreiðin (XXXIX. árg., 1. h.)
Hefti þetta er nýlega út komið
og er efni þess sem hér segir:
„Inngangsorð“ — „Við þjóðveg-
inn — ísland 1932 (stutt yfirlit)".
„Læknavísindi nútimans". —
„Um vélaveldi“, eftir Ragnar E.
Kvaran. — „Smásögu-samkepnin“.
„Konan á klettinum", saga eftir
Stefán Jónsson. — „Syrgðu ekki“,
kvæði eítir Sigurð Gíslason. —
„Þáttur úr alheimslíffræði“, eftir
Iielga Pjeturss. — „Orkugjafar og
orkuvakar“, eftir Steingrím Matt-
hiasson. — „Eg bið þig, nótt“,
kvæði eftir Knút Þorsteinsson. —
,Dýr“, saga eftir Þóri Bergsson.
— „Launakjör og lífsbarátta“,
eftir Guðm. Árnason. — „Vindur-
inn blæs“, kvæði eftir Guðm.
Böðvarsson. — „Nokkur ljós-
myndalistaverk". — „Skáldskapur
og ástir“, eftir Árna Jakobsson. —
„Hlutafélagið Episcopo", saga eft-
ir Gabriele d’Annunzio (frh.). —-
„Frá landamærunum" — „Ritsjá“.
— Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er efnið næsta fjölþætt.
Margt er þama vel skrlfað og
læsilegt.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuná 2.—S.april
(í svigum tölur næstu viku á und-
an): Hálsbólga 48 (40). Kvefsótt
'82 (66). Kveflungnabólga 3 (o).
Gigtsótt o (1). Iðrakvef 20 (21).
Inflúensa 94 (125). Taksótt 1 (2).
Hlaupabóla 6 (3). Munnangur 2
(1). Stingsótt 2 (o). Þrimlasótt 1
(o). Mannslát 6 (8). Landlæknis-
skrifstofan. (FB.).
Útvarpið.
10.40 Veðurfregnir.
12.15 Hádegisútvarp. Sumar-
kveðjur.
14.30 Leikrit: Tengdamarama
(Frú Soffía Guðlaugs-
dóttir o. fl.).
17,00 Messa í fríkirkjunni.
Sira Árni Sigurðsson.
19.30 Veðurfregnir.
19.40 Grammófónsöngur:
Lindblad: Vorið er kom-
ið (Pétur Jónssdn). Á.
Thorsteinsson: Dalvis-
ur (Pétur .Tónsson). Á.
Thorsteinsson: Vorgvðj-
an kemur (Hreinn Páls-
son). Petscke: Vakir
aftur vor í dölum
(Landskórinn). Prins
Gustaf: Glad sásom fág-
eln (Orfei drángar).
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Ræða. (Sigurður Nor-
dal).
21,00 Tónleikar. (Útvarps-
kvartettinn).
Grammóf ónsöngur:
Sjöberg: Lög úr „Frid-
as bok“. (Daniel Hertz-
man).
Tónlistarskólinn.
21.15 Sumarkveðjur.
Veiðarfæraverslunin Geysir.
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
SOFFÍUBÚÐ.
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
Ásg. G. Gunnlaugsson.
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
Verslunin Hamborg.
tU5
æææææææææææææææææææææææææsfi
æ æ
jPR Óskum ollum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
æ
æ
FÁLKINN. æ
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
HAMAR.
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
Sláturfélag Suðui'lands.
Óskum öllum viðskiftavinum okkar
GLEÐILEGS SUMARS.
KOLASALAN S/f.
GLEÐILEGT SUMAR!
Verslun Guðj. Guðmundssonar.