Vísir - 29.07.1933, Side 3
VlSIR
Mattern og' Griffin. Frá Har-
bour Grace til Berlín, í júlí 1932
Vegalengd 3220 e. m. Flugtími
18 klst. 41 min.
Mattern. Frá New York til
Noregs, í júní 1933. Vegalengd
3640 e. m. Flugtími 25 klst. 55
mín.
Ath. Siðan listi þessi var birt-
ur i erlendum blöðum hefir
Post flogið frá Ameríku til
Þýskalands.
Vestur yfir Atlantshaí.
Koehl, Fitzmaurice og von
Huenefeld barón. Frá Berlín til
Xabrador, í mars 1928. Yega-
lengd 2125 e. m. Flugtími 34
kist 32 min.
Kingsford-Smith og 3 félagar
hans. Frá írlandi til Harlxmr
Grace, i júni 1930. Vegalengd
2100 e. m. Flugtími 32 klst.
Coste og Bellonte. Frá París
til New York. Vegalengd 3160
e. m. Flugtími 37 klst. 18. míii.
Mollison. Frá Irlandi til St.
Jolms. N. B. Vegalengd 2800 e.
m. Flugtími 30 klst. 10 mín.
Balbo og menn hans. Frá Or-
hetello til Labrador, um Norð-
ur-írland og ísland, i júli 1933.
Ath. Síðan listi þessi var birt-
ur í erlendum blöðum, hefir
Mollison og kona hans flogið
frá Wales til Coimecticut í
Bandaríkjunum. — I lista þess-
um eru ekki talin flug frá Ev-
rópu til Ameríku með viðkomu
í Grœnlandi og eru því ekki tal-
in með i listanum flugferðir
þeirra Nelsons og Smiths 1924,
er þá flugu frá Revkjavík til
Frederiksdal í Suður-Græn-
landi og þaðan til Labrador né
flugferðir von Gronau héðan til
Grænlands og þaðan áfram
vestur á bóginn.
Bæjarfréttir
s-<zr>cí
Dánarfregn.
I gær andaðist að Vifilsstöð-
um, eftir langa legu, ungfrú
Solveig J. Stefánsdóttir, rúm-
Iega tvítug að aldri, mesta
myndarstúlka og vel gefin.
Hún var hress er liún fór í hæl-
ið, og hugðu aðstandendur og
vinir, að henni mundi batna.
En það fór á aðra leið. Sjúk-
dómurinn reyndist óviðráðan-
legur og hefir nú dregið hana
til dauða.
Messað
ver'Sur í dómkirkjunni kl. io f.
h. á morgun. Síra Bjarni Jónsson
prédikar.
Hallgrímshátíðin.
Þeim, sem ætla sjóveg upp að
Saurbæ, skal á það bent, a'S burt-
faratími skipanna er auglýstur hér
í blaðinu í dag og munu þau ’fara
stundvíslega á auglýstum tíma.
Veðrið í morgun:
Hiti í Reykjavík 13 stig, ísafirði
<), Akureyri 12, SeySisfirði ix,
Vestmannaeyjum 12, Grímsey 8.
Stykkishólmi 12, Blönduósi 8,
Œiólum í HornafirSi 14, Grindavík
12, Julianehaab 10, Jan Mayen 6
stig. Skeyti vantar frá Færeyjum.
Angmagsalik, Hjaltlandi og Tyne-
mouth. Mestur hiti hér í gær 18,
rninstur 11 stig. Yfirlit: LægSir
yfir íslandi og fyrir austan land.
Horfur: Su'SvestUrland, Faxaflói:
Stinningskaldi á norSvestan í dag,
en lygnir í nótt. BjartviSri. BreiSa-
fjörSur, Vestfirðir, NorSurland:
Breytileg átt og hægviSri. Úr-
Jcomulaust ög sumstaðar léttskýj-
að. Xoröausturland, Austfirðir:
Stinningskaldi á noröan i dag, en
fygnir í nótt. Víöast bjartviöri.
Suöausturland: Breytileg átt.
Bjartviöri.
NTýtt eimskipafélag
Nýlega var stofnaö hér Eim-
skipafélagiö ísafold li.f. Stjórn
félagsins skipa þeir Thor Thors,
íorm. Þorlákur Björnsson, Gisli
Jónsson, Gunnar Guöjónsson og
Jón Kristófersson. Framkvæmdar-
stjórn og afgreiöslu annast Gunn-
ar Guöjónsson skipamiölari. Fé-
lagiö hefir keypt skip erlendis og
hafa allir skipverjar lagt fram fé
til kaupanna. Aörir hluthafar eru
h.f. Kveldúlfur, H. Benediktsson
3: Co., Gísli Jónsson og Gunnar
Guöjónsson. Jón Kristófersson
veröur skipstjóri. Fór hann utan á
Dettifossi síöast, ásamt væntanleg-
um skipverjum til þess aö sækja
hiö nýja skip, sem á aö heita
,,Edda“. Tilætlunin er, að þaö
veröi aðallega í förum milli ís-
lands og Miöjaröarhafslandanna.
,,Edda“ er 1350 smál. bygð í
Wesermúnde 1921.
Skip Eimskipafélagsins.
Selfoss er á útleið frá Siglufiröi
meö 700 smál. af síldarmjöli til
Þýskalands. Lagarfoss var á Ak-
urevri í morgim. Fer út fullfermd-
ur síldannjöli og ull.-Goðafoss var
á Akureyri í morgun. Hann fer
meö fullfermi af síld og síldai'-
mjöli til Hamborgar. Brúarfoss
fór frá Leith í gær. Dettifoss fer
frá Hamborg í dag. Gullfoss er á
leið til Kaupmannahafnar.
E.s. Esja
kom til Djúpavogs kl. 10 í
morgun.
Skemtiferðaskip
frá Frakklandi, „De Grasse“, er
væntanlegt hingað á morgun. Far-
þegar munu vera um 400 talsins og
er um helmingur þeirra íæknar.
Ferðaskrifstofau Hekla annast-
móttökurnar.
Sæsímaslitin.
Viðgerðarskipið mun væntan-
legt á stað þann, sem sæsiminn
slitnaði, i kveld eða nótt. Má þvi
vænta þess, að viögerð verði lokið
i fyrramálið eða á morgun.
M.s. Dronning Alexandrinje
fór héðan í gærkveldi áleiðis
vestur og norður.
G.s. Botnia
fer héðan í kveld áleiðis til út-
landa.
Gamla Bíó
sýnir i fyrsta sinn í kveld kvikm.
„Ólánsgreifinn“. Er það þýsk tal-
mynd i 8 þáttum. skemtileg og
fjörug. X.
Bernburg
óskár þess getið, að hann skemti
ekki með hljóðfæraleik i Reyk-
holti á morgun.
Gengið í dag.
Sterlingspund .....Kr. 22,15
Dollar .............. — 5.05%
100 ríkismörk þýsk . — 158.71
— frankar, frakkn . — 26.25
— belgur ........... — 93.00
— frankar, svissn . — 129.05
— lírur ........... ►— 35.30
— mörk, finsk.........— 9.84
— pesetar ...•— 55.87
— gyllini ...........— 269.16
— tékkósl. kr..— 19.92
— sænskar kr..— 114.41
—norskar kr........— 111.74
—danskar kr........— 100.00
Utanfararstyrkur.
Mentamálaráð hefir á fundi
24. þ. m. útlilulað styrk til náms
í erlendum háskólum, til eftir-
talinna stúdenta: 1. Til Guð-
mundar Arnlaugssonar til
stærðfræðináms. 2. Til Óskars
B. Bjarnasonar, til náms í
verksmiðjuefnafræði, 3. Til Páls
Ólafssonar til náms í bygginga-
fræði, 4. Til Sigtrvggs Klemenz-
sonar, til náms í uppeldisfræði.
(FB.).
Utvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Tónleikar.
(Útvarpstríóið).
20.30 Erindi: Kennarastéttin
og afstaða hennar til op-
inlierra mála.
(Síra Sig. Einarsson).
21,00 Fréttir.
21.30 Grammófónkórsöngur.
(Karlakórinn Sandnes
Kameraterne): Beethov-
en: Lofsöngur. Helfrid
Lambert: Det var dans
bort i váge'n. radds. Sved-
blom: Hej dunkom. Half-
dan Kjerulf: Jubilate.
Brahms: Vögguvísa.
Danslög' til kl. 24.
Kapphlaupið
frá Þingvöllum að Álafossi, sem
boðað liefir verið til og á að
fara fram 6. ágúst næstkom-
andi er hið lengsta hlaup sem
enn hefir verið háð hér á landi;
vegalengdin er ca. 40 km. —
Tveir ágætir þolhlauparar hafa
gefið sig fram til þess að taka
þátt í hlaupinu og er annar
þeirra mesti hlaupari okkar,
Magnús Guðbjömsson. Haim
hefh’ nú í 12 ár borið uppi svo
að segja öll okkar þolhlaup og
oft hefir hann verið livatastur,
en þótt svo hafi ekki verið, þá
liefir hann ávalt lialdið áfram
að keppa. Svo lítur út, sem hon-
um sé létt um lilaup , því liann
var að sjá með öllu óþjakaður
eftir þátttökuna í síðasta Ala-
fosshlaupi. Þegar hann liafði
lilaupið % af leiðinni herti hann
ferðina og alt til marks, tók sér
bað eftir lilaupið og var jægar
aflúinn.— Þeir menn, sem svo
vel eru þjálfaðir, geta léttilega
hlaupið lengri vegalengdir.
Magnús er fótstyrkur og hefir
brjóstþol mikið. — I þetta sinn
mun Magnús sýna livers hann
er megnugur. — Á vegalengd-
inni Þingvellir—-Álafoss er gott
að hlaupa, vegurinn sæmilegur
og brekkur ekki mjög erfiðar.
Þessi vegalengd er svipuð og i
Marathon-hlaupi erlendis, en
slik lilaup eru ávalt talin at-
hyglisverð. Hér í okkar litla
íþróttaheimi er þetta áreiðan-
lega athyglisverðasta íþróttaaf-
rek ársins ef alt fer að líkum. —
Það á og vel við, að þennan dag
er í fyi’sta sinn minst okkar
ágætasta íþróttajöfurs, Grettis
Ásmundarsonar. Hann var
ágætur göngugarpur og enginn
veit, hversu mikill þollilaupai’i
hann liefir verið, en það lætur
að líkum að liann liafi getað
sprett úr spori. — Það er
ánægjulegt fyrir íþróttamenn
okkar að minnast slíks kappa
sein Grettir var, með góðum
íþróttum, svo sem þolhlaupi.
— Það verður ánægja að því,
að sjá hina ágætu iþróttamenn,
sem koma til þess að taka þátt
i íþróttum á Álafossi þennan
dag.
T. A.
Dánarfregn.
—o—
Látinn er 22 f. m. vestan hafs
Björn Björnsson Ólson, Húnvetn-
ingur að ætt. Hann var fæddur
23. okt. 1866 að Finnstungu i
Húnvatnssýslu og voru foreldrar
hans Björn yngri Ólafsson á Auð-
ólfsstöðum í Langadal og' Anna
Lilja Jóhannsdóttir frá Bríina-
stöðum. Björn var einn af 13
systkinum, er upp komust. Þessi
eru enn á lífi: Sigvaldi, bóndi
á Skeggstöðum í Svartárdal. Ól-
afur bóndi á Árbakka á Skag'a-
strönd, Arnljótur að Gimli, Man.
og Ingibjörg, ekkja Benedikts
Frímannssonar, búsett i Banda-
rikjunum. Björn fluttist vestur
1887. Var fyrst á vegum Skafta
Brvnjólfssonar og gekk í alþýðu-
skólann i Mountain. Að því námi
loknu fór hann í ríkisháskólann í
Grand Forks, og lauk þar kenn-
araprófi. Árið 1895 gekk hami i
verslunarskóla í Winnipeg, en
stofnaði síðan verslun á Gimli i fé-
lagi við tvo menn aðra.
Björn sat lengi i útgáfunefnd
Heimskringlu og hafði verið hinn
ótrauðasti stuðningsmaður blaðs-
ins.
Hann var kvæntur Guðrúnu
Sólmundsdóttur og eignuðust þau
5 böm, er fullorðinsaldri .náðu
Björn heitinn var gáfaður maður
og talinn hinn nýtasti í hópi ís-
lendinga vestra.
Baráttan við inflúensnna
London i júlí. FB.
Það ætti að nægja til þess að
sannfæra hvern mann um hið gíf-
urlega manntjón, sem orðið hefir
?f völdum inflúensunnar, að í
inflúensufaraldinum 1918—1920
létust 50% fleiri en féllu í heims-
styrjöldinni 1914—1918. Það kem-
ur varla svo fyrir, að ekki sé um
meiri eða minni inflúensufarald-
ur aö ræða einhversstaðar og
manntjónið er mikið á ári hverju
Því miður hefir læknisvisindunum
enn ekki tekist að' finna ráð til
þess að hefta útbreiðslu þessarar
veiki eða stemma stigu fyrir henni,
en hinsvegar, samkvæmt skýrsl-
uni' „The British Medical Rese-
arch Council," um mikla fram-
för að ræða i baráttunni gegn in-
fiúensunni. Herferð visindanna
gegn þessari veiki hóf þýski pró-
essorinn Pfeiffer 1892. Hann fann
inílúensu-bakteríuna. Nú hafa
þrír enskir læknar komist lengra
áleiðis. Þeim hefir tekist að gera
hreysiketti (ferrets) veika af in-
flúensu og framleiða „blóðseruirí',
sem algerlega er örugt gegn því
að þessi dýr táki veikina. „The
Lancet" læknablaðið fræga, segir
að það sé ekki hægt áð telja þessa
framför of mikils virði.
(Úr blaðatilk. Bretastjórnar).
Flngleiliangrar Rússa.
Moskwa.í júlí.
United Press. - FB.
Rússneskir flugmenn hafa i
sumar farið í hættulegar flugferð-
ir, sem margar eru hinar frækileg-
ustu, þótt heimsblöðunum hafi
eigi orðið eins tíðrætt um þær og
flug Matterns og fleiri flugmanna,
sem flogið hafa 'yfir rússnesk
lönd. Um sarna leyti og Mattern
var á ferðinni flaug rússneski
flugmaðurinn Anatole Alexiev frá
Sebastojx)! við Svartahaí til Igarka
við Yeneseifljót, þar sem það renn-
ur í Norður-íshafið. Flugleiðin er
10.000 kilómetrar og var Alexier
13 daga á leiðinni og gekk ágæt-
lega enda þótt hann yrði — frá því
er hami lagði af stað frá Krasnoy-
arsk — að fljúga yfir svæði sem
enginn hafði flogið yfir áður.
Alexiev er einn af færustu flug-
mönnum Rússa og hefir farið í
sjö hættuleg flug norður á bóginn,
sem öll hafa gengið slvsalaust.
Einnig flaug rússneski flugmaöur-
inn Levanevsky í sumar frá Seba-
stopol til Khabarovsk, en þaðan
ætlaði hann að fljúg'a nýjar leiðir
alla leið til Wrangel eyju. Meðal
annars á hann að rannsaka skil-
yrðin fyrir ísbrjótinn Cheluiskin
sem á að senda í athuganaferö frá
Arkangel austur með Sibiríu-
ströndum alla leið til Kyrrahafs.
— Þótt ráðstjórnin leyfi flugmönn-
um sínum að fljúga yfir hin hættu-
legu svæði í norðaustur-Sibiríu fá
erlendir flugmenn ekki leyfi til
þess, heldur verða þeir að fara
hina öruggari leið um Khabarovsk.
Erlendar fréttir.
—o---
London í júlí. FB.
Frá Bretlandi.
All ítarlegar skýrslur hafa ný-
lega veriðl birtar um atvinnuauka-
ingu og iðnaðarframleiðslu.
Skýrslur þessar leiða í Ijós, að iðn-
aðarframleiðslan er mikið að auk-
ast jafnframt og atvinnuleysið
minkar. Eftirtektarverðar skýrsl-
.ur um þessi mál hafa verið birtar
frá annari hlið, Samkvæmt þeim
'tóku til starfa árið sem leið 646
nýjar verksmiðjur, sem hver um
sig veitir yfir 25 manns atvinnu.
Alls höfðu atvinnu í verksmiðjum
þessum í lok aprílmánaðar síðast-
liðins 44.750 manns. Hér eru þó
aðeins taldar verksmiðjur, þar sexu
vöru-r eru framleiddar, t. d. ekki
þvottahús, nýjar viðgerðarstofur
og slíkar stofnanir sem eitinig
hafa stuðlað að því að fleiri fengi
atvinnu. Skýrslurnar leiða enn-
fremur í ljós að það er skakt, að
útlendingar eigi flestar nýju verk-
smiðjurnar. Af framannefndum
646 verksmiðjum voru aðeins 12
eign útlendinga að nokkru lej'ti,
'hinar eign breskra manna að öllu
leyti. Flestar nýju verksmiðjumar
voru reistar í eða í nánd við Lond-
on eða 251, 115 í Lancashiré og 96
í Midlands.
(Úr blaðatilk. Bretastjórnar).
Rómaboi'g í júlí.
United Press. - FB,
Frá Ítalíu.
Svipuð áform viðvíkjandi eftir-
hti með iðnaðarframleiðslunni og
Roosevelt forseti er að koma í
framkvæmd í Bandaríkjunum, eru
þegar framkvæmd í Ítalíu af
Fascista-stjórninni. Ríkisstjómin í
ítalíu heíir ekki neinn iðnrekstur
með höndum, en iðnaðurinn í land-
inu er því opinbera háður að ýmsu
leyti. Iðnaðurinn er þannig rekinn,
að eigendurnir sjálfir fá gróðanu
eða bera tapið, en hið opinbera
hefir víðtæk afskifti af því hve
mikil iðnaðarstarfrækslan er. T. d.
hefir ekkert nýtt iðnaðarfyrirtæki
um misseris skeið getað byrjað
starfrækslu án levfis stjórnarinnar.
Tilgangur ríkisstjórnarinnar er að
koma í veg fyrir, að fé og orku sé
varið til fyrirtækja sem ekki er
vissa fyrir að geti borið sig veh
Allar iðngreinirnar í landinu að
kalla má eru háðar ríkisstjórninni
ao þessu leyti. Því fer og fjarri
að afskiftum ríkisstjórnarinnar sé